Morgunblaðið - 17.03.1999, Qupperneq 22

Morgunblaðið - 17.03.1999, Qupperneq 22
22 MIÐVIKUDAGUR 17. MARZ 1999 ERLENT MORGUNBLAÐIÐ Ólga á þingi Tyrklands og öryggisviðbúnaður aukinn vegna hrinu sprengjutilræða Ecevit reynir að bjarga stjórninni Ankara. Reuters. Reuters TYRKNESKIR lögreglumenn handtaka námskonu nálægt Istanbúl-há- skóla þar sem vinstrisinnaðir námsmenn komu saman í gær til að minn- ast sprengjutilræðis sem varð sjö vinstrimömium að bana 1978. Lögregl an réðst á námsmennina með kylfum og handtók um hundrað þeiira. YFIRVÖLD í Istanbúl tilkynntu í gær herta öryggisgæslu í borginni vegna hrinu sprengjutilræða að undanförnu og Bulent Ecevit, for- sætisráðherra Tyi'klands, reyndi að verjast atlögu að stjórninni á þing- inu og tryggja að hægt yrði að efna til kosninga í apríl eins og ráðgert hefur verið. Þingið hélt í gær aukafund til að ræða m.a. tillögu um vítur á forsæt- isráðherrann og stærsti flokkurinn, íslamski dyggðaflokkurinn, kvaðst ætla að greiða atkvæði með tillög- unni fallist Ecevit ekki á breytingar á lögum sem hafa verið notuð til að ákæra stjórnmálaleiðtoga heittrú- aðra múslima. Sprengjutilræðin og ólga í stjórn- málum landsins hafa einnig valdið titringi á fjármálamörkuðunum, sem höfðu rétt úr kútnum vikuna áður þegar líklegt þótti að kosning- amar færu fram í apríl og að Ecevit færi með sigur af hólmi. Gengi verð- bréfa lækkaði um 2% vegna ólgunn- ar á þinginu í gær. Stuðningsmenn Öcalans sakaðir um tilræðin Erol Cakir, héraðsstjóri í Istan- búl, fyrirskipaði herta öryggisgæslu í kvikmyndahúsum, leikhúsum, moskum, kirkjum, verslunarmið- stöðvum, hótelum, börum, veitinga- húsum og íþróttaleikvöngum borg- Loftárásir í Norður- Irak Istanbúl. Reuters. BANDARÍSKAR F-15 orrustu- þotur gerðu í gær loftárásir á loftvarnarstöðvar á flugbanns- svæðinu í Norður-írak. Talsmað- ur bandaríska flughersins á Ineir- lik-herflugvellinum í Tyrklandi sagði að þoturnar hefðu verið miðaðar út af íraska hernum og að árásirnar hefðu verið í sjálfs- vörn. Stjórnvöld í Bagdad sögðu að bandarískar vélar hefðu gert árásir á hernaðarleg og borgara- leg skotmörk í Norður-írak. Sögðu talsmenn stjórnarinnar jafnframt að íraski herinn hefði skotið að F-15 vélunum og stökkt þeim á flótta. Arásirnar í gær eru í röð end- urtekinna árása á írösk skotmörk síðan loftárásir Bandaríkjamanna og Breta hófust 15. desember sl. arinnar. Nokkrum dögum áður höfðu 13 manns beðið bana í bensín- sprengjuárás á verslun í borginni. Cakir sagði að alls hefðu verið gerðar 300 sprengjuárásir í Istan- búl frá því Kúrdaleiðtoginn Abdullah Öcalan var handtekinn í Kenýa og fluttur í fangelsi í Tyrk- landi þai’ sem hann bíður réttar- halda vegna ákæru um föðurlands- svik. Cakir sagði að ljóst væri að að- skilnaðarhreyfmg Öcalans, Verka- mannaflokkur Kúrdistans (PKK), hefði staðið fyrir tilræðunum. Cakir kynnti einnig veggspjöld sem hengd verða upp til að hvetja unga Kúrda til að segja skilið við hreyfíngu Öcalans, sem Tyrkir segja að hafí orðið 29.000 manns að bana í sjálfstæðisbaráttu sinni síð- ustu fjórtán árin. „Látið ekki nota ykkur!“ stóð á einu veggspjald- anna. Tyrkneskir embættismenn sögðu að sjö skæruliðar í PKK hefðu fallið í átökum í austurhluta Tyrklands síðustu tvo daga. Óánægðir þingmenn gera uppreisn Vinsældir Ecevits forsætisráð- herra stórjukust eftir handtöku Öcalans nokkrum vikum eftir að hann tók við embættinu til bráða- birgða fram að kosningum 18. apríl. Gengi verðbréfa hækkaði þar sem Mandela í Danmörku NELSON Mandela, forseti Suður- Afríku, segir lýðræði í heimalandi sínu enn vera í bernsku og langt í það að réttlæti ríki í samfélaginu. Þessi orð lét hann falla í hádegis- verði í boði Pouls Nyrups Rasmus- sens, forsætisráðherra Danmerk- ur, í Kaupmannahöfn í gær. Mandela er á ferðalagi til sex landa í Norður-Evrópu, Hollands, Lúxemborgar, Finnlands, Noregs og Svíþjóðar, auk Danmerkur, sem hann heimsótti fyrst Norður- landa. Kjörtímabili Nelsons Mandela lýkur í júní næst.komandi en hann var kjörinn forseti Suður-Afríku í fyrstu lýðræðislegu kosningunum eftir að aðskilnaður svartra og hvítra landsmanna var lagður af árið 1994. Á myndinni sést Mand- ela ásamt Graca Machel, eigin- konu sinni, Poul Nyrup Rasmus- sen, forsætisráðherra Danmerkur, og eiginkona hans Lone Dybkjær, fyrir utan Kristjánsborgarhöll. talið var að Ecevit myndi fara með sigur af hólmi og mynda sam- steypustjórn með miðju- og hægi'i- mönnum í Föðurlandsflokknum. Líkurnar á því að kosningarnar fari fram á tilsettum tíma hafa hins vegar dvínað vegna ólgunnar á þinginu sem hófst með uppreisn 90 þingmanna, er aðhyllast veraldlegt stjórnkerfi og voru óánægðir með að vera ekki á framboðslistum flokka sinna og vilja að kosningun- um verði frestað. Islamski dyggða- flokkurinn, sem er með 144 þing- menn af 550, gekk seinna til liðs við uppreisnarmennina og lýsti yfir stuðningi við tillöguna um vítur á forsætisráðherrann. Helsta mark- mið flokksins er að knýja fram lagabreytingar til að hægt verði að aflétta banni við stjórnmálaþátt- töku Neemettins Erbakans, fyrr- verandi leiðtoga flokks heittrúaðra múslima. Flokkurinn vill einnig að STJÓRNVÖLD í Ekvador reyndu í gær að kveða niður and- stöðu við neyðaráætlun sína í efnahagsmálum sem hefur orðið til þess að verð eldsneytis hefur hækkað um rúman helming. Margir bankar landsins hafa einnig fryst innstæður viðskipta- vina sinna meðan reynt er að leysa alvarlegasta fjármálavanda landsins í áratugi. Jamil Mahud forseti ræddi í gær við leiðtoga stjórnarandstöð- unnar, sem er í meirihluta á þing- inu, til að freista þess að fá þá til að samþykkja brýnar efnahags- umbætur. Vinsældir forsetans hafa snarminnkað vegna fjár- málavandans og hafa aldrei verið minni. Aðeins 16% aðspurðra sögðust ánægð með störf forset- ans í nýlegri skoðanakönnun. Leigubílstjórar og strætis- vagnastjórar hafa lokað helstu vegum í borgum landsins til að mótmæla hækkun á bensínverði. Skólum var lokað vegna mót- mælaaðgerðanna og starfsemi margra fyrirtækja hefur lamast þar sem starfsmenn hafa ekki komist til vinnu. „Fyrst og fremst pólitxskt vandamál" Rúmur helmingur bankainn- stæða landsins hefur verið fryst- ur í tæpt ár og Mahud greip til þess ráðs að loka öllum bönkun- um alla síðustu viku til að verja þingið afnemi lög sem notuð hafa verið til að ákæra íslamska stjórn- málamenn. Samþykki 276 þingmenn tillög- una verður Ecevit að segja af sér. Lokaatkvæðagreiðslan um hana fer fram eftir tíu daga samþykki þingið að taka hana fyrir. Neyðist Ecevit til að segja af sér kemur til kasta Suleymans Dem- irels forseta. Hann gæti skipað Ecevit aftur í embættið, bannað að ný frumvörp yrðu lögð fram á þing- inu og það yrði líklega til þess að kosningamar gætu farið fram í apr- fl. Forsetinn lét hins vegar í ljós þá skoðun nýlega að best væri að fresta kosningunum þar til á næsta ári til að hægt yrði að breyta kosn- ingalöggjöfinni og hann kann því að skipa annan forsætisráðherra sem gæti beitt sér fyrir því að kosning- unum yi'ði frestað. gjaldmiðil landsins og banka sem ramba á barmi gjaldþrots. Bank- arnir voru opnaðir að nýju á mánudag og það varð óvænt til þess að innstæðurnar jukust og gengi gjaldmiðilsins hækkaði um 25%. „Þetta er ekki lengur fjármála- og efnahagsvandi og er nú fyrst og fremst pólitískt vandamál," sagði Carlos Larreategui, for- maður samtaka einkabanka landsins. Sendiherra Ekvadors í Was- hington hvatti til þess að landið fengi alþjóðlega fjárhagsaðstoð og varaði við því að lýðræðið væri í mikilli hættu. Tveir þriðju íbúanna eru undir fátæktarmörk- um og óttast er að kjör þeirra versni enn frekar. Verðbólgan er nú þegar sú mesta í Rómönsku Ameríku og talið er að hún aukist á árinu. Spáð er miklum efna- hagssamdrætti vegna fyrirhug- aðra sparnaðaraðgerða stjói'nar- innar til að minnka fjárlagahall- ann. Svipaðar mótmælaaðgerðir vegna óvinsælla efnahagsumbóta urðu þáverandi forseta, Abdala Bucai-am, að falli. Bucaram, sem kallaði sig „Brjálæðinginn", þótti sérvitur og þingið vék honum frá á þeirri forsendu að hann væri andlega vanhæfur til að gegna embættinu. Fjórir menn hafa gegnt forsetaembættinu síðustu þrjú árin. Gagnrýni Kínverja tilefnislaus UTANRÍKISRÁDHERRA Japans, Masahiko Komura, sagði gagnrýni Kína á gagneld- flaugakei-fi Japana og Banda- ríkjamanna vera tilefnislausa, af því er japanskt dagblað greindi frá í gær. Hann sagði kerfíð einungis vera í þágu varnarmála og að Taívan myndi ekki taka þátt í þróun þess, eins og Kínverjar óttast. Yfirlýsing Komura kemur í kjölfar ummæla Zhu Rongji, forsætisráðheiTa Kína, þar sem hann varaði Bandaríkin við að þróa gagneldflaugakerí- ið í Asíu, þó einkum ef Taívan ætti aðild að því. Lögreglan í New York gagnrýnd LÖGREGLAN í New York hefur upp á síðkastið sætt harðri gagnrýni vegna fram- ferðis gagnvart blökkumönn- um. Niðurstöður nýlegrar skoðanakönnunar sem fram- kvæmd var af New York Times sýna að einungis um 25% af íbúum New York telja að lögreglan komi eins fram við hvíta og hún gerir við blökkumenn. Skoðanakönnun- in var framkvæmd á sama tíma og dauðsfall Amadou Diallo, innflytjanda frá Afríku, er í há- mæli í New York. Diallo, sem var 22 ára, var skotinn til bana af fjórum hvítum lögreglu- mönnum í Bronx. Hann hlaut nítján skotsár, en lögreglu- mennirnir hleyptu af 41 skoti til að hæfa hann. Diallo var óvopnaður og hafði aldrei kom- ist í kast við lögin. Átök í Eþíóp- íu og Erítreu ERÍTREUMENN eyðilögðu 25 skriðdreka í gagnárás gegn Eþíópíumönnum í gær, að því er Yermane Gebremeskel, tals- maður Erítreuforseta, sagði í samtali við fréttastofu Reuters. Gebremeskel sagði að með þessu hefðu Erítreumenn eyði- lagt samtals um 44 skriðdreka frá því á sunnudag, en landamæi-aerjur landanna brutust út á ný 6. febrúar, eftir átta mánaða vopnahlé. Réttarhöld yfír Rauðu kmerunum SAMEINUÐU þjóðirnar, SÞ, hafa lýst yfir vilja til að aðstoða við skipulag á réttarhöldum yf- ir leiðtogum Rauðu kmeranna í Kambódíu en þó aðeins að því tilskildu að ythvöld þar tryggi að réttarhöldin vei'ði í sam- ræmi við alþjóðalög. Yfn-völd í Kambódíu sögðust í síðustu viku ekki vilja að leiðtogarnir, sem urðu um 1,7 milljón manns að bana á árunum 1975-79, verði leiddir fyi'ir alþjóðlegan dómstól, eins og SÞ höfðu lagt til. Þess í stað vilja þau að rétt- arhöldin fari fram fyrir kam- bódískum dómstól, með er- lendri aðstoð. Umræður um hvernig réttarhöldunum skuli hagað, standa enn yfir. Reuters Versti fjármálavandi Ekvadors í áratugi Stjórnvöld reyna að knýja fram neyðaráætlun Quito. Reuters.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.