Morgunblaðið - 17.03.1999, Síða 26
26 MIÐVIKUDAGUR 17. MARZ 1999
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ
Með vaxlit á veggi
SPRING GREEN af sýningu ívars Valgarðssonar
í Ingólfsstræti 8.
MYJNTDLIST
Ingðlfsstræti 8
VAXLITAMYNDIR
ÍVAR VALGARÐSSON
Sýningin er opin frá 14-18 frá
fimmtudegi til sunnudags og lýkur
21. mars.
MARGIR þeirra íslensku lista-
manna sem stunduðu nám undir
lok áttunda áratugarins tileink-
uðu sér þá naumhyggjulist grund-
vallaða í konseptlist sem um þær
mundir var að ryðja sér til rúms í
Evrópu, en fáir jafnrækilega og
Ivar Valgarðsson. List af þessu
tagi er nú ekki lengur nýstárleg
heldur er orðin viðurkennd og
akademísk, jafnvel svo að yngri
listamenn hafa löngu hafið upp-
reisn gegn henni, en hún hefur
líka þróað af sér ýmsa nýja anga
pg nýjar leiðir í framsetningu. A
Islandi hefur þessi list, eins og öll
önnur sem hingað hefur borist er-
lendis frá, fengið á sig ljóðrænni
blæ en annars staðar tíðkast - af
einhverjum óútskýranlegum
ástæðum þróast jafnvel ópersónu-
legustu naumhyggjustílbrögð upp
í ljóðrænu í höndum Islendinga.
Naumhyggjulist grundvölluð í
konseptlist á sér flóknar rætur og
jafnvel má segja að hún marki
samruna flestra þeirra tilhneig-
inga sem hæst hafa risið í lista-
sögu aldarinnar og margt af
þessu má greina í verkum Ivars.
Hann nýtir gjarnan fundna eða
fjöldaframleidda hluti eins og
Duehamp hafði frumkvæði að
strax á öðrum áratug aldarinnar.
Þá nýtir hann gjarnan hversdags-
legan eða „ómerkilegan" efnivið
líkt og tíðkaðist í arte povera á
Italíu á sjöunda áratugnum. Verk
hans bera sterkan keim af knöpp-
um formalisma sem rekja má allt
aftur til de Stijl og Bauhaus-skól-
ans en náði kannskj. hápunkti í
verkum minimalista fyrir um
þrjátíu árum og loks má yfirleitt
finna í þeim einhverja merkingar-
lega nýbreytni, útúrsnúning eða
húmor eins og einkennandi er fyr-
ir konsept- eða hugmyndalist.
Ættfærsla af þessu tagi segir
auðvitað aldrei söguna alia um
verk listamanns og gerir lítið
meira en að setja hann í eitthvert
óljóst samhengi við það sem aðrir
hafa gert og eru að gera. Hins veg-
ar er slíkt réttlætanlegt þar sem
sýning Ivars í Ingólfsstræti 8 er
annars vegar því þar sést óvenju-
vel hvernig hægt er að vefa þessa
ólíku þræði saman í eina sterka og
einfalda heild. Stærstu verkin á
sýningunni eru unnin beint á veggi
sýningarsalarins með Crayola-
vaxlitum, þeim sömu og börnum
hafa verið fengnir til að lita með
um áratuga skeið. Þessir hvers-
dagslegu litir eru fátæklegur
grundvöllur að málverkum og er
hætt við að hefðbundnari málurum
þætti þetta hálfgert guðlast, næst-
um eins og að ætla að búa til mál-
verk með bírópenna. (Reyndar
hefur að minnsta kosti einn ís-
lenskur listamaður gert tilraunir
með bírópennamálverk og var
næstum rekinn úr skóla fyrir upp-
átækið.) Myndirnar sem Ivar mál-
ar á veggina eru einfaldir ferning-
ar, hver í einum lit, en þar endur-
speglast formalisminn og naum-
hyggjan sem áður var nefnd og
sést reyndar líka í nafngiftum
myndanna sem fylgja nöfnum lit-
anna eins og þau eru skráð af
framleiðandanum í litakassanum:
„Spring Green“, „Sky Blue“, og
svo framvegis. Loks gefur Ivar
sýningunni allri nýja og „konsept-
legri“ vídd með því að tileinka sýn-
inguna bömum „og þvi sem ég á
sameiginlegt með þeim“, eins og
hann segir í sýningarskrá.
Sýning Ivars í Ingólfsstræti er
ekki beinlínis sláandi eða áhrifa-
mikil. Þvert á móti er hún hógvær,
hlutlaus og næstum hversdagslega
einföld. En einmitt þess vegna
kveikir hún sterk hugrenninga-
tengsl og verður að teljast gott
framlag frá hendi listamannsins.
Jón Proppé
SýiiingTim lýkur
Hafnarborg
NORRÆNNI samsýningu, sýn-
ingu sjö norrænna listamanna
sem kalla sig Non art group,
lýkur mánudaginn 22. mars.
Listamennirnir, sem eiga
verk á sýningunni, eru: Helene
Stigel arkitekt frá Danmörku
sýnir skúlptúrverk; Peraxel
Persson frá Svíþjóð sýnir ljós-
myndir, Pia Mesterton Graae
frá Danmörku og Heikki Maki-
Tuuri frá Finnlandi sýna mál-
verk; Magdalena Margrét
Kjartansdóttir sýnir grafíkverk;
Lars Munthe frá Danmörku er
grafíklistamaður og Seppo J.
Tanninen frá Finnlandi sýnir
geómetrísk verk.
Sýningin er opin alla daga
nema þriðjudaga frá kl. 12-18.
Þrennir
gítartónleik-
ar á N-Aust-
urlandi
GITARLEIKARINN Kristinn H.
Arnason heldur þrenna tónleika á
N-Austurlandi. Fyrstu tónleikarn-
ir verða á vegum tónlistarfélags
Raufarhafnar í Raufarhafnar-
kirkju í dag, miðvikudag kl. 20.30.
Á morgun, fimmtudag, í safnahús-
inu á Húsavík kl. 20.30, á vegum
Tónlistarskóla Húsavíkur. Jafn-
framt heldur Kristinn námskeið í
skólanum. Þriðju tónleikarnir
verða í listasafninu í Listagili á
Akureyri laugardaginn 20. mars
kl. 16 og verður einnig námskeið
við tónlistarskólann.
Á efnisskrá tónleikanna verða
m.a. verk eftir Bach, Jón Ásgeirs-
son og Albeniz.
Að loknu burtfárarprófí árið
1983 stundaði Kristinn framhalds-
nám í London, New York og
Alicante á Spáni. Árið 1987 var
hann valinn úr hópi hundruð um-
sækjenda til að taka þátt í síðasta
námskeiði Andrés Segovia. Krist-
inn hefur haldið tónleika, m.a. á
Ítalíu, Bretlandi og Bandríkjun-
um. Komið fram sem einleikari
KRISTINN H. Árnason
gítarleikari.
með Kammersveit Reykjavíkur og
haldið tónleika á vegum Styrktar-
félags Islensku óperunnar. Þijár
geislaplötur hafa komið út með
leik Kristins og hlaut plata hans _
með verkum eftir Sor og Ponce Is-
lensku tónlistarverðlaunin sem
klassísk plata ársins 1996.
THOR Vilhjálmsson rithöfundur, Einar Sigurðsson Landsbókavörð-
ur og Ragnar Borg, fyrrverandi aðalræðismaður Itahu á íslandi.
Itölsk bókagjöf til
Landsbókasafns
LANDSBÓKASAFNI íslands, Há-
skólabókasafni, barst nýlega bóka-
gjöf frá Italíu. Bækurnar, 23 talsins,
fjalla um fornleifarannsóknir á San
Severino svæðinu og í Róm, um fyr-
irboða eldsumbrota og jarðskjálfta
og um tvö listasöfn. Gefandinn er dr.
Vittorio Marchitto, félagi í Lions-
klúbbnum í San Severo á Italíu.
Dr. Marchitto fól Thor Vilhjálms-
syni rithöfundi og Ragnari Borg,
fyiTverandi aðalræðismanni Ítalíu á
Islandi og félagi í Lionsklúbbnum
Baldri, að afhenda bækurnar. Af-
hendingin fór fram í janúar sl. er
Björn Bjarnason menntamálaráð-
herra undirritaði menningarsátt-
mála milli Italíu og Islands.
30 ára reynsla
Sólvarnargler
Eldvarnargler