Morgunblaðið - 17.03.1999, Page 36
MORGUNBLAÐIÐ
36 MIÐVIKUDAGUR 17. MARZ 1999
•£---------------------------
Flug og
hræðsla
„Þegar best lætur er flug sérstakur hugsun-
arháttur. Því er það, að þegar fólk hefur
einu sinni yfirgefið yfirborð jarðar, þá á
það eiginlega aldrei aflurkvœmt. En af
sömu ástœðum eiga fullorðnir svo oft
erfitt með að taka stökkið. “
F
lugvélum er eðlilegt
að fljúga. Þegar
flugvél hrapar, þá
hefur eitthvað óeðli-
legt gerst. Þess
vegna er það fréttnæmt að flug-
vél hrapi, jafnvel þótt enginn
farist eða slasist.
En mönnum er ekki eðlilegt
að fljúga. Þess vegna eru þeir
sem taka ekki mark á neinu
nema eigin tilfínningum yfh’leitt
flughræddir. Til að þora að
fljúga þarf maður að taka mark
á flugvélinni - treysta henni og
skilja að henni er eðlilegt að
„synda um loftið“, eins og
bandaríski rithöfundurinn og
flugmaðurinn
VIÐHORF William
_—— Langewiesche
Eftir Kristján kemst að orði
G. Arngrimsson j nýrri bók>
Inside the
Sky, eða Innan í himninum.
Meginþema Langewiesches í
bókinni er útsýnið - það að sjá
mannheima ofan frá, og hvemig
það getur breytt viðhorfi manns
til lífsins og tilverunnar. Hann
segir bókina vera sögu um leið-
angur til staðar sem er kannski
ekki nema nokkur hundrað
metra fyrir ofan heimili manns,
en er eigi að síður jafn framandi
og spennandi og fjarlægustu
heimshorn. Þessi staður er him-
inninn. „Vélrænir vængir gera
okkur kleift að fljúga, en það er
með huganum sem við leggjum
himininn undir okkur,“ skrifar
Langewiesche.
En honum er líka hugleikið
það sem vikið var að hér í upp-
hafí. Að manni er í rauninni ekki
eðlilegt að hafa þetta útsýni á
heiminn, manninum sjálfum er
ekki eðlilegt að synda innan í
himninum. Enda hefur það
reynst mörgum erfitt.
Langewiesche kann fjöldann all-
an af sögum að segja um hin
undarlegustu viðbrögð fólks við
flugi og því að sjá veröldina ofan
frá. Þegar hann byrjaði að
fljúga með farþega tók hann eft-
ir því að sumir vildu alls ekki
horfa út. Aðrir vora foivitnir.
„Mér fannst þetta eins og að
fylgjast með steinaldarmönnum
sem sjá ljósmynd í fyrsta sinn.
Fyrst tók það fólkið dágóða
stund að venjast hlutföllunum,
og svo varð það sífellt hugfangn-
ara þegar það gat litið framhjá
galdrinum og farið að skoða það
sem myndin var af.“
Þetta var svolítið auðveldara
fyrir Langewiesche sjálfan.
Hann ólst eiginlega upp innan í
himninum því að faðir hans,
Wolfgang, var flugmaður og átti
fjöldann allan af vinum í flug-
bransanum. Reyndar hafa lík-
lega margir lært af pabba hans,
því sá skrifaði vel þekkta
kennslubók um flug, Stick and
Rudder (Pinni og pedali), sem
ku enn vera notuð við kennslu.
Þetta var hins vegar ekki mjög
auðvelt fyrir stúlkuna sem ein-
hverju sinni var á flugi með
Langewiesche úti fyrir strönd
Kaliforníu. Hún horfði niður á
flutningaskip kljúfa öldur
William Langewiesche: Inside the Sky
Kyirahafsins, „svo leit hún á
mig og brosti breitt. Hvernig
líst þér á? spurði ég. Hún sagði:
Er þetta Napadalurinn? Ha?
sagði ég. Napadalurinn? sagði
hún aftur.“ Hann segist ekki
viss nema hann hafí farið að
hlæja, en stúlkan hafi virst
áhyggjufull. „Það var ekki fýrr
en seinna að ég skildi þetta.
Þegar fólk flýgur í fyrsta sinn
geta skynfærin raglast og orðið
til þess að venjulegt fólk hættir
að hugsa.“
Einu sinni var vinsæll brand-
arinn um manninn sem flaug yf-
ir Skotland og talaði eftir það
með skoskum hreim. Hin dýpri
merking brandarans var sú, að
það að fljúga yfir einhvern stað
væri ekki það sama og að heim-
sækja hann. Þótt Langewiesche
hafi kannski aldrei heyrt þenn-
an brandara (sem var vinsæll á
Akureyri fyrir kannski 20 árum)
þá er honum þetta viðhorf vel
kunnugt, og er því fullkomlega
ósammála.
En honum virðist þó ekkert í
mun að telja mönnum hughvarf,
og sagan af sagnfræðiprófess-
ornum við Princeton, sem harð-
neitaði því að hafa eiginlega
heimsótt staði sem hann hafði
farið yfir í lágflugi, bendir til
þess að Langewiesche hafi
skilning á því að það er fátt erf-
iðara en að yfirvinna fordóma
fólks. Eftir að þeir vora lentir
kvaðst prófessorinn enn sama
sinnis.
„I lífinu hafði hann sigrast á
því sem hindrar frama og sjálfs-
traust, og þess vegna átti hann
ekki lengur auðvelt með að læra
eða skipta um skoðun," segir
Langewiesche um kunningja
sinn prófessorinn.
Ef maður er ekki þeim mun
staðráðnari í að það sem maður
hefur lært hingað til, og kannski
komist að alveg sjálfur með ær-
inni fyrirhöfn, sé það eina sem
geti hugsanlega verið rétt, þá
getur maður notið leiðsagnar
Langewiesches um þennan dul-
arfulla stað, himininn. Stað, sem
maður hefur ótal sinnum komið
til, en kannski aldrei hugsað um
beinlínis sem stað.
Það er einmitt svona leiðsögn
sem getur hreinlega haft lækn-
andi áhrif - til dæmis á flug-
hræðslu - og er sú leiðsögn sem
mest er um verð á bók, því að
hún er skrifuð af manni sem
hefur bæði huglægan skilning
og verklega þekkingu á því sem
hann er að tala um. Það er allt
of oft sem hið síðarnefnda skort-
ir í frásögnum af flóknum fyrir-
bæram á borð við flug.
Þeir era til sem ekki eru bein-
línis hræddir við að fljúga, held-
ur eru öllu fremur heillaðir af
flugi og flugvélum án þess að
kunna að fljúga sjálfir - en hafa
þó aldrei skilið til fulls af hverju
þeir era svona heillaðir. Og
Langewiesche er ekki bara flug-
maður, hann er líka nógu góður
rithöfundur til að veita þessum
einlægu (en fremur tregu) flug-
aðdáendum aukinn skilning á
því sem þeir dást svo að.
UMRÆÐAN
Ljótur blettur
á samfélaginu
KYNFERÐIS-
AFBROT og annað of-
beldi gagnvart börnum
eru andstyggilegustu
glæpir sem um getur.
Hrekkleysi barna og
trúnaðartraust í garð
fullorðinna gerir þau
einstaklega varnarlaus
gagnvart misnotkun
sem þau eru alls ófær
um að túlka og bregð-
ast við. Afleiðingarnar
eru skelfilegar og yfir-
leitt langvinnar og var-
anlegar. Langur tími
getur liðið áður en
brotaþoli nær að vinna
úr reynslu sinni og
herða sig upp í að leita réttar síns.
Aukin fræðsla og opinskáar um-
ræður um þetta efni hafa opnað
augu margi-a og auðveldað brota-
þolum að átta sig á vanda sínum og
möguleikum til úrbóta. Lagalegum
úrræðum er hins vegar enn veru-
lega ábótavant. Ofbeldisbrot af
þessum toga hafa algjöra sérstöðu
og verður að meðhöndla á sérstak-
an hátt. Reynt hefur verið að bæta
réttarstöðu brotaþola í slíkum mál-
um á undanförnum árum en ljóst
að betur má ef duga skal.
Enn eru brotalamir
Lögin um greiðslu ríkissjóðs á
bótum til þolenda afbrota sem sett
voru árið 1995 voru mikil réttarbót.
Fyrir setningu þeirra laga urðu
tjónþolar sjálfir að freista þess að
sækja dæmdar bætur í greipar af-
brotamannsins og oftar en ekki
með litlum árangi'i. Nú era slíkar
bótagreiðslur á ábyi’gð ríkisins
sem síðan getur endurkrafið hinn
dæmda og er eðlilega í betri stöðu
til þess en tjónþoli.
Enn eru brotalamir í
þessum efnum og þá
fyrst og fremst þegar
um er að ræða ofbeldi
gagnvart bömum.
I skýrslu umboðs-
manns barna frá 1997
um kynferðisafbrot
gegn bömum og ung-
mennum er meðal
annars fjallað um rétt-
arstöðu barna og sett-
ar fram vel rökstudd-
ar tillögur um laga-
breytingar varðandi
meðhöndlun kynferð;
isafbrotamála. I
skýrslunni er t.d. bent
á að 6. grein laganna um gi’eiðslu
ríkissjóðs á bótum til þolenda af-
brota nái illa yfir kynferðisafbrot
gegn börnum, þannig að í raun eru
þau í mörgum tilfellum útilokuð frá
bótarétti. Astæður þess eru nokkr-
ar.
Bótaréttur útilokaður
Skýrslan vitnar í fjóra dóma í
kynferðisbrotamálum. Þar féllu
dómar í málum sem kærð vora fyr-
ir sjö, átta, rámum tveimur áram
og sex áram eftir að brot voru
framin. Bótaréttur reyndist í öllum
þessum dómum útilokaður vegna
núverandi ákvæðis 6. greinar lag-
anna um að kæra þurfi að hafa
borist innan tveggja ára frá því að
brot var framið.
Kynferðisafbrot gegn börnum
era oft framin á löngu tímabili og
ómögulegt er að ætla börnum þá
ábyrgð að gæta réttar síns. Oft er
um misnotkun á tránaðar- og til-
finningasambandi að ræða af hálfu
brotamanna og því sérlega erfitt
Barnaverndarmál
Það er skelfileg stað-
reynd, segír Ki istín
Halldórsdóttir, að ótrú-
legur fjöldi barna verð-
ur fyrir margskonar of-
beldi í uppvextinum og
mörg þeirra bíða þess
aldrei bætur.
fyrir börn að rísa upp gegn þeim.
Þar að auki er ekki óalgengt að
börn verði fyrir beinum eða óbein-
um hótunum frá brotamönnum. Að
öllu samanlögðu gerir 6. grein lag-
anna eins og hún er nú orðuð
óraunhæfar kröfur til barna sem
orðið hafa fyrir kynferðisofbeldi og
því nauðsynlegt að breyta henni til
þess að tilgangur laganna nái fram
að ganga.
Tillögur til úrbóta
Undirrituð flutti ásamt Guðnýju
Guðbjörnsdóttur framvarp á ný-
loknu þingi um breytingar á 6.
gi-eininni og viðbætur við hana. I
því er feilt niður skilyrði um kæra
án ástæðulauss dráttar, þegar um
kynferðisafbrot gegn börnum er að
ræða, auk þess sem fymingarfrest-
ur í slíkum málum skal vera hinn
sami og í almennum hegningarlög-
um. Því miður fékkst frumvarpið
ekki afgi’eitt fyrir þinglok.
Þá reyndi undirrituð einnig að
ná fram breytingu á 26. grein
skaðabótalaganna þess efnis að
„við mat á miskabótum vegna kyn-
ferðisofbeldis skal sérstaklega taka
Kristín
Halldórsdóttir
Seljum fleiri
A SIÐUSTU árum
hefur borið meira á
deilum en samlyndi
milh Islendinga og
frænda okkar Norð-
manna og veldur þar
miklu hve illa gengur
að deila auðæfum hafs-
ins. Það hlýtur því að
teljast ánægjulegt þeg-
ar við náum einhverj-
um samningum við
frændur okkar. Það er
engin ástæða til að láta
það trufla sig þótt
samningurinn sem nú
er verið að gera sé að
sumu leyti öðruvísi en
við eigum að venjast,
því embættismennirnir sem hann
gera skipta í raun um hlutverk.
Þannig ætla íslenskir embættis-
menn að lækka verð á 200 hrossum
til norska neytenda, en kollegar
þeirra í Noregi ætla að lækka verð
á 25 tonnum af iðnaðarvöra (kart-
öfluflögur og viðlíka snakkmatur)
og á 10 tonnum af smurosti til ís-
lenskra neytenda. Þetta gerist með
því að fella niður tolla á þessum vör-
um til neytenda í samningi sem nú
er langt á veg kominn við frændur
okkar Norðmenn. Neytendasam-
tökin fagna þessum samningi og
hvetja til að honum verði hraðað,
enda er með honum verið að draga
örlítið úr þeim óeðlilegu viðskipta-
hindrunum sem þessi tvö lönd eru
fræg fyrir.
Landbúnaður í öngstræti
Þessi samningur sýnir þó kannski
meira en nokkuð annað í hvílíkt
Jóhannes
Gunnarsson
öngstræti ríkjandi
stefna í landbúnaðar-
málum í þessum tveim-
ur löndum er komin.
ísland og Noregur eru
meðal þeirra þjóða sem
styrkja landbúnað sinn
hvað mest fjárhagslega
og óvíða eru hömlur
meiri í framleiðslunni.
Einnig eru þessi tvö
lönd meðal þeirra
landa sem nota tolla og
kvóta hvað mest til að
hindra samkeppni er-
lendis frá.
Það er því vel þess
virði að hvetja emb-
ættismenn til að halda
áfram að gera svona samninga. I
næsta áfanga geta íslenskir emb-
ættismenn krafist þess að norskir
neytendur fái alla þá íslensku hesta
sem þeir vilja kaupa og við selja, á
lægra verði. Norskir neytendur
myndu spara enn meira og í Ieið-
inni myndu íslenskir hrossabænd-
ur græða meira með því að selja
fleiri hesta. Norskir embættismenn
myndu á móti krefjast þess að verð
á snakkmatnum og smurostunum
lækkaði nokkuð til íslenskra neyt-
enda með aukinni samkeppni. Sam-
kvæmt upplýsingum Neytenda-
samtakanna er hvorki kartöflu- né
ostaverð þó með þeim hætti í Nor-
egi að íslenskir framleiðendur eigi
að þurfa að hafa verulegar áhyggj-
ur af vaxandi samkeppni. Það er
því undarlegt þegar Samtök iðnað-
arins gera athugasemd við toll-
frjáls viðskipti með iðnaðarvöru þó
svo að hráefnið komi úr landbún-
hesta
Neytendur
Svona hugarfarsbreyt-
ing hjá embættismönn-
um, segir Jóhannes
Gunnarsson, gæti því
boðað bjartari tíð og
blóm 1 haga fyrir
neytendur.
aði. Fjarlægðaivernd hlýtur að
duga íslenskum framleiðendum,
annars eru hlutirnir ekki í lagi hjá
þeim.
I framhaldi af þessum samningi
gætu embættismenn tekið fyrir
ýmsar aðrar fáránlegar viðskipta-
hindranir sem fyrst og fremst bitna
á neytendum. Þegar íslenskir emb-
ættismenn eru búnir að fá góða
þjálfun í samingum við Norðmenn
um hvernig þeir geta lækkað verð
til neytenda í Noregi, má gera við-
líka samninga við aðrar þjóðir. Auð-
vitað græða neytendur í þessum
' löndum, en við verðum að muna að
við geram það í leiðinni, það er
einmitt galdurinn. Svona hugarfars-
breyting hjá embættismönnum gæti
því boðað bjartari tíð og blóm í haga
fyrir neytendur. Stjórnmálaflokk-
arnir eru því hvattir til að taka
þetta upp í stefnuskrá sína fyrir
næstu kosningar til að halda emb-
ættismönnum við efnið.
Höfmulur cr formaður Ncytcnda-
samtakanna.