Morgunblaðið - 17.03.1999, Blaðsíða 38
MORGUNBLAÐIÐ
^8 MIÐVIKUDAGUR 17. MARZ 1999
Taktujiátt í léttum leik og hver veit!
<g> mbl.is
-ALLTAf= eiTTH\/A£> /\TÝT7
á mbl.is
Glímdu við Jóa sterka í léttum leik á mbl.is og þú
gætir unnið Jóa-úr, Jóa-vasaljós, miða fyrir tvo á
myndina eða glæsilega Sony Playstation-leikjatölvu
frá BT með tveimur leikjum, minniskubbi, tösku og
Glove-stýripinnanum.
Jói sterki er spennandi fjölskyldumynd sem fjallar
um górilluapa sem sleppur úr haldi eftir að hafa
verið fluttur til Bandaríkjanna af öryggisástæðum.
SAMBÍ
______UMRÆÐAN____
Umbyltinga þörf
í skólamálum
SKÓLINN er íhaldssöm stofnun
og breytingar og nýjungar í skóla-
málum eru sjaldan í takt við þær
breytingar sem verða í samfélaginu.
Allar manneskjur eru í eðli sínu
námsfúsar og fullar af
fróðleiksfýsn. Kennar-
ar sem taka við 6 ára
bekkjum að hausti upp-
lifa þetta hvert haust
þegar þeir mæta til-
hlökkuninni og gleðinni
í andliti sérhvers
barns. Barnið er fullt
eftirvæntingar og hef-
ur fullt af spurningum
á takteinunum sem það
vill fá svör við. I stað
þess að virkja kraftinn,
gleðina og áhugann hjá
barninu drepur skólinn
niður á fáum árum all-
an áhuga barnsins til
náms. Kennarar við
skólana eru allir af vilja
gerðir en fá litlu áorkað vegna mið-
stýrðs kerfís sem veitir lítinnn
möguleika til sveigjanleika. Kenn-
arar finna fljótt til vanmáttar í
þessu kerfi og margir þeirra segja
upp störfum.
Skólakerfið þarf á umbyltingu að
halda. í meginatriðum eru allir
skólar svipaðir að uppbyggingu.
Þetta eru stofnanir með stórum
byggingum, skólalóð, frimínútum,
bömum raðað í bekki eftir aldri,
ákveðið námsefni sem þarf að fara
yfir og síðan próf til að meta hversu
vel barnið hefur tileinkað sér náms-
efnið. Þetta skólakerfi sem er við
líði í dag var skapað af uppeldis-
fræðingnum Johann F. Herbarth í
kringum 1800 í konungsríkinu
Prússlandi sem einkenndist af
skrifræði og hernaðarmennsku.
Þetta skólakerfi hentaði vel inn í
tíðarandann þá og var tekið upp alls
staðar í Evrópu og síðar í nýlendun-
um og smám saman út um allan
heim. Regla, agi og skilyrðislaus
hlýðni við yfirboðara voru einkunn-
arorð sem hinn dugandi nemandi í
prússneska skólanum átti að til-
einka sér. Því miður hefur þetta
kerfi haldið velli allt fram á okkar
daga. „Þýski nasisminn" og kenn-
ingar atferlissinna festu þetta kerfi
kyrfilega í sessi.
„En nú er hún Snorrabúð stekk-
ur.“ I dag þarf á grundvallarstefnu-
breytingu í skólamálum að halda.
Prófessor Edvard Befring, einn
helsti sérfræðingur nútímans í
skólamálum, telur að skólakerfið
eins og það er í dag með hinni gífur-
legu áherslu á prófum og sam-
keppni, þar sem fyrirfram staðlað
námsefni er prófað, eyðileggi marga
nemendur. Allt of mikil áhersla er
lögð á að prófa nemendur í þurrum
staðreyndum sem hafa lítið að segja
um námshæfi eða kunnáttu nem-
andans.
Allir nemendur skólans þurfa að
fara í gegnum sama námsefni og
sömu síu. Námið er matað af kenn-
urum sem eru fyrst og fremst að
miðla fyrirfram lögskipuðu náms-
efni til nemenda sinna. Afleiðingin
verður sú að frumkvæði og sköpun-
armáttur nemanda jafnt sem kenn-
ara verður lítið og skólakerfið ein-
kennist af leiða og útbrennslu. Eftir
því sem kemur á efri stig skóla-
skyldunnar verða agavandamál
Hlífdarefni undir
borðdúka
Uppsetningabúðin
Hverfisgötu 74, sími 552 5270.
sýnilegri. Hver skyldi svo ástæðan
vera? Jú, börnin okkar eru orðin
svo leið á skólanum, ítroðsluaðferð-
inni sem þar ræður ríkjum að þau
segja hingað og ekki lengra! Eg er
sannfærður um að stór
hluti af agavandamál-
um unglinga í grunn-
skólum landsins mætti
laga með því-að gjör-
breyta áherslunum í
skólamálum.
Illa ígrundaðar yfir-
lýsingar yfirmanna
menntamála hér á
landi um lélega náms-
hæfni barna í stærð-
fræði er ámælisvert.
Ekki sé ég tilganginn
né ábatann í því að
bera börn vor saman
við börn í Singapore og
annarra Asíuþjóða sem
skara fram úr í stærð-
fræði. Urval nemenda
þessara þjóða þarf að læra myrkr-
anna á milli með svipuna yfir sér.
Við Islendingar þurfum ekki á þeim
samanburði að halda. Olík menning
og ólíkar forsendur gera allan sam-
anburð hjákátlegan. Það er ámælis-
Skólamál
Valmöguleikar, segir
Jakob Bragi Hannes-
son, eiga að einkenna
skólastarfíð.
vert að yfirmenn menntamála hér á
landi skuli hlaupa upp til handa og
fóta og hrópa „úlfur úlfur“ þegar
skín í gegn að verið sé að nota grýl-
una um lélega námshæfni íslenskra
grunnskólanemenda í stærðfræði í
pólitísku ábataskyni. Það er annars
umhugsunarvert að núna þegar
helstu nágrannaþjóðir okkar eru að
tala um allt of mikla áherslu á próf
og samanburð á efri stigum grunn-
skólans, að þá skuli yfirmenn ís-
lenskra menntamála auka náms-
kröfunar og pressuna á grunnskóla-
böm hér á landi. Meinið við íslenskt
skólakerfi er að kröfurnar eru allt
of miklar á einhæft og að mörgu
leyti úr sér gengið námsefni. Hvað
er þá til ráða?
Jú, börnin eiga að fá að vera börn
miklu lengur. Uppgötvunarnám og
leikur eiga að vera allsráðandi á
barnaskólastiginu. Við megum ekki
gleyma því að bömin læra í gegnum
leikinn! Það á að vera gaman í skól-
anum!
Nemendurnir eiga að fá miklu
meira að segja um nám sitt. Val-
möguleikar eiga að einkenna skóla-
starfð. Við eigum að leyfa barninu
að beina spjótum sínum inn á þær
brautir sem hæfileikar þess og
áhugi segir til um.
Hver og einn skóli á að fá miklu
meira sjálfstæði til eigin ákvarðana-
töku í allri uppbyggingu. Það á að
ráða viðskiptafræðinga við skólana
sem eiga að sjá um bókhaldið, skrif-
finnskuna sem tekur allt of mikinn
tíma frá skólastjórum og yfirkenn-
uram. í staðinn eiga skólastjórar og
yfirkennarar alfarið að beina orku
sinni að skólamálum og faglegu
starf.
Miklu meira fé ætti að leggja til
skólarannsókna og ég tel að við ís-
lendingar í fámenni okkar ættum að
eiga alla möguleika á að vera leið-
andi í skólatilraunum og rannsókn-
um. Það er nú einu sinni þannig að
núna þegar við erum að fara inn í
nýja öld viljum við sjá nýjan betri
skóla fyrir komandi kynslóðir.
Eg skora á stjórnvöld að taka nú
til hendinni og gera almennilegt
átak í skólamálum á nýjum 2000
aldar forsendum!
Höfundur er í nmstersnámi
l sérkennslufræðum.
Jakob Bragi
Hannesson