Morgunblaðið - 21.03.1999, Blaðsíða 55

Morgunblaðið - 21.03.1999, Blaðsíða 55
MORGUNBLAÐIÐ FÓLK í FRÉTTUM Fangbrögð við gítarinn „Ég var laminn í hausinn með gít- ar,“ segir Jad Fair sem spilar á Vega- mótum í kvöld ásamt Paul Lydon, Birgi Thoroddsen og Spúnk. Kristín Björk Kristjáns- dóttir spjallaði við Jad um tónleikana í kvöld og gít- arslagsmál. JAD Fair er maðurinn sem kann ekki að spila á gítar en gerir það samt. Þeir sem urðu vitni að gítarmisþyrmingum hans á Vegamótum fyrir um ári spyrja sig enn stórra spurninga. Hvað gerist innan í hausnum á þessum ruglu- dalli sem hamast á stilliskrúfunum og togar í strengina eins og hann eigi við hljóðfærið einhverjar óupp- gerðar sakir sem enginn skilur nema hann? Fangbrögð hans við gítarinn hafa ekkert að gera með tónlist heldur jaðra við slagsmál, enda fylgja tilheyrandi stríðsöskur og væl hinum óhljóðunum. Hvað gengur honum til og eru til einhver lyf við því? Hann er að reyna að vera fyndinn. Og það er hann líka. Ég spjallaði við Jad um hvað hann ætlaði að gera á Vegamótum í kvöld og hvort ég hefði ástæðu til að óttast um minn gítar. „Fyrir mér er gítarinn meira eins og slagverk en nokkuð annað þegar hann er óstilltur og mun ég nota hann þannig í kvöld. Gítarstíll- inn minn er sá sami og fyrir ári síð- an. Ég kann nokkur giáp en veit ekki hvað þau heita og nota þau heldur aldrei.“ Það skiptir Jad engu máli hvort gítarinn hans er stilltur eða ekki, hann eyðir ekki orku í slík smáat- riði heldur einbeitir sér að því að tromma á hann eða slíta strengina. Ég spurði hann hvort hann hefði eitthvað á móti gíturum og hvort hann hefði einhvern tímann verið laminn í hausinn með gítar. „Mér finnst gítarinn fínt hljóð- færi og það er gott að það er til fólk sem er agað í sinni spilatækni. En þar sem það eru til svo margir færir gítarleikarar, finnst mér ekkert nauðsynlegt að ég sé það líka. Heimurinn getur vel verið án enn eins gítarleikarans sem leikur útpælda hljómaganga af kunnáttu og snilld. Bróðir minn lamdi mig einu sinni í hausinn með gítar en það hafði engin áhrif á minn stíl.“ Við verðum víst að dæma um það sjálf á tónleikunum í kvöld. Jad fór fyrst að láta til sín taka í tónlistardeildinni í kringum 1976, þá stofnaði hann hljómsveitina Half Japanese með David bróður sínum. Síðan þá hefur Jad verið að vinna bæði með þeim hálfjapönsku og einn með sjálfum sér og gefið út ógrynnin öll af plötum. Ég spurði Jad hver væri munurinn á því sem hann er að gera með Half Japanese og sóló efninu hans. „Það sem ég geri með Half Japa- nese er meira í rokkdeildinni. Þau lög eru öll miklu skipulagðari í byggingu." Síðasta plata sem Jad kemur fram á er diskurinn Strange but true sem hann bjó til með Yo la Tengo og kom út á Matador í októ- ber á síðasta ári. Þar syngur Jad og talar við tónlist samda af David bróður hans og Yo la Tengo. Það er fátt skrýtið á þeim diski en eflaust allt satt. Það sem er kannski eftir- tektarverðast við hann eru furðu- legir textar David, bróður Jad. Jad hefur unnið með fleiram en Yo la Tengo. Hann spilaði með John Zorn á plötunni Roll out the barael sem hann gaf út með Kra- mer. Zorn hefur einnig komið við sögu Half Japanese nokkram sinn- um. Jad hefur líka gefið út plötur með Mo Tucker Velvet Und- erground trymlili God Is My Co Pilot og fleiram góðum gauram og er nú að taka upp þriðju plötuna með Daniel Johnston í Texas. Það verður spennandi að sjá hvað þessi vitstola gítartrommari mun gera á Vegamótum, og aðeins ein leið til að komast að því! Verð frá kr. 6*990 NIKE BUÐIN Laugavegi 6 SUNNUDAGUR 21. MARZ 1999 55 _________________________'o- Marstilboð á sýningarvélum Sýningartjöld • Sýningarboró Stökktu til Benidorm 12. apríl í 4 vikur frá aðeins kr. 29.955 'nsft Heimsferðir bjóða þér; ótrúlegt tækifæri °trúle ? bes. s*ti, sa su verg,- nú hinn 12 apríl. Nú getur þú kom- ist í sólina í heilar 4 vikur á ótrúlegu verði, frá aðeins kr. 29.955 í 29 nætur. Á Benidorm er vorið komið og á þessum tíma finnur þú eitt besta veðurfar í heimi. Með fararstjórum Heimsferða getur þú valið um fjölda spennandi kynnisferða og þú gistir í hjarta Benidorm allan tímann. Þú bókar núna og 4 dögum fyrir brottför hringjum við í þig og staðfestum við þig á hvaða gististað þú gistir. Bókaðu strax - aðeins 28 sæti Verð kr. 29*855 M.v. hjón með böm, 12. apríl, 29 nætur, með sköttum. Verð frá kr. 39.990 M.v. 2 í íbúð /studio, 12. apríl, 29 nætur. með sköttum. dr HEIMSFERÐIR Austurstræti 17, 2. hæð • sími 562 4600 • www.heimsferdir.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.