Morgunblaðið - 10.04.1999, Qupperneq 4

Morgunblaðið - 10.04.1999, Qupperneq 4
4 LAUGARDAGUR 10. APRÍL 1999 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Flóttamennirnir frá Kosovo sjá framtfð fyrir sér á Islandi Troðið í lestina - endastöð óþekkt MIHRIJE Shillona, eiginmaður hennar Sedji og öll þrjú börn þeirra kornu hingað til lands í fyrradag. Ásamt þeim komu einnig Myrvette Shillona og börn hennar tvö, en hún saknar eigin- manns síns, sem jafnframt er bróðir Sedji. Fjölskyldumar hafa haldið hópinn frá því þær hrökt- ust frá heimilum sínum fyrir rúmri viku. Skömmu áður en Atlantshafs- bandalagið hóf loftárásir á Jú- góslavíu voru serbneska lögregl- an og herinn farin að ganga um götur Pristina og reka alla út af heimilum sínum, að sögn Mihrye. Hún, Myrvette og fjölskyldur þeirra fóm í miðborgina til að leita skjóls. Daginn eftir fór eig- inmaður Myrvette og bróðir Sedji í gamla hverfið þeirra til að skoða hvað hefði gerst. Hans er enn saknað, svæðið var á meðan umkringt af serbneska hernum og lögreglunni og því var lokað. Fjöiskyldan veit ekkert um afdrif hans, hvort hann komst út af svæðinu eða hvar hann er niður- kominn. Þremur dögum eftir að Ijöl- skyldurnar fóm frá heimilum sínum hreinsaði lögreglan út úr húsum í miðborginni. Mihrije segir að þau hafi verið rekin út úr íbúðinni og niður á lestarstöð. Þar hafi þeim verið troðið í lest- arvagna og fjölskyldan átt fullt í fangi með að halda hópinn. „Fólki var troðið inn í vagn- ana. Lögreglumenn með grímur stóðu við þá og tróðu fólki inn, það var rosalega þröngt. Svo fór lestin af stað og við vissum ekkert hvert var verið að fara með okkur. Auðvitað var ég hrædd allan tímann. Við vissum aldréi hvað beið okkar eða hvað myndi gerast næst,“ segir Mi- hrije. Barsmíðar fyrir framan nefið á þeim Að lokinni sex klukkustunda lestarferð í troðningi og mann- þröng voru allir reknir út úr lest- inni við landamæri Makedóníu og Kosovo. „Á Ieiðinni úr lestinni sá ég lögregluna berja tvo menn og stela af þeim öllu sem þeir voru með,“ segir Mihrije, en segir að mennirnir hafi lifað barsmíðarn- ar af. Aðspurð segir hún að börnin hafi þurft að horfa upp á ýmis- legt hræðilegt. Hins vegar hafi vopnaðir menn gengið um svo lengi x Kosvovo að þau hafi verið orðin vön hermönnum með al- væpni og ekki kippt sér upp við það. Mihrije segir að eftir að þau fóru úr lestinni liafi þau verið í sjö daga í flóttamannabúðum við iandamæri Kosovo og Makedón- íu. Hún segir að albanskir íbúar í Makedóníu hafí skipulagt og undirbúið hjálparstarf sem gekk upp. „Við komum klukkan átta um morgun og fengum strax mat. Aftur fengum við að borða í há- deginu og líka um kvöldið,“ segir Mihrije. Þrátt fyrir að ágætlega hafi farið um þau í flóttamanna- búðunum við Hani Elezid voru þau ekki með neitt til neins, að- eins klæðin sem þau stóðu í, og segir Mihrije að það hafi verið ótrúlegur léttir að yfirgefa búð- irnar. Nægjusamir flóttamenn Á FUNDI Rauða krossins með flóttamannahópnum í gær, þar sem farið var yfir ýmis hagnýt atriði um hvemig staðið yrði að vem þeirra hér á næstu dögum, kom í ljós að hópurinn sam- anstendur af ákaflega nægju- sömu fólki. Að sögn Sigríðar Guðmunds- dóttur, skrifstofustjóra alþjóða- deildar Rauða kross Islands, var útskýrt fyrir hópnum á fundinum í dag að þau gætu farið og keypt sér klæðnað, svo sem eins og undirföt, utanyfir- klæðnað, par af skóm, skyrtur, sokka og aðrar nauðsynjar. Þau virtust ánægð með það en fannst þó ef til vill of mikið fyrir sig gert, því frá hópnum kom fram að líklega niyndi þeim nægja að kaupa eingöngu und- irfötin. Þau væru ánægð með það og vildu ekki eyða pening- um Rauða krossins og ríkisihs í óþarfa. „Þau em mjög nægjusöm og em þegar farin að spara fyrir Rauða krossinn og íslenska rík- ið,“ sagði Sigríður eftir fundinn. Sagði hún að reiknað væri með að hópurinn yrði í tvær vikur á gistiheimilinu sem hann er nú á, eftir þann tíma yrði vonandi bú- ið að útvega íbúðir fyrir allar fjölskyldurnar. Ómissandi orðabók Einstakt tilboðsverð: 14.900.- Fulltverð 18.900,- Ensk-íslensk orðabók hefur verið ófáanleg um nokkurt skeið en Mál og menning hefur nú gefið hana út að nýju. Ensk-íslensk orðabók er handbók allra þeirra sem lesa texta á ensku og er ómissandi á hvert heimili. Mál N og menning Laugavegi 18 • Sími 515 2500 • Síðumúla 7 • Sími 510 2500 Morgunblaðið/RAX ÞAÐ lá nokkuð vel á Mihrije Shillona í gær. Hér er hún ásamt börnum sfnum, Bedri og Mexhide. „Þegar við fórum í NATO-búð- imar fann ég fyrir miklum létti. Þar fundum við fyrir einhverju öryggi, sem við höfðum ekki fundið fyrir í marga daga. Samt leið mér best þegar ég vissi að við værum að fax-a til Islands. Þá vissi ég að eitthvað væri að ger- ast, sá fyrir mér einhveija fram- tíð og einhveija von. Það fylgdi því strax mikið öryggi að vera að fara burt frá svæðinu," segir Mi- hrije. Tók bömin og fór En hvernig kom það til að fjöl- skyldan ákvað að fara til Islands? „Eiginmaður minn hafði frétt að Osman Haziri, nágranni okkar, ætlaði til íslands og fór til þess að kveðja hann og óska honum góðrar ferðar. Þá kom í ljós að það var pláss fyrir átta í viðbót. Hann skráði okkur þegar í stað og færði okkur fréttirnar. Ég tók börnin og fór. Ég hafði engan tfma til að hugsa um hvert ég væri að fara, hvar Island væri eða hvernig væri þar. Það eina sem ég hugsaði um var að kom- ast burt.“ Mihrije er bjartsýn á framtíð- ina þótt hún hugsi stöðugt til skyldmenna sinna í Kosovo. „Helstu áhyggjurnar sem ég hef núna er að vita ekki hvar mágur minn er. Ég vil finna hann og fá hann hingað. Fjölskylda mín er einnig í Kosovo, uppi í sveit, og ég hef áhyggjur af henni. Eins og stendur er ég með hugann í Kosovo hjá fólkinu sem varð þar eftir. Við eigum hins vegar bjarta framtíð hér og ég hef ekki áhyggjur af okkur.“ Mihrije segist vera fremur svartsýn á að lausn sé í sjónmáli í Kosovo. „Ég er ekki bjartsýn á að þessu ljúki núna, en þótt það gerðist þá tekur langan tíma að byggja upp á ný það sem var. NATO er okkar eina von. Jafnvel þótt þeir myndu sprengja húsið okkar þá er mér sama. Þeir einir geta bjargað okkur,“ segir Mihri- je- Morgunblaðið/RAX NAZNI Berici ásamt börnunum Fitore, Fitim, Adelina og Schipdon litla í barnarúminu á gistiheimilinu við Borgartún. Nágrannarnir urðu grimmir lögreglumenn NAZNI Berici er rafvirki og hafði frétt af því í gær að einhver hefði boð- ið sér vinnu hér á landi. Meira vissi hann ekki en horfði jákvæðum augum til áframhaldandi veru hér á landi. „Ég held að á Islandi hljóti að vera eitt mesta _ lýðræði sem þekkist í heiminum. Á flugvellinum í gær tóku óvopnaðir lögreglumenn á móti okkur og ég hef aldrei séð svona brosmilda lögreglumenn. Ég get ekki lýst því hvemig tilfinning það var að koma hingað til Islands í gær,“ segir Nazni. Nazni vonast til þess að geta verið nokkurs konar sendiherra Albana hér á landi og sendiherra íslendinga í Kosovo. „Ég ætla að láta vita heima hvernig þetta land er í rauninni. Mér líst strax mjög vel á lífið hér og er að vona að í framtíðinni geti ég komið á sterkari tengslum á milli landanna," segir Nazni. Nazni er ekki bjartsýnn á að lausn finnist í Kosovodeilunni í bráð. Að- dragandi hennar sé langur og mikið þurfi til að finna lausn. „Við höfðum búið með Serbum, við hlið þeiira, í 50 ár og ekki haft neitt á móti þeim þangað til Milosevic byrjaði. Þá voru margir og sífellt fleii’í Serbar settir í lögregluna. Með því móti fengu þeir völd og urðu grimmir. Sögðust mundu skjóta okkur Skömmu áður en NATO hóf loftárás- ir voru nánast allir Serbar í okkar nágrenni komnir í lögregluna. Það voru fyrrverandi nági'annar okkar sem voru orðnir að lögreglumönnum og það voru þeir sem voru að hóta okkur. Segja okkur að fara burt. Við ættum að fara tO Makedóníu eða Al- baníu og koma aldrei til baka. Þeir sögðu líka að ef við kæmum til baka myndu þeir skjóta okkur,“ segir Nazni. Mæðgurnar sem urðu eftir á Korfú vegna veikinda koma til landsins í dag Dreymir um að koma til Islands UNNIÐ er að því að koma mæðg- unum sem skildar voru eftir á Kor- fú til íslands. Albert Mejdi, sem búsettur hefur verið á Islandi í 7 ár er með þeim á Korfú þar sem hann hefur verið þeim til aðstoðar. Al- bert sagði í samtali við Morgun- blaðið í gær að læknarnir á sjúkra- húsinu væru búnir að gefa Zejnie Haziri fararleyfi og hún, hann sjálfur og Valjbone dóttir hennar legðu af stað frá Korfú snemma í morgun. Ferðinni var heitið til Aþenu þar sem þau ætluðu að taka flugvél til Islands með viðkomu í Kaup- mannahöfn. Albert áætlaði að þau kæmu til landsins síðdegis í dag og mæðgumar biðu með eftirvænt- ingu að komast á leiðarenda. „Ástand hennar er gott núna,“ sagði Albert um líðan Zejnie í gær. „Hana dreymir um að koma til Is- lands og hitta börnin sín. Það var erfitt fyrir þau að skilja hana eftir hér og eins var erfitt fyrir hana og dóttur hennar að verða eftir hérna. Nú er hún búin að vera hér í tvo daga án barnanna sinna og eigin- manns og langar að komast til þeirra sem allra fyrst,“ sagði Al- bert. Hópurinn sem kom í fyrradag í læknisskoðun Kosovo-Albanarnir sem komu til landsins í fyrrakvöld fóru í gegnum hefðbundna móttöku fyrir útlend- inga í gær. I því felst meðal annars læknisskoðun þar sem teknar eru blóðprufur, prófað er fyrir lifrar- bólgu, berklum og öðrum sjúkdóm- um. Hópurinn fór í læknisskoðun á heilsugæslustöð fyrri hluta dags í gær. Ein ung kona í hópnum er barnshafandi og mun hún fara í ómskoðun að öllum líkindum eftir helgina. Eftir hádegið í gær var haldinn fundur með hópnum þar sem farið var yfir ýmis praktísk at- riði, svo sem eins og húsnæði, en þegar hafa verið fundnar íbúðir handa tveimur fjölskyldum. Sigríður Guðmundsdóttir, skrif- stofustjóri alþjóðadeildar Rauða kross Islands segir að fylgst verði náið með líðan allra í hópnum og hvort þörf verði á að veita einhverj- um þeirra sérstaka meðhöndlun, eins og til dæmis áfallahjálp. Rauði krossinn er í sambandi við Miðstöð áfallahjálpar hjá Sjúkrahúsi Reykjavíkur sem mun sjá um fram- kvæmd hennar ef þess gerist þörf. Rauði krossinn leitar skyldfólks Að sögn Sigríðar sér Rauði krossinn um að finna ættingja og skyldmenni þeirra sem búsettir eru hér á landi og þeirra sem komu hingað í gær. Var ætlunin að ræða síðdegis í gær við hina 29 ára gömlu Myrvette sem kom hingað til lands í fyrradag og saknar eigin- manns síns. Átti meðal annars að senda út beiðni til Alþjóða Rauða krossins til að reyna að hafa uppi á honum. Að sögn Hjálmars W. Hannes- sonar er unnið að undirbúningi fyr- ir komu fleiri Kosovo-Albana til landsins eins og komið hefur fram að sé vilji stjórnvalda. Er það gert í samráði við fjölmarga aðila, eins og til dæmis Flóttamannastofnun Sa- meinuðu þjóðanna og fleiri. Segii’ hann að koma næsta hóps muni eiga sér mun lengri aðdraganda en koma þessa hóps, sem hafi verið mjög sérstakt tilfelli.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.