Morgunblaðið - 10.04.1999, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 10.04.1999, Blaðsíða 27
MORGUNB LAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. APRÍL 1999 27 ERLENT Kína uppfyllir ekki aðildarkröfur að WTO Reuters BILL Clinton Bandaríkjaforseti ásamt Zhu Rongji, forsætisráðherra Kína, sem var í níu daga opinberri heimsókn í Bandaríkjunum. Washington, Taipei. Reuters. RÍKISSTJÓRN Bandaríkjanna til- kynnti í gær að Kínastjórn væri reiðubúin til að gera töluverðar til- slakanir hvað varðar heimildir bandarískra banka og fjárfesta til viðskipta í Kína, verði aðild Kína að Heimsviðskiptastofnuninni (WTO) að veruleika. Hins vegar verður ekki úr aðild þeirra nú, að sögn bandarískra stjómvalda, þar sem Kína á enn langt í land með að upp- fylla skiiyrðin fyrir aðild. Zhu Rongji, forsætisráðherra Kína, hefur í opinberri heimsókn sinni til Bandaríkjanna nú í vikunni rætt viðskiptatengsl milli landanna tveggja og hugsanlega aðild Kína að WTO við Bill Clinton Bandaríkja- forseta. Nú þegar hefur kínverska ríkis- stjórnin hrint í framkvæmt tals- verðum umbótum í þá átt að auka möguleika á erlendum fjárfesting- um og bankaviðskiptum í landinu, sem erlendir kaupsýslumenn í Kína segja vera jákvæða þróun, þar sem ekki sé langt síðan nánast ríkti stöðnun í þeim efnum í landinu. Lítið gert úr stuðningi við aðild að WTO Þó eiga Kínverjar enn langt í land með að uppfylla kröfur um að- ild að WTO og hafa menn töluverð- an vara á í tengslum við lyrirheit kínverskra stjórnvalda, en þau hafa verið gagnrýnd fyrir að hafa póli- tíska hagsmuni að leiðarljósi er er- lendar fjárfestingar og viðskipti eru leyfð í landinu. Til að mynda var fjórum erlend- um fjárfestum gefið slíkt leyfí sama kvöld og Zhu hélt í heimsókn sína til Bandaríkjanna. Tveir þessara fjár- festa voru frá Bandaríkjunum og Kanada. Flestir frammámanna í kínversku viðskiptalífi gerðu lítið úr stuðningi þeirra við aðild Kína að WTO, en sögðu þó að þeir myndu beita þrýst- ingi á bandaríska þinginu í maí til að koma á stöðugum viðskipta- tengslum milli landanna og hlúa að þeim tengslum sem nú þegar hefur verið stofnað til. Erfíðlega gengur að leysa afvopnunardeiluna á N-frlandi Ovíst um árangur frekari viðræðna FRÉTTASKÝRE NDUR sögðu í gær að sú ákvörðun Sinn Féin, stjórnmáiaarms írska lýðveldis- hersins (IRA), að hafna afdráttar- laust yfirlýsingu breskra og írskra stjórnvalda frá því í síðustu viku, sem ætluð var sem grundvöllur að lausn afvopnunardeilunnar svoköll- uðu, gerði það að verkum að erfítt væri að sjá hvemig takast ætti að leysa deiluna í viðræðum sem hefj- ast eiga að nýju í næstu viku. Því er nú spáð að Bertie Ahem, forsætis- ráðherra Irlands, og Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands, muni enn á ný halda til Belfast til að reyna að stýra deilunni í farsæla höfn. Leiðtogar Sinn Féin lýstu strax óánægju sinni með yfirlýsingu Bla- irs og Aherns, en þar var tekið und- ir þá kröfu sambandssinna að IRA yrði þrátt fyrir allt að byrja afvopn- un í einhverri mynd áður en Sinn Féin er hleypt í heimastjórn, sem vegna afvopnunardeilunnar hefur dregist úr hófi að setja á laggimar. Eindregin afstaða flokksins nú er hins vegar áfall fyrh- David Trimble, verðandi forsætisráðherra á N-írlandi og leiðtoga stærsta flokk sambandssinna (UUP), og þá Blair og Ahern enda höfðu þeir spáð því að IRA myndi, þrátt fyrir fullyi-ðingar um annað, hefja af- vopnun innan tíðar. Það flækir mál enn frekar að tveir öfgahópar sambandssinna, „Sjálfboðaliðssveitir Ulster“ (UVF) og „Strandhöggsveitir Rauðu hand- arinnar" (RHC), lýstu því einnig yf- ir að þeir myndu ekki afhenda nein vopn í fyrirsjáanlegri framtíð. Þó sögðu fréttaskýrendur The Irish Times að í raun gæti þetta bætt samningsstöðu Sinn Féin. Var haft eftir háttsettum fulltrúa flokksins að Sinn Féin gæti nú mætt til við- ræðnanna og sagt við Trimble, Bla- ir og Ahern: „Hvemig getið þið eig- inlega farið fram á að IRA afvopnist þegar UVF er búið að segja að jafn- vel þótt IRA láti vopn af hendi muni UVF ekki gera það?“ Frystiskápur OCV140 Stærð140i. Hraðfrysting, Rafm. eyðsia 0,98 KWh. Stærð H85B54D60 Verö kr. 31.000. Frystiskápur OCV 250 Stærð 2501. Hraðfrystirofi. Rafm. eyðsla 1,3 KWh. Stærð H143B60D60 Verð kr. 39.900, Kælir/frystir MC 320 320 i. Frystir að neðan H 163xB 59,5xD 60 Verð kr. 42.900,- Ath! Öil verð eru staðgreiðsluverð Kælir/frystir CB 380 3751. 2 kælipressur Frystir að neðan H 185xB 59,5xD 60 Verð kr. 58.600,- Kælir/frystir Cl 345 345 I. Til innbyggingar 2 kæiipressur Frystir að neðan H 177xB 54xD 54 Verð kr. 59.600. OPIÐ: Mánud. - föstud. kl. 9-18, laugard. kl. 10-14 mm MÐBnElHBLim EUROCARO raöRreiðslur Tölvur og tækni á Netinu Kosningahátíð Við bjóðum til kosningahátíðar f dag laugardaginn 10. apríl kl. 15:00 þegar við opnum formlega kosningaskrifstofu okkar f Reykjavfk að Hverfisgötu 33. Fjölbreytt dagskrá ásamt veitingum. Meðal gesta verða: • Haldór Ásgrfmsson formaður Framsóknarflokksins • Iþróttaálfurinn (Magnús Scheving) kemur f heimsókn • Örn Árnason leikari skemmtir • Jón Rafnson og hljómsveit leika fyrir gesti • Avörp frambjóðenda Allir velunnarar flokksins velkomnir HjggjSP Reykjavík í Reykjavík
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.