Morgunblaðið - 10.04.1999, Blaðsíða 12
12 LAUGARDAGUR 10. APRÍL 1999
FRETTIR
MORGUNBLAÐIÐ
Framboðs-
fundur á
danskri grund
Á framboðsfundi í
Jónshúsi mátti marka
að íslenskir námsmenn
fylgjast vel með heima
fyrir, að mati Sigrúnar
Davíðsdóttur, sem sat
slíkan fund í Jónshúsi.
AÐSTÆÐUR er bíða námsmanna
heima fyrir og Lánasjóður íslenskra
námsmanna, byggðamál, dönsku-
kennslan og gagnagrunnslögin voru
nokkur þeirra mála, sem íslenskir
námsmenn á framboðsfundi í Jóns-
húsi á fímmtudagskvöldið höfðu
áhuga á. Það voru þau Mörður Árna-
son frá Samfylkingunni, Sigríður
Anna Þórðardóttir frá Sjálfstæðis-
flokki, Steingrímur J. Sigfússon frá
Vinstrihreyfingunni - gi-ænu fram-
boði og Valgerður Sverrisdóttir frá
Framsóknarflokki, sem sátu fyrir
svörum um sjötíu spurulla og líflegra
fundargesta.
Alnetið hefur augljóslega gjör-
breytt möguleikunum á að fylgjast
með. Ef marka rná námsmenn, sem
Morgunblaðið ræddi við á fundinum
skortir þá ekki áhuga og þekkingu á
íslenskum stjórnmálum.
Kraftaverk á léttum nótum
„Við skulum hafa þetta á léttu nót-
unum og gera okkur glaðan dag,“
sagði Gunnar Örn Þorsteinsson
fundarstjóri í upphafí. Steingrímur
undraðist að gera mætti sér glaðan
dag og vísar þar til deilna um Jóns-
hús og skemmtanahalds þar. Sigríð-
ur Anna lagði þó til að fundarmenn
sæju um skemmtunina, því fram-
bjóðendur litu á fundinn sem alvar-
legan kosningafund og sagði Sjálf-
stæðisflokkinn eiga drjúgan hluta í
íslenska góðærinu.
Mörður Arnason áleit hana lýsa
Islandi eins og himnaríki á jörð og
þá kannski augljóst hver væri Guð
almáttugur, en sjálfur væri hann
montinn með að Samfylkingunni
hefði tekist hið ómögulega.
Valgerður taldi góðærið einnig
Framsókn til tekna. Kjósendur
skyldu ekki gleyma að flokkurinn
væri félagshyggjuflokkur, sem
mætti treysta. Steingrímur sagði
Sigríði Önnu tala eins og Sjálfstæðis-
flokkurinn hefði gert kraftaverk,
Mörður talaði um tilurð Samfylking-
arinnai- sem kraftaverk. Kraftaverk
Valgerðar væri að lýsa Framsókn
sem félagshyggjuflokki, sem ekki
Valgerður Sigríður Anna
Sverrisdóttir. Þórðardóttir.
Steingrimur Mörður
J. Sigfússon. Árnason.
heyrðist heima, en sá skilningur
væri kannski Hafnarútgáfa.
Ætla að kjósa - veit ekki hvað
„Ég er að kjósa í fyrsta skiptið og
hef áhuga á að kynna mér málefnin,“
sagði Brynhildur Birgisdóttir í
spjalli við Morgunblaðið í fundar-
hléinu, en hún hefur verið við nám í
fornleifafræði síðan í haust.
„Menntastefna og varnarmálin
skipta mig mestu, en ég er óviss
hvað ég kýs.“
„Ég ætla að kjósa, en veit ekki
hvað,“ sagði Ami Halldórsson sem
er í doktorsnámi við Verslunarhá-
skólann og hefur verið í Danmörku í
7 ár. I hans huga skiptir máli að vita
hvaða aðstæður bíða hans á íslandi.
„En þegar ég fylgist með í íslenskum
fjölmiðlum er eins og það sé einhvers
konar bananalýðveldi á íslandi. Það
er eitthvað að, þegar Alþingi sam-
þykkir lög eins og gagnagrunnslög-
in, þótt hálf læknastéttin sé á móti.
Það er eins og málið hafi verið drifíð
Framsóknarflokkurinn
í Reykjavík
Kosningaskrif-
stofa opnuð
KOSNINGASKRIFSTOFA
Framsóknarflokksins í Reykjavík
verður opnuð í dag, laugardaginn
10. apríl, kl. 15 á Hverfisgötu 33,
Reykjavík.
Fjölbreytt dagskrá verður, m.a.
mun Halldór Asgrímsson, formaður
Framsóknai-flokksins, flytja ávarp.
Sjálfstæðisflokkurinn
Kosningamið-
stöð í Reykjavík
KOSNINGAMIÐSTÖÐ Sjálfstæð-
isflokksins í Reykjavík opnar í dag,
laugardag, kl. 17 að Skipholti 19 á
horni Nóatúns. Davíð Oddsson for-
sætisráðherra ávarpar gesti og boð-
ið verður upp á kaffí og meðlæti. Þá
leikur Brasskvintett Tónlistarskól-
ans á Seltjarnarnesi létt lög og fyrir
börnin verður sýnt atriði úr leikrit-
inu Ávaxtakarfan. Frambjóðendur
flokksins í Reykjavík verða einnig á
staðnum.
s í Reykjavík verður opnuð í dag,
laugardaginn 10. apríl, kl. 15 á
Hverfísgötu 33, Reykjavík.
Fjölbreytt dagskrá verður, m.a.
mun Halldór Ásgrímsson, formaður
Framsóknarflokksins, flytja ávarp.
Framsóknarflokkurinn
Kosningaskrif-
stofa opnuð
á Akureyri
FRAMSÓKNARFLOKKURINN á
Norðurlandi eystra opnar kosninga-
skrifstofu sína á Akureyri í dag,
laugardaginn 10. apríl kl. 15.00 að
Hólabraut 13.
Við opnunina verða flutt ávörp og
menningarleg skemmtiatriði. Boðið
verður upp á veitingar og allir eru
hjartanlega velkomnir, segir í
fréttatilkynningu frá Framsóknar-
flokknum.
LIFLEGAR umræður urðu á framboðsfundi með íslenskum náms-
mönnum í Jónshúsi í Kaupmannahöfn á fimmtudagskvöld.
í gegn til að það yi’ði ekki kosninga-
mál. Hér er ekki aðeins verið að
binda hendur okkar, heldur einnig
nýfæddra bama.“
„Fundurinn skýiár málið,“ segir
Katrín Ásta Gunnarsdóttir, nemi í
tölfræði, kona Ama, „en það er erfitt
að dæma flokkana eftir einum frain-
þjóðanda." Málin sem sldpta Katrínu
Ástu mestu máli em „mál sem snúa
að manni sjálfum, menntamál, heil-
brigðismál og dagvistun“, segir hún
brosandi og lítur á magann á sér, því
hún á von á barni. Hún er ákveðin í að
kjósa og þykir leitt að heyra að fáir
íslendingar í Danmörku kjósi. „Það
skiptir máli að við hér kjósum líka.“
Fylgjast vel með
Af spurningunum mátti mai’ka að
námsmenn fylgjast vel með og vitn-
uðu jafnvel í ummæli íslenskra
stjórnmálamanna frá deginum áður.
Er Steingrímur var spurður á hverju
þjóðin ætti að lifa, sagðist hann ekki
fjandsamlegur í garð fyrirtækja. Sp-
urningin væri ekki hvort, heldur
hvernig byggja ætti upp atvinnulífið
og þar héldi hann á Iofti umhverfís-
sjónaiTniðum. Byggðamálin snerust
ekki um tvo afarkosti, virkjanir og
stóriðju eða byggðaflótta, þótt hann
hefði skilning á að fólk á landsbyggð-
inni liti þannig á málin.
Um gildi þess að halda dreifbýlinu
í byggð segir Valgerður að þótt mik-
ið hafí verið gert á kjörtímabilinu
bíði stórt verkefni næstu stjórnar.
Sigríður Anna leggur áherslu á að
landsbyggðin eigi að halda kostum
sínum á lofti og hvergi sé betra að
ala upp börn en þar. Mörður segir
rangt að setja alla landsbyggðina
undir einn hatt og nauðsynlegt að
einbeita sér að byggðakjörnum eins
og þeim sem menntasetrin skapi.
Steingrímur segir það dýrt fyrir
þjóðarbúið að taka á móti fólki á suð-
vesturhorninu. Það liggi verðmæti í
að halda byggðakeðjunni í heild
sinni.
I hvert sinn sem Lánasjóð ís-
lenskra námsmanna bar á góma fór
kurr um salinn. Niðurskurð lána
1992 segir Sigríður hafa verið við-
brögð við efnahagsvanda, en það
væru tvö ótengd atriði af hverju 18
prósenta kaupmáttaraukning á kjör-
tímabilinu hefði aðeins skilað sér í 5
prósenta hækkun lána nú nýlega.
Steingrímur og Mörður vitnuðu oft
til að íslenska velferðarkerfið væri
ekki sambærilegt við hin Norðurlönd-
in og því þyrfti að breyta. Steingi-ím-
ur sagði að bjóða þyrfti námsmönn-
um upp á sambærilegar aðstæður og í
nágrannalöndunum. Mörður tók und-
ir þetta, því keppt væri um unga fólk-
ið, þótt ekki þyrfti að vera með yfir-
boð. Undrast var af hverju vísitölu-
tengingin hefði ekki verið afnumin.
Frambjóðendur voru sammála um að
áhiif hennar í lítilli verðbólgu væru
lítil. Sigríður Anna og Valgerður
sögðust þess fullvissai- að tengingin
hyrfi, en Steingrímur sagði það veik-
leikamerki að það hefði ekki gerst.
Dönskukennsla, gagnagrunnur
og hægrisveifla í vinstriútgáfu
Það vekur greinilega áhyggjur í
hópnum að dönsku hefur verið skotið
aftur fyrir enskuna í grunnskólan-
um. Þótt Sigríður Anna undirstrik-
aði að ekki væri verið að draga úr
dönskukennslu, sagðist Valgerður
hrædd við þetta og hnykkti á gildi
dönskunnar. Ur salnum var bent á
að það ylli íslenskum fyrirtækjum
erfiðleikum að málakunnátta Islend-
inga væri alls ekki nógu góð.
Töluvert hefur verið fjallað um
gagnagrunnslögin í dönskum íjölmiðl-
um, meðal annars af því Islensk erfða-
gi-eining hefur falast eftir samstarfi
við Færeyinga. Sigríðm- Anna hafnaði
því að sérleyfið stangaðist á við frjálsa
samkeppni. Allm- munur væri á einka-
leyfi og sérleyfi, þótt hún upplýsti
ekki hver munurinn væri. Bæði Sig-
ríður Anna og Valgerður töldu lögin
þjóðþrifamál. Mörður sagði stjómar-
flokkana hafa þjösnað frumvarpinu í
gegn, bæklingur landlæknis sýndi að
lögin væru óljós, en sagðist hrífast af
starfsemi Islenskrar erfðagreiningar.
Steingrímm- sagði afleitt að ekki hefði
verið athugað hvað aðrar þjóðir gerðu
á þessu sviði. Færeyingar hefðu um-
svifalaust hafnað tilboðinu um að selja
sinn þjóðararf.
I lokaorðum bað Steingrímur
menn um að skoða stefnu flokkanna,
ekki form þeirra. Valgerður sagði
gagnagrunnslögin lið í því að fá fólk
heim að loknu námi, enda streymdi
fólk nú heim til að vinna hjá ís-
lenskri erfðagreiningu. Mörður
hnykkti á að menntun og menning
væri fjárfesting, ekki eyðsla. Sigríð-
ur Anna minnti á að hægristefnan
hefði alls staðar sigrað. En spurn-
ingin af hverju það væru þá næstum
alls staðar vinstri- og miðflokkai- við
stjórn í Evrópu lá eftir í loftinu er
gestir tíndust út í kvöldkulið.
Vinstrihreyfíngin á Akureyri
Ráðstefna um atvinnu-
og byggðamál
VINSTRIHREYFINGIN - grænt
framboð heldur ráðstefnu um at-
vinnu-, umhverfis- og byggðamál á
veitingahúsinu Við Pollinn á Akur-
eyri í dag laugardag. Ráðstefnan
hefst kl. 13 með setningarræðu Val-
gerðar Jónsdóttur garðyrkjutækni-
fræðings sem skipar 4. sætið á U-
listanum í Norðurlandskjördæmi
eystra.
Framsögumenn verða Stefán
Ólafsson prófessor, Bjarki Jóhann-
esson, forstöðumaður Þróunarsviðs
Byggðastofnunar, Þorsteinn Gunn-
arsson háskólarektor, Berglind
Hallgrímsdóttir, forstöðumaður At-
vinnumálaskrifstofu Akureyi'arbæj-
ar, Árni Bragason, forstöðumaður
Náttúruverndar ríkisins, og Stein-
grímur J. Sigfússon alþingismaður.
D-listinn á
Norðurlandi eystra
Kosningaskrif-
stofa á Akur-
eyri opnuð
D-LISTI Sjálfstæðisflokks í Norður-
landskjördæmi eystra opnar kosn-
ingaskrifstofu á Akureyri í dag,
laugardaginn 10. apríl kl. 17.00.
Skrifstofan er í húsakynnum flokks-
ins í Kaupangi við Mýrai’veg.
Skrifstofan í Kaupangi verður opin
daglega fi’á kl. 10-19. Síminn er 462-
1500 og netfangið akureyriÉxd.is.
Stuðningsmenn D-listans á Akureyri
og nágrenni eru hjartanlega vel-
komnir á opnunarhátíðina, segir í
fréttatilkynningu frá D-listanum.
D-listinn verður með kosninga-
skrifstofur á fjórum stöðum í kjör-
dæminu. Kosningaski-ifstofa verður
opnuð í Víkun-öst á Dalvík á þriðju-
dag, 13. apríl kl. 17.30.
Kosningaskrifstofan í Ólafsfirði er
að Strandgötu 22 og verður opnuð
miðvikudaginn 14. apríl kl. 17.30. og
fimmtudaginn 15. apríl kl. 17.30
verður kosningaskrifstofan í Bakk-
anum á Húsavík opnuð. Á þessum
þremur stöðum verða skrifstofurnar
opnar daglega frá kl. 16-19 fyrst um
sinn en væntanlega lengur þegar
nær dregur kosningum.
Rey kj avíkurkj ördæmi
Framboðs-
listi Húman-
istaflokksins
GENGIÐ hefur verið frá framboðs-
lista Húmanistaflokksins í Reykja t
víkurkjördæmi vegna komandi al- g
þingiskosninga.
Eftirfarandi skipa listann: 1. Kjart-
an Jónsson útflytjandi. 2. Birgitta
Jónsdóttir, vefhönnuður, skáld og
leikskólakennari. 3. Anna Björg
Michaelsdóttir leikskólakennari. 4.
Hörður Torfason söngskáld. 5. Erling
Huldai’son málai’ameistari. 6. Krist-
björg B. Guðjónsdóttir verkakona. 7.
Friðrik Guðmundsson blikksmiðui’. 's ;
Kristín Sævai’sdóttir sölufulltrúi. 9.
Helga Pálsdóttir verkakona. 10. Erla |
Kristjánsdóttir tækniteiknari. H-
Valtýi’ Öm Gunnlaugsson verkamað-
ur. 12. Shabana Zamar matreiðslu-
kennari. 13. Stígrún Ásmundsdóttii'
matráðskona. 14. Margrét Hansen
húsmóðir. 15. Jón Garðar Davíðsson
bifvélavirki. 16. Jóhann Eiríksson
tónlistarmaður. 17. Arnheiður Símon-
ardóttir gjaldkeri. 18. Ómai’ Hai'alds-
son verkamaður. 19. Pétur Guðjóns- | -
son stjórnunarráðgjafi.
Samfylkingin
Kosninga-
hátíð í Há-
skólabíói
SAMFYLKINGIN boðar til kosn-
ingahátíðar í Háskólabíói í dag, laug-
ardag, kl. 14. Á kosningahátíðinni
verða frambjóðendur Samíylkingar- I
innar úr öllum kjördæmum kynntir,
fjöldi landsþekktra listamanna kem- jQP
ur fram og Margrét Frímannsdóttir,
talsmaður Samfylkingarinnar,
ávarpar hátíðargesti.
Meðal skemmtiatriða verða atriði ;
úr söngleiknum Oliver Twist í flutn-
ingi söngvara og leikara úr sýningu
Litla leikklúbbsins á ísafirði. Guð-
mundur Andri Thorsson flytur pistil
og hljómsveitin Casino flytur nokkur
lög. Polkasveitin Hringir og Magga I
Stína koma fram og tenórsöngvarinn t,-
Jón Rúnar Arason flytur nokkur lög. |1
Sérstök dagskrá verður fyrii’ böm í
anddyri bíósins.
Sjálfstæðisflokkurinn
Fundur með
ungu fólki
SJÁLFSTÆÐISFLOKKURINN 1
heldur fund fyrir ungt fólk í húsnæ'h I
flokksins í Reykjavík, Valhöll, á 1
morgun, sunnudag, kl. 13.30. Á fund- ™
inum verða frambjóðendur flokksins
í Norðurlandskjördæmi vestra.