Morgunblaðið - 10.04.1999, Page 30

Morgunblaðið - 10.04.1999, Page 30
30 LAUGARDAGUR 10. APRÍL 1999 MORGUNB LAÐIÐ NEYTENDUR Att þú í vanda með að greiða húsnæðislán? Fjármál heimilanna Ef húsnæðislán eru hjá Ibúðalánasjóði segir Elín Sigrún Jónsdóttir að það sé mögulegt að ákveðnum skilyrðum uppfyllt- um að fá vanskilum skuldbreytt og/eða fá heimild til að fresta greiðslum á lánum sjóðsins í allt að þrjú ár. NÝVERIÐ tók gildi reglugerð er tekur til úrræða Ibúðalánasjóðs til þess að bregðast við tímabundnum greiðsluvanda lántakenda vegna lána sem sjóðurinn hefur veitt og vegna lána sem veitt hafa verið í tíð eldri laga um Húsnæðistofnun ríkisins og íbúðalánasjóður hefur yfírtekið. I tengslum við útgáfu reglugerð- arinnar var undirritað samkomu- lag um framkvæmd hennar. Að samkomulaginu standa félags- málaráðuneytið og Ibúðalánasjóð- ur annars vegar og Ráðgjafarstofa um fjármál heimilanna, Búnaðar- banki íslands hf., íslandsbanki hf., Landsbanki íslands hf. og Sam- band íslenskra sparisjóða f.h. sparisjóðanna hins vegar. Þeir sem eiga í verulegum greiðsluvanda skulu samkvæmt samkomulaginu fyrst leita til þeirrar fjármálastofnunar, þar sem almenn viðskipti eða vanskil umsækjenda eru mest. Gert er ráð fyrir því að þeir sem ekki fá aðstoð síns viðskiptabanka vegna um- fangs vandans geti leitað til Ráð- gjafarstofu um fjármál heimilanna. Fjármálastofnun og/eða Ráðgjaf- arstofa um fjármál heimilanna reiknar þá út greiðslubyrði lána og greiðslugetu og gerir tillögur til Ibúðalánasjóðs og annarra lána- stofnana um úrræði. Skilyrðin Skilyrði greiðsluerfiðleikaað- stoðar Ibúðalánasjóðs eru: 1. Að greiðsluerfiðleikar stafi af óvæntum tímabundnum ei’fiðleik- um vegna veikinda, slysa, minni atvinnu, atvinnuleysi eða af öðrum ófyrirséðum atvikum. 2. Að aðrir lánardrottnar um- sækjanda samþykki einnig að veita aðstoð vegna greiðsluerfið- leika ef þörf er talin á því. 3. Að greiðslubyrði umsækjanda samkvæmt greiðslumati sé um- fram greiðslugetu. 4. Að greiðslubyrði umsækjanda eftir skuldbreytingu og/eða frest- un á greiðslum rúmist innan greiðslugetu. Forsendur greiðslumats eru rauntölur tekna, mánaðarlegar af- borganir og vanskil. Við mat á framfærslukostnaði heimilisins eru lagðai’ til grundvallar viðmið- unartölur Ráðgjafarstofu um fjár- mál heimilanna ásamt öðnim þekktum kostnaðarliðum. Frestun eða skuldbreytingarlán Efni reglugerðarinnar kann að reynast afar mikilvægt, s.s. vegna breyttrar fjölskyldustöðu. Mörg dæmi eru um að gnmnurinn fyrir fjárhag heimilis hrynur við veik- Frestun á greiðslu húsnæðislána ] (jp í DAG EFTIR 3JA ÁRA FRYSTINGU Eftirstöðvar 6.000.000 kr. Eftirstöðvar 7.300.000 kr. j Afborqun á mán. 40.000 kr. (m.v. 5,1% vexti og 2,2% verðbólgu) Afborqun á mán. 54.000 kr. (240 greiðslur/20 ár) (204 greiðslur/17 ár) ■ Forðist að safna vanskil- um. ■ Leitið ykkur aðstoðar í tima ef fyrirsjáanlegt er að í óefni stefnir. ■ Farið sparlega með þessa heimild. ■ Áður en þú tekur ákvörð- un um frestun: Aflaðu þér upplýsinga um áhrif frest- unar greiðslna hver greiðslubyrðin verður þegar þú byrjar að greiða að nýju. indi, fráfall maka eða skilnað. Heimildir reglugerðarinnar eru tvíþættar, þ.e. annars vegar geta lántakendur fengið skuldbreyting- arlán vegna þegar uppsafnaðra vanskila og hins vegar geta þeir fengið frestun á greiðslum. Heim- ilt er að beita þessum úrræðum saman. Skilmálar skuldbreytingar- lána skulu vera þeir sömu og við- komandi lána sem eru í vanskilum nema að því er varðar lánstímann, sem er allt að 15 ár eftir þörf hverju sinni. Heimilt er að fresta greiðslum af lánum í allt að 3 ár. Þegar greiðslum af láni er frestað bætast áfallnir vextir við höfuðstól lánsins. Upprunalegur lánstími helst óbreyttur. Þess ber að geta að heimilt er að fresta greiðslum afborgana þegar greiðsluvandi er fyrirsjáanlegur. Það er því ekki skilyrði að vanskil hafi hlaðist upp. Ef þessi heimild er veitt er afar mikilvægt að nota tímann til að greiða upp önnur lán og að falla ekki í þá freistni að taka ný lán. Reynslan sýnir að það þarf að fara varlega í skuldbreytingar og sérstaklega frestun á greiðslum þeirra sem eru í verulegum vand- ræðum. Alloft virðist einungis um frestun á vandanum að ræða frek- ar en að lausn finnist með slíkum aðgerðum. í slíkum tilvikum er frestun einungis til þess fallin að auka vandann. Hvað kostar þessi aðgerð? Hver verður greiðslubyrði lána að þrem- ur árum liðnum frá frestun greiðslu? Það kann að vera freist- andi að fá heimild til að fá frestun greiðslna húsnæðislánanna. En það kostar sitt. Afborganirnar koma með enn meiri þunga. Markmið þessarar fyrirgi’eiðslu er að veita fólki aðstoð sem lendir tímabundið í greiðsluvanda vegna óvæntra eða ófyrirséðra atvika. Heimildirnar taka ekki til greiðsluvanda sem stafar af öðrum ástæðum. I þeim tilvikum munu fjármálastofnanir og Ráðgjafar- stofa um fjármál heimilanna leitast við að aðstoða skuldsetta og leysa úr greiðsluvanda eftir því sem kostur er. Elín Signín Jónsdóttir, forstöðu- maður Ráðgjafarstofu um fjármál heimilanna, skrifar reglulega pistla á neytendasíðu. Nýtt Gróður- mold FARIÐ er að selja nýja gróð- urmold sem heitir Græna þruman. I fréttatilkynningu frá Blómavali segir að gróður- moldin henti fyr- ir stofu- blóm og sumar- blóm. Á bakhlið pokans eru leið- beiningar um um- pottun. Fram- leiðsluaðili er sá sami og fram- leiðir blómaáburðinn Grænu þrumuna. Gróðurmoldin verð- ur til sölu í flestum blómaversl- unum og gróðrarstöðvum um land allt. Dreifíngu annast heildverslunin Brum. Tannþráðar- haldari KOMINN er á markað svo: kallaður tannþráðarhaldari. I fréttatilkynningu frá Loga- landi ehf. kemur fram að hann sé með 35 metra rúllu af tann- þræði inni í handfanginu. Þráðurinn er þræddur í kvísl fremst á tækinu og afgangur- inn er skorinn frá með áföstu hnífsblaði jafnóðum og tann: þráðurinn er endurnýjaður. I fréttatilkynningunni segir ennfremur að tækið hafi hlotið viðurkenningu bandarísku samtakanna American Dental Association. Það er Glide- tannþráður sem er í handfangi áhaldsins, en hann fæst einnig í venjulegum 50 metra boxum og í litlum málmdósum. Kflóverð á ýsuflök- um sjaldan hærra VERÐ á ýsuflökum hefur sjaldan verið jafn hátt og núna, en að sögn Árna Ingvarssonar, innkaupastjóra í Nýkaupi, ætti kflóið að vera selt á um 1.100 krónur ef álagning vinnsluaðila og smásala væri með eðlilegum hætti. „Við höfum á hinn bóginn tekið á það ráð að borga með fiskinum og erum að selja kfló- ið af ýsuflökum á 799 krónur.“ Árni segir að undanfarna daga hafi kflóið af heilli ýsu verið selt á 280-300 krónur. „Það þýðir að hrá- efnisverð á ýsuflökum miðað við þetta innkaupsverð á ýsu er á bilinu 740-750 krónur á kíló. Þá er eftir að taka með í reikninginn vinnu vinnsluaðila, virðisaukaskatt og álagningu smásalans. Ef það væri með eðlilegum hætti væri verðið í kringum 1.100 krónur." Árni segir að þetta verð sé með því hæsta sem hann hafi séð en hann segist binda vonir við að verðið lækki aftur inn- an tíðar. Ástæðan fyrir þessari verðhækkun er mikil samkeppni á fiskmörkuðum en Árni segir Ný- kaup þurfa að keppa við útflytjend- ur sem eru að kaupa ýsu fyrir Bandaríkj amarkað. Bandaríkjamenn vilja besta fiskinn „Við þurfum að útvega besta fiskinn á markaðnum fyrir við- skiptavin okkar í Bandaríkjunum sem er Norch-coast fyrirtækið,“ segir Þórður Tómasson hjá Sætoppi ehf. „Þetta fyrirtæki kaupir alla þá Heldur að E-vítamm sé nóg ? NATEN - er nóg 1 1« c o m c £ s 2 ýsu sem við getum útvegað en auk þess eru fleiri fyrirtæki að útvega Noreh-coast fisk héðan. Það er ekki fjarri lagi að þeir séu að kaupa 15-20 tonn af ýsuflökum á viku.“ Þórður segir að verðið sé mjög hátt núna eða allt að helmingi hærra en venjulega. Hann segist búast við að ýsan seljist á svipuðu verði fram til 21. aprfl næstkom- andi, en þá fellur hrygningarbannið úr gildi. 25% lækkun á agúrkum í GÆR lækkaði verð á íslenskum agúrkum um að meðaltali 25-30%. Algengt kílóverð er tvö hundruð og fimmtíu til þrjú hundruð krón- ur og svo vh’ðist sem framboð af íslenskum agúrkum sé nóg. Þá er græn, íslensk paprika að koma á markað þessa dagana og að sögn Kolbeins Ágústssonar hjá Sölufélagi garðyi'kjumanna mun framboð af íslenskum tómötum aukast á næstu dögum. Þegar Kol- beinn er spurður hvers vegna tómatarnir séu nú seinna á ferð- inni en venjulega segir hann bændur vera farna að nota nýtt af- brigði sem taki lengri tíma að ná þroska. „Þessir tómatar eru jafn- ari en áður og stærri." Hálf vernd á tómötum Þai- sem íslensk tómatafram- leiðsla annar enn ekki eftirspurn segir Ólafur Friðriksson, deildar- stjóri hjá landbúnaðarráðuneyt- inu, að fullri vernd á tómatainn- flutning hafi verið frestað. „Við styðjumst við áætlanir um það hvenær framboð er nægilega mik- ið til að anna eftirspurn. Ef áætl- unin stenst ekki er það leiðrétt og það var gert við tómatana. Við er- um ennþá með hálfa vernd sem er 15% magntollur og 99 krónur á hvert kíló af innfluttum tómötum. Hinn 5. apríl átti verndin að hækka en við ákváðum að fram- lengja hálfu vemdina fram til 19. apríl.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.