Morgunblaðið - 10.04.1999, Page 32
32 LAUGARDAGUR 10. APRÍL 1999
strætisvagni og eftirláta hvítum manni sæti
sitt hófst nýr kafli í réttindabaráttu banda-
rískra blökkumanna. Bergljót Ingólfsdóttir
MORGUNBLAÐIÐ
Þegar Rósa Parks neitaði að standa upp í
fjallar hér um þessa einstöku baráttukonu,
sem Clinton forseti heiðraði sérstaklega í
stefnuræðu sinni í janúar síðastliðnum.
EGAR Clinton Bandaríkja-
forseti hélt árlega stefnu-
ræðu sína í janúarmánuði
síðastliðnum, sem sjónvarp-
að var beint á mörgum stöðvum,
kom hann víða við, stefnumálin voru
mörg. Hann vék þar á
meðal að kynþáttamis-
rétti og þörf þess að út-
rýma því á öllum svið-
um þjóðlífsins.
Þegar þar var komið
sögu ávarpaði forsetinn
þeldökka konu með
nafni, um leið og kast-
ljósið beindist að henni,
þar sem hún sat á svöl-
um innan um aðra
gesti. Um leið og klapp-
að var fyrir henni bætti
Clinton við að hún gæti
hvort heldur sem hún
vildi - staðið upp eða
setið kyrr. Þeim orðum
fylgdi enn meira klapp.
Þar var komin Rósa
Parks og af henni er sögu að segja.
Galt fyrir litarhátt sinn
Rósa Louise McCauley fæddist í
bænum Tuskegee í Alabama árið
1913. Móðir hennar var kennari í litl-
um skóla, með einni kennslustofu, og
faðir hennar var trésmiður. Leiðir
foreldranna skildu og móðirin fór
með Rósu og yngri bróður hennar til
foreldra sinna sem voru bændur.
Síðar fluttu þau til borgarinnar
Montgomery í Alabama þar sem
Rósa gekk í barnaskóla, sem móðir
hennar kenndi við. Kennslutíminn
var aðeins fimm mánuðir á ári fyrir
þeldökku börnin. Þegar Rósa var 11
ára hóf hún nám í verkmenntaskóla
fyrir stúlkur í Montgomery, skóli sá
var rekinn fyiir framlög kvennasam-
taka í norðuríylkjum Bandaríkjanna.
Þar var kennt ýmislegt gagnlegt svo
sem matreiðsla, fata-
saumur, körfugerð og
hannyrðir.
Rósa fór áfram í
menntaskóla Alabama-
fylkis, en þurfti ítrekað
að gera hlé á námi sínu,
þegar hún hjúkraði
aldraðri ömmu sinni og
síðar móður sinni þegar
heilsu hennar hrakaði.
Árið 1932 giftist Rósa
Raymond Parks, en
hann var rakari að at-
vinnu og tók jafnframt
þátt í réttindabaráttu
blökkumanna. Rósa
vann við ýmislegt með
námi, svo sem sauma-
skap, fataviðgerðir og
sölu trygginga þar til hún lauk skóla-
göngu sinni árið 1934.
Á kreppuárunum voru ekki mörg
atvinnutækifæri fyrir blökkumenn í
Bandaríkjunum, en í ævisögu sinni
segir Rósa frá tilvikum þar sem
blökkumenn voru látnir gjalda litar-
háttar síns og niðurlægðir á marga
vegu.
Rósa og Raymond Parks gerðust
félagar í NAACP (National Associ-
ation for the Advancement of Color-
ed People), stofnað árið 1909 til að
stuðla að bættum hag blökkumanna.
Á árunum 1943-1956 vai- Rósa ritari
samtakanna og kom á fót ungmenna-
Baráttukonan
Rósa Parks.
MARTIN Luther King varð þjóðkunnur maður af afskiptum sínum í mótmælunum í Montgomery. Hér leiðir
hann „syngjandi mótmælagöngu“ að dómshúsinu í Montgomery.
HINN 21. desember árið 1956 settist
Rósa fremst í strætisvagninum þegar
hún var á ferð. Það vakti það mikla at-
hygli að tekin var af henni mynd af því
tilefni, sem birt, var í blöðum.
deild innan þeirra. Hún hvatti
menn óspai't til að láta skrásetja
sig svo þeir gætu neytt atkvæða-
réttar síns í kosningum.
Afdrifarík ferð í strætisvagni
Hinn 1. desember árið 1955
var Rósa á heimleið að loknum
vinnudegi í verslun í
Montgomery, þar sem hún vann
við saumaskap. Hún settist aftast
í strætisvagninum, eins og hún
var vön, þar sem þeldökkum var
ætlaður staður. Fremri hluti
vagnsins var fyrir hvíta farþega,
en ef vantaði sæti fyrir þá bar
þeim þeldökku að standa upp og
eftirláta sæti sín. Þennan fyrr-
nefnda dag bættust fleiri hvítir
farþegar við á næstu viðkomu-
stöð, og þegar öll sæti í framhlutan-
um voru setin kallaði vagnstjórinn til
þeirra öftustu, að þeir ættu að
standa upp svo þeir hvítu gætu setið.
Þessum fyrimælum hlýddu allir
nema Rósa, hún sat kyiT. Vagnstjór-
inn kallaði til lögreglu, enda konan
að brjóta lög. Hún var leidd út úr
vagninum af tveimur lögi-egluþjón-
um og sett í fangelsi, en var brátt
látin laus gegn 100 dollara trygg-
ingu. Málið átti svo að taka fyrir
mánudaginn 5. desember.
Þegar þetta kvisaðist út flykktust
blökkumenn í Montgomery niður á
torg miðsvæðis, þar sem þeir tóku
þátt í friðsamri, þögulli mótmæla-
stöðu, laugardag og sunnudag, alls
talið 7 þúsund manns. Þarna varð tii
framfarafélag Montgomery
(Montgomery Improvement Associ-
ation) og til forustu valdist ungur
baptistaprestur, Martin Luther
King, þá 26 ára gamall. Hann hvatti
menn til að ferðast ekki með strætis-
vögnunum hinn 5. desember, daginn
sem mál Rósu átti að koma fyrir
rétt. Málið fór á þann veg, að hún
var sektuð um 10 dollara auk 4 doll-
ara í málskostnað. Hún neitaði að
gi’eiða sektina og áfrýjaði til héraðs-
dóms Alabama. Þar tók heilt ár að fá
úrskurð, dómur loks felldur í desem-
ber árið 1956, þar sem sagði að það
samræmdist ekki stjórnarskránni að
aðskilja eða einangra kynþætti á
nokkurn hátt.
Hinn 21. desember árið 1956 sett-
ist Rósa fremst í strætisvagninum
þegar hún var á ferð. Það vakti það
mikla athygli að tekin var af henni
mynd af því tilefni, sem birt var í
blöðum.
En þessi skipan stóð ekki lengi,
hæstiréttur felldi dóminn úr gildi og
fyrirskipaði aðskilnað farþega eftir
litarhætti í almenningsvögnum í
Montgomery.
Þá gripu blökkumenn til sinna
ráða, þeir hættu að ferðast með
vögnunum, þeir fóru ferða sinna fót-
gangandi, bíleigendur tóku með sér
farþega og fóru jafnframt aukaferðir
til að geta flutt fleiri. Þetta ástand
varði í 381 dag en þá gáfust yfir-
völd upp.
Vegna alls þessa umstangs
misstu þau hjónin, Rósa og Ray-
mond, vinnuna og tókst ekki að
finna ný störf. Þau fluttu til
Detroit þar sem Raymond Parks
lést árið 1977.
Martin Luther King varð þjóð-
kunnur maður af afskiptum sín-
um í mótmælunum í
Montgomery. Aðferðin sem þar
var notuð, friðsöm mótmæla-
staða og -ganga, einkenndi rétt-
indabaráttu blökkumanna, sem á
eftir kom. Martin Luther King
fór íyrir þeim mótmælum og
varð bæði dáður og frægur af,
innan Bandaríkjanna sem utan.
Rósa Parks var óþekkt kona
fyrir atvikið í strætisvagninum, en
hefur haft ótrúlega mikil áhrif. Rétt-
indabarátta blökkumanna er jafnvel
talin hafa hafist 1. desember árið
1955, þegar Rósa neitaði að lúta
ranglátum lögum í heimaborg sinni.
Henni hafa hlotnast margar viður-
kenningar og hún nýtur mikillar
virðingar. Hún fæst við greinaskrif
og svarar fyrirspurnum hvaðanæva
að, ekki síst frá ungum Bandaríkja-
mönnum, háskólanemum og öðrum,
sem margii’ hverjir eiga eifitt með
að skilja hvernig málum var háttað í
upphafi jafnræðisbaráttu blökku-
manna.
I bandaríska vikuritinu Time, sem
kom út rétt eftir stefnuræðuna, var
Clinton sagður kænn að bjóða Rósu
Parks að vera viðstödd!
Víst er að orðin sem forsetinn
beindi að Rósu, þegar hann sagði að
hún gæti hvort heldur sem hún vildi
- staðið upp - eða setið kyrr - voru
ekki tilviljun ein, heldur til að minn-
ast hins afdrifaríka atviks í strætis-
vagninum forðum.
Hvað er Crohns-sjúkdómur?
MAGNÚS JÓHANNSSON LÆKNIR SVARAR SPURNINGUM LESENDA
Spurning: Vinsamlegast viltu út-
skýra fyrir mér sjúkdóm. Hann
nefnist Crohns-ónæmissjúkdóm-
ur. Ein sem berst við ónæmis-
vandræði.
Svar: Crohns-sjúkdómur hrjáir
bæði karla og konur en gerir oft-
ast fyrst vart við sig á aldrinum 14
til 24 ára. Tveir langvinnir bólgu-
sjúkdómar í þörmum, Crohns-
sjúkdómur og sáraristilbólga
(ulcerative colitis), eru um margt
líkir en sáraristilbólga byrjar oft
ekki fyrr en eftir miðjan aldur.
Crohns-sjúkdómur virðist íylgja
vissum ættum og um 20% sjúk-
linganna eiga náinn ættingja með
bólgusjúkdóm í þörmum. Ekki er
vitað með vissu hvað orsakar sjúk-
dóminn, menn hefur lengi grunað
að orsakavaldurinn sé sýkill (veira
eða baktería) en hann hefur ekki
fundist. Sjúklingar með Crohns-
sjúkdóm eru með truflun í ónæm-
iskerfinu en ekki er vitað hvort
hún er orsök eða afleiðing sjúk-
dómsins. Crohns-sjúkdómur
leggst einkum á smáþarmana en
nær stundum niður í ristil. Sjúk-
dómseinkennin eru aðallega kvið-
verkir, oft neðarlega hægra megin
(getur líkst botnlangabólgu), og
niðurgangur eða hægðatregða.
Stundum kemur bióð með hægð-
um og einnig geta þyngdartap og
sótthiti fylgt sjúkdómnum.
Langvarandi blæðing frá þörmum
getur leitt til blóðleysis og sjúk-
dómurinn getur truflað vöxt og
þroska barna, m.a. vegna skorts á
Bólgusjúkdóm-
ur í þörmum
næringarefnum. Um er að ræða
langvarandi, ólæknandi sjúkdóm,
sem stundum hveríúr, en getur
komið aftur hvenær sem er ævinn-
ar. Stundum hverfa öll einkenni í
langan tíma, jafnvel árum saman,
en ómögulegt er að vita hvenær
þau kunna að birtast aftur. Þeir
sem hafa greinst með Crohns-
sjúkdóm geta gert ráð fyrir að
þeir þurfi læknismeðferð í langan
tíma. Engin lækning er þekkt en
meðferðin hefur það takmark að
lagfæra skort á næringarefnum,
halda bólgubreytingum í skefjum,
gera sjúklinginn verkjalausan og
stöðva blæðingu. Engar algildar
reglur eru til um mataræði en
sumum versnar af mjólk, áfengi,
kryddi, steiktum mat og trefjum.
Stórir skammtar af vítamínum eru
gagnslausir og geta jafnvel verið
skaðlegir. Flestum sjúklingum
batnar mikið af vissum bólgueyð-
andi lyfjum, sýklalyfjum eða ster-
um. Sum þessara bólgueyðandi
lyfja er óhætt að taka árum sam-
an.
Algengasti fylgikvilli Crohns-
sjúkdóms er garnastífla, sem
verður vegna þess hve þarma-
veggirnir þykkna mikið. Stundum
eru engin önnur úrræði en að fjar-
lægja þann hluta þarmanna sem
verst er farinn af sjúkdómnum, en
þó að allt sjúka svæðið sé tekið er
alltaf hætta á að sjúkdómurinn
taki sig upp í þeim hluta þar-
manna sem eftir er. Hér er því um
að ræða langvinnan, ólæknandi
sjúkdóm sem getur valdið miklum
erfiðleikum. Stundum er sjúkdóm-
urinn vægur en stundum er hann
erfiður og getur þá mótað allt líf
sjúklingsins.
• Lesendur Morgunblaðsins geta
spurt lækninn uni það scm þciin
liggur á hjarta. Tekið er á móti
spurningum á virkum dögum milli
klukkan 10 og 17 í síma 5691100 og
bréfum eða símbrcfum merkt:
Vikulok, Fax: 5691222.
Einniggeta lesendur sent fyrir-
spurnir sínar með tölvupósti á net-
fang Magnúsar Jóbannssonar:
elmag@hotmail. com