Morgunblaðið - 10.04.1999, Qupperneq 34

Morgunblaðið - 10.04.1999, Qupperneq 34
34 LAUGARDAGUR 10. APRÍL 1999 MORGUNBLAÐIÐ Verðið lækk- ar í Frakklandi ... vonandi VERÐ franskra vína virtist til skamms tíma ekki geta hreyfst nema í eina átt, upp á við. Ar eft- ir ár tilkynntu fram- leiðendur um hækk- anir og margir spáðu því að þessi þróun myndi halda áfram, að minnsta kosti fram yfir árþús- undamótin. Auðvitað hækk- uðu ekki öll vín í verði, sum stóðu í stað, önnur lækkuðu jafnvel, en í helstu vínhéruðum Frakklands, sem framleiða þau vín er ráða ferðinni á markaðnum, voru verðbreytingar einvörðungu í eina átt og oftar en ekki voni breyting- arnar verulegar. Þegar vínmarkað- urinn er annars vegar er eitt hérað sem skiptir meira máli en öll önnur í heiminum, Bordeaux í suðvestur- hluta Frakklands. Bordeaux-vínin ent ráðandi á uppboðum og í engu öðru tílviki er jafnþróaður markað- ur til staðar. Undanfarin þrjú ár hafa verð- hækkanir í Bordeaux verið gífurleg- ar, ekki síst eftir að nokkrir mjög góðir ár- gangar, 1995, 1996 og 1997, litu dagsins Ijós. Þegar ég ferðaðist um Bordeaux í síðustu viku til að smakka á árganginum 1998 var nánast ekkert annað til umræðu en hin væntanlega verð- þróun. Til að átta sig á verðuppbyggingu Bordeaux-vína er nauðsynlegt að gera sér grein íyrir uppbyggingu Bordeaux-markaðarins í grófum dráttum. Bordeaux-vín (og þá er átt við bestu víngerðarhús eða chateau héraðsins er falla undir Grand Cru- flokkunina) eru nær undantekning- arlaust seld en primeur, það er meðan þau eru enn á tunnu. Þannig eru vínmiðlarar eða negociants bún- ir að festa kaup á allri framleiðsl- unni um ári áður en vínin eru sett á flöskur. Stærstu fyrirtækin á þessu sviði eru til húsa í Bordeaux og það er síðan þeirra að koma þeim áfram til einstakra innflytj- enda í öðram lönd- um. Lengi vel vora það vínmiðlararnir er réðu ferðinni varðandi verðlagn- ingu en á síðustu ár- um hefur það vald alfarið færst yfir til víngerðarhúsanna. Það ríkir því mikil spenna þegar beðið er eftir því að ein- stök víngerðarhús „lýsi yfir“ því verði sem þau fara fram á fyrir vínin. Bordeaux-markaðurinn hefur ávallt einkennst af miklum sveiflum og ráða gæði vínanna þar ekki ferð- inni að öllu leyti. Þegar litið er ára- tugi aftur í tímann, kemur sama munstrið í ljós aftur og aftur. Verð hækkar og hækkar ár eftir ár þang- að til markaðurinn gefur sig og verðið hrynur. Um áratugur er frá síðasta hrani en það kom einmitt um sama leyti og mjög góður ár- gangur, 1990, leit dagsins ljós. Hef- ur hann því yfirleitt verið á lægra verði en vín frá árinu 1989, sem færa má rök fyrir að séu ögn síðri en 1990- vínin, þótt vissulega sé 1989 með allra bestu áram síðustu áratuga. Verð hélst lágt fram eftir þessum áratug en fór að hækka árið 1995 og hefur haldið áfram að hækka síðan. I mörgum tilvikum hafa víngerðar- hús margfaldað verð vinanna á milli ára og hámarki náði þessi þróun í fyrra er verð Bordeaux-vína rauk upp úr öllu valdi. Sama þróun hefur átt sér stað í mörgum öðrum af þekktustu hérað- um Frakklands, s.s. Búrgund, Rón og í kampavínshéraðinu. Ai’þús- undamótin sem framundan era hafa þó að töluverðu leyti brenglað verð- þróun kampavíns, enda eiga vafalít- ið margir tappar eftir að fljúga úr flöskum í kringum þau. Þá mun verð bestu Búrgundarvína efalítið haldast himinhátt vegna þess hve Verð á betri vínum Frakklands hefur hækkað og hækkað undanfarin ár en virðist nú loks fara lækkandi, ekki síst í Bordeaux. Stein- grímur Sigur- geirsson veltir fyr- ir sér horfum í þessum efnum. Sælkerinn Morgunblaðið/Steingrímur Bordeaux HVERGI annars staðar en í Bor- deaux er jafnmikið af jafngóðum vín- um framleitt á jafnlitlu svæði og mörg chateau eða víngerðarhús svæðisins, s.s. Tu- dor-stíls höllin Chateau Cantenac Brown, bera vitni þeim mikla auð sem streymt hefur um svæðið á síð- astliðnum öldum. í húsi draumsins DRAUMSTAFIR Kristjáns Frímanns MARGIR draumar snúast um hús, veru í því eða viðloðun á einhvern hátt. Samkvæmt draumspekinni er hús tákn sjálfsins, sálar mannsins og innviða sem gerir húsdrauma persónulegri en aðra. Húsið spegl- ar andlega hlið einstaklingsins í byggingarlagi, stíl og ýmsum inn- anstokksmunum, þeir draumar tengjast risi og efri hæðum. Sál- rænu þættir mannsins fara um allt húsið frá kjallara í ris, þar eru litir áberandi, aldur og byggingarlag ásamt munum og minjum, lífs sem liðnum. Sjálfið velur sér ákveðinn íverustað, þau salarkynni sýna ytri áreiti á sjálfið og innri baráttu hverju sinni. Þá birtist líkamlegt ástand í viðhaldi hússins, almennu ásigkomulagi og sérherbergjum svo sem eldhúsi. Draumar um hús geta einnig snúist um aðrar per- sónur en dreymandann sjáifan, jafnvel þjóðareinkenni, félagslegt mynstur eða samkennd. Hús- draumar geta verið boðunar- draumar til dreymandans sjálfs um eigin hag en næmur einstak- lingur getur gengið inn í draumsal stríðsátaka, útihús náttúrahamfara eða kapellu friðarboða. í minning- um sínum segir sálkönnuðurinn Carl Gustav Jung frá draumi um hús: „Mér fannst ég staddur í stóru og ókunnugu húsi, þó var húsið mitt. A efri hæðinni var stór salur í rókókó-stíl en neðri hæðina vissi ég ekki um svo ég fór niður. Þar var allt einhvern veginn eldra að sjá og virtist þessi hluti hússins frá miðöldum, húsgögnin voru í sama stfl og gólfið var lagt rauðum tígul- steini. Eg gekk úr herbergi í her- bergi og hugsaði að ég yrði að kanna allt húsið. Þá kom ég að voldugri tréhurð sem ég opnaði, fyrir innan var steinstigi sem lá niður í kjallara. Þegar ég kom nið- ur var ég staddur í fallegri hvelf- ingu sem virtist ævaforn, veggir og súlur virtust frá tímum Rómverja og gólfið var lagt steinhellum, á einni hellunni var járnhringur, ég tók í hringinn og lyfti hellunni, undir var steinstigi niður í myrkrið. Ég fór niður stigann og kom í helli eða skúta, um gólfið voru dreifð leirbrot og bein sem mér virtust tilheyra fornri og frumstæðri menningu, innan um beinin voru tvær beinagrindur af mönnum." Jung segist hafa skynjað draum- inn sem mynd af sálinni; efri hæð- ina sem meðvitað sálarlíf okkar, neðri hæðina sem fyrsta stig dulvit- undar en kjallarann og hellinn sem tákn genginnar vitneskju, gleymdri okkur og því ómeðvitaða. Draumur- inn væri eins konar línurit yfir sál mannsins og menningu frá upphafi. , Mynd/Kristján Kristjánsson I FORNRI stofu framtíðar. Samkvæmt því ættum við sameigin- legt upphaf og sameiginlega dulvit- und, sameiginleg tákn og merki sem við kryddum drauma okkar með, drauminn um hús. Draumar „Margrétar“ 1. Við hjónin vorum á ferðalagi með vinafólki. Við komum á áning- arstað sem leit út eins og skemma eða geymsluhús og var í eigu ein- hverrar hjálparsveitar. Þegar inn var komið var allt rúmt og bjart og við vorum allt í einu komin ofan í volga sundlaug. Þar svömluðum við ásamt vinafólki okkar í mikilli
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.