Morgunblaðið - 10.04.1999, Side 49

Morgunblaðið - 10.04.1999, Side 49
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. APRÍL 1999 49 < „Lofa, lofa líni; Guð gefí að sólin skíniu „Uppistaðan var ofm á hádegi, ívafið í húsi dögunar, afgangurinn í höll sólarinnar... Ofið í vefstólnum, dansað á þráðunum... Gullskikkja ofin handa mánanum, glitrandi slæða handa litlu sólinni." (Eistnesk þjóðvísa.) ÞESSI þjóðvísa birtist í bókinnni „Blót í norrænum sið“ eftir dr. Jón Hnefil Aðal- steinsson sem er rannsóknarrit í fornís- Ienskum heimildum um blót. Þar er helg- aður kafli Guðrúnu Osvífursdóttur þar sem grafist er fyrir um upprunalegt trú- arinntak frásagnar af blóti hennar og spuna. I þessu riti kemur fram margt áhugavert bæði fyrir lærða sem leika. Pyrir þá sem áhuga hafa á hannyrðum þá er fjallað um spuna og vefnað til forna sem tengist t.d. galdri, örlaganornum, helgisiðum og sólardýrkun. Þar segir að spuninn hafi verið ríkur þáttur í „goðsög- um og helgisiðum norrænnar trúar og annarrar forneskju. Valkyrjur og örlaga- nornir spunnu og höfðu með því áhrif á lff manna og örlög. Spuni þeirra hefur verið sumpart helgisiðir, sumpart galdur, en í trúarathöfnum ýmissa Ijölgyðistrúar- bragða hefur galdurinn verið helgisiðun- um svo samslunginn að þar verður ekki sundur skilið. Og ungum stúlkum hinna fornu trúarbragða var kenndur spuni sérstaklega sem þáttur í vígslu inn í heim kvennanna." Eflaust kannast flestir við hinar nor- rænu örlaganornir Urði, Verðandi og Skuld en Urður er tengdust spunanum. Grískar örlaganornir spunnu einnig mönnum örlög en þær voru nefndar Moirur og voru órannsakanleg og £ myrk forlagavöld og töldust vera dætur Næturinnar. Þær vom þrjár; Klóþó (sú sem J " spinnur), Lakkesis (sú sem ákveður hlutskipti manna) og svo Atrópos (sú, er eigi verður af- stýrt). „Örlaganorn- irnar áttu hlut að ævilengd manna og ákváðu dauðastund.“ [-] Ör- laganornirnar „voru stundum sagðar skipta þannig með sér verkum, að tvær þeirra spunnu og undu saman örlagaþáttuna, en hin þriðja sleit þá. í samræmi við þetta voru tvær þeirra alúðlegar og vinveittar mönnum, en hin þriðja formælti og spillti gjaman gjöfum starfssystra sinna að sögn/' I Alexanders sögu er frásögn af blóð- ugri orrastu og þar kemur fram að „mað- ur hafi fallið í hvert sinn sem örlaganorn sleit þráð sinn. Þær spunnu því að líkind- um ekki óslitinn þráð á meðan ormsta stóð yfir nema þegar þær vildu hlífa skjólstæðingum sínum“. Dr. Jón Hnefill vitnar í heimildir þar sem einnig er bent á náin tengsl mánans við spuna. „Máninn var í þeim frásögnum kona sem sögð var spinna Tímann og „vefa“ líf mannkynsins. Vefnaðarmunstur lífsveranna var örlögin." Einn kafli í bókinni nefnist „Sólardýrk- un og spuni“. Þar kemur fram að til foma t.d. meðal Sama og Norðmanna hafi sólinni verið færðar línfórnir og gyðjunum hafi verið færðir að fóm rokk- ar og snælduteinar. Fyrirsögnin hér að ofan, „Lofa, lofa líni; Guð gefi að sólin skíni“, er norskt stef sem sýnir ótvírætt að sögn dr. Jóns Hnefils að samhengi er á milli sólardýrk- unar og spuna. Já, ég vissi að það er eitthvað kyngi- magnað við að sitja úti undir sól eða mána með þræði í höndum í leit að formi, enda veit ég fátt skemmtilegra. I þessum kynngikraftmikla og dulúð- uga Spuna-þætti aprílmánaðar er heklaður dúkur úr Solberg-gami sem er þétt og áferðarfallegt bómullargarn jafnt fyrir norn- ir og sólardýrkendur, sem og svokallaðar „inni-týpur“ til að nota í verk sín. Þá er bara að setjast niður og fimia kynngimagn- aðan mátt þráðanna á milli fingra sér. HEKLAÐUR dúkur úr Solberg bómullarganii. Heklaður dúkur 100% mercerisert Solberg bómull. Garn: Solberg 12/4 = heklunál nr. 1,5 Ef óskað er eftir grófari dúk þá er notað Sol- berg Fiol = heklunál nr. 3 Mál á dúk: ca. 40 x 72 cm. Utskýringar: Dúkurinn er heklaður eftir munsturteikningu. Heklað er frá miðju og að enda til að dúkurinn sé eins báðum megin. 11 = loftlykkja st = stuðull fp = fastapinni kl = keðjulykkja llb = loftlykkubogi tk = takkahekl, heklið 311. heklið 1 kl. í 1. loft- lykkjuna. ATHUGIÐ: Þegar taka á úr í byrj- un umferðar eru heklaðar kl. yfir rúðurnar að byrjun á umferð, sjá munstur. 3 11 er 1 st. ATH. Stuðlafjöldi fyrir X á teikningu er fundinn út með því að margfalda X með 3, + 1 stuðull. Fitjið upp 152 11. heklið 1 st. í 8. 11. frá nál- inni. 1. Umferð: Heklið 2 11. hoppið yfir 2 11. - 1 st. í næstu 11. - 2 11. hoppið yfir 2 11. - heklið 1 st. í næstu 16 11. = 5 x á teikningu - 2 11. - hoppið yfir 2 11. - 4 st. í næstu 4 11. - 2 11. - hoppið yfir 2 11. - 4 st. í 4 11. - 2 11. Hoppið yfir 2 11. - 10 st. í næstu 10 11., 2 11., hoppið yfir 2 11. - 7 st. í næstu 711. - (211. hoppið yfir 211.1 st. í næstu 11.) 11 sinnum - 6 st. í 6 11. - 2 11. hoppið yfir 2 11. 10 st. í 10 11. - 2 11. - hoppið yfir 2 11. - 4 st. í 4 11. - 2 11. hoppið yfir 2 11. - 4 st. í 4 11. - 2 11. - hoppið yfir 2 11. -16 st. í 1611. (211. hoppið yfir 2 11.1 st. í næstu 11.) 3 sinnum. Snúið með 5 11. 2. umferð: Heklið (1 st. í st. 2 11.) 3 sinnum hoppið yfir 2 st. - 13 st í st. - 2 st. í llb. - 4 st. í st. = 6 x á teikningu - 2 11. 4 st. í st. 2 11. hopp- ið yfir 211. -1 st. í 1 st. - 211. hoppið yfir 2 st. 7 Loftlykkja = 11. st. í st. o.s.frv. Haldið áfram að hekla eftir munstrinu þar til að helmingurinn hefur verið ^ heklaður. Snúið og heklið frá byrjunarkanti hinn helminginn á dúknum. Frágangur: Fyrst er heklað hringinn í kring 3 11. og 1. fp í hvert horn á dúknum. í annarri umferð heklast í hvern llb. 2 fp. 1 tk. 1 fp. Gangið frá endum og bleytið dúkinn og strekkið hann í rétt form. □= 2 1.1 st. X = 4 st. XX = 7 st. XXX = 10 st. xxxx = 13 st. Þátturinn er endurbirtur vegna mistaka við uppsetningu hans 1. apríl s.l. Fjölskyldu- getraun á Miðbakka um helgina í SÝNINGARKÖSSUM á Mið- bakka á Reykjavíkurhöfn um helgina geta éinstaklingar og fjölskyldur glímt við að þekkja 21 af helstu nytjafiskurn og nytjaþömngum okkar eftir út- línuteikningu og stuttri lýsingu. Svörin er að fá á standi skammt frá keranum. Þörf er á því að hafa með sér penna og minnisbók og skrá svör, bera þau síðan saman við réttar lausnir á standinum. I sælífskemnum á Miðbakka eru nokkrir fulltrúar sjávarbúa í er hægt að skoða þá í návígi og höfninni og í gmnna bakkanum snerta. íslandsdeild Amnesty International Mótmælastaða vegna dauðarefsinga í Bandaríkjunum ÍSLANDSDEILD Amnesty International efnir til mótmæla- stöðu á Lækjartorgi laugardaginn 10. apríl kl. 13 vegna dauðarefsinga í Bandaríkjunum. „Dauðarefsingar eru leyfðar í 38 fylkjum Bandaríkjanna. Frá því að dauðarefsingar voru teknar upp aftur árið 1977 hafa 528 einstak- lingar verið teknir af lífi í Banda- ríkjunum. I andstöðu við alþjóða- lög leyfa 24 fylki aftökur á ungum afbrotamönnum, þ.e. unglingum sem dæmdir hafa verið fyrir glæpi ^ sem þeir frömdu undir 18 ára aldri. I Bandaríkjunum eru aftökur á geðfótluðu fólki jafnframt leyfðar, en það er einnig í andstöðu við al- þjóðlega mannréttindasáttmála. A fyrstu mánuðum yfirstandandi árs hafa 28 einstaklingar verið teknir af lífi í Bandaríkjunum," segir fréttatilkynningu frá Amnesty ' International.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.