Morgunblaðið - 10.04.1999, Qupperneq 51
MORGUNBLAÐIÐ
UMRÆÐAN
LAUGARDAGUR 10. APRÍL 1999 51 s
I
I
I
I
Að bæta menntim
þjóðarinnar
ÍSLENDINGAR eignast fleiri
börn en tíðkast í öðmm löndum
Evrópu og víða um landið má fínna
byggðir þar sem um 40% íbúa eru
undir tvítugu. Æska og endurnýj-
un hljóta ávallt að vera nátengd og
bamalánið er mikill styrkur fyrir
hinar dreifðu byggðir. Hins vegar
skyldi það ekki gleym-
ast að það era mögu-
leikar til menntunar
sem ráða mætti þessa
unga fólks og þeim er
nokkuð misskipt eftir
búsetu. í framhalds-
námi er nú lögð öll
áhersla á fjögurra ára
stúdentsnám sem fer
fram í stóram stofnun-
um. Þetta hentar illa
þeim sem hyggja á
verkmenntun og búa
fjarri þessum stórum
stofnunum. Og þeir
era reyndar heilmarg-
h'. Á þéttbýlisstöðum
vítt og breitt um landið
era þúsundir ungs
fólks á „menntaskólaaldri“. Raun-
veraleg byggðastefna hlýtur því að
vera hluti af menntastefnu þjóðar-
innar og felast í því að fjölga tæki-
færum og jafna aðgang að mennt-
un fyrir allan æskulýð landsins.
Taka þarf til hendi
Foreldrar verða víða að senda
börn sín langa vegu til þess að afla
sér menntunar og halda þeim uppi
fjan-i heimili sínu með ærnum til-
kostnaði. Mörgum þykir auk þess
sárt að geta ekki veitt þeim aðhald
og stuðning þegar tekist er á við
verkefni sem hafa svo mikla þýð-
ingu fyrir lífíð seinna meir. Þannig
verða heilu byggðarlögin að sjá af
æskublóma sínum til langtíma
dvalar fjarri heimabyggð og stór
eyða kemur í munstur fjölskyld-
unnar og samfélagsins alls. Þau
sem heima sitja fá þá tilfínningu að
hafa misst af lestinni. Það er líka
töluvert átak fyrir 16 ára ungling
að fara burtu til náms, sérstaklega
ef ekki er hefð fyrir langskólanámi
í nánasta umhverfi. Margir fara en
falla síðan úr námi af einhverjum
ástæðum. Afleiðingin er því sú að
stór hópur fólks lendir utan við
menntakerfið af ýmsum orsökum.
Hér er ekki aðeins um að ræða
framtíð einstakra byggða heldur
öllu fremur framtíð einstakra
bama. Samþjöppun nemenda á til-
tölulega fáa en stóra skóla er and-
stæð íslensku byggðamunstri og
samfélagsgerð.
Aukin menntun
í heimabyggð
Fyrsta skrefíð er að jafna fjár-
hagslegan aðgang að menntun og
greiða sérstaka
menntunarstyrki til
landsbyggðarfólks,
mun hærri en nú er
gert. En þó er brýnast
að sníða menntakerfið
að þörfum æskunnar í
landinu, og að at-
vinnulíf og samfélag
taki virkan þátt í
fræðslu og þroska
uppvaxandi kynslóða.
Markmiðið er auðvitað
að fjölga tækifærum
en ekki fækka, og að-
gerðir í menntamálum
í heimabyggð ættu
ekki að hindra þá sem
vilja leita annaiTa
leiða.
Allt framhaldsnám að loknum
grannskóla þarf að skipuleggja
sem tveggja ára almennt grann-
nám með skilgreindum námslok-
Menntun
Við erum svo lánsöm að
eiga hærra hlutfalí
ungs fólks en önnur
vestræn lönd, segir Jón
Bjarnason, og miklu
máli skiptir hvernig við
stöndum að uppfræðslu
þessa æskulýðs.
um. Því yi'ði svo fylgt eftir með
sérhæfðara námi á bóklegum eða
verktengdum sviðum. Þessi breyt-
ing ein og sér myndi opna mögu-
leika íýrir smærri menntastofnanir
vítt og breitt um landið. Og hér er
um stóra óplægða akra að ræða.
Þótt margir staðir úti á landi séu
ekki mjög fjölmennir er hlutfall
fólks á „menntaskólaaldri" sérlega
hátt. Hægt er að taka dæmi af
bammörgum stöðum eins og
Hólmavík, Skagaströnd eða
Vopnafirði þar sem á hverjum stað
búa um 70 manns á aldrinum 16-20
ára. Þar fyrir utan býr nær annar
eins fjöldi af ungu fólki í nágrenni
þessara staða. Einnig er nokkur
eftirspurn eftir endurmenntun hjá
fólki sem er eldra en tvítugt.
Þannig er nemendafjöldi nægjan-
legur til þess að reka mennta-
stofnannir á þessum stöðum.
Litlar einingar
skila árgangri
Það er ekkert sem segir að
stærðin skipti sköpum fyrir gæði
menntastofnunar og fá rök era fyr-
ir því að hópa ungu fólki saman til
Reykjavíkur í stóra verknámsskóla
eða háskóla. Þvert á móti er það
reynsla erlendis frá að smærri
skólar sem taka mið af aðstæðum
nemenda og nánasta samfélags
skila góðum árangri. Örar framfar-
ir í samgöngum og fjarskiptum
hafa einnig aukið möguleika
smærri eininga. Mikilvægt er að
þessar nýju skólar verði sjálfstæðir
og ábyi'gðin sé borin uppi á for-
sendum heimafólks, fremur en
vera vanrækt útibú frá einhverri
stærri.
Þessar dreifðu menntastofnanir
gætu einnig orðið miðstöðvar sí-
menntunar á viðkomandi svæðum
og legðu m.a. áherslu á fram-
kvöðlanám, stofnun og rekstur fyi’-
irtækja. Nýsköpunarmiðstöðvar,
sem byggðaáætlun forsætisráð-
herra gerir ráð fyrir vítt og breitt
um landið gætu orðið beinn hluti af
þessu fræðsluneti.
Hagur íslands
Við eram svo lánsöm að eiga
hærra hlutfall ungs fólks en önnur
vestræn lönd og miklu máli skiptir
hvemig við stöndum að upp-
fræðslu þessa æskulýðs. Það þarf
að gera menntun almennari og sjá
til þess að ekki sé gengið framhjá
neinum þjóðfélagsþegnum vegna
búsetu eða efnahags. Jafnframt er
ljóst að nú er vöntun á verkmennt-
uðu fólki hérlendis og verði ekki úr
bætt mun sá skortur takmarka
hagvöxt í framtíðinni. Menntakerf-
ið þarf að bregðast við þessari
þörf. Lausnin felst í því að færa
menntunina til fólksins, til at-
vinnulífsins og gera nám aðgengi-
legra fyi'ir ungt fólk hvar sem er á
landinu.
Höfundur er skólastjóri Hólaskóla
á Hólum i Hjaltadal.
Jón
Bjarnason
Gróskusöm tíð
framundan
KOMANDI Alþing-
iskosningar mai'ka
tímamót í íslenskri
stjórnmálasögu. I
kosningunum gefst
kjósendum í fyrsta
skipti raunhæfur val-
kostur að festa í sessi
stóran og öflugan jafn-
aðarmannaflokk og
þar með svipað munst-
ur í stjómmálum og
gefíst hefur vel í ná-
grannalöndum okkar.
Líklegt má telja að
jafnaðarmenn séu hlut-
fallslega jafnmargir
hér á landi og í ná-
grannalöndum okkar.
Söguleg mistök af ýmsu tagi hafa
hins vegai’ valdið því að jafnaðar-
menn á íslandi hafa skipst í marga
flokka. Áhrifa þehTa hefur því ekki
gætt sem skyldi og þess sér víða
stað. Línur í pólitík hafa ekki verið
Ijósar og metnaður stóru flokkanna
hefur verið meiri í þá
átt að sinna hagsmun-
um þeirra sem era í
náðinni en að boða
stefnu til framtíðar.
Sjálf pólitíkin hefur
vikið tO hliðar og stóru
flokkamir hafa haft
nægOegt rými til þess
að sinna þeirri gæslu
sérhagsmuna, sem þeir
hafa köUun tO. Ósam-
staða jafnaðarmanna
hefur gefið þeim það
rými.
í næstu alþingis-
kosningum fá kjósend-
ur tækifæri til þess að
breyta þessu. Sam-
fylkingin hefur þegar fest sig í
sessi sem stór flokkur í skoðana-
könnunum og í kosningunum þurfa
kjósendur um allt land - jafnaðar-
menn hvai' í flokki sem þeir hafa
staðið - að fylkja liði. Þeir þurfa að
veita Samfylkingunni það brautar-
Pétur
Bjarnason
Stjórnmál
Söguleg mistök af
ýmsu tagi, segir Pétur
Bjarnason, hafa valdið
því að jafnaðarmenn
7 "
á Islandi hafa skipst
í marga fiokka.
gengi sem henni ber. Breytum rétt
á kjördag og nýr gróskusamur
kafli mun hefjast í íslenskum
stjórnmálum.
Höfundur er í f/orða sæti Samfylk-
ingarinnar á Norðurlandi eystra.
AsT
Skólavörðustíg 35,
sími 552 3621.
Opið bréf til ritstjóra
Morgunblaðsins
KÆRU Matthías og
Styrmir. Nú eru liðin
næstum 5 'ár síðan von-
ir okkar vöknuðu um
að blað allra lands-
manna yrði líka fyrir
okkur. Okkur sem eig-
um erfitt með að lesa.
Þær vöknuðu árið 1994
þegar fuOtrúar Morg-
unblaðsins tóku vel í
hugmynd Þroskahjálp-
ar og Öryrkjabanda-
lagsins um að fréttir á
auðlesnu máli yrðu
birtar reglulega í
Morgunblaðinu. Með
auðlesnu máli eigum
við við einfalt mál og stærra letur.
í október 1995 skildist okkur að
Lestur
Það er fleira fólk en í
Ataki, félagi þroska-
heftra, segir John
M. Doak, sem á
erfitt með að lesa.
það væri bara spurning um tíma
hvenær af þessu yrði. Samt gerðist
ekkert fyxr en 29. nóvember 1997.
Þá var ein blaðsíða gerð sem til-
raun. Við lásum þá blaðsíðu og vor-
um ánægð. Á þessari einu síðu
voru innlendar fréttir, erlendar
fréttir, íþróttir og fréttir um rétt-
arstöðu fatlaðra. Við sáum að það
er til fólk innan Morgunblaðsins
sem getur skrifað á auðlesnu máli.
Þessi síða var þó aldrei birt.
Það er fleira fólk en við í Átaki,
félagi þroskaheftra,
sem á erfitt með að
lesa. Félag heyrnar-
lausra, Islenska dys-
lexíufélagið og Félag
nýrra Islendinga skrif-
uðu einnig bréf til Mbl.
og óskuðu eftir frétt-
um á auðlesnu máli.
Við í Átaki, félagi
þroskaheftra, höfum
tvisvar sent ykkur •#
bréf án þess að vera
svarað.
Nú spyrjum við
ykkur, Styrmir og
Matthías, af hverju
datt þessi hugmynd
uppfyrir? Og er vilji fyrir því að
koma þessari hugmynd í fram-
kvæmd?
Höfundur er varaformaður stjómar
Átaks, fclags þroskaheftra.
WHITE
SWAN
Drcifing: Engcy chf. Hvcrfisgata 103
s: 552 8877 fax: 552 0060
John M. Doak
30 ára reynsla
Hitaþolið gler
Hert gler
Öryggisgler
GLERVERKSMIÐJAN
Samverk
Eyjasandur 2 • 850 Hella
* 487 5888 • Fax 487 5907
III
ITT
Armúla 1, sími 588 2030 - fax 588 2033
SÚLUNES - EINBÝLISHÚS FYRIR VANDLÁTA
Glæsilegt einbýli með aukaíbúð. Tvöfaldur bílskúr. Vandaðar innrétt-
ingar og gólfefni. Sólskáli og heitur pottur. Ákveðin sala og afhending
gæti orðið fljótlega. 1430
V. ... . . ........................
V
J
\
■