Morgunblaðið - 10.04.1999, Blaðsíða 64
64 LAUGARDAGUR 10. APRÍL 1999
MORGUNBLAÐIÐ
Auglýsing frá yfirkjörstjórn
Reykjavfkurkjördæmis um móttöku
framboðslista og fleira
Framboðsfrestur til alþingiskosninga 8. maf 1999
rennur út föstudaginn 23. apríl nk. kl. 12 á hádegi.
Yfirkjörstjórn Reykjavíkurkjördæmis tekur á móti framboöslistum þann
dag kl. 10-12 í fundarsal borgarráðs í Ráðhúsi Reykjavíkur, Tjarnargötu
11.
Á framboðslista skulu vera að lágmarki 19 nöfn frambjóðenda en þó
ekki fleiri en 38. Framboðslista skal fylgja skrifleg yfirlýsing allra þeirra
sem á listanum eru að þeir hafi leyft að setja nöfn sín á listann. Þá skal
hverjum framboðslista fylgja skrifleg yfirlýsing um stuðning við listann
frá kjósendum í Reykjavikurkjördæmi. Fjöldi meðmælenda skal vera 380
hið fæsta en 570 hið flesta. Enginn kjósandi getur mælt með fleiri en
einum framboðslista. Komi það fyrir strikast nafn kjósandans út í báðum
(öllum) tilvikum. Loks skal fylgja framboðslista skrifleg tilkynning frá
frambjóðendum listans um hverjir tveir menn séu umboðsmenn listans.
Gæta skal þess um öll framboð að tilgreina skýrlega fullt nafn fram-
bjóðanda, kennitölu hans, stöðu og heimili, til þess að enginn vafi geti
leikið á því, hverjir í kjöri eru. Við nöfn meðmælenda skal greina
kennitölu og heimili.
Yfirkjörstjórn Reykjavíkurkjördæmis mun koma saman til fundar á sama
stað mánudaginn 26. apríl 1999 kl. 17 til að ganga frá framboðslistun-
um, sbr. 38. gr. laga nr. 80/1987 um kosningar til Alþingis.
Meðan kosning fer fram laugardaginn 8. maí 1999 verður aðsetur yfir-
kjörstjórnar í Ráðhúsi Reykjavíkur. Talning atkvæða aö kjörfundi loknum
mun fara fram í Hagaskóla, Fornhaga 1, Reykjavík.
Reykjavík, 6. apríl 1999
Yfirkjörstjórn Reykjavíkurkjördæmis
Jón Steinar Gunnlaugsson
Ástráður Haraldsson
Gautur Gunnarsson
Hjörleifur B. Kvaran
Sigurbjörg Ásgeirsdóttir
FASTEIGNA <f
MARKAÐURINN
ÓÐINSGÖTU 4. SÍMAR 551-1540, 552-1700, FAX 562-0540
Netfang: http://habil.is/fmark/
OPIÐ í DAG FRÁ KL. 13-15
SERBYLI
Kleppsvegur - 2 íbúðir 106
fm einbýlishús, hæð og kjallari. Uppi er
rúmgóð stofa, 1 herb., eldhús og bað-
herb. I kjallara er 2ja herb. íbúð með
sérinngangi. Nýtt þak. Mjög stór lóð.
Skaftahlíð Góð 137 fm neðri sér-
hæð í fjórbýli ásamt 25 fm bílskúr. Saml.
stofur, stórt og rúmg. eldhús, 3 svefn-
herb. Parket. Nýjar lagnir. Húsið er í
góðu standi að utan. Áhv. húsbr. 4,5
millj.
4RA-6 HERB.
Hverfisgata - sérinng. Mjðg
fín 126 fm íbúð á tveimur haeðum með
sérinngangi. Mikið endurnýjuð. Góð
stofa. 4 herbergi. Eikarinnr. I eldhúsi.
Stórar svalir. Þvottaaðst. í íbúð.
Breíðavík. Nýkomin I sölu mjög fín 94
fm íbúð á jarðhæð. Góð stofa, verönd þar
út af. 3 svefnherb. Parket á gólfum. Áhv.
húsbr. 2,9 millj. ÍBÚÐ í TOPPSTANDI.
Laugarnesvegur - útsýni
Falleg og björt 92 fm 4ra herb. enda-
íbúð á 4. hæð. Saml. stofur, 3 svefn-
herb. Suðvestursvalir. Mikið útsýni. Hús
að utan og sameign í góðu ástandi.
Áhv. byggsj./ húsbr. 4,7 millj. Verð 7.950
þús. GOÐ IBÚÐ.
Snorrabraut - útsýni Björt og fai-
leg 91 fm 4ra herb. íbúð á 3. hæð, efstu, í
fjórbýli. 2 stpfur, 2 góð svefnherb. Parket.
Gott útsýni. Áhv. 5,6 millj. Verð 8,5 millj.
3JAHERB.
Langagerði Fallegt og vandað 271
fm einbýlishús, hæð og ris. 39 fm innb. bíl-
skúr með geymslukj. undir. Á hæðinni eru
2 saml. stofur, eldhús, 2 svefnherb. og
baðherb. Uppi eru 3 svefnherb., sjón-
varpsherb. og wc. Vandaðar innréttingar.
Merbau-parket á gólfum. Sundlaug. Nýtt
þak og nýtt rafmagn. Skjólsæll og góður
garður. Verð 19,5 millj.
Spítalastígur - heil húseign
Heil húseign á góðum stað í Þingholt-
unum. Húseignin er 170 fm og skiptist I
kjallara, hæð og ris. 3-4 íbúðir eru I húsinu
I dag. Mikið endumýjað, t.d. allar lagnir,
rafmagn og gluggar að mestu og nýtt þak.
Eign sem gefur mikla möguleika. Mjög fal-
leg lóð.
HÆÐIR
Flétturimi Falleg og björt 3ja-4ra herb.
íbúð á 3. hæð að gólffleti 74 fm auk ca 15
fm millilofts. póðar innréttingar, parket.
Stórar svalir. Áhv. húsbr. 5,8 millj. Mögul.
að taka íbúð upp I kaupverð.
Reykás Nýkomin í sölu fín 96 fm
Ibúð á 2. hæð. Parket. Tvennar svalir.
Útsýni. Þvottaherb. í íbúð. Húsið nýlega
tekið í gegn að utan. Áhv. byggsj. 2,6
millj. Verð 9,2 millj.
Eyjabakki 79 fm ibúð á 2. hæð.
Þvottaherb. í Ibúð. Suðursvalir. Áhv. húsbr.
3,7 millj. Verð 7,0 millj.
2JA HERB.
Birkimelur - penthouse
Glæsileg 2ja herb. íbúð á 5. hæð.
Frábær staðsetning, stórkostlegt út-
sýni. Ibúðin er í toppstandi og húsið ný-
tekið f gegn að utan. Gríðarmiklar svalir
á 3 vegu.
Asbraut - Kóp. Góð 76 fm Ibúð á
jarðhæð. Lítið niðurgrafin. Stór stofa.
Rúmgott svefnherb. Stigagangur I góðu
ástandi. Laus 1. april nk. Verð 6,0 millj.
Vífilsgata 37 fm íbúð í kjallara með
sérinngangi. Þríbýlishús. Verð 3,9 millj.
ELDRI BORGARAR
Akraland - bílskúr Mjög góð 90
fm íbúð á 1. hæð í Fossvogi. Sérinngangur.
Rúmgott eldhús, góð stofa. Parket og
dúkar á gólfum. Yfirbyggðar svalir. 30 fm
bílskúr. Hiti í stétt.
Oðinsgata
Til sölu þrjár íbúðir á þessum góða stað I Þingholtunum.
3ja herb. íbúð á 2. hæð. Verð 6,7 millj. Laus fljótlega.
2ja herb. íbúð á 1. hæð. Verð 4,5 millj,
Einstaklingsíbúð í bakhúsi. Verð 4,0 millj. Laus strax.
í DAG
VELVAKAJXDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15
frá mánudegi til föstudags
Feitabollur
og kústsköft
ÞAÐ er mikið auglýst
núna af allkyns námskeið-
um fyrir fólk sem er of
feitt. Fyrir stuttu heyrði
ég í útvarpinu lækni tala
um að það væri hærri
dánartíðni hjá feitu fólki.
Ja hérna! Er það reseft
upp á langlífí að vera
grannur? Jafnvel eins og
kústskaft? Orð þessa
læknis hafa hrætt fólk og
því er það mikil ábyrgð að
láta svona lagað heyrast.
Ég er ein af þessu fólki
sem er þybbið og mér líð-
ur bara mjög vel. Mér
finnst gaman að borða
stundum góðan mat og
skammast mín ekkert
fyrir það.
Gömul kona sagði eitt
sinn við mig. Borðaðu sitt
lítið af hverju og sem
minnst af sykri, meira at-
riði er að vera hamingju-
söm, taka lífinu mátulega
létt og hlæja mikið. Þessi
orð gömlu konunnar hafa
komið mér að góðum not-
um í lífinu.
Sífellt dynur í eyrym,
Herbalife, Núpólétt og
hvað þetta heitir nú allt
saman. Er ekki mál til
komið að hætta að skipa
öðru fólki fyrir, hvemig
það á að lifa lífinu? Ég hef
ekki séð að konur sem em
eins og kústsköft séu
neitt hamingjusamari.
Þetta megmnarkjaftæði
er orðið þjóðarmein sem
bitnar mest á konum. Nú
er vor í lofti, veram glöð og
hlæjum dátt, það sldlar
mestum árangri.
Sigrún.
Köttur klórar barn í
vesturbænum
INNILEGT þakklæti
fyrii- frábæra grein Illuga
Jökulssonar sem var í
Degi fimmtudaginn 1.
apríl s.l. Sem kattarkona
er ég innilega sammóla
honum. Eins langar mig
að þakka honum fyrir
sjónvarpsleikriið sem var
um páskana í sjónvarpinu
og yfír höfuð allt sem
kemur frá honum.
1409517069.
Kjarabót til eldri
borgara
ÞAÐ skeði nú í mars að
ríkisstjómin sýndi vel-
vilja, til þessara manna
sem ekki eiga lífeyrissjóð.
Það þekktist ekki að líf-
eyrir væri til nema hjá
fólki sem vann hjá því op-
inbera, var hann þá vel
tryggður. Þannig var það
með sjómenn og útgerð-
armenn, þeir höfðu engan
lífeyri. Ríkisstjórnin kom
vel fram við þessa aðila
sem drógu fisk úr sjó,
sem þjóðin að mestu lifði
á. Nú það sem ríkisstjórn-
in gerði var að reikna 7%
í ellilaunin sem era 14.155
= kjarabót 990,85. Átti
ekki að reikna með tekju-
tryggingu sem er 28.937,
þá hefði 7% gert 3.016,44.
Þannig er það reiknað hjá
venjulegu fólki. Davíð vill
ekki láta snuða sig og það
vil ég ekki heldur.
Ég vona bara að þessir
menn sem stjórna þjóðfé-
laginu lagi þessi mistök.
Ég trúi ekki öðra.
Júh'us Ingibergsson.
Glaðheimum 12.
Þakkir fyrir Perlur
Jónatans
ÞAKKIR fyrir Perlur
Jónatans Garðarssonar
30. mars sl. Það var upp-
lifun að heyra í Alfreð
Andréssyni og co, einum
mesta gamanleikara þjóð-
arinnar á sínum tíma.
I mínum huga og von-
andi fleiri af eldri kyn-
slóðinni sem ekki era
margra fiska metin á dög-
um æskudýrkunar:
Skyldan fyrst, skemmta
sér á eftir. Kunnum við
ennþá að meta fyndni
sem hvorki er gróf eða
mannskemmandi.
Meira af svo góðu!
Guðrún Jacobsen.
Tæki og tól til fíkni-
efnaneyslu
HVERNIG stendur á því
að börn og unglingar geta
farið í verslun hér í borg-
inni og keypt tæki og tól
til fíkniefnanotkunar,
þegar ekki sinni má selja
sælgæti í sígarettulíki í
sjoppunum?
Múðir.
Þurfa tveir að borga
hærri leigu?
ÉG vil beina spurningu
minni til leigjenda hjá Fé-
lagsbústöðum. Borga
tveir einstaklingar hærri
leigu en einn? Er einhver
sem getur svarað þessu í
Velvakanda.
Leigjandi.
Áróðurinn áhrifaríkur
ÉG er orðin hundleið á
endalausu tuði í fjölmiðl-
um um að eldri borgarar
séu illa haldnir fjárhags-
lega. Svo áhrifaríkur er
áróðurinn að vel efnað
fólk er farið að trúa því að
það sé á horriminni.
Við sem eram öldruð í
dag munum tímana
tvenna og mörg okkar
voru fátæk í æsku. Við
vorum ekki búin að læra
að vorkenna okkur þvi þá
voru ekki komnir fræð-
ingamir sem sögðu okkur
að við væram undir fá-
tæktarmörkunum. Þá
voru ekki komnir spila-
kassar eða lottó sem hægt
er að eyða allri hýranni á
stuttum tíma. Þá var eng-
inn hjálparstofnun kirkj-
unnar og þá þótti skömm
að því að sníkja.
Getur skeð að fátækra-
fárið undafarið sé vegna
þess að alþingiskosningar
eru framundan?
Eldri borgari
Dýrahald
Madonna er týnd
SVÖRT læða með hvítar
loppur og hvít á bringu og
með hvítar doppur í
kringum trýnið tapaðist
fyrir ca. viku síðan. Ef
einhver hefur séð til kisu
er hann vinsamlegast
beðinn um að hringja í
síma 5872862.
Tapað/fundið
Hjól tapaðist
BLÁTT Mongoose hjól
tapaðist s.l. þriðjudag frá
Rangárseli. Ef einhver
veit um hjólið þá vinsam-
legast hringið í síma
5579096.
Ljósmyndir töpuðust
LJÓSMYNDIR sem
teknar voru á Boccía móti
fyrir fatlaða glötuðust í
Borgartúni, Laugarnes-
vegi eða við Norðurbrún,
laugardaginn 27. mars. Ef
einhver hefur fundið
myndirnar þá vinsamleg-
ast hafið samband við
Kristínu í síma 4564184.
Myndavél tapaðist
MYNDAVÉL tapaðist á
Þingvöllum eða Geysi,
miðvikudaginn 7. apríl..
Svört, frekar lítil og á
henni er brúnt límband.
Upplýsingar 4214649.
Tilmæli til sljórnvalda
J.H. hringdi í Velvakanda
og er með þau tilmæli til
stjómvalda að þau hækki
skattleysismörkin upp í
80.000 kr og það strax á
morgun. Stór hluti þjóð-
arinnar mundi fagna því,
eins myndi verða mikill
fógnuðuður á himnum. Þá
hefðu allir Islendingar
nóg að borða.
Annað sem J.H. vill að
komi fram er, og beinir
hann því til þeirra sem
koma fram í sjónvarpi
eða annarsstaðar, að
hætta þessum handa-
hreyfingum. Þetta er
mjög hvimleitt og áhættu
taka þeir nokkra því þeir
gætu farið úr axlarliðn-
um.
Víkverji skrifar...
RÍKISSJÓNVARPIÐ hefur
þurft að sæta harðri gagrýni
allt frá stofnun þess. Sjónvarp
allra landsmanna hefur jú átt að
gera öllum til geðs, en áhorfend-
umir ekki alltaf verið sammála um
hvemig til hefur tekist. Víkverja
rak í rogastans þegar hann sá
svart á hvítu hvaða innanhúss-
vanda sjónvarpið hefur þurft að
glíma við, í tilraunum sínum til að
sinna hlutverki sínu. í viðtali við
Steindór Hjörleifsson leikara og
fyrrverandi formann I.iikfélags
Reykjavíkur í páskablaði Morgun-
blaðsins lýsti hann starfi sínu sem
fyrsti deildarstjóri Lista- og
skemmtideildar Sjónvarpsins.
Hann sagði að óneitanlega hefði
sjónvarpið í upphafi vakið nokkurn
ugg í brjóstum leikhúsfólksins og
það yrði að teljast athyglisvert að
fyrsti dagskrárstjórinn hafí verið
fundinn í formanni LR. „í hjarta
mínu veit ég að það kom leikhús-
unum vel að ég var innan veggja
sjónvarpsins því ég gat oftar en
ekki haft áhrif í þá átt að draga úr
þeim neikvæðu áhrifum sem sam-
keppni sjónvarpsins gat haft og
hafði á aðsókn í leikhúsunum,"
segir dagskrárstjórinn fyrrverandi
og bætir því við að það hafi t.d.
verið gott að geta ráðið því að
nokkm hvaða dagar vora gerðir
aðalsjónvarpsdagarnir.
XXX
AGSKRÁRSTJÓRINN fyrr-
verandi lætur ekki þar við
sitja, heldur lýsir því yfir að hann
hafi með góðum árangri barist
gegn því að sjónvarpið sendi út
framhaldsþætti þar sem hver
þáttur hafði ekki sjálfstæðan
endi, því það hafi getað orðið leik-
húsunum skeinuhætt á þessum
áram þegar fólk var límt við tæk-
in og gat ekki tekið upp á mynd-
band eins og nú. „Nei, ég keypti
aðeins spennuþætti -sem fengu
sinn endi á hverju kvöldi og sendi
þá auðvitað út á fríkvöldi leikara -
mánudagskvöldum!“.
Þá nefnir Steindór sérstaklega,
að Andrés Bjömsson hafi þýtt
fræga sögu, Peyton Place, sem
varð mjög vinsæl. „Hvorki hann né
aðrir í sjónvarpinu fengu nokkurn
tíma að vita af þvi að sú sería
bauðst mér til kaups fyrir skítapr-
ís. Blessaður vertu, þetta var
framhaldssaga í einum 52 þáttum
og hefði haldið öllum límdum við
tækin ef hún hefði verið sýnd og
enginn farið í leikhús þau kvöldin.
Hún var nefnilega andskoti góð og
vel leikin. Það er allt í lagi að játa
þetta núna, nú er hvort sem er of
seint að reka mig, 32 ár síðan og
glæpurinn örugglega fymdur í
þokkabót."
XXX
ÍKVERJI átti bágt með að
trúa sínum eigin augum þeg-
ar hann las þetta viðtal, þar sem
dagskrárstjórinn fyrrverandi lýsir
því blákalt yfir að hagsmunaá-
rekstrar hafi gert honum ókleift
að sinna launuðu starfi sínu hjá
ríkinu, þjóðinni, með viðunandi
hætti. Hagsmunir leikhússins
voru í hans huga ofar öllu, hins ís-
lenska leikhúss vel að merkja, því
„andskoti góðir og vel leiknir“ er-
lendir þættir fengu ekki náð fyrir
augum dagskrárstjórans. Hvers
áttu t.d. áhorfendur sjónvarpsins
annars staðar á landinu, þar sem
sett er upp eitt eða tvö leikrit á
ári, að gjalda? Víkverji ákvað alla
vega við lestur þessa viðtals að
endurskoða álit sitt á efnisvali
sjónvarpsins þegar það var að
stíga sín fyrstu skref.