Morgunblaðið - 10.04.1999, Page 76
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN 1,103 REYKJAVIK, SÍMI6691100, SÍMBRÉF 5691181
PÓSTHÓLF3040, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRl: KAUPVANGSSTRÆTl 1
LAUGARDAGUR 10. APRÍL 1999
VERÐ í LAUSASÖLU 150 KR. MEÐ VSK
Morgunblaðið/Ómar
Stórfyrir-
tæki í tún-
fiskútgerð
SÉRSTAKT félag, ístún hf„ hefur
verið stofnað um rekstur túnfísk-
veiðiskips sem til stendur að láta
smíða í Kína og stefnt er að að
verði tilbúið þegar túnfiskvertíð
hefst að ári.
fshamar ehf. í Vestmannaeyjum
kemur til með að sjá um rekstur
skipsins og verður hann aðskilinn
frá öðrum rekstri fyrirtækisins en
að baki Istúns standa nokkur fyrir-
tæki. Samkvæmt heimildum Morg-
unblaðsins eru þar á meðal
Burðarás, Skeljungur, Sjóvá-Al-
mennar og Hekla.
Stígandi ehf. í Vestmannaeyjum
á einnig í viðræðum við Kínverja
um smíði túnfískveiðiskips en for-
svarsmenn kínverskra skipasmíða-
stöðva eru væntanlegir til landsins
á næstunni.
■ Öflug/24
--------------
Beið bana í
bflslysi við
Svignaskarð
IJNGUR maður lést þegar bifreið
hans fór út af veginum sunnan við
Svignaskarð um klukkan tíu í gær-
kvöldi.
Samkvæmt upplýsingum frá lög-
reglunni í Borgamesi fór bfllinn
nokkrar veltur og endaði um tíu
metra frá veginum. Skilyrði til
aksturs voru góð þegar slysið varð
en svo virðist sem ökumaðurinn
hafi misst stjóm á bflnum.
# ♦♦
Hjartavernd semur við Oldrunarstofnun Bandarrkjanna
Fjármagn og tæki til
að rannsaka öldrun
H JARTAVE RND undimtar á
næstunni samning við Öldranar-
stofnun Bandaríkjanna, National
Institute of Aging, um viðamiklar
rannsóknir á heilbrigði öldrunar,
sem unnar verða hér á landi á ár-
unum 2001-2005. Öldrunarstofnun-
in mun leggja Hjartavemd til fé,
tækjabúnað og þjálfa starfsmenn
til rannsóknarstarfanna. Talsmenn
Hjartaverndar segja rannsóknina
verða stærstu, umfangsmestu og
fullkomnustu rannsókn á heilbrigði
öldranar sem gerð hefur verið í
heiminum. Ráða þarf tugi starfs-
manna til viðbótar við núverandi
starfslið Hjartaverndar. Þegar hef-
ur verið haft samband við fjölda ís-
lenskra lækna og vísindamanna,
sem nú starfa erlendis, um að snúa
heim til starfa og hafa margir tekið
þeim möguleika fagnandi, að sögn
Vilmundar Guðnasonar, verðandi
yfirlæknis Hjartaverndar.
Að sögn Nikulásar Þ. Sigfússon-
ar, yfirlæknis Hjartaverndar, var
Heilbrigðisstofnun Bandaríkjanna
búin að grandskoða ýmsar öldrun-
amannsóknir, bæði í Bandaríkjun-
um og annars staðar í heiminum.
Niðurstaðan varð sú, að eftirsókn-
arverðast væri að Öldranarstofn-
unin, sem starfar innan Heilbrigð-
isstofnunarinnar, gengi til sam-
starfs við Hjartavemd, sem býr að
miklum upplýsingum eftir 30 ára
hóprannsóknir á Islendingum.
I samningnum felst að leitað
verður til Islendinga, 65 ára og
eldri, sem tekið hafa þátt í hóp-
rannsóknum Hjartavemdar síðast-
liðin 30 ár, alls um 15 þúsund
manns. Gunnar Sigurðsson, for-
maður Hjartaverndar, segir að
m.a. verði gerðar ítarlegar rann-
sóknir á heilastarfsemi, með full-
komnari aðferðum en Hjartavernd
hafi hingað til haft bolmagn til að
beita. Vonast væri til að hægt væri
að sjá hvaða heflsufarsþættir end-
urspeglist í góðri heilastarfsemi í
ellinni, en að þessu væri hægt að
komast með ítarlegum rannsókn-
um á heila og hjarta- og æðakerfi.
Aukin lífsgæði
í ellinni
„Við eram ekki að gera okkur
vonir um að lengja líf fólks, heldur
auka lífsgæði þess í ellinni," segir
Vilmundur Guðnason. „Fyrir utan
aukin lífsgæði fyrir einstaklingana
er augljóst hvaða sparnað það hef-
ur í för með sér fyrir þjóðfélagið,
ef hægt er að bæta heilsu aldr-
aðra.“
Ekki er ljóst hvað rannsóknin
mun kosta, en Öldrunarstofnun
Bandaríkjanna hefur fengið vilyrði
bandarískra yfirvalda fyrir að hún
muni fá það fjármagn sem til þarf.
Talsmenn Hjartavemdar segja
augljóslega um miklu hærri upp-
hæðir að ræða en íslenskir vísinda-
menn eigi að venjast hjá hinu opin-
bera.
■ Stærsta öldrunarrannsókn/10
í höfn eftir
veiðiferð
SÆMILEGA hefur gefið á sjóinn
frá mörgum verstöðvum landsins
að undanförnu enda fer vetrar-
lægðunum að fækka. Skipveijar
á Arnari KE 260 eru hér að
stökkva í land í Grindavík eftir
vel heppnaðan róður. I bili er í
gildi þorskveiðibann vegna
hrygningar en síðan verður hægt
að halda á ný til veiða og þá ræð-
ur kvótinn sjálfsagt sókn hjá
flestum.
, Morgunblaðið/Ásdís
JÓN Sigurðsson flutti tvo fyrirlestra á þingi svæfingalækna í gær og sagði frá reynslu sinni eftir margra
vikna legu á gjörgæsludeild Landspítalans.
✓
I endur-
hæfingu
eftir alvar-
legt slys
„ÉG get ekki gengið á ný til
fyrri starfa minna við svæfingar
sjúklinga en ég vonast til að
geta nýtt þekkingu mina og
reynslu á anuan hátt,“ sagði Jón
Sigurðsson, svæfingalæknir á
Landspítalanum, í samtali við
Morgunblaðið í gær. Jón lenti í
alvarlegu umferðarslysi í des-
ember og lamaðist þannig að
hann hefur einungis mátt í höfði
og höndum.
Jón kom í fyrsta sinn fram
meðal starfsfélaga sinna í gær
er hann flutti erindi á þingi
svæfingalækna í Reykjavík og
var síðan veislustjóri í lokahófi
þings þeirra og skurðlækna í
gærkvöld. Hann kvaðst hafa bú-
ist við að hitta nokkra kollega til
að spjalla við þá en bjóst ekki
við því að tala á um 100 manna
fundi.
Búist við samningum um veið-
ar í Barentshafi eftir helgina
Var með fullri meðvitund
eftir slysið
Jón var með fullri meðvitund
eftir slysið og kvaðst hafa vitað
um leið og bíll hans stöðvaðist
að hann var hálsbrotinn. „Það er
lán í óláni að ég hlaut enga höf-
uðáverka," sagði Jón en hann
hefur í nærri tvo mánuði verið í
endurhæfingu á Grensásdeild og
býst við að vera þar 6-8 mánuði
íallt.
Jón kveðst vera farinn að
styrkjast mjög og segist finna
framfarir / hverri viku. Þjálfun
hans miðar að því að gera hann
sem mest sjálfbjarga þannig að
hann geti sjálfur rennt sér um í
hjólastól sinum.
■ Vissi þegar/6
VIÐRÆÐUR íslands, Noregs og
Rússlands um fiskveiðisamninga í
Barentshafi verða teknar upp að
nýju í Moskvu á mánudag. For-
maður íslensku samninganefndar-
innar gerir fastlega ráð fyrir að
viðræðum ljúki í upphafi vikunnar
og samkomulag verði undirritað.
Viðræðum þjóðanna var frestað í
lok mars sl. þar sem ekki náðist að
ljúka öllum þáttum samningsins
vegna tímaskorts. Samkvæmt
rammasamningi þjóðanna þriggja
fá íslendingar 8.900 lestir af því
heildarþorskmagni sem heimilt er
að veiða í Barentshafi á þessu ári.
Heimild íslendinga eykst síðan eða
minnkar eftir leyfilegum heildar-
afla á hverju ári. Auk þess er gert
ráð fyrir heimildum til að mæta
aukaafla íslenskra skipa í lögsög-
um Noregs og Rússlands.
Jóhann Sigurjónsson, formaður
samninganefndar Islands, segir að
þráðurinn verði tekinn upp í við-
ræðunum strax eftir helgi og gerir
ráð fyrir að þá verði samkomulag
um skiptingu veiða í Barentshafi
undirritað. Hann vill hins vegar
ekki tjá sig um innihald samnings-
ins að svo stöddu.
Ræða framkvæmd
og frágang
„Viðræðurnar era komnar mjög
langt en það vannst ekki tími til að
sigla málinu i höfn síðast. Nú á að-
eins eftir að ræða framkvæmd og
frágang þessa þríhliða samnings.
Nátengdir honum era tveir sjálf-
stæðir tvíhliða samningar, það er
milli íslendinga og Rússa og ís-
lendinga og Norðmanna, en þeir
era engu að síður hluti af þríhliða-
samningnum og háðir hvor öðram.
Ég hef fulla trú á að við náum að
ljúka málinu á allra næstu dögum,“
segir Jóhann.