Morgunblaðið - 14.04.1999, Qupperneq 18
18 MIÐVIKUDAGUR 14. APRÍL 1999
MORGUNBLAÐIÐ
Morgunblaðið/Egill Egilsson
UNNIÐ að breytingum á húsnæðinu.
Sparisjóður og póst-
hús í eina sæng
Flateyri - Nýverið keypti Sparisjóð-
ur Önundarfjarðar á Flateyri hús-
næði íslandspósts á Flateyri. Með
kaupunum munu Sparisjóðurinn og
íslandspóstur samnýta þá sameig-
inlegu þætti sem lúta að fjármagns-
viðskiptum og alhliða persónuvemd
viðskiptamanna.
Að sögn Eiríks Finns Greipsson-
ar sparisjóðsstjóra er þetta þróun
sem ekki er séð fyrir endann á, en
hefur sína kosti gagnvart viðskipta-
mönnum beggja stofnana hvað
varðar dreifingu gagna.
Þessa dagana eru iðnaðarmenn
að breyta húsnæði Islandspósts fyr-
ir sameiginlega starfsemi Spari-
sjóðsins og Islandspósts. Með kaup-
unum eykst rými Sparisjóðsins um
64 fermetra, en fyrrverandi hús-
næði Sparisjóðsins var í 80 fer-
metra rými.
LANDIÐ
Arshátíð Svalbarðs-
skóla í Þistilfírði
Morgunblaðið/Björgvin Þóroddsson
FRA leiksýningu nemenda Svalbarðsskóia.
Þistilfirði - Árshátíð Grannskólans
á Svalbarða, Þistilfirði, var haldin
fyrir skömmu og hófst með messu
í Svalbarðskirkju þar sem sóknar-
presturinn, sr. Ingimar Ingimars-
son, predikaði. Tóku börn í Sval-
barðsskóla virkan þátt í guðsþjón-
ustunni.
Að henni lokinni tók við
skemmtun í Barnaskólanum á
Svalbarða og sýndu börnin þrjá
leikþætti sem allir fengu mjög
góðar viðtökur leikhúsgesta. Var
greinilegt að kennarar og nemend-
ur höfðu lagt mikinn metnað í allar
sýningamar. Að lokum sýndu
nemendur skólans dansa sem æfð-
ir hafa verið að undanfömu.
I spjalli við Oskar Grétarsson
skólastjóra kom fram að nemend-
ur í skólanum era 16 í tveimur
deildum auk sérkennslu. Oskar gat
þess að líklega væri aldur kennara
einn sá lægsti á landinu í vetur.
Skólastjórinn er 23 ára og aðrir
kennarar 22 og 21. Segir Óskar
skólastjóri það mjög spennandi og
um leið krefjandi að koma að fá-
mennum skóla þar sem gott starf
hafi verið unnið áður og verða að
gera góðan skóla enn betri. Segir
hann alla sem koma að starfi og
rekstri skólans sýna mikinn metn-
að.
í sama streng taka foreldrar
sem fréttaritari ræddi við og sögð-
ust þau vilja reka heimilislegan
skóla þar sem öllum liði vel og
enginn væri lagður í einelti.
Morgunblaðið/Jónas Erlendsson
STARFSMENN Saga-film kvikmynduðu á Dyrhólaey auglýsingu fyrir Fjárfestingarbanka atvinnulífsins.
Morgunblaðið/Friðrik J. Hjartar
GLAÐUR hópur 6 ára barna ásamt þjálfurum sinum, þeim Sigrúnu
Olafsdóttur og Elfu Armannsdóttur.
Ungmennafélagið Víkingur
Er Mýrdal-
urinn
Hollywood
Islands?
Fagradal - Saga-film hefur verið
að gera auglýsingu núna síðustu
daga í Mýrdalnum meðal annars
fyrir Fjárfestingarbanka atvinnu-
Iífsins á Ðyrhólaey. Um 30 Mýr-
dælingar voru fengnir til að leika í
einu atriðinu.
Að sögn Guðmundar Elíassonar,
rekstrarstjóra Víkurskála og
Hótels Víkur, hefur það aukist
mikið á síðustu árum að kvik-
myndafyrirtæki komi til Víkur til
að taka upp auglýsingar, tónlistar-
myndbönd og bíómyndir enda hef-
ur Mýrdalurinn upp á margt að
bjóða, þar sem leikmyndir náttúr-
unnar eru við hendina, svartur
sandurinn, auk fagurs íjallahrings,
að ónefndri Dyrhólaey, Hjörleifs-
höfða, Reynisdröngum og Mýr-
dalsjökli. í Mýrdalnum er auk þess
mikið framboð af ýmiskonar gisti-
rými. Þá er orðinn til þó nokkuð
stór hópur af fólki í Mýrdalnum
sem er búinn að koma fram sem
aukaleikarar í mörgum auglýsing-
um og kvikmyndum.
Yeitinga-
stofa í Ar-
borg
Hrunamannahreppi -1 þéttbýl-
iskjamanum sem myndast hefur við
félagsheimilið Ames í Gnúpverja-
hreppi hafa þau Sigi'ún Halldórs-
dóttir og Gunnar Egilsson rekið
verslun og veitingarekstur um ára-
bil. Nú hafa þau fengið leyfi til að
selja áfengan bjór og léttvín í veit-
ingastofu sinni og buðu sveitungum
til sín um páskana af því tilefni.
Gunnar segir það vera kröfu tím-
ans sem kalli á þessa auknu þjón-
ustu. Þau séu með matsölu þar sem
boðið sé uppá fjölbreyttan matseðil,
fjöldi viðskiptavina vilji fá sér
áfenga drykki með matnum.
Mjög aukinn ferðamannastraum-
ur er um Gnúpverjahreppinn, marg-
ir fara inn á hálendið og einnig að
hta á fagrar náttúraperlur, einkum í
Þjórsárdal. Þá era margir á ferð til
að vinna við eða skoða virkjanirnar
miklu á Suðurhálendinu. Vaxandi
sumarhúsabyggð er í hreppnum en
tala heimilisfastra íbúa í Gnúpverja-
hreppi hefur verið svipaðuð undan-
farin ár; um 300 manns.
Morgunblaðið/Sigurður Sigmundsson
SVEITUNGUM var boðið
upp á veitingar í tilefni vín-
veitingaleyfisins.
GUNNAR
Egilsson
við bjór-
kranann.
Iþróttaskóli
yngstu barnanna
Ólafsvík - fþróttaskóli fyrir
yngstu börnin hefur verið starf-
ræktur í vetur af Ungmennafé-
laginu Víkingi í Ólafsvík. Fjöldi
barna á aldrinum 3-6 ára mætir
vikulega í íþróttahúsið og lærir
þar ýmsar líkamsæfingar og
styrkir sig og eflir hreyfigetu
sína.
Mikil leikgleði skein úr augutn
barnanna, þegar fréttaritari leit,
inn, en stoltir foreldrarnir fylgd-
ust með og komu til hjálpar ef
árekstrar urðu eða smáslys, en á
þessum aldri er mörgum laust
um tár.
fþróttakennararnir Elfa Ar-
mannsdóttir og Sigrún Ólafsdótt-
ir sjá um að þjálfa börnin, sem
skipt er í þrjá hópa eftir aldri.
Nokkur börn frá Hellissandi hafa
einnig sótt þetta skemmtilega
námskeið.
Húsavík - Nokkrir Húsvíkingar
fylgdust með málþingi um framtíð
búsetu á íslandi sem haldið var í há-
tíðarsal Háskóla íslands um síðustu
helgi með fjarfundarbúnaði sem
staðsettur er í fundarsal verkalýðs-
félaganna á Húsavík. í upphafi m'ðu
nokkrar tæknilegar truflanh' en eftir
að þær voru lagaðar fylgdust áheyr-
endur og horfendur vel með og töldu
þetta bæði merka og mikilsverða
þróun tæknimála.
Fylgst með há-
skólafundi á
Húsavík