Morgunblaðið - 14.04.1999, Page 21
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 14. APRÍL 1999 21
VIÐSKIPTI
Breytingar til að
auka hagnað hjá SAS
Kværner hætt-
ir skipasmíði
Segir upp 25.000 manns
Ósló. Reuters.
FÆKKUN farþega á viðskiptafar-
rými hefur valdið auknum þrýst-
ingi hjá skandinavíska flugfélaginu
SAS, en breytingar eru hafnar hjá
félaginu og stjórnendur þess spá
því að eftir fimm ár verði það allt
annað félag að sögn Financial
Times.
Sumar breytingamar kunna að
virðast lítilvægar: verið er að mála
vélarnar, vínstúkur hafa verið end:
urskipulagðar og hótel opnuð. I
næsta mánuði fá starfsmennimir
nýja einkennisbúninga.
Um leið er endurnýjun hafin á
flugvélaflota félagsins. Nýjar
Boeing 737 leysa af hólmi gamlar
af gerðunum McDonnell Douglas
og Fokker á styttri leiðum og nem-
ur kostnaðurinn 12 milljörðum
sænskra króna. Seinna á þessu ári
verða pantaðar 12 þotur til flugs á
lengri leiðum fyrir 13-15 milljarða
sænskra króna.
Vilja Airbus
Jan Stenberg forstjóri sagði Fin-
ancial Times að þotur af gerðinni
A330 og A340 frá evrópsku flugiðn-
aðarsamsteypunni Airbus yrðu lík-
lega fyrir valinu. Til þessa hefur
SAS notað Boeing 767 breiðþotur á
löngum leiðum. Félagið vill auka
sætafjölda um 50% með jafnmörg-
um vélum og eiga kost á að kaupa
fleiri að sögn Stenbergs.
SAS hefur einnig hafizt handa
um víðtæka endurskipulagningu til
að auka brúttóhagnað, sem minnk-
aði úr 10,6% í 10% 1998, um þrjá af
Flugfloti endur-
nýjaður með
Boeing 737
hundraði. A næstu tveimur ámm á
að skera niður kostnað um 2 millj-
arða sænskra króna.
Dreifing og sala verða endur-
skipulögð og viðhaldsþjónusta fal-
in Lufthansa. Stenberg, sem á
sæti í stjórn þýzka félagsins, vill
einnig að félögin kanni sameigin-
lega birgðaöflun og markaðssetn-
ingu.
Eins og SAS viðurkennir háir fé-
laginu að kostnaður við mannahald
eykst og arðsemi stendur i stað.
Meðaltekjur af farþega á kílómetra
minnkuðu um tæp 4% í fyrra. Auk-
inn rekstrarkostnaður þurrkaði út
5% eldsneytissparnað.
Mestum áhyggjum veldur að eft-
irspurn eftir sætum á viðskiptafar-
rými hefur minnkað. A síðasta
fjórðungi ársins í fyrra minnkaði
þessi eftirspurn um 4%, í janúar
um 9% og í febrúar um 8%. A móti
kom að nokkru leyti að farþegum á
túristafarrými fjölgaði að mun.
Arðsemi minnkaði þó um meira en
3% á fyrsta ársfjórðungi.
Stenberg segir að við sama
vanda sé að etja hjá British Airwa-
ys og KLM: „Við sjáum samdrátt í
fluginu, allir eiga við vanda að
stríða."
Eftirspurn eftir sætum í við-
skiptafarrými skiptir SAS meira
máli en önnur félög. Tii að arðsemi
haldist þarf að fylla tvö og hálft
sæti á túristafarrými fyrir hvert
eitt sem losnar á viðskiptafan-ými.
Harðari samkeppni
Samkeppni hefur harðnað á fjöl-
fömum leiðum. Atta félög halda
uppi ferðum milli Stokkhólms og
Kaupmannahafnar og flugfélög,
sem bjóða lág fargjöld, hafa tekið
upp flug milli Bretlands og Skand-
inavíu. Aðeins til að halda mark-
aðshlutdeild sinni verður SAS að
gera gagnráðstafanir: með kynn-
ingartilboðum, afslætti, nýjum leið-
um o.fl. Þó er ólíklegt að hagnaður
í ár muni jafnast á við 2,89 millj-
arða sænskra króna hagnað félags-
ins í fyrra.
Að sögn Financial Times er vafa-
samt að nýjar flugvélar, nýir ein-
kennisbúningar og lægri kostnaður
muni auka hagnað SAS, ef til
skemmri tíma er litið. Stenberg er
þó þeirrar skoðunar og er reiðubú-
inn að íhuga róttækari ráðstafanir,
þar á meðal breytingar á þung-
lamalegu hluthafakerfi. Ríkis-
stjórnir Svíþjóðar, Danmerkur og
Noregs eiga 50% í félaginu og
hlutabréf þess eru skráð í kaup-
höllum landanna. Stefnt er að því
að breyta þessu: skrá bréfin á ein-
um stað, draga úr eignarhlut ríkis-
stjórnanna og veita SAS greiðari
aðgang að fjármagnsmörkuðum.
„Því ekki að koma þessu til leiðar
fyrir aðalfund félagsins á næsta
ári?“ spyr Stenberg.
KVÆRNER ASA, hið fjölþætta
norsk-enska verkfræðifyrirtæki,
hefur tilkynnt að það muni draga
sig út úr skipasmíði og selja skipa-
smíðastöðvar sínar í Noregi, Bret-
landi, Þýzkalandi og Finnlandi, eða
breyta þeim í sameignarfyrirtæki,
vegna vaxandi taps og slæms útlits
í greininni.
Fyrirtækið mun segja upp
25.000 starfsmönnum í heiminum -
tæpum þriðjungi starfsliðsins -
vegna hagræðingar, sem miðar að
því að draga úr kostnaði.
Kværner stórveldið á við mikla
fjárhagserfiðleika að stríða. Fyrir-
tækið er rekið með tapi í fyrsta
skipti síðan 1967 og hlutabréf þess
hafa fallið í verði.
Róttæk endurskipulagning mið-
ar að því að Kværner skili aftur
hagnaði eftir tap fyrir skatta upp á
1,35 milljarða norskra króna í fyrra
miðað við hagnað upp á 1,51 millj-
arð króna árið á undan.
Fyrirtækið hefur orðið fyrir
barðinu á fjárhagskreppu í Asíu,
veikri stöðu á olíu- og gasmarkaði
og harðri samkeppni í skipasmíða-
iðnaði.
Verð hlutabréfa í Kvæmer hefur
lækkað í 133 norskar krónur úr 480
krónum 1997.
Minni en öflugri
Kværner
Kjell Amskog aðalframkvæmda-
stjóri sagði: „Nýr Kværner mun
fylgja þeirri stefnu að koma á fót
fyrirtæki, sem verður mun minna
og miklu beinskeyttara, en áreið-
anlega öflugra.“
„Óll starfsemi sem tap er á verð-
ur seld og fyrirtækið ætlar að
skera niður kostnað um 1 milljarð
norskra króna á ári. Þar með verða
árlegar tekjur fyrirtækisins 55
milljarðar króna og starfsmenn
55.000,“ sagði í fréttatilkynningu
frá fyrirtækinu.
Nýtur stuðnings banka
fyrirtækisins
Arleg velta mun minnka um 25
milljarða norskra króna vegna
endurskipulagningarinnar, sem
fyrirtækið segir að njóti heilshugar
stuðnings helztu viðskiptabanka
fyrirtækisins. Velta í fyrra nam
85,2 milljörðum norskra króna.
Aætlun Kværners var tekið með
gát á mörkuðum og er því fagnað
að skipasmíði verði hætt, en ekki
búizt við snöggum umskiptum.
„Endurskipulagning skilar ekki ár-
angri í einu vetfangi. Hún gerist
hægt og Almskog er nógu raunsær
til að gera sér grein fyrir því,“
sagði sérfræðingur Merrill Lynch.
Ráðstafanir Kværners kunna að
vera undanfari fleiri breytinga í
skipasmíðaiðnaði Evrópu, sem er
ríkisstyrktur. Greinin hefur orðið
fyrir miklum þrýstingi frá keppi-
nautum í Asíu og breytingar eru
taldar tímabærar.