Morgunblaðið - 14.04.1999, Qupperneq 35
MORGUNBLAÐIÐ
UMRÆÐAN
MIÐVIKUDAGUR 14. APRÍL 1999 35
Abyrg* vinnubrögð
Samfylkingarinnar
Á MÖRGUM svið-
um innleiðit- Samfylk-
ingin ný vinnubrögð í
stjórnmálin. Samfylk-
ingin ein flokka for-
gangsraðar verkefn-
um, gerir nákvæma
grein fyrir fjármögnun
þeirra og hvaða áhrif
þau munu hafa á ríkis-
fjármálin og stöðug-
leika efnahagslífsins.
Hvað kosta
loforðin?
Gömlu flokkarnir -
stjórnarflokkamir -
eru lítið spurðir um
kosningaloforðin -
hvað þá fjármögnun þeirra. Full
ástæða er þó til. Skemmst er að
minnast að í góðærinu lögðu þeir
niður félagslega aðstoð í húsnæðis-
málum, felldu niður barnabætur
hjá 24 þúsund heimilum og skertu
þær um 2,2 milljarða, án þess að
boða það fyrir kosningar. Þeir boð-
uðu heldur ekki að miðhálendið
yrði sett uridir fámennisstjóm, þar
sem meginþorri þjóðarinnar hefur
ekkert um eign sína að segja. Þeir
sögðu heldur ekki frá því að í stað
þess að leggja hærri fjár-
magnstekjuskatt á hina ríku lögðu
þeir til atlögu við launafólk með því
að skattleggja sparnað þess.
Á landsfundi Sjálfstæðisflokks-
ins í s.l. mánuði vora samþykktar
tillögur, - aðallega fyrir hátekju-
fólk - sem kosta munu nokkra tugi
milljarða, sennilega nálægt 50
milljörðum. Þetta gerist án þess að
fjölmiðlar eða aðrar valdastofnanir
sjái ástæðu til að spyrja hvort
þessar samþykktir sjálfstæðis-
manna muni stefna stöðugleikan-
um í hættu. Það er eins og enginn
ætlist til neinnar ábyrgðar af
stjórnarflokkunum.
Viðskilnaður
stjómarflokkanna
Raunaukning út-
gjalda á yfirstandandi
kjörtímabili hjá Fram-
sóknarflokknum og
Sjálfstæðisflokknum
var 52 milljarðar
króna, en stór hluti út-
gjaldaaukningarinnar
var fjármagnaður með
miklum hagvexti, sem
verið hefur 4-5% á ári.
Ástæða er til að vekja
athygli á því að þessi
mikli hagvöxtur hefur
verið knúinn áfram af
mikilli skuldaukningu
heimilanna eða um 130 milljarðar á
kjörtímabilinu og gífurlegum við-
skiptahalla sem á 3 áram hefur
Stjórnmál
Samfylkingín, segir
Jóhanna Sigurðar-
dóttir, forgangsraðar
verkefnum.
verið 74 milljarðar krónur. Skulda-
aukning heimilanna, gífurlegur við-
skiptahalli og veraleg aukning á
skuldum þjóðarbúsins á undan-
fórnum áram kyndir þessai’ vik-
urnar undir ofþenslu og stefnir
stöðugleikanum í hættu. Það er
sérkennilegt að stjórnarflokkamir
þakki sér árangurinn af góðærinu
við slíkar aðstæður.
Bætum stöðu fjölskyldna
Raunaukning útgjalda sam-
kvæmt fjárhagsáætlun Samfylk-
ingarinnar til næstu 4ra ára er
áætluð 35 milljarðar, byggt á sömu
forsendum og 52 milljarða út-
gjaldaauki yfirstandi kjörtímabils.
Sá mismunur er þó á útgjaldaauka
þessa og næsta kjörtímabils að hjá
Samfylkingunni er ekki gert ráð
fyrir að fjármögnunin byggi að
neinu leyti á auknum hagvexti. Þar
höfum við svigrúm til að greiða nið-
ur skuldir og skila afgangi á fjár-
lögum. Forgangsverkefni Samfylk-
ingarinnar verða jafnréttismál,
mennta- og menningarmál og vel-
ferðar-, félags- og heilbrigðismál.
Menntamálin, málefni bamafjöl-
skyldna, öryrkja, aldraðra, og ein-
stæðra foreldra verða þar í önd-
vegi, sem gjörbreyta mun lífsaf-
komu heimilanna.
Tími heimilanna kominn
Samfylkingin mun fjármagna
aukin útgjöld á næsta kjörtímabili
með tryggingagjaldi, auðlinda-
gjaldi, umhverfis- og mengunar-
gjöldum og breyttu fjármagns-
skattskerfi. Samfylkingin ætlar
ekki að hækka skatta á einstak-
linga. Þvert á móti verður dregið
úr skattbyrði bamafjölskyldna
með lágar og meðaltekjur. Gömlu
flokkarnir segja að þetta muni
stefna stöðugleikanum í hættu og
fyrirtækin muni ekki standa undir
skattahækkun, sem þó er hófleg.
Þjóðarsáttinni sem innleiddi þann
stöðugleika sem við búum við í dag
var komið á 1990 þegar Sjálfstæð-
ismenn voru utan stjómar. Þá var
þjóðarsátt um að létta sköttum af
fyrirtækjum til að styrkja atvinnu-
lífið, en fyrirtækjaskattar era nú
miklu lægri hér á landi en í helstu
samanburðarlöndunum. Nú er
komið að því að létta skattbyrði af
einstaklingum og heimilunum í
landinu.
Höfundur er oddviti Samfylkingar-
innar í Reykjavík.
Jóhanna
Sigurðardóttir
Hugsaðu um húðina
er frábært á
sjúkrahúsinu
og enn betra
heima!
Fæst í flestum apótekum
Dreifing T.H. Arason sf.,
fax/sími 554 5748 og 553 0649
Upplýsingakerfi
KERFISÞROUN HF.
Fákafeni11 • Sími 568 8055
www.islandia.is/kerfisthroun
íþróttir á Netinu ^mbl.is
ALLTAf= G!TTH\SAÐ A/ÝTl
Barnaskór
f bláu húsi við Fákafen, s. 568 3919.
SMÁSKÓR
St. 22-34
Líka með rifiás.
Verð kr. 2.
St. 22-34
Verð kr. 2.790.
Litur: Hvítt
gulgrænu.
■jr
Amerískir færanlegir lúxuspottar
Stærð 200x200x85 cm. Kr. 450 þús. (u.þ.b. 1050I.)
Stærð 200x160x85 cm. Kr. 370 þús. (u.þ.b.7501.)
Acryl-pottur í rauSviðargrind. Innbyggt hitunar- og
hreinsikerfi. Vatnsnudd og loftnudd. Engar leiSslur
nema rafmagn, 16 amp. Einangrunarlok meS
læsingum. Sjólfvirkur hitastillir.
Sýningarsalur opinn alla daga.
VESTAN ehf.,
sími 554 6171, farsími 898 4154,
AuSbrekku 23, 200 Kópavogi.
pm/MFWR
Reykjavík: Ármúla 11 -sími 568-1500
Akureyri: Lónsbakka - sími 461-1070
St. 24-38
Verð kr. 2.990
k og 3.290.
Hvítir og
SMASKOR
í bláu húsi við Fákafen, s. 568 3919.
Aðalfundur
Verðbréfastofunnar hf.
15. apríl kl. 17.00 i
að Hótel Loftleiðum, Víkingasal
3
verðbrÝfastofán
SuDurlandsbraut 20, Reykjavik Sími 570-1200
áldahvórf
I dag kl. 17.30 mun
Biörn
Bjarnason
menntamálaráðherra
flytja erindi í Kosningamiðstöðinni,
Skipholti 19.
Allir velkomnir
Alþingiskosningar 1999