Morgunblaðið - 14.04.1999, Page 37
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 14. APRÍL 1999 37
langvarandi ágreining
Morgunblaðið/Sverrir Vilhelmsson
ðherra, og Þorsteinn Pálsson, sjávarútvegsráðherra, kynntu samkomulag
veiðar í Barentshafi á blaðamannafundi í gær.
Igæsluskipi á eftir íslenskum togara í Barentshafi mun væntanlega heyra
ingar á milli Islands, Noregs og Rússlands tókust í Moskvu f gær.
ef heilarkvótinn fer niður fyrir 350
þúsund tonn. Ennfremur leyfum við
Norðmönnum að veiða löngu og keilu
hér við land en okkar línuskip hafa
mjög sótt í þessar tegundir að undan-
förnu og sjómenn telja þær fullnýttar.
Það er því mjög slæmt að taka meira
úr stofnum sem Hafrannsóknastofn-
un telur að sé fullnýttir og jafnvel
ofnýttir."
Kristján segir að samningurinn
verði engu að síður virtur og hann
hafi fullan skilning á því að stjórnvöld
hafi viljað ljúka málinu. Þá geti samn-
ingurinn verið af hinu góða fyrir ýmis
viðskiptatengsl við bæði Norðmenn
og Rússa. „Efni samningsins er hins-
vegar ekki í samræmi við þær vænt-
ingar sem við höfðum, meðal annars
með tilliti til þess sem við höfum kost-
að til að senda skip í
Barentshafið. Þá er samn-
ingurinn heldur ekki í
samræmi við þær vænt-
ingar sem stjórnvöld hafa
gefið okkur um stuðning
við sókn á þessi mið, með hliðsjón af
því að Norðmenn hafa tekið sér gríð-
arleg hafsvæði sem ekki er í samræmi
við alþjóðasamninga, samanber Sval-
barðasvæðið. En vissulega er gott að
ljúka þessu máli með sátt en mér
finnst sáttin þunn,“ segir Kristján.
Hefði viljað sjá fleiri tonn
Þorsteinn Már Baldvinsson, for-
stjóri Samherja hf., segir að þrátt fyr-
ir að Islendingar hafi ekki fengið mik-
ið út úr samningnum hljóti það að
vera stefna Islendinga að ná sam-
komulagi við aðrar þjóðir um nýtingu
auðlinda. „Það er í allra þágu. I þessu
tilfelli hefði maður kannski viljað sjá
fleiri tonn koma í hlut íslendinga en
ég tel hinsvegar mikilvægt að hafa
náð samkomulagi við þessar þjóðir.
Eg fagna því samkomulaginu sem
slíku,“ segir Þorsteinn.
Ymiskonar hömlum rutt úr vegi
Jón Sigurðarson, framkvæmda-
stjóri Fiskafurða hf., sem átt hefur
talsverð viðskipti í Rússlandi, segir að
í samningnum felist tvímælalaust
ávinningur fyrir íslendinga. „Ná-
grannaþjóðir hafa verið að þróa við-
skipti og samskipti við Rússa á sviði
sjávarútvegs mjög ört á undanförnum
misserum. Við höfum hinsvegar ekki
getað tekið þátt í því af fullum krafti
vegna þessarar deilu. Það hafa verið
allskonar formlegar og óformlegar
hömlur á því sem við höfum gert með
Rússum og skaðað veru-
lega okkar möguleika. Nú
er þessum hömlum hins-
vegar rutt úr vegi. Sam-
komulagið opnar marga
möguleika til samstarfs við
Rússa um veiðar í Barentshafi, á
Reykjaneshrygg og víðar,“ segir Jón.
Viðskipti verða liðugri
Páll Gíslason, framkvæmdastjóri
söluskrifstofu Sölumiðstöðvar hrað-
frystihúsanna hf. í Moskvu, segir ýmis
samstarfsverkefni við Rússa hafa
strandað á því að ekki var fyrir hendi
samkomulag milli þjóðanna um veiðar
í Barentshafi. „Að þessu samkomulagi
fengnu verða öll viðskipti liðugri. Sam-
komulagið hlýtur að gefa mikla mögu-
leika í samstarfi við Rússa og gefa ís-
lenskum útgerðum tækifæri á að koma
til veiða í Barentshafi í sátt og sam-
lyndi við aðrar þjóðir," segir Páll.
Samningurinn
og bókanir
gilda I 4 ár
Tillögur að varn
Garöur
á Brún
Framkvæmdasvæði
Upptaka-
stoðvirki f
Kálfabotni
Garður 'i
Vegurað
fratnkvæmdasvæði
%//
Garður —
skv. tillögu
heimamanna
Garður 3
0 100 200 300 400 500 m
I----1-----1____«_________I /
BÆJARSTJÓRN Seyðisljarðar leggur til að gerð verði stoðvirki efst í fjallinu og stuttur leiðigarður niður und-
ir byggð að Fálkagili. Að sögn Ólafs H. Sigurðssonar bæjarstjóra yrði fyrst og fremst um lagfæringu á náttúru-
legum aðstæðum að ræða.
Hætt verði við snjóflóðavarnir neðan undir byggð á Seyðisfírði
Áhersla á varnir
efst í Bjdlfí
BÆJARSTJÓRN Seyðisfjarðar hef-
ur hafnað þeim tillögum að snjóflóða-
vörnum sem frumskýrsla um snjó-
flóðavarnir undir Bjólfi og umhverfis-
mat gera ráð fyrir. Að sögn Ólafs H.
Sigurðssonar bæjarstjóra leggur
bæjarstjórnin áherslu á þann hluta
skýrslunnar sem gerir ráð fyrir upp-
takamannvirkjum þ.e. upptakastoð-
virkjum efst í fjallinu, þar sem snjó-
flóð eiga upptök sín í Bjólfinum eða í
Kálfabotni. Jafnframt er lagt til að
hætt verði við snjóflóðavarnir neðan
undir byggð. Sagði Ólafur að áætlað-
ur kostnaður vegna tillagna bæjar-
stjórnar væri milli 300 og 500 millj.
en kostnaður samkvæmt frumskýrslu
um snjóflóðavarnir væri áætlaður um
800-1.200 millj. Bæjarstjórnin fund-
aði um málið í fyrrakvöld og fjöl-
menntu bæjarbúar á fundinn til þess
að þlýða á fundinn og fylgjast með.
Ólafui- sagði að samkvæmt umhverf-
ismatsskýrslunni væri gert ráð fyrir
upptakamannvirkjum efst í fjallinu en
að meiri áhersla væri þó lögð á mann-
virkin neðan við bæinn. „Jafnvel er
gert ráð fyrir að sleppa þessum upp-
takamannvirkjum sem við teljum vera
algera forsendu fyrir því að stöðva
snjóflóð af þeirri stærð, sem við gætum
hugsanlega lent í,“ sagði hann. „Þessar
garðahugmyndir neðan við bæinn eru
svo stórkostlegar að okkur líst ekkert á
þær. Þetta eru miklu stæiri garðar
heldm- en nokkurs staðai- hefur verið
talað um annars staðar á landinu en
þeii’ eru allt að 25 metrar að hæð.“
Ólafur sagði að bæjarstjórnin vildi
byrja á gerð upptakamannvirkja efst í
fjallinu og koma þannig í veg fyrir
svokölluð ofsaflóð. „Við höfum ekki
miklar áhyggjur af Bjólfinum á öðrum
stöðum,“ sagði hann. „Hann er svo
brattur að snjór safnast ekki fyrh’
nema í Kálfabotnum. Við höfum einnig
áhyggjur af því að efst í Bjólfinum er
oft mikil snjóamyndum og þaðan gæti
hugsanlega fallið snjóflóð. Ef það
gerðist færi flóðið yfir mannvirkin í
Kálfabotnum og tæki stoðvirkin með
sér. Þess vegna verður þessi garður að
koma upp á brúninni til að hindra
það.“
Ólafur sagði að ofan við verksmiðju
Vestdalsmjöls safnaðist oft snjór og að-
þar hefðu oft fallið snjóflóð, síðast árið
1995. Sagði hann að ákveðið hafi verið
að verja ekki verksmiðjuna enda hefði
endurbygging hennar verið stöðvuð.
títlitslýti
Ólafur sagði að nú yrðu tillögur
bæjarstjórnar sendar umhverfisráðu-
neytinu til skoðunar en endanleg
ákvörðun yrði heimamanna um hvort
ráðist yrði í byggingu mannvirkjanna.
„Hugmyndir okkar um kostnað eru á
bilinu 300-500 milljónh’ í stað
800-1.200 milljóna miðað við umhverf-
ismatsskýrsluna og vantar þó inn í þá
skýrslu ýmsan annan kostnað t.d.
vegna aksturs með efni í gegnum bæ-
inn, sem vegurinn þar þolir ekki,“
sagði hann. „Okkur hrýs hugur við-
þessum gríðarlega kostnaði og útlits-
lýti sem við teljum að verði á bænum
og teljum engan veginn ásættanlegt.“
Minnihlutinn telur meirihluta vilja losna við formanninn
Atvinnu- og ferðamál
heyri undir þróunarsvið
BORGARRÁÐ hefur vísað tillögu
meirihluta atvinnu- og ferðamála-
nefndar til borgarstjórnar um að
leggja atvinnu- og ferðamálastofu nið-
ur. Að sögn Ingibjargar Sólrúnar
Gísladóttur borgarstjóra er gert ráð
fyi’ir að málaflokkurinn verði færður
undir þróunarsvið borgarinnar. Inga
Jóna Þórðardóttir, oddviti sjálfstæðis-
manna, segir að sú spurning vakni
hvort með þessari skipan sé Reykja-
víkurlistinn að losa sig við Pétur Jóns-
son, formann nefndarinnar, sem verið
hefur fulltrúi Alþýðuflokks innan
Reykjavíkurlistans.
Borgarstjóri segir að tillagan sem
lögð var fyrir atvinnu- og ferðamála-
nefnd geri ráð fyrir að sérstakur
starfsmaður þróunarsviðs færi með
atvinnumál en borgarstjóri var spurð-
ur hvort ástæða væri til að leggja nið-
ur starf ferðamálafulltrúa í ljósi þess
að búast mætti við að ferðamönnum til
borgarinnar fjölgaði um aldamótin. „í
raun er ekki verið að gera neinn gi’ein-
armun á atvinnumálum og ferðamál-
um,“ sagði Ingibjörg Sólrún. Sagði
hún að spurningin væri hvort þörf
væri á sérstökum starfsmanni til að
sinna ferðamálum eða hvort litið væri
á ferðamál sem eitt mikilvægasta at-
vinnumál í borginni og tengja ferða-
málin verkefnisstjóra atvinnumála
sem hans verkefni að sinna. Borgar-
stjóri benti á að fé hafl þegar verið
varið til ferðamála vegna Menningar-
borgarinnar árið 2000 og þá á hennar
vegum auk þess sem samið hafi verið
við Markaðsráð ferðaþjónustunnar um
að sinna ferðaþjónustunni.
Borgarstjóri sagði að tvær stöður
væru hjá atvinnu- og ferðamálastofu
ásamt stöðu ritara og að í raun yrði til
ein staða hjá þróunarsviði í stað
tveggja en staða ritai’a yrði lögð niður.
„Það er alls ekki gert ráð fyrir að hætt
verði að sinna ferðamálum,“ sagði hún.
„Þeim verður sinnt sem mikilvægum
atvinnumálum á þróunarsviði."
Undarlegt mál
„Málið allt er hið undarlegasta,"
sagði Inga Jóna Þórðardóttir, oddviti
Sjálfstæðisflokks. „Hér er rætt um að
leggja niður atvinnu- og ferðamála-
stofu en á sama tíma á að ráða sér-
staka verkefnisstjóra atvinnuþróunar-
mála.“ Sagði hún að engin skýi’ grein
væri gerð fyrir því hvernig ferða- og
kynningarmálum yrði sinnt af hálfu
borgarinnar en vísað væri á skrifstofu
Markaðsráðs ferðaþjónustunnar. Sú
skrifstofa hefði önnur sérstök verkefni
með höndum og ekki yrði séð að ferða-
og kynningarmál höfuðborgarinnai’
féllu þar undir.
Inga Jóna sagði að áður en atvinnu-
og ferðamálastofa hafi verið stofnuð,
en sjálfstæðismenn hafi ekki verið
sammála þeirri ákvörðun, hafi starfs-
maður Reykjavíkurborgar sinnt ferða-...
og kynningarmálum sérstaklega.
„Þannig að það starf hefur verið unnið
af hálfu borgarinnar og mikilvægt að
til sé ákveðið samræmingarstai’f innan
stjórnkerfisins," sagði hún. „Það sem
vekur hins vegar sérstaka athygli er
að það er verið að leggja niður at-
vinnu- og ferðamálanefnd og í staðinn
á að setja á laggirnar nýja nefnd, at-
vinnuþróunarnefnd.“