Morgunblaðið - 14.04.1999, Síða 53
MORGUNB LAÐIÐ
>
MIÐVIKUDAGUR 14. APRÍL 1999 53
MINNINGAR
SÆBJORG J. K.
BECK
+ Sæbjörg Jó-
hanna Beck
fæddist í Kollaleiru
í Reyðarfirði 13.
febrúar 1902. Hún
lést á hjúkrunar-
heimilinu Hulduhlíð
á Eskifirði 1. aprfl
síðastliðinn. For-
eldrar hennar voru
hjónin Þuríður Eyj-
ólfsdóttir frá Selja-
teigi og Kristinn H.
Beck frá Sómastöð-
um, bóndi á Kolla-
leiru. Systkini Sæ-
bjargar sem komust
til fullorðinsára eru öll látin, en
þau voru: Steinunn Siggerður,
Hans
Eyjólfur
Ríkharð,
Kristinn,
Kynslóðir koma og fara. Há-
öldruð heiðurskona hefur kvatt
okkur, síðust hinna mörgu mætu
systkina frá Kollaleiru í Reyðar-
firði. Gamlar myndir leita á munans
lendur, allt frá bernsku- og æsku-
tíð, þegar það taldist til ljúfra há-
tíðarstunda er heimsótt voru þau
hjón á Kollaleiru, foreldrar Sæ-
bjargar og þeirra fólk. Faðir minn
hafði miklar mætur á þeim sæmd-
arhjónum, Þuríði móðursystur
sinni og ekki síður Kristni manni
hennar, lofsyrði hans um þau merla
í minni, því orð eins og heiður og
kærleikur voru orð mikillar merk-
ingar í hans munni. Eftir lát Krist-
ins, þegar út í Ásbyrgi var haldið á
vit þeirra Þuríðar og barna hennar,
Sæbjargar og Páls, þá voru það
mér ekki síður mætar stundir.
Hinn hljóðláti, hlýi andi sem yfir
öllu var, einlægni festunnar og
hæverskunnar um leið, krydduð
góðlátlegri kímni húsráðenda, allt
gerði þetta að verkum að ungur
hugur hreifst af.
Og nú er hið síðasta af þeim
Kollaleirusystkinunum, er kær voru
öllum er kynnast náðu, horfið á
lendur eilífðarinnar. Sæbjörg var
skapfóst kona, hreinlynd og hugum-
glöð, á engan hallaði hún í orðræðu
sinni, framkoman öll og fasið færði
heim sanninn um það að þar færi
væn kona í hógværri alúð sinni.
Móður sinni reyndist hún frábær
dóttir, vafði hana yl sínum og næm-
um kærleika allt til hinztu stundar
og sama gilti um Pál bróður hennar
sem kvaddi svo alltof fljótt þennan
heim, laut í lægra haldi fyrir þeim
vágesti s_em svo marga fellir að
foldu. Ómetanlegt var þeim
mæðginum að eiga stoð sína alla hjá
þessari kærleiksríku dóttur og syst-
ur sem öllu framar hugsaði um ann-
arra hag og heill.
Saman áttu þau svo árin mörg og
góð, Sæbjörg og hennar trausti og
góði eiginmaður Stefán Bjarnason,
og vel man ég hve þau foreldrar
3lómat>ú3i
in
öarðskom
v/ T-ossvogskirkjwcjapð
5ími. 554 0500
UTFARARSTOFA
OSWALDS
SÍMI 551 3485
ÞJÓNUSTA ALLAN
SÓLARHRINGINN
AÐAL&TRÆTI 4B • 101 REYKJAVÍK
LÍ K K IS'I TJ VINN USTO HA
EYVIND/VR ÁRNASONAR
fór fram
kirkju 10. aprfl.
Helga Elísabet, Páll
Marinó, Óskar Al-
freð og Unnur Sig-
ríður. Eiginmaður
Sæbjargar var Stef-
án Bjarnason bif-
reiðarstjóri, f. 23.
okt. 1911 og d. 25.
sept. 1991. Sæbjörg
ól allan aldur sinn á
Reyðarfirði utan
allra síðustu árin í
Hulduhlíð á Eski-
firði.
Utför Sæbjargar
frá Reyðarijarðar-
mínir mátu mikils að mega sækja
þau hjón heim og njóta með þeim
góðra og gjöfulla stunda. Hin kyrr-
láta hlýja, sem umvafði þau, var öll-
um sem áttu við þau fund dýrmæt
og gefandi.
Sæbjörg var vinfóst kona og fast-
lynd sem hún var þá átti hún þessa
heiðu hugarró og hjartans innstu
gleði sem gerðu hana að svo gegnri
og umfram allt góðri manneskju.
Hún var myndarleg kona í sjón,
sviphrein og bjartleit, hún var afar
myndvirk í öllum sínum gjörðum,
heimili hennar bar hagleik og nost-
ursamri snyrtimennsku fagurt vitni.
Til þeirra Stefáns var gestagatan
gi-eið, frændliði sem vinum.
Hún var kona vel fróð, enda las
hún mikið og trútt var minni henn-
ar, hún var orðvör og engin mál-
skrafsmanneskja, en öll orðræða
hennar bar góðri greind vitni sem
og hugarþeli þekku, skýr kona og
glögg og grómlaus. Sæbjörg eignað-
ist ekki börn en barngóð var hún
svo af bar og börn áttu hug hennar,
ekki sízt nafna hennar, það færðist
ljómi i augu hennar þegar hún
minntist á hana.
Gefandi samferðafólk mikilia
mannkosta, hugarhlýju og verm-
andi viðmóts er ómetanlegt okkur á
lífsins leið og fáa hef ég vitað trúrri
þeim eigindum öllum en hana Sæ-
björgu.
Síðast leit ég til hennai- í Sunnu-
gerði litlu eftir lát Stefáns, manns
hennar, sem þá lengi hafði heilsu-
veill verið. Þakkar- og blessunarorð
hennar þá mun ég varðveita alla tíð,
svo mikils verð voru mér þau. Sjálf
bar hún harm sinn í hljóði, heiðríkja
róseminnar var sem fyrr í svip
hennar er ég kvaddi.
Að leiðarlokum er þessi trúfasta
og trygglynda kona kvödd með mik-
illi þökk fyrir margar mætar stund-
ir. Þar fór hin prúða kona einlægrar
gerðar. Frændfólki hennar nánu
sendum við Hanna samúðarkveðjur.
Á vit Ijóssins lenda leitaði hugur
hennar og vissa og þar á hún Sæ-
björg heimvon góða svo hjartahlý
og sönn sem hún var. Blessuð sé
kær minning Sæbjargar Beck.
Helgi Seljan.
JON
STEFÁNSSON
+ Jón Stefánsson fæddist í
Reykjavík 10. júní 1965.
Hann lést af slysförum 3. aprfl
síðastliðinn og fór útför hans
fram frá Bústaðakirkju 12.
aprfl.
Vér reynum harm að hylja
og hjarta djúpstæð tár,
en það er þungt að skilja
að þú sért orðinn nár.
Þú gekkst frá okkur glaður
með góðleiks bros um kinn, og hugur bar þig
hraður
þú hraustur æskumaður,
en þá í síðasta sinn.
En lokað er ei leiðum
það ljómar bak við ský,
á morgunhimni heiðum
rís heilög sól á ný.
Þær innstu vonir ölum
að eftir hinsta blund
vérduftúr jarðardölum
í Drottins himnasölum
þá eigum endurfund.
Legg ég nú bæði líf og önd,
ljúfi Jesú, í þína hönd,
síðast þegar ég sofna fer
sitjiguðsenglaryfirmér.
(Hallgr. Pét.)
Elsku Dísa, Jónsi, Stebbi og
Marteinn Helgi, Guð gefi ykkur og
öllum ættingjum og vinum styrk í
sorginni.
Bryndís.
+
Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar, tengda-
móðir, amma og langamma,
MARGRÉT SÍVERTSEN,
Brekkugerði 13,
sem lést föstudaginn 2. apríl verður jarðsungin
frá Grensáskirkju fimmtudaginn 15. apríl
kl. 15.00.
Jón Sveinbjörnsson,
Sveinbjörn Jónsson, Sigurrós Jóhannsdóttir,
Ingibjörg Sívertsen Jónsdóttir, Guðjón Þorkelsson,
Ingibjörg Birgitta, Jón Ómar, Hafsteinn Bergmann,
Margrét Ósk, Þorkell, Elísabet Ósk,
Vignir, Kristján Ari, Sveinbjörn, Lára Björk,
Hera Sól, Gunnur Rún, Guðjón Ingi, Bjarki Rúnar.
+
INGVAR KRISTINN ÞÓRARINSSON
kennari og bóksali
á Húsavík,
verður jarðsunginn frá Húsavíkurkirkju laugar-
daginn 17. apríl kl. 14.00.
Björg Friðriksdóttir,
Stefán Örn Ingvarsson, Sigríður Harðardóttir,
Sigríður Ingvarsdóttir, Guðmundur Jónsson,
Lilja Sigurðardóttir, Dagbjartur Sigtryggsson,
Stefán Þórarinsson, Aðalheiður Gunnarsdóttir.
+
Hjartkær eiginkona mín, móðir, tengdamóðir
og amma,
SIGRÍÐUR LAUFEY ÁRNADÓTTIR,
verður jarðsungin frá Akureyrarkirkju föstu-
daginn 16. apríl kl. 10.30.
Þeim, sem vildu minnast hennar, er bent á
hjúkrunarheimilið Sel eða líknarstofnanir.
Kári Johansen,
Gunnar Kárason,
Svana Þorgeirsdóttir,
Gréta Aðalsteinsdóttir,
Kári Árnason,
Herborg Árnadóttir.
+
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma,
langamma og langalangamma,
HELGA MARÍA JÓNSDÓTTIR,
Laugarholti,
er lést fimmtudaginn 8. apríl, verður jarðsungin
frá Melgraseyrarkirkju föstudaginn 16. apríl kl.
14.00.
Blóm og kransar eru vinsamlega afþakkaðir en
þeim, sem vildu minnast hennar, er bent á Sjúkrahúsið á Hólmavík.
Guðrún Þórðardóttir,
Ingibjörg Þórðardóttir, Ólafur S. Ólafsson,
Ólafur Þórðarson, Elísabet Jóna Ingólfsdóttir,
Jóhann Þórðarson, Guðrún Halldórsdóttir,
Kristín Þórðardóttir, Guðmundur Magnússon,
Jón Fanndal Þórðarson, Margrét Magnúsdóttir,
Ása Ketilsdóttir,
barnabörn, barnabarnabörn og
barnabarnabarnabörn.
+
Móðir mín, tengdamóðir, amma, langamma og
langalangamma,
GUÐRÍÐUR JÓNSDÓTTIR,
áður til heimilis á Suðurgötu 23,
Keflavík,
sem lést á Garðvangi, Garði, verður jarðsung-
in frá Keflavíkurkirkju fimmtudaginn 15. apríl
kl. 14.00.
María Sigurðardóttir, Haukur Gígja,
Jón Rósmann Ólafsson, Magnea María ívarsdóttir,
Berta Jakobsdóttir, Sigríður Brynjarsdóttir,
Guðríður Brynjarsdóttir, Pálmi Steinar Guðmundsson,
Borgar Brynjarsson,
barnabörn, barnabarnabörn og
barnabarnabarnabörn.
+
Eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og
langafi,
ÓLAFUR SKAFTASON
bóndi,
Gerði, Hörgárdal,
sem andaðist á hjúkrunarheimilinu Seli fimmtu-
daginn 8. apríl, verður jarðsunginn frá
Akureyrarkirkju föstudaginn 16. apríl kl. 13.30.
Jarðsett verður að Myrká.
Guðrún Jónasdóttir,
Þórdís Ólafsdóttir, Pétur Ó. Helgason,
Álfhildur Ólafsdóttir, Sigurður Bárðarson,
l'var Ólafsson,
Arnþór Ólafsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
+
Ástkær sambýliskona, frænka, mágkona og
uppeldissystir,
ÁGÚSTA KRISTÍN BASS,
Brekku,
Hvalfjarðarströnd,
verður jarðsungin frá Hallgrímskirkju í Saurbæ
laugardaginn 17. apríl kl. 14.00.
Erlingur Einarsson,
Jórunn Magnúsdóttir,
Gunnar Nikulásson,
Helga Gísladóttir,
Margrét Gísladóttir.