Morgunblaðið - 14.04.1999, Síða 60
60 MIÐVIKUDAGUR 14. APRÍL 1999
MORGUNBLAÐIÐ
KIRKJUSTARF
í DAG
Safnaðarstarf
- Kynningar-
vaka í Hall-
grímskirkju
um kristniboð
og hjálparstarf
KYNNIN GARVAKA verður í
Hallgrímskirkju í kvöld kl. 20.30.
Biskup Islands hr. Karl Sigur-
björnsson flytur erindi um efni
~-r kvöldsins, en hann hefur hvatt
söfnuði landsins til að láta til sín
taka um málefni kristniboðs og
hjálparstarfs. Eftir kynningarvök-
una gefst fólki tækifæri til að skrá
sig í „hóp áhugafólks um málefni
kristniboðs og hjálparstarfs“, sem
verður starfræktur í Hallgríms-
kirkju.
Mörg verkefni bíða svona áhuga-
hóps, því möguleikar til starfa á
þessum vettvangi eru mjög miklir.
Samband íslenskra kristniboðsfé-
laga hefur kristniboðsviku þessa
dagana og verður kynningarvakan
í Haligrímskirkju liður í því átaki.
A kynningarvökunni mun auk bisk-
ups koma fram Valgerður Gísla-
dóttir, sem hefur starfað að
kristniboði með eiginmanni sínum í
Eþíópíu í mörg ár.
Þá mun sönghópurinn „Rúmlega
átta“ koma fram og prestar safnað-
arins, sem leiða samkomuna.
Áskirkja. Starf fyrir 10-12 ára
böm kl. 17.
Bústaðakirkja. Opið hús fyrir aldr-
aða kl. 13-17.
Dómkirkjan. Hádegisbænir kl.
12.10. Orgelleikur á undan. Léttur
málsverður á kirkjuloftinu á eftir.
Mæðrafundur kl. 14-15.30 í safnað-
arheimilinu. Starf fyrir 10-12 ára
böm kl. 17 í safnaðarheimilinu.
Grensáskirkja.Samverustund fyrir
eldri borgara kl. 14-16. Biblíulest-
ur, samverustund, kaffiveitingar.
TTT-starf (10-12 ára) kl. 16.30.
Hallgrímskirkja. Opið hús fyrir
foreldra ungra barna kl. 10-12. St-
arf fyrir 9-10 ára kl. 16.30. Starf
fyrir 11—12 ára kl. 18. Afríkuferð,
biskup íslands, herra Karl Sigur-
björnsson segir frá. Rúmlega átta
syngja. Valgerður A. Gísladóttir
mælir upphafsorð.
Háteigskirkja. Mömmumorgunn
kl. 10-12. Kvöldbænir og fyrirbæn-
ir kl. 18.
Langholtskirkja. Starf eldri borg-
ara í dag kl. 13-17. Allir velkomnir.
Laugarneskirkja. „Kirkjuprakkar-
ar“ (6-9 ára börn) kl. 14.30. TTT
(starf fyrir 10-12 ára börn) kl. 16.
Fundur æskulýðsfélagsins (13-15
ára) kl. 20.
Neskirkja. Mömmumorgunn kl.
10-12. Fræðsla: hreyfíþroski.
Hjúkmnarfr. á Seltjarnarnesi. Op-
ið hús fyrir eldri borgara kl. 15-17.
Umsjón Kristín Bögeskov djákni.
Bænamessa kl. 18.05. Sr. Halldór
Reynisson.
-r Seltjarnaraeskirkja. Kyrrðar-
stund kl. 12. Söngur, altarisganga,
fyrirbænir. Léttur hádegisverður í
safnaðarheimilinu.
Árbæjarkirkja. Félagsstarf aldr-
aðra, opið hús í dag kl. 13.30-16.
Negro
J
íálenskar ^
fei|mingargjafi
Skólavörðustíg 21a »101 Reykjavík
sími/fax 552 1220
KARL Sigurbjörnsson, biskup
Islands, flytur erindi um mál-
efni kristniboðs og hjálpar-
starfs í Hallgrímskirkju í kvöld.
Handavinna og spO. Fyrirbæna-
guðsþjónusta kl. 16. Bænarefnum
er hægt að koma til presta safnað-
arins. TTT í Ártúnsskóla kl. 16-17.
Breiðholtskirkja. Kyrrðarstund kl.
12.10. Tónlist, altarisganga, fyrir-
bænir. Léttur málsverður í safnað-
arheimilinu á eftir. „Kirkjuprakk-
arar“ starf fyrir 7-9 ára börn kl.
16. TTT starf fyrir 10-12 ára kl.
17.15. Æskulýðsstarf á vegum
KFUM og K og kirkjunnar kl. 20.
Fella- og Hólakirkja. Helgistund í
Gerðubergi á fímmtudögum kl.
10.30.
Grafarvogskirkja. KFUK fyrir
stúlkur 9-12 ára kl. 17.30-18.30.
Hjallakirkja. Fjölskyldumorgnar
kl. 10-12. Starf fyrir 10-12 ára kl.
16.30.
Kópavogskirkja. Starf með 8-9
ára bömum í dag kl. 16.45-17.45 í
safnaðarheimilinu Borgum. Starf á
sama stað með 10-12 ára (TTT) kl.
17.45-18.45.
Seljakirkja. Fyrirbænir og íhugun
kl. 18. Beðið fyrir sjúkum, allir vel-
komnir. Tekið á móti fyrirbæna-
efnum í ldrkjunni og í síma
567 0110. Léttur kvöldverður að
bænastund lokinni. Fundur Æsku-
lýðsfélagsins kl. 20.
Keflavíkurkirkja. Kirkjan opnuð
kl. 12. Kyrrðar- og bænastund í
kirkjunni kl. 12.10. Samvera í
kirkjulundi kl. 12.25, djáknasúpa,
salat og brauð á vægu verði - allir
aldurshópar.
Landakirkja Vestmannaeyjum.
Mömmumorgunn kl. 10. Bænar- og
kyrrðarstund kl. 12.05. Biblíulestur
í KFUM&K húsinu kl. 20.30.
Hvítasunnukirkjan Fíladelfía. Kl.
18.30 fjölskyldusamvera sem hefst
með léttri máltíð á vægu verði. Kl.
19.30 er kennsla og þá er skipt nið-
ur í deildir. Allir hjartanlega vel-
komnir.
Lágafellskirkja. Kyrrðar- og
bænastundir alla fímmtudaga kl.
18 í vetur.
Selfosskirkja. Hádegisbænir
þriðjudag til fóstudags kl. 12.10.
VELVAKAJVDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15
frá mánudegi til föstudags
Þakkir til
Jónatans
Garðarssonar
ÞAKKLÁTUR sjón-
varpsáhorfandi
hringdi og biður Vel-
vakanda um að koma
á framfæri þakklæti
til Jónatans Garðars-
sonar fyrir þætti sína
á Ríkissjónvarpinu.
Hún segir hann koma
víða við og fara inn á
flesta þætti. Megi
hann verða sem
lengst í sjónvarpinu.
Sjónvarpsáhorfandi.
Dýrahald
Artemis er týnd
ARTEMIS er 4ra
mánaða gi'ábröndótt
læða og hún týndist
írá Kúrlandi í Foss-
vogi 6. april sl. Henn-
ar er sárt saknað. Ef
einhver hefur séð til
hennar þá vinsamleg-
ast hringið í síma
553-9484 eða 862-
4713.
Tapað/fundið
Göngustafur
tapaðist
LJÓSBRÚNN
bambus göngustafur
með dökku handfangi
hvarf ofan af póst-
kassahillu í fjölbýhs-
húsi, Bólstaðarhlíð
41. Skilvís finnandi
hringi í síma 553-
8373.
MORGUNBLAÐIÐ birtir til-
kynningar um afmæli, brúð-
kaup, ættarmót og fleira les-
endum sínum að kostnaðar-
lausu.
Tilkynningar þurfa að berast
með tveggja daga fyriivai-a
virka daga og þriggja daga fyr-
irvara fyrir sunnudagsblað.
Samþykki afmælisbarns
þarf að fylgja afmælistilkynn-
ingpim og/eða nafn ábyrgðar-
manns og símanúmer.
Fólk getur hringt í síma 569-
1100, Sent í bréfsíma 569-1329,
sent á netfangið ritstj@mbl.is.
Einnig er hægt að skrifa:
Árnað heilla,
Morgunblaðinu,
Kringlunni 1,
103 Reykjavík.
SKAK
Ilni.vjnn Margeir
Pétnrsson
STAÐAN kom upp á alþjóðlegu
móti í Alushta í Ukraínu í mars.
Dmitry Svetúsjkín (2.470), Úkra-
ínu, var með hvítt, en Englending-
urinn Tony Miles (2.605) hafði svart
og átti leik.
Hvítur var að hirða peð á b7 og
svarti riddarinn á c6 stendur í upp-
námi. Miles tókst að sýna fram á að
peðið var eitrað:
13. - Rb6!l 14. Dxc6 - Bd5 15. Dxe8
(Hvíta drottningin var fonguð og 15.
Db5 - c6 var ennþá verra) 15. -
Dxe8 16. Bdl - c5 17. c4 - Bc6 Þótt
hvítur hafi skrapað saman í þokka-
legar bætur fyrir drottninguna
stendur Miles betur að vígi og hann
vann í 38 leikjum.
SVARTUR á leik
■■■ 'I ’
1 1 <— o zz 1
i 1 & v i
FISKIKER spúluð í Grindavíkurhöfn.
Morgunblaðið/Ómai’
Víkverji skrifar...
VÍKVERJI er ósáttur við aug-
lýsingar Vöku-Helgafells um
nýjan hljóðbókaklúbb forlagsins,
þar sem auglýstar eru snældur og
geisladiskar. Þar segir m.a.:
„Skáldsaga Halldórs Laxness,
Ungfrúin góða og Húsið, kemur nú
í fyrsta sinn út í sjálfstæðri ís-
lenskri útgáfu...“ Þessi yfirlýsing
er vart til annars fallin en slá ryki í
augu fólks. Ungfrúin góða og Hús-
ið er ekki skáldsaga heldur smá-
saga og kom út í safni smásagna
Nóbelshöfundarins. Það er vægast
sagt undarlegt að halda því fram
að hún komi nú í fyrsta sinn út í
„sjálfstæðri íslenskri útgáfu“.
„Sjálfstæðri" af þvi að hingað til
hefur hún verið í smásagnasafni?
Það sem kom Víkverja mest á
óvart við þessar yfirlýsingar er að
þær skuli koma frá Vöku-Helga-
felli, útgáfufyrirtæki sem hefur
gefið út verk Nóbelsskáldsins í
áratugi. Þar á bæ ættu menn allra
best að vita, að Halldór Laxness og
verk hans þurfa ekki að styðjast
við óþarfa auglýsingaskrum.
xxx
MIKIÐ er Víkverji orðinn leið-
ur á skýringum olíufélaganna
á því hvers vegna þau bregðast
alltaf við svo til samdægurs, þegar
þau telja ástæðu til þess að hækka
bensín- og olíuverð, en svo tekur
það mánuði og jafnvel misseri, að
þau hreyfi sig í átt til verðlækkun-
ar, jafnvel þótt þróun á heims-
markaðsverði hafi kallað á lækkun
í langan tíma. Víkverji er þeirrar
skoðunar að íslenskir neytendur
séu oft einhverjir lélegustu neyt-
endur sem hugsast getur, lausir við
allt verðskyn, láta bjóða sér hvaða
skýringar sem er, án þess að
bregðast við og hætta jafnvel að
kaupa tiltekna vöru. En það er
auðvitað ekki svo létt að hætta að
kaupa bensín á bílinn; þótt einhver
verðhækkun verði. Öll viljum við
komast leiðar okkar og það á eins
auðveldan hátt og mögulegt er, en
ætli olíufélögin fyndu ekki fljótlega
fyrir því, ef viðbrögð við hinum
snöggu verðhækkunum olíufélag-
anna og hinum síðbúnu verðlækk-
unum þeirra, væru þau að bensín-
kaupendur gerðu hvað þeir geta til
þess að spara bensíndropann?