Morgunblaðið - 14.04.1999, Qupperneq 72
Drögum næst
27: apríl
HAPPDRÆTTI
HÁSKÓLA ÍSLANDS
vænlegast til vinnings
flfotgtsiiMjtfeife
Heimavörn
Sími: 533 5000
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN1,103 REYKJAVIK, SÍMI5691100, SÍMBRÉF 5691181
PÓSTHÓLF3040, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI1
MIÐVIKUDAGUR 14. APRÍL 1999
VERÐ í LAUSASÖLU 150 KR. MEÐ VSK
Smugudeilan leyst með samkomulagi í Moskvu í gær
.„Samningurinn er
mjög hagstæður“
í SAMKOMULAGI sem sendi-
nefndir Islands, Rússlands og Nor-
egs gerðu um fiskveiðar í Barents-
hafi í gær felst að árið 1999 fá ís-
lendingar 8.900 lesta þorskkvóta
sem skiptist til helminga milli lög-
sögu Noregs og Rússlands. Fari
leyfilegur heildarafli á þorski í
Barentshafi niður fyrir 350.000 lest-
ir falli veiðar Islendinga úr stofnin-
»^im niður sem og veiðar norskra
fiskiskipa í íslenskri lögsögu. Frá
árinu 1946 hefur meðalafli í
Barentshafi verið um 680 þúsund
tonn á ári. Á árunum 1946 til 1981
fór aflinn aldrei niður fyrir 350 þús-
und tonn en á sl. 18 árum hefur það
gerst sex sinnum. Norsk skip fá á
þessu ári að veiða 500 lestir af
löngu, keilu og blálöngu á línu í ís-
lenskri lögsögu. í bókun íslands og
Rússlands felst að rússnesk skip
geta veitt 4.450 lestir af þorski í ís-
lenskri lögsögu á þessu ári. Þar af
munu Rússar bjóða íslenskum út-
gerðum 37,5% eða 1.669 lestir til
kaups á markaðsverði.
Deilan staðið samstarfí
þjóðanna fyrir þrifum
Halldór Ásgrímsson utanríkis-
ráðherra sagði á blaðamannafundi í
gær, þar sem samningurinn var
kynntur, mikið fagnaðarefni að
samkomulag hefði náðst um þessi
mál eftir langar og erfiðar viðræð-
ur. Hann fullyrti að samningurinn
væri íslendingum hagstæður.
Smugudeilan hefði lengi staðið sam-
starfi þessara þjóða fyrir þrifum og
því ljóst að samningurinn mundi
liðka verulega fyrir ýmiskonar við-
skiptum. Þorsteinn Pálsson sjávar-
útvegsráðherra sagði Islendinga fá
með samningnum viðurkennd rétt-
indi í Barentshafi. Islandi hefði til
þessa verið eina fiskveiðiþjóðin í
Evrópu sem ekki hefði haft samn-
inga um veiðar á þessu hafsvæði.
Auk þess sýndu íslendingar með
samningnum að þeir vildu stunda
veiðar með ábyrgum hætti.
Formaður íslensku sendinefndar-
innar segir samninginn gefa Islend-
ingum umtalsverða möguleika til að
sækja fisk í Barentshaf með hag-
kvæmari og tryggari hætti heldur
en áður. Kristján Ragnarsson, for-
maður Landssambands íslenskra
útvegsmanna, segist telja hlut ís-
lendinga í samningnum mjög rýran.
I samningnum felist að veiðiheimild
Islendinga sé í raun aðeins 5.000
tonn.
■ Tæplega tveggja/36
Navís-Landsteinar selja Ikea í
Astraliu og Kuwait hugbúnað
Gæti leitt til
sölu víðar
HUGBÚNAÐARFYRIRTÆKIÐ
Navís-Landsteinar hefur gert
milljónasamninga við tvær stórar
Ikea verslanir, aðra í Perth í
Ástralíu og hina í Kuwait. Um er
að ræða uppsetningu á sérsmíð-
uðu hugbúnaðarkerfi sem fellur
að grundvallarþörfum Ikea-versl-
ana en kerfið er smíðað í upplýs-
ingakerfinu Navision Financials.
Að sögn Jóns Amar Guðbjarts-
sonar markaðsstjóra Navís-Land-
steina er uppsetningin í Ástrah'u
svokölluð prófunaruppsetning sem
unnin er í samvinnu við móðurfyr-
irtæki Ikea. Takist hún vel er
áformað að undirrita þríhliða
samning milli Landsteina, Na-
vision Software a/s og Inter Ikea
um uppsetningu á lausn Land-
steina fyrir svokallaðar „franchise"
verslanir Ikea um allan heim.
Jón Örn segir að hér geti verið
um miklar fjárhæðir að ræða.
„Við erum að horfa á tugi versl-
ana sem gætu tekið kerfið í notk-
un á allra næstu árum en þar er
um að ræða verslanir í Asíu,
Ástralíu og í miðausturlöndum
auk þess sem fjölmargar slíkar
verslanir eru í Suður-Evrópu.“
„Við eigum tvær árangursríkar
uppsetningar að baki á kerfinu,
annars vegar hjá Ikea á Islandi
og hins vegar hjá Ikea í Dubai í
Persaflóa. Uppsetningin í Ástral-
íu er nýhafin og hefur hún einnig
tekist einkai- vel. Af þeim sökum
er fyllsta ástæða til bjartsýni um
framhaldið. Uppsetningin í
Kuwait mun hefjast síðar í þess-
um mánuði en báðar verslanir
eiga að vera tölvuvæddar um
mitt sumar,“ sagði Jón Örn.
Grásleppa
Bakkavör
kaupir ekki
hrogn á
vertíðinni
BAKKAVÖR í Njarðvík, sem hefur
verið einn stærsti kaupandi saltaðra
grásleppuhrogna, hefur ákveðið að
kaupa ekki hrogn á nýhafinni vertíð.
ORÁ í Kópavogi segir að málið varð-
andi verð hrognanna sé á viðkvæmu
___Stigi og Samherji á Akureyri skilur
vel gremju grásleppuveiðimanna
vegna lækkaðs verðs.
Landssamband smábátaeigenda
hefur hvatt grásleppuveiðimenn til
að selja ekki tunnu af söltuðum grá-
sleppuhrognum á minna en 41.000
kr. og grásleppukarlar hafa sagt að
þeir hætti veiðum eftir daginn í dag
endurskoði kaupendur ekki afstöðu
sína til verðsins en þeir hafa boðað
lækkað verð, 35.000 kr. á tunnu.
■ Bakkavör kaupir ekki/B2
------♦-♦-♦-----
Islenskt franskt
eldhús hf.
Selur 2,4 millj-
ónir skammta
af fiskpaté
ÍSLENSKT franskt eldhús hf. á
Akranesi hefur gert samning um
sölu á 2,4 milljónum skammta af
svokölluðum fiskterrin-sneiðum eða
fiskpaté-sneiðum til bresks flugfé-
lags. Um er að ræða langstærsta
^samning fyrirtækisins til þessa.
Framkvæmdastjóri fyrirtækisins,
Þráinn Þorvaldsson, segir fram-
leiðslu á fiskterrínum tvöfaldast á
þessu ári með tilkomu samningsins.
Fyrirtækið muni framleiða upp í
samninginn fram á sumar og þá komi
í Ijós hvort framhald verði á. Flug-
leiðir bjóða sams konar rétti í flugvél-
j -*[n félagsins í sumar.
■ ísland gæti/Bl
Skipstjóri
dæmdur í
400 þúsund
króna sekt
Gáfu pitsu-
sjóðinn til
Kosovo
SJO ára börn í Selásskóla
gáfu albönsku börnunum frá
Kosovo peningagjöf í gær og
fengu af því tilefni þrjú þeirra
í heimsókn. Vildu þau leggja
sitt af mörkum til þess að
styðja við bakið á þeim sem
eiga um sárt að binda vegna
stríðsins í Kosovo og vona að
því ljúki sem fyrst. Það fór vel
á með krökkunum í 2. bekk
KÁI og albönsku krökkunum
sem komu í heimsókn í gær-
morgun.
■ Betra að gefa/6
Morgunblaðið/Sverrir
HÉRAÐSDÓMUR Reykjaness
dæmdi í gær skipstjóra á fiskibáti í
400 þúsund króna sekt fyrir brot á
lögum um umgengni um nytja-
stofna sjávar.
Skipstjóranum og háseta bátsins
var gefið að sök að hafa með
blekkingum látið vigta eitt fiskikar
sem það innihéldi ufsa í stað
þorsks þegar verið var að landa úr
bátnum í Þorlákshöfn hinn 19.
ágúst 1997. Hásetinn var sýknaður
af ákærunni og hafnaði dómurinn
ennfremur kröfu ákæruvaldsins
um að útgerðarfélagi bátsins yrði
gerð refsing.
Átta fiskikörum var landað í um-
rætt sinn og í skýrslu veiðieftirlits-
manns við Fiskistofu, sem hann gaf
til lögreglu, kom fram að innihald
karanna hefði verið skoðað þegar
þau höfðu verið flutt inn í fiskverk-
unarhús. Hefði þá komið í ljós að í
einu ufsakarinu var falinn þorskur
undir einu lagi ufsa.
MacDonald’s og Boss í
endurbættri Kringlu
ÁHERSLA er lögð á merkjavöru,
fleiri veitingastaði og aukið fólks-
flæði í nýrri og endurbættri
Kringlu sem opna á 30. september
næstkomandi.
Endurbæturnar á verslunarmið-
stöðinni voru kynntar á húsfundi
Kringlunnar í gær og voru þau fyr-
irtæki kynnt sem koma ný inn en
verslunarrými Kringlunnar eykst
stórlega eftir breytingarnar auk
þess sem bílastæðum fjölgar.
Miðar framkvæmdum vel og eru
þær nú nokkra daga á undan áætl-
un, að sögn Ragnars Atla Guð-
mundssonar stjórnarformanns
Kringlunnar. Að hans sögn er nú
þegar búið að ganga frá leigu-
samningum um öll laus pláss í
Kringlunni.
Meðal nýrra verslana í Kringl-
unni eru kvenfataverslunarkeðjan
Sasha, Marco Polo frá Þýskaiandi,
sem einnig selur kvenföt, Eurosko
frá Noregi, Dressmann, Knicker-
box og GK. Að auki kemur verslun
með fatnað frá In Wear og Matin-
ique og Hugo Boss verslun verður
opnuð. Auk þessa mun verslunin
17 færa sig um set í Kringlunni og
ný verslun í eigu sömu aðila verða
opnuð í núverandi húsnæði 17.
Veitingastaðir verða 5 eftir
breytingarnar og skyndibitastöðum
fjölgar frá því sem nú er.
Auk kaffihúss, Hard Rock Cafés
og Kringlukráarinnar, verða einn
franskættaður staður og einn ítal-
skættaður, Romanos, í bygging-
unni. Skyndibitastaðirnir verða
Ricky Chan með austurlenskan
mat, staður með grænmetisfæði
verður opnaður, Subway og Domin-
os verða áfram með útibú auk þess
sem MacDonald’s hefur samið um
opnun staðar í Kringlunni.
■ Áhersla á/20