Morgunblaðið - 15.04.1999, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 15.04.1999, Blaðsíða 2
2 FIMMTUDAGUR 15. APRÍL 1999 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Þriðjungur Gunnvarar á 450 milljónir seldur ÍSLANDSBANKI hefur fyrir hönd ákveðins fjáifestis keypt þriðjung hlutafjár í útgerðai-félaginu Gunn- vöru hf. á Isafirði af hjónunum Þórði Júlíussyni og Báru Hjalta- dóttur. Kaupverðið er 450 miltjónir kr. Þórður segir að bankinn hafi fyrir hönd endanlegs kaupanda lpf- að því að reka áfram Ishúsfélag Is- firðinga og rétta við reksturinn. Gunnvör hf. hefur alla tíð verið í eigu fjölskyldna stofnendanna, Þórðar og Jóns Júlíussona og Jóns D. Jónssonar, og hefur hver fjöl- skylda átt þriðjung hlutafjár. Fé- lagið gerir út fiystitogarann Júlíus Geirmundsson og togarann Fram- nes. Félagið á 96% hlutafjár í íshús- félagi ísfirðinga hf. sem rekur frystihús á ísafírði, gerir út Stefni ÍS og á helming Loðnubræðslunnar Islandsbanki lofar áfram- haldandi rekstri í Hnífsdal. Þá á Gunnvör liðlega 17% hlut í Hraðfrystihúsinu hf. í Hnífsdal og hlutabréf í ýmsum þjónustufyrirtækjum sjávarútvegs- ins. Rétta reksturinn við „Þetta var ákaflega erfið ákvörðun. En við töldum það skyldu okkar að selja þegar við sá- um tækifæri til að fá inn nýja aðila sem ætla að rétta reksturinn við,“ sagði Þórður í gær. Sagðist hann ekki vita hver endanlegur kaup- andi bréfanna væri en leynigestur- inn kæmi fram á morgun þegar hlutabréfin yrðu afhent. Þórður sagði að rekstur fyrirtækjanna hefði gengið illa á síðasta ári og samanlagt tap þeirra á annað hundrað milljónir kr., aðallega vegna erfiðleika Ishúsfélagsins en einnig vegna gengistaps á Júlíusi. Hann sagðist hafa sett það skilyrði fyrir sölunni að Ishúsfélagið yrði áfram rekið, enda væri það síðasta frystihúsið í þessum kunna fiski- mannabæ. Islandsbanki hefði lofað því, enda hefði hann annars ekki selt. „Okkur hjónin vantar ekki peninga en töldum skyldu okkar að selja til að rétta reksturinn við,“ sagði Þórður. Gunnvör hf. er lokað hlutafélag. Aðrir eigendur nýttu sér ekki for- kaupsrétt sinn. Davíð Oddsson á kosningafundi á Akranesi Ahersla lögð á árangur stjórnar DAVÍÐ Oddsson formaður Sjálfstæðisflokksins lagði áherslu á ái-angur ríkisstjómai’innar á yfirstandandi kjörtímabili á fyrsta kosningafundi sínum fyrir komandi alþingiskosningar sem haldinn var í Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi í gærkvöldi. Hátt í eitt hundrað manns sótti fundinn en fyrir svörum sátu einnig þrír efstu menn á lista Sjálfstæðisflokksins í Vesturlands- kjördæmi. Davíð var m.a. spurður um álit sitt á hugmyndum framsóknarmanna um að skattleggja sérstaklega sölu- hagnað þeirra sem selja frá sér afnotarétt að auðlindum hafsins. I svari sínu sagði Davíð m.a. að hann teldi að stjómarskráin heimilaði ekki að tiltekin atvinnugrein yrði tekin út og á hana lagður sérstakur skattur sem ekki gilti um aðrar atvinnugreinar. Kvaðst hann reyndar hafa heyrt á formanni Framsóknarflokksins, Halldóri Asgrímssyni, að hann hefði sömuleiðis ákveðna fyi-hvara á þessari hug- mynd. „Hann hafði ýmsa fyrirvara og þá kannski helsta að þetta væri alls ekki hægt,“ sagði Davíð og kvaðst heldur ekki telja að þetta yrði hægt lögfræðilega séð. Morgunblaðið/Jón Svavarsson HANDAGANGUR í öskjunni. Selim Poroshtica er nýkominn frá Kosovo. Hann var mættur ásamt fjórum löndum sínum til að leggja starfsmönnum Hagkaups og Rauða krossinum lið við pökkunina. Matarpakkar til Kosovo Áþreifanlegri þátt- taka í hjálparstarfi Á NÆSTU dögum gefst fólki kostur á að kaupa sérstaka matarpakka í verslun Hagkaups í Skeifunni sem sendir verða til Kosovo. Pakkinn er staðlaður neyðarpakki Rauða kross- ins en í honum eru matföng sem geta dugað einstaklingi í allt að 14 daga. Að sögn Jóns Bjömssonar, fram- kvæmdastjóra Hagkaups, er átakið samstaifsverkefni Rauða krossins, Hagkaups, Samskipa og íslands- pósts. „Rauði krossinn átti hug- myndina og sá um að fmna matinn í þennan staðlaða matarpakka. Póst- urinn gefur pakkninguna, Samskip sendinguna og við sjáum um að dreifa pökkunum og selja þá álagn- ingarlaust. Við leggjum einnig fram vinnu við pökkunina." í vöruskemmu Hagkaups í Skeif- unni voru starfsmenn af skrifstofu fyrirtækisins í óða önn að setja mat- vörur í pakka, sem verða sendir til Kosovo eftir næstu helgi. í hópnum voru einnig fimm Kosovo-Albanar sem létu hendur standa fram úr ermum. Markmið átaksins er að selja 5000 pakka á næstu dögum. Pakkarnir verða til sölu í verslun Hagkaups, Skeifunni, og þar getur fólk keypt þá á 500 krónur. Pakkinn er síðan afhentur starfsmanni Rauða kross- ins fyrir utan verslunina og þar er hann settur í gám. „Við stefnum að því að fylla tvo matargáma, helst núna um helgina. Ef vel tekst til höldum við áfram og bætum við fleiri verslunum," segir Jón Björns- son. Tími vetrar- hjólbarð- anna liðinn? SAMKVÆMT reglugerð á að skipta af negldum vetrarhjól- börðum yfir á sumarhjólbarða í dag, 15. apríl. Samkvæmt upp- lýsingum lögreglunnar í Reykjavík verður þó ekki tekið hart á því næstu daga þótt ökumenn aki á negldum börð- um, enda á ávallt að miða út- búnað bifreiða við aðstæður. Sinfóniuhljómsveit fslands í tónleikaferð til Bandaríkjanna á næsta ári Sex til níu tón- leikar fyrirhug- aðir í ferðinni SINFÓNÍUHLJÓMSVEIT íslands mun fara í tónleikaferð um Banda- ríkin í október árið 2000. Fyrirhug- aðir eru sex til níu tónleikar í ferð- inni, sex til sjö á austurströndinni, þar af einh' í Carnegie Hall í New York, og jafnvel tvennir til þrennir til viðbótar á vesturströndinni. Hljómsveitarstjóri í ferðinni verður Rico Saccani, aðalhljómsveitarstjóri Sinfóníunnar, og einleikari Judith Ingólfsson, íslenskur konsertfiðlari búsettur í Bandaríkjunum. Ferðin verður skipulögð í sam- vinnu við Kerby Lovallo hjá New World Classics í New York, sama að- ila og skipulagði fyrstu tónleikaferð hljómsveitarinnar vestra í febrúar 1996. Þegar er búið að ákveða sex til sjö tónleika á austurströndinni, að sögn Helgu Hauksdóttur, tónleika- stjóra SI, en auk þess munu hús- bændur í tveimur til þremur tón- leikahúsum á vesturströndinni hafa sett sig í samband við Lovallo og lýst áhuga á því að fá hljómsveitina. „Þau mál eru í skoðun en það er mikil við- urkenning að óskað sé eftir okkur,“ segir Helga. Hún segir ferðina leggjast vel í hljómsveitina. „Það er ánægjulegt að vera aftur í höndunum á Kerby Lovallo en hann reyndist okkur mjög vel síðast. Ferðin fyrir þremur árum heppnaðist óskaplega vel og við fengum meðal annars frábæra dóma í The New York Times fyiir tónleikana í Carnegie Hall, þannig að væntingarnar verða kannski meiri núna. Við erum hins vegar hvergi bangin - eigum að geta risið fyllilega undir öllum væntingum sem til okkar eru gerðar.“ Hugmyndin um að Judith Ingólfs- son verði einleikari í ferðinni er, að sögn Helgu, runnin undan rifjum Lovallos. „Hann lagði áherslu á að Judith yrði með í för, enda er hún óðum að skapa sér nafn vestra. Síðan er hún líka fædd á íslandi og er ís- lenskur ríkisborgari. Það verður mjög gaman að hafa Judith með okk- ur.“ Judith, sem er stödd hér á landi og kemur fram á tónleikum Sinfóníu- hljómsveitarinnar í Háskólabíói í kvöld, segir það mikinn heiður að fá að taka þátt í ferðinni. „Ég er í skýj- unum. Því miður sá ég hljómsveitina ekki þegar hún var í Bandaríkjunum 1996 en man eftir dómnum í The New York Times. Hann var afar lof- samlegur og vakti mikla athygli. Þetta verður mikið ævintýri." ■ Fiðlan er rödd mín/36 íslending's leitað í Bretlandi UTANRÍKISRÁÐUNEYTIÐ hef- ur gert íslenska sendiráðinu í Lundúnum viðvart vegna hvarfs ís- lensks karlmanns á miðjum aldri í kjölfar tilkynningar ættingja hans þess efnis til ráðuneytisins. Sendiráðið hefur tilkynnt málið til bresku lögreglunnar sem leitar nú mannsins og hefur málið til rannsóknar. Maðurinn fór af landi brott 2. apríl og átti bókað flugfar heim aft- ur í sama mánuði en ekkert hefur spm-st til hans síðan á brottfarar- dag, samkvæmt upplýsingum ft'á utanríkisráðuneytinu. I 18 sfeun Sigmar Þröstur leggur skóna á hiluna/B1 Ryan Giggs hetja United á Villa Park/B3 Sérblöð í dag m MTOHl imiÍMI Sérblaö um viðskipti/atvimiulíf Fylgstu með nýjustu fréttum www.mbl.is L
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.