Morgunblaðið - 15.04.1999, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 15.04.1999, Blaðsíða 12
12 FIMMTUDAGUR 15. APRÍL 1999 MORGUNBLAÐIÐ _____________________________FRÉTTIR_____________________________ Útvegsmenn segija framsal veiðiheimilda í Barentshafí nauðsynlegt \ /r/ín.' GRÆNLAND Norsk skip fá í ár að veiða 17 þús. tx tonn af loðnu norðan 64°30’ á tímabilinu 20. júní til 15. feb. og... ' \ Y&' / / / jlL '■LÍX ! \ Islensk skip fá í ár að veiða 4.450 af þorski í Norskri lögsögu \ / \ \C. } / Novaja , Zemlja Svalbarði \ Tl j BARENTSHAF ' p p; Smugan f \ / Jan /\ C /W Mayen / I TP... // \ , , i NO-REGSHAF. e ■ \ FÆREYJAR V 4 tonn af löngu, keilu og blálöngu á línu utan 12 mílna og sunnan 64°N / i :XU crf.U ' " ; Islensk skip fá í ár að veiða 2.781 tonn af þorski í Rússneskri lögsögu auk þess sem þau geta keypt veiðiheimildir, 1.669 tonn til viðbótar, samtals 4.450 tonn Alls 94 íslensk skip með veiðireynslu VEIÐIHEIMILDUM íslendinga í Barentshafi, sem sendinefndir ís- lands, Noregs og Rússlands, sömdu um á þriðjudag, verður skipt milli íslenskra útgerða á grundvelli veiði- reynslu, samkvæmt lögum um veið- ar utan lögsögu Islands. Samkvæmt gögnum Fiskistofu hafa 94 íslensk skip afiað sér veiðireynslu í Barentshafi á sl. sex ánim. Formað- ur LÍU segir þannig sáralítinn kvóta koma í hlut hvers skips og því sé grundvallaratriði að heimilt verði að færa heimildirnar á færri skip. Rússnesk stjórnvöld munu ákvarða verð á þeim veiðiheimildum sem þeim er skylt að bjóða íslenskum út- gerðum til kaups. Samkvæmt samningnum mega Islendingar veiða 1,86% af leyflleg- um heildarafla af þorski í Barents- hafi sem á þessu ári er 480 þúsund tonn og samsvarar hlutdeild Islend- inga því 8.900 tonnum sem skiptast til helminga milii lögsagna Noregs og Rússlands samkvæmt almennum reglum sem gilda þar um. Aukaafli Islendinga má auk þess nema 30% af þorskveiðiheimildunum og verð- ur Islendingum því heimilt að veiða samtals 11.570 tonn af fiski í Barentshafi á þessu ári. Islending- um er þó ekki heimilt að veiða þorsk i Smugunni samkvæmt samningn- um. Ennfremur skuldbinda Islend- ingar sig til að veiða ekki loðnu í Barentshafi. I frásögn Morgun- blaðsins af samningnum í gær var víxluðust orð og var sagt að Rúss- um yrði samkvæmt samningnum að veiða 4.450 tonn af þorski innan ís- lenskrar lögsögu. Hið rétta er að Is- lendingum verður heimilt að veiða umrætt magn innan rússneskrar lögsögu. Rússnesk stjórnvöld ákvarða verð á veiðiheimildum í bókun íslands og Rússlands felst að íslensk skip geti veitt 4.450 tonn af þorski i rússneskri lögsögu á þessu ári en þar af munu Rússar bjóða íslenskum útgerðum 37,5% til kaups á markaðsverði á hverju ári á meðan samningurinn er í gildi. Mið- að við veiðiheimildir íslendinga í rússnesku lögsögunni nú, stendur íslenskum útgerðum því til boða að kaupa 1.669 tonn af þorski á þessu ári. Rússnesk stjórnvöld eiga sam- kvæmt samningnum að bjóða ís- lenskum útgerðarmönnum þennan hluta kvótans fyrir 1. maí á þessu ári en fyrir 1. febrúar hvert ár þar á eftir. Verðið er þannig tilkynnt af rússneskum stjómvöldum þar sem tekið er tiilit til markaðsverðs. Til- boðið á að standa væntanlegum kaupendum opið til 1. júlí ár hvert. Hafi enginn lýst yfir áhuga eða komið á viðskiptum fyrir þann tíma eru rússnesk stjórnvöld ekki lengur skuldbundin til að bjóða veiðiheim- ildimar til sölu. Jóhann Sigurjónsson, sem veitt hefur íslensku samninganefndinni forstöðu, segir það i höndum rúss- neskra stjórnvalda að ákveða hvort tekið verði við gagntilboðum í heim- ildirnar frá íslenskum útgerðum. Sé verðið á heimildinum of hátt liggi i hlutarins eðli að enginn muni kaupa þær. Hinsvegar sé ljóst að Rússar muni ekki verðleggja heimildirnar of hátt, enda sé það yfirlýst stefna þeirra að selja heimildir til að byggja upp sjávarútveg í landinu. Þorsteinn Pálsson, sjávarátvegs- ráðherra, sagði á blaðamannafundi á þriðjudag, að verð það sem ís- lendingar þurfi að borga Rússum fyrir þessar heimildir velti á samn- ingum milli íslenski'a útvegsmanna og þeirra aðila í Rússlandi sem þar fari með fiskveiðiréttindin. „Is- lenskir útvegsmenn geta einfald- lega boðið í þessar heimildir. Það fer síðan eftir því hvort að sam- komulag næst um verð eða ekki hvort af veiðunum verður,“ sagði Þorsteinn. Heimildir verða að öllum líkindum framseljanlegar Aflaheimildum íslendinga í Barentshafi verður skipt milli ís- lenskra útgerða á grundvelli út- hafsveiðilaga sem kveða á um að afla skuli skipt á grundvelli veiðireynslu skipanna miðað við þrjú bestu veiði- tímabil þeirra á undangengnum sex bestu veiðitímabilunum. I lögum segir ennfremur að ráðherra geti ákveðið einstökum skipum fasta hlutdeild í afla til lengri tíma en eins veiðitímabils. Fastlega er hinsvegar búist við að heimildirnar verði fram- seljanlegar á milli skipa, þannig að hægt verði að sameina þær á færri skip, enda er í bókun íslendinga og Norðmanna er kveðið á um að ein- ungis megi 15 íslensk skip stunda þorskveiðar innan norsku lögsög- unnar í einu. I bókun Islands og Rússlands er hinsvegar kveðið á um að þar séu ekki fleiri sldp en eðlilegt megi teljast með tilliti til þess magns sem um er að ræða. Veiðireynslan mjög mismunandi Samkvæmt gögnum frá Fiski- stofu hafa samtals 94 íslensk skip aflað sér einhverrar veiðireynslu í Barentshafi frá því að Islendingar hófu þar veiðar að einhverju marki árið 1993. Veiðireynsla þessara skipa er þó ákaflega mismunandi, allt frá örfáum tonnum upp í 1.000 tonn. Eftir því sem Morgunblaðið kemst næst fá þannig 60 skip innan við 100 tonn í kvóta miðað við veiði- reynslu í Barentshafi. Fiskistofa vinnur nú að því að taka saman upp- lýsingar um afla þessara skipa og munu þær tölur liggja fyrir fljót- lega. 10 aflahæstu íslensku skipin á árunum 1993-1998 eru samkvæmt bráðabirgðalista Fiskistofu: Rán HF, Málmey SK, Haraldur Krist- jánsson HF, Snæfugl, Stakfell ÞH, Akureyrin EA, Mánaberg ÓF, Sléttanes ÍS, Snorri Sturluson RE, Hólmadrangur ST og Siglfirðingur SI. Framsal grundvallaratriði Þorsteinn Már Baldvinsson, for- stjóri Samherja hf., segist telja grundvöll fyrir því að íslenskar út- gerðir nýti veiðiheimildirnar í Barentshafi svo framarlega sem heimildunum verði úthlutað þannig að hægt verði að sameina þær á færri skip. Kristján Ragn- arsson, formaður LÍÚ, segir að margt eigi enn eftir að skýrast áð- ur en hægt sé að gera sér grein fyrir því hvort hagkvæmt sé að fara til veiða í Barentshafi. Hann segir að við úthlutun veiðiheimild- anna í Barentshafi komi sáralítið í hlut hvers skips og því sé nauðsyn- legt að sameina veiðiheimildir á færri skip. Þá skipti máli hvenær heimildunum sé úthlutað. Enn- fremur sé enn margt óljóst í sam- bandi við þeir heimildir sem Rúss- ar muni bjóða íslenskum útgerðum til kaups. „Ég sé engan staf fyrir því í lögunum hvernig á að úthluta kaupréttinum og sé ekki hvernig það á að ganga fyrir sig. Eins verður veiðiréttinum úthlutað í bæði norskri og rússneskri lög- sögu og þá getur verið langur veg- ur á milli veiðisvæða sem gerir þetta einnig mjög erfitt. Það þarf því margt að þróast áður en skipin fara til veiðanna til að hafa af því ábata,“ segir Kristján. Veiðarnar borga sig aðeins fyrir fá skip Formaður úthafsveiðinefndar LIU segir mikilvægt að JÓHANN A. Jónsson, for- maður útliafsveiðinefndar LIU og framkvæmdastjóri Hraðfrystistöðvar Þórshafn- ar hf., segir mikilvægt að samningar séu í höfn og tel- ur líklegt að hefð ráði við skiptingu veiðiheimilda. „Uthafskarfinn á Reykja- neshryggnum er dæmigerf svona málefni þar sem ákveðinn útgerðarhópur stundaði veiðarnar og mynd- aði veiðireynslu. Þá var afl- anum skipt eftir henni þar sem fyrsta árið vóg þyngra en þau næstu vegna þess að verið var að viðurkenna frumkvöðla veiðireynslu. Þetta held ég að sé líklegasta aðferðarfræðin þó svo menn hafi farið í aðra aðferð við sfldarúthlutunina. “ Jóhann segir að þar sem veiðisvæðið í Barentshafí sé Iangt í burtu sé mikilvægast að byggja upp kerfi sem tryggir að aflinn verði sótt- ur. „Ég sé ekki skilvirkari leið í því en að nýta afla- reynsluna og síðan verða væntanlega einhverjar til- færslur á milli skipa. Sumir eiga það lítið og fá það Iítið að ekki borgar sig að sækja það en aðrir myndu þá held- ur styrkja sig. Hugsanlega borgar sig fyrir 10 til 20 skip að sinna þessu en síðan fækkar þeim. Menn hljóta að gera þetta á eins hagkvæm- aflinn verði sóttur an hátt og kostur er og ráðu- neytið verður að hugsa um hvernig það getur tryggt að þjóðfélagið fái tekjurnar sem veiðarnar geta skapað.“ Gætu boðið íslendingum meira í bókun íslands og Rúss- lands kemur fram að Rússar bjóða íslenskum útgerðum 1.669 lestir til kaups á mark- aðsverði. Jóhann segist ekki þekkja útfærsluna sem um er rætt en telur að þetta fyrir- komulag gæti leitt til þess að Islendingum yrðu boðnar meiri veiðiheimildir. „Af hverju skyldu þeir stoppa þarna? Væri ekki möguleiki fyrir okkur að halda áfram að kaupa á markaðsverði? Ef við getum keypt 1.600 tonn hvers vegna getum við ekki keypt önnur 1.600 tonn og svo framvegis? Er ekki möguleiki fyrir okkur að fylla skipið, að minnsta kosti, ef við teljum okkur stunda hagkvæmar veiðar með hæf- um mönnum? Markaðsverðið skiptir þarna miklu máli, hvort það er 20 krónur, 50 eða 100 krónur, en ef við hefðum ekki samið núna er hætta á að löng eyða hefði komið og ómögulegt að segja til um framhaldið. En nú þurfum við að byggja áfram á þessum grunni,“ segir Jó- hann. Norskir útgerðarmenn hund óánægðir með Smugusamninginn „Látum af hendi helmingi meira en við fáum“ ÍSLENSKIR jafnt sem norsk- ir útgerðarmenn eru svo óá- nægðir með Smugusamning- inn, að þeir telja best, að ekkert verði af honum. Kom þetta fram í norska blaðinu Aftenposten í gær, sem sagði að fyrir norsku stjórninni hefði fyrst og fremst vakað að binda enda á deilur grannþjóðanna. „Það hallar verulega á okkur í þessum samningi. Við látum af hendi helmingi meira en við fáum,“ sagði Audun Marák, frammámað- ur í samtökum norskra út- gerðarmanna. Vísar hann í þessu efni til viðmiðunart- öflu, sem notuð er í alþjóð- legum samningum. Marák segir, að þær tegundir, sem Norðmenn fái að veiða við Island, séu ekki jafn eftir- sóknarverðar og þorskurinn og auk þess fái Islendingar í sinn hiut meiri aukaafla en Norðmenn. „Við hefðum alveg getað verið án þessa samnings. ís- lendingar hefðu þess vegna mátt skarka áfram í Smug- unni enda er þar ekkert að fá.“ „Pappírsfískur" Oddmund Bye, formaður í Norges Fiskarlag, er ekki ánægðari en Marák með samninginn. „Þetta er ótní- legt og ég er hneykslaður. Nú geta hverjir sem er öðlast réttindi með því að sækja í Smuguna," sagði hann og kallar keiluna, Iönguna og blálönguna „pappírsfisk", sem ómögulegt sé að ná. _ Norsk stjórnvöld eru hins vegar ánægð með, að deil- unni skuli lokið enda hafi hún staðið í vegi fyrir sam- starfi ríkjanna á ýmsum svið- um. Samkvæmt samningnum eru engin íslensk skip lengur á svörtum lista í Noregi vegna Smuguveiða en það er svo aftur nýtt, að stundi ís- lenskt útgerðarfyrirtæki lög- legar veiðar innan norskrar landhelgi en flaggi jafnframt út skipi eða skipum vegna veiða í Smugunni, þá má selja öll skip fyrirtækisins í bann.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.