Morgunblaðið - 15.04.1999, Blaðsíða 10
10 FIMMTUDAGUR 15. APRÍL 1999
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Flugvélarskrúfan sem kom í botnvörpu togarans Frera
ÞRIGGJA blaða flujfvélarskrúfan
sem flæktist í.botnvörpu togarans
Frera þegar hann var að veiðum
vestur af Eldeyjarboða er af flug
áhugamanni talin, að líkindum, úr
annarri af tveimur tegundum
breskra kafbátaleitarvéla sem not-
aðar voru hérlendis í stríðinu.
Nokkrar vélar af þessum gerðum
hurfu sporlaust í leitarflugi yfir
hafí á svipuðum slóðum árin 1941
og 1942.
Óli Hilmar Jónsson, arkitekt og
flugáhugamaður, hafði samband
við Morgunblaðið vegna fréttar af
fundi skrúfunnar á baksiðu Morg-
unblaðsins í gær. Hann kvað skrúf-
una hvorki litla né ævagamla og
taldi sig þekkja tegundina sem um
væri að ræða. „Þetta er hörku-
skrúfa. Mjög líklega af Rolls
Royce-Merlin hreyfli, V12. Ég held
að það sé nokkuð öruggt að þetta
er skrúfa af Vickers Wellington
eða Armstrong-Whithworth
Whitley flugvél. En Bretar notuðu
slíkar vélar hér í stríðinu til kaf-
bátaleitar."
Töluvert var um að flugvélar af
þessum tegundum færust hér við
land og sérstaklega vélar af gerð-
inni Whitley. Þrátt fyrir það hefur
Óli ákveðna tilgátu um hvaða flug-
vél geti verið um að ræða. „Svona
Whitley vél, úr flugsveit 612 RAF
Að líkind-
um kaf-
bátaleit-
arvél úr
stríðinu
(Royal Air Force) sem flaug frá
Kaldaðarnesi, með einkennisstaf-
ina T4325, hvarf í leitarflugi á
þessu svæði. Þetta var 3. nóvem-
ber 1941. Það fannst aldrei tangur
né tetur af henni. Þetta held ég að
sé líklegur kandidat.11
Frekar slakar flugvélar
Flugvélar þessar þóttu hálfgerð-
ir vandræðagripir, að sögn Óla.
„Þetta voru hrikalegar vélar,
drekar miklir með rosalegum
væng og tveimur hreyflum. Þær
voru afilitlar, þungar og flugu eins
og jötunuxar en þóttu samt sæmi-
legir vinnuhestar. Þær voru notað-
ar til að gera sprengjuárásir á
Þýskaland í upphafi stríðsins en
voru svo færðar í útkantana þegar
átökin hörðnuðu. Þær voru meðal
annars sendar til Islands þar sem
ekki var eins heitt í kolunum."
Óli kveður sjálfa skrúfuna segja
heilmikla sögu um slysið sjálft.
„Lagið á spöðunum bendir til þess
að hreyfillinn hafi ekki verið í
gangi þegar vélin fór í sjóinn. Þeir
væru nokkuð örugglega allir bogn-
ir ef svo hefði verið. Og í því tilfelli
ættu þeir að elta hver annan bog-
amir á spöðunum. Þeir hafa nijög
líklega bognað svona við átak þeg-
ar þeir voru dregnir um borð.
Annað er að flugmaðurinn hefur
ekki náð að „fjaðra skrúfuna"
(nauðbeita henni) eða látið eggina
á spöðunum vísa fram en það er
alltaf gert þegar hreyfill stoppar á
flugi vegna bilana eða einhverra
annarra hluta. Til að hreyfillinn
fari ekki að „vindmylla" með.
Þetta hefur flugmaðurinn ekki náð
að gera og það hefur því mikið
gengið á hjá karlgreyinu áður en
hann fór í sjóinn."
Skrúfan er mjög merkileg, að
mati Óla, og telur hann víst að
Flugsögufélagið sýni henni áhuga.
„Þessi skrúfa segir í raun og veru
mikla sögu. Því má heldur ekki
gleyma að hún er þegjandi tákn
um að þarna hafa fimm vaskir
ungir menn hlotið vota gröf.“
ARMSTRONG-WHITHWORTH Whitley Mk.V (1937) flugvél sömu gerðar og vél sem hvarf við kafbátaleit
suðvestur af landinu 3. nóvember 1941.
Undirbúningur stendur yfír fyrir
komu næsta hóps flóttamanna
Flóttamannabúð-
um líklega komið
upp á Eiðum
FLÓTTAMANNABÚÐIR verða að
öllum líkindum settar upp á Eiðum í
Suður-Múlasýslu verði af komu 77
manna hóps flóttamanna frá
Balkanskaga á næstunni. A fundi
flóttamannaráðs í gær var ákveðið
að fulltrúar ráðsins færu að Eiðum
og skoðuðu aðstæður.
Að sögn Guðjóns Bragasonar, rit-
ara ráðsins, eru Eiðar til athugunar
þar sem erfítt reynist að finna gisti-
rými á höfuðborgarsvæðinu þegar
komið er fram á vor og sumar. „Það
á að skoða hvort hópurinn geti verið
í skólanum á Eiðum tímabundið eða
þangað til annað verður ákveðið,"
sagði Guðjón.
Ráðið heldur áfram undirbúningi
fyrir komu hópsins en ekki er enn
ljóst hvort af komu hans verður, eða
hvenær. Islensk stjórnvöld og
Rauði kross íslands eru í viðbragðs-
stöðu vegna málsins en beðið er eft-
ir því að Flóttamannastofnun Sa-
meinuðu þjóðanna óski eftir því að
flóttamenn verði fluttir hingað frá
svæðinu, að sögn Guðjóns.
Rauði kross íslands sér um sam-
skipti við Flóttamannastofnun Sa-
meinuðu^ þjóðanna og að sögn Sig-
rúnar Arnadóttur, framkvæmda-
stjóra RKÍ, einbeitir stofnunin sér
nú að þvi að flytja flóttamenn frá
Makedóníu til nálægra landa. Stofn-
unin biður hins vegar þær þjóðir
sem eru fjær og eru tilbúnar að
taka við flóttamönnum að vera í við-
bragðsstöðu.
Albaníustjórn hefur gefið út yfir-
lýsingu um að flóttamenn verði ekki
fluttir frá landinu og segir Guðjón
því nánast enga von fyrir þá
Kosovo-Albana, sem búsettir eru
hérlendis og eiga ættingja sem eru
flóttamenn í Albaníu, að fá þá hing-
að. Hins vegar sé möguleiki á að
flóttamenn komi frá Makedóníu.
Flóttamannaráð ákvað einnig á
fundinum í gær að leita samstarfs
við sveitarfélög til þess að finna
húsnæði fyrir þann hóp Kosovo-Al-
bana sem þegar er kominn til lands-
ins. Akveðið var að leita eftir því við
Hafnarfjarðarbæ að hann tæki á
móti fólkinu og hófust viðræður í
gær.
--------------
Kantsteinar
fyrir rúmar
36 milljónir
BORGARRÁÐ hefur samþykkt til-
lögu Innkaupastofnunar um að
framlengja samning við Véltækni
hf. um steypu kantsteina í borginni
næstu tvö ár fyrir nímar 36 millj.
Guðbjartur Sigfússon, yfii-verk-
fræðingur hjá gatnamálastjóra,
sagði að verkið hefði ekki verið boð-
ið út að þessu sinni, þar sem fyrir-
tækið hefði setið eitt að þessu verk-
efni undanfarin ár en fyrir nokkrum
árum bárust fleiri tilboð. „Þetta er
ekki einfalt verk,“ sagði hann.
„Þetta eru stór og smá verk og
mest smá eftir að ráðist var í þreng-
ingar á götum og eyjar, sem kalla á
kantsteypu."
------♦-♦-♦---
Afhenti trún-
aðarbréf
KORNELÍUS Sigmundsson sendi-
herra afhenti 13. apríl Guntis
Ulmanis forseta Lettlands trúnað-
arbréf sitt sem sendiherra Islands í
Lettlandi með aðsetur í Helsinki.
ERU ÞEIR AÐ FA’ANN?
Mikill sjóbirt-
ingur - skil-
yrði misjöfn
VEIÐIMENN raða sér upp í Vatnamótunum.
Bergsveinn Sampsted.
Nýr fram-
kvæmdastjóri
Islenskrar
getspár
BERGSVEINN Sampsted, for-
stöðumaður einstaklingssviðs hjá
Eurocard, tekur við nýju starfi sem
framkvæmdastjóri íslenskrar get-
spár í byrjun júní.
Bergsveinn tekur við fram-
kvæmdastjórastöðunni af Vilhjálmi
Vilhjálmssyni sem lætur af störfum
vegna aldurs. „Þetta leggst vel í
mig og ég bíð spenntur eftir því að
takast á við nýja starfíð. Það liggja
fjölmörg verkefni fyrir og mikil
tækifæri eru á þessum markaði.
Það er mikil þróun í gangi vegna
tækniframvindunnar og eflaust
verða einhverjar breytingar á starf-
seminni á næstunni," sagði Berg-
sveinn.
SJÓBIRTINGSVEIÐI í grennd
við Kirkjubæjarklaustur hefur
legið nokkuð niðri í kuldakastinu
sem brast á upp úr helginni, en
hafði gengið mjög vel fram að því.
Það virðist vera nokkuð mikið af
fiski mjög víða og von á góðu þeg-
ar skilyrði batna á ný.
Mokað úr Vatnamótum
Fyrsta hollið í Vatnamótum
Skaftár, Breiðabalakvíslar,
Hörgsár og Fossála var dagana
9.-11. apríl og voru menn strax
komnir í fisk. Alls voru 37 dregn-
ir, margt mjög vænn fiskur, að
sögn Gunnlaugs Óskarssonar,
fyrrverandi formanns SVFK, sem
hefur svæðið á leigu. Næsta holl
náði 12 fiskum áður en frysti og
tók fyrir veiði á nýjan leik. Sá
hópur lauk veiðum á hádegi
þriðjudagsins.
Fyrsta hollið sem eitthvað
veiddi í Geirlandsá veiddi 27 birt-
inga og næsti hópur á eftir dró
annað eins. Þar á meðal var 7,5
punda fiskur sem 12 ára veiðimað-
ur, Þórhallur Gunnarsson, veiddi.
Þá kom hópur sem dró 12 fiska og
náði ein stöngin, sem skipuð var
hjónunum Vilberg Þorgilssyni og
Guðrúnu Jónsdóttur, m.a. 9, 10 og
11 punda birtingum. Næsti hópur
lenti svo í kuldakastinu, en náði
samt 7 fiskum, m.a. þeim stærsta
á þessu vori, 12 punda.
Allir þessir sjóbirtingar veidd-
ust í ármótum Geirlandsár og
Stjómar. Menn hafa séð fisk mjög
víða ofar í ánni, en einhverra hluta
vegna hefur engum tekist að
draga þar fisk. Gunnlaugur
Óskarsson sagði þetta mjög skrít-
ið, en nefndi nokkra staði þar sem
menn höfðu klárlega orðið fiska
varir, Bláberjabrekku, Mörtungu-
nef, Rafstöðvarstreng, Fernishyl
og Tóftarhyl.
Hörgsá og Eldvatn lífleg
Það var ekki fyrr en á fimmtu-
dag í síðustu viku að hægt var að
renna af viti í Hörgsá neðri og
veiddust þá strax 6 fiskar, að sögn
Ingabjörns Hafsteinssonar, sem
dró þá fiska ásamt félaga sínum.
Hann sagði talsvert af fiski í
neðstu tveimur hyljum árinnar,
en þeir hefðu lítið reynt ofar.
„Daginn eftir komu a.m.k. fjórir á
land og svo eitthvað eftir það, en
síðan má reikna með því að lítið
hafi gerst í kuldanum. í Eldvatni
veit ég um a.m.k. 50-60 fiska, allt
að 8 punda,“ bætti Ingibjöm við.
Mörgum birtingum sleppt
Öllum fiski var sleppt í Hörgsá
tvo fyrstu dagana og talsverðu var
einnig sleppt fyrstu vikuna í Geir-
landsá og sama má segja um Eld-
vatn. Ingibjöm sagðist telja að
rétt væri að lögfesta slíkt þar sem
fiskur á þessum árstíma væri í
flestum tilvikum lélegt hráefni til
manneldis og mýmörg dæmi væru
um að honum væri hent, jafnvel
strax á heimleið og væri
raslagámur á Klaustri vinsæl
stoppistöð. „Því miður era alltof
mikil brögð að þessu,“ sagði Ingi-
björn og hvatti veiðimenn til betri
breytni, hirða fisk í hófi og sleppa
helst öllum slæpta hi-ygningar-
fiskinum.