Morgunblaðið - 15.04.1999, Blaðsíða 22
22 FIMMTUDAGUR 15. APRÍL 1999
MORGUNBLAÐIÐ
ÚR VERINU
Aflaverðmætið 87 milljónir
Mettúr hjá
Höfrungi III
_ Morgunblaðið/Jón H. Sigurmundsson
JONAS Sigmarsson, stýrimaður á Aroni ÞH, með stærsta skötusel sem vitað er um að veiðst hafi hér við land.
Skötuselurinn fer í
Safnahúsið á Húsavík
FRYSTITOGARINN Höfrungur III
kom til Akraness í gær með 649 tonn
upp úr sjó af blönduðum afla að
verðmæti 87,1 millj. króna. Þetta er
mesta aflaverðmæti skipsins eftir
eina veiðiferð en 1996 var aflaverð-
mætið 84 millj. kr. eftir túr í Smug-
unni. Kristján Pétursson var skip-
stjóri og 27 manns í áhöfn en túrinn
stóð yfir í 30 daga.
„Þetta er ljómandi góður túr,“
sagði Sveinn Sturlaugsson, útgerð-
arstjóri Haraldar Böðvarssonar hf. á
Akranesi, og Kristján tók í sama
streng. „Þetta var ágætt eins og er
oft á þessum tíma,“ sagði hann. „Við
vorum mikið við suðvesturlandið, að-
allega frá Eldeyjarbanka og Grinda-
víkurdýpi norður í Hampiðjutorg út
af Víkurál í lokin.“
Kristján sagði að aflinn hefði verið
mjög blandaður. 110 tonn af þorski,
sem væri með því mesta sem skipið
fiskaði í túr, tæplega 100 tonn af ýsu,
110 tonn af grálúðu og síðan aðallega
karfi og ufsi. „Þetta var sammfelld
vinna nánast allan túrinn, aldrei dautt
heldur alltaf verið að,“ sagði skip-
stjórinn. „Hins vegar held ég að ekk-
ert óvenjulegt sé við þennan túr því
mörg skip eni að koma eftir góða
túra. Það sem er að gerast er að verð-
mæti í ýsu og þorski er mjög gott.
Verðið á þorski er mun betra en á
undanfómum árum en aflasamsetn-
ing okkar núna er eins og hún hefur
verið því við verðum að blanda þessu
saman þar sem þorskkvóti okkar er
1.100 tonn á þessu fiskveiðiári, sem er
reyndar það langmesta sem við höf-
um fengið að fiska á þessu skipi í
landhelginni. A síðasta fiskveiðiári
fiskuðum við 6.600 tonn og af því voru
1.000 tonn af þorski í landhelginni.
Nú erum við nánast búnir með kvót-
ann innan landhelginnar eins og að
var stefnt og fórum því í úthafskarf-
ann eftir helgi. Við eigum 3.000 tonna
kvóta af úthafskarfa og verðum vænt-
anlega á honum út ágúst.“
Ekkert brottkast
Að sögn Kristjáns hefur verið lítið
um ýsu í aflanum á undanfórnum ár-
um en það hefði breyst í ár. Hún
væri samt blönduð en annar fiskur
rnjög góður. „Um 20% af ýsunni eru
undirmálsýsa en ég tek það fram að
við komum með hana í land. I póli-
tíkinni er mikið talað um brottkast
en þeir sem hafa kvóta þurfa ekki að
henda fiski í sjóinn. Það er enginn
hagur fyrii' okkur að henda fiski í
sjóinn. Það er vinna að ná honum inn
fyi'ir og það er sama handtakið að
koma honum í sjóinn aftur. Við eru í
því að landa fiskinum sem við öflum
og því finnst okkur oft ómaklega að
okkur vegið enda ekki í samkeppni
við trillubáta. A undangegnum árum
hefur stærsti hluti afla okkar verið
grálúða og karfi sem við veiðum ekki
á smábátaslóð heldur á miklu dýpi
sem ég held að handfærabátar, litlir
plastbátar, eigi erfitt með að sækja,
sérstaklega á veturna.“
ARON ÞH kom til Þorlákshafnar í
gær með um átta tonn af skötusel
sem fékkst í Skeiðarárdýpi. Þar á
meðal var einn 145 sm langur með
55 til 60 sm breiðan haus en talið er
að Islendingar hafi ekki veitt stæiri
skötusel hér við land. í mars 1996
fékk Sólbakur EA 134 sm langan
sel og var sá 29,6 kg. Að sögn Gunn-
ars Jónssonar hjá Hafrannsóknar-
stofnun getur skötuselur orðið um
tveggja metra langur og um 40 kg á
þyngd. Hann lifir á 20 til 1.800
metra dýpi og liggur gjaman á
botninum þar sem hann lúrir eftir
bráð.
Að sögn Stefáns Guðmundssonar,
skipstjóra á Aroni, er ætlunin að
gefa Safnahúsinu á Húsavík kvik-
indið. „Guðni Halldórsson forstöðu-
maður ætlar að reyna að láta stoppa
þetta kvikindi upp og hafa það til
sýnis fyrir norðan. Ætli það verði
ekki við hliðina á ísbirninum?"
--------------------
Aðalfundur FÍF
Utflutningur
mjöls og lýsis
dróst saman
SAMDRÁTTUR varð í útflutningi
mjöls og lýsis 1998 samanborið við
árið áður. Staðan verður til umræðu
á aðalfundi Félags íslenskra fisk-
mjölsframleiðenda sem verður á
Hótel Örk í Hveragerði í dag en
vorráðstefna félagsins fer fram á
sama stað á morgun.
Árið 1997 voru 254.083 tonn flutt
út af mjöli en sambærileg tala í
fyrra var 218.953 tonn. 132.476 tonn
af lýsi voru flutt út 1997 en 91.584
tonn 1998. Mjölið var einkum flutt
út til Bretlands og Danmerkur en
mesti samdrátturinn var í útflutn-
ingi til Noregs og Finnlands.
Stærsti hluti lýsisins fór til Noregs
sem fyrr en samdrátturinn var
mestur í sölu til Hollands.
Á ráðstefnunni á morgun ræðir
Ágúst H. Elíasson um rekstarkönn-
un FÍF/SF. Þórhallur Jónasson
greinir frá störfum vísindanefndar
IFOMA og Guðmundur Guðmunds-
son tekur fýrir notkun og með-
höndlun lýsis. Sveinn Sveinbjörns-
son fjallar um horfur á næstu ver-
tíð, Bragi Líndal talar um gæði
fiskimjöls sem fóðurs og Heiða
Pálmadóttir spyr hvort rotamín sé
böl eða blessun.
Aðalfundurinn hefst kl. 14 í dag
en ráðstefnan kl. 10 í fyrramálið.
r
Landssöfnun SIBS fyrir endurhæfingu á Reykjalundi
Síminn er opinn
552 2150
9-17 virka daga
Bankareikningur
0301-26-002600
í Búnaðarbanka íslands
Innleggsseðlar liggja frammi í Búnaðarbanka og Sparisjóðum
Einnig er hægt að leggja inn rafrænt á interneti eða í heimabanka