Morgunblaðið - 15.04.1999, Blaðsíða 8
8 FIMMTUDAGUR 15. APRÍL 1999
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Hjálparstarf Rauða kross fslands vegna Kosovo
Söfnun nálgast 14 milljónir
ALMENNINGUR, ríkisstjórnin
og Rauði kross íslands hafa þegar
lagt fram um 14 milljónir króna
vegna neyðar fólksins sem þurft
hefur að flýja heimili sín vegna
átakanna í Kosovo í Júgóslavíu.
Þar af hafa ríflega tvær milljónir
króna komið inn á söfnunarreikn-
ing félagsins, ríkisstjórnin hefur
lagt fram fimm milljónir, Rauði
kross Islands þrjár milljónir og
deildir félagsins um fjórar milljónir
króna. Reykjavíkurdeild Rauða
kross íslands samþykkti í fyrra-
kvöld að leggja fram þrjár milljón-
ir vegna hjálparstarfsins.
í fréttatilkynningu segir að ljóst
sé að neyð fólksins sem orðið hefur
fyrir barðinu á átökunum sé mikil
og þöif verði fyrir víðtækt hjálpar-
starf um talsvert skeið. Því hafi Al-
þjóða Rauði krossinn farið fram á
stuðning upp á 7,3 milljarða króna
til þess að sinna hjálparstarfi í Jú-
góslavíu, Makedóníu og Albaníu á
næstu sex mánuðum.
Rauði kross Islands hefur þegar
sent einn starfsmann til starfa í Al-
baníu og er haft eftir Sigrúnu
Amadóttur, framkvæmdastjóra
Rauða kross íslands, sem heim-
sótti neyðarsvæðin í síðustu viku,
að verið sé að kanna möguleika á
að senda fleiri starfsmenn út. Það
skýrist á næstu dögum.
Tekið er við framlögum frá al-
menningi á söfnunarreikningnum í
SPRON, 1151-26-12. Einnig er
minnt á gíróseðla í bönkum og
sparisjóðum og jafnframt er tekið
við framlögum í síma 570 4000 á
skrifstofutíma.
.3-
kun
i fullkomnu
Lavamat 74620
Þvottahæfni „A“
Þeytivinduafköst „B“
Ljósabretti: Sýnir hvar vélin er stödd í þvottakerfinu
Víndingarhraði: 1400/1000/800/600/400 sn/mín
afgangsraki 50%
Mjög hljóðlát Ytra byrði hljóðeinangraö
Klukka: Sýnir hvað þvottakerfin
teka langan tíma. Hægt að
stilla gangsetningu vélar allt
að 19 tíma fram í tímann
Öll hugsnaieg þvottakerfi
803
BRÆÐURNIR
33 ORMSSON HF
Lágmúla 8 • Sími 5332800
Umboðsmenn um allt land!
Heimsending innifaiin í verði.
Sameining sveitarfélaga
Lýkur ekki án
lagasetningar
MIKIL umræða
hefur verið um
sameiningu
sveitarfélaga á undan-
förnum árum og hefur
sveitarfélögum landsins
fækkað umtalsvert. Grét-
ar Þór Eyþórsson stjórn-
málafræðingur sem unnið
hefur að rannsókn á mál-
inu hefur þó enga trú á
því að þróuninni ljúki
með því að öll sveitarfé-
lög verði í stakk búin til
að veita íbúunum viðun-
andi þjónustu nema sam-
eining sveitarfélaga verði
þvinguð fram með laga-
setningu.
Skipting íslands í
sveitarfélög er hið ís-
lenska heiti doktorsrit-
gerðar Grétars. Hann varði rit-
gerðina við háskólann í Gauta-
borg í janúar síðastliðnum. Dokt-
orsritgerðin skiptist í tvær meg-
inathuganir. I fyrri hlutanum er
greining og kortlagning á laga-
setningu sem tengist sameining-
armálum með beinum og óbein-
um hætti allt frá árinu 1943. Síð-
ari hlutinn er greining á viðhorf-
um kjósenda og sveitarstjórnar-
manna.
- Hvers vegna hefur ekki enn
þá komið til allsherjarsameining-
ar?
„Lagasetning hefur aldrei
megnað að hafa teljandi áhrif á
skiptingu landsins í sveitarfélög,
jafnvel þótt það hafi verið mark-
mið hennar. Astæðan er sterk
andstaða í sveitarfélögunum sem
hefur leitt til þess að aldrei hefur
myndast vilji á Alþingi til að
fi’amkvæma verkið með valdboði.
Alþingismenn hafa ekki treyst
sér til að vinna að máhnu öðruvísi
en með frjálsum samningum
sveitarfélaganna. Sterkt frum-
kvæði að lagasetningu kom fyrst
fram af hálfu ríkisvaldsins þegar
Jóhanna Sigurðardóttir félags-
málaráðherra hóf það ferli sem
leiddi til atkvæðagreiðslna í 185
sveitarfélögum árið 1993.“
- Sameiningnrkosningin 1993
var umdeild.
„Þótt flestar sameiningarhug-
myndirnar hafi verið felldar
hófst umræðan um sameiningu
sveitarfélaga fyrir alvöru í að-
draganda atkvæðagreiðslunnar
og það hefur leitt til þeirrar þró-
unar í sameiningu sveitarfélaga
sem síðan hefur orðið. Ég er
ekki einn um þá skoðun að
ástæðan fyrir því að svo margir
sögðu nei sé sú að hugmyndin
kom frá ráðuneytinu. Síðan hef-
ur frumkvæðið komið frá heima-
mönnum. Það er einmitt eitt af
skilyrðum frjálsrar sameiningar
að hugmyndirnar komi að neð-
an, úr grasrótinni, en ekki að of-
orl ll
►Grétar Þór Eyþórsson er fædd-
ur í Reykjavík árið 1959. Hann
lærði múraraiðn og nam síðan
sljómmálafræði við Háskóla Is-
lands. Hann stundaði framhalds-
nám við háskólann í Gautaborg
og lauk doktorsprófi f janúar síð-
astliðnum. Grétar Þór er verk-
efnisstjóri gæðasljórnunar í fé-
lagsþjónustu á Norðurlöndunum,
hjá NOPUS sem er samnorrænt
verkefni um þróun félagslegrar
þjónustu.
Sambýliskona hans er Lára
Ósk Garðarsdóttir skrifstofu-
maður og eiga þau þijú börn.
armanna og almennra kjósenda.
Ef eigið sveitarfélag er hlutfalls-
lega stórt í því nýja og líkur til að
það verði í lykil- eða miðstöðvar-
hlutverki þar, eru menn fremur
jákvæðir en að sama skapi nei-
kvæðir ef sveitarfélag þeirra er
hlutfallslega lítið og hætta á að
það „hverfi" í hinu nýja.
Fjármálin eru einnig sterkur
skýringarþáttur. Þau verður
einnig að skoða í ljósi fjárhags-
stöðu annarra sveitarfélaga á
sameiningarsvæðinu. Sé fjár-
hagsstaða eigin sveitarfélags góð
í samanburði við önnur á samein-
ingarsvæðinu er viðhorfið fremur
neikvætt en sé hún verri er við-
horfið jákvæðara.
Meðal sveitarstjórnarmanna
voru kannaðir aðrir þættir sem
kynnu að hafa áhrif á viðhorf
þeirra, eins og til dæmis holl-
ustubönd við sveitarfélag, staðar-
hyggja, hvort viðkomandi var
embættismaður eða kjörinn full-
trúi, íbúaþróun og fleira.
Skemmst er frá því að segja að
þessir þættir virðast vega mjög
létt í huga sveitarstjórnarmanna
þegar þeir taka afstöðu til sam-
einingar. Þó kom í ljós nokkur
fylgni milli vilja til sameiningar
og áhuga manna á að sveitafélög
taki við auknum verkefnum frá
ríkisvaldinu enda eru stærri og
sterkari sveitarfélög forsenda
Við undirbúning
doktorsritgerðar sinn-
ar gerði Grétar Þór
skoðanakönnun meðal
sveitarstj ói-narmanna
og greiningu á úrslit-
um atkvæðagreiðslunnar
Hræddir við að
hverfa í nýju
sveitarfélagi
árið
1993. Skoðanakönnunin var gerð
á fyrri helmingi ársins 1994 og
fengust svör frá 310 sveitar-
stjórnarmönnum.
- Af hverju voru sameiningar-
hugmyndirnar felldar?
„Væntanleg staða eigin sveit-
arfélags í því sveitarfélagi sem
lagt er til að verði myndað er
veigamesti skýringarþátturinn í
afstöðu fólks, bæði sveitai-stjórn-
þess.“
- Telur þú að
markmiðin náist með
þeim aðferðum sem
_________ nú er beitt?
„Jafnvel þótt mörg
sveitarfélög hafi sameinast að
undanförnu með frjálsum samn-
ingum tel ég að margt í niður-
stöðum rannsóknar minnar bendi
til þess að hræðsla íbúa og sveit-
arstjórnarmanna við að hverfa í
nýju sveitarfélagi og andstaða
vegna mismunandi fjárhagsstöðu
hindri að alger uppstokkun á
skiptingu landsins í sveitarfélög
eigi sér stað án valdboðs frá rík-
inu.“