Morgunblaðið - 15.04.1999, Síða 14
14 FIMMTUDAGUR 15. APRÍL 1999
FRETTIR
AKUREYRI
MORGUNBLAÐIÐ
Samfylking-
in á Vestur-
landi opnar
skrifstofur
KOSNINGAMIÐSTÖÐ Sam-
fylkingai-innar við Kirkjubraut 14
á Akranesi var opnuð síðastliðinn
föstudag og um næstu helgi verða
opnaðar skrifstofur í Dölum og í
Grundarfírði.
„Efstu frambjóðendur Sam-
fylkingarinnar á Vesturlandi
heimsækja vinnustaði víða um
Vesturland nú í vikunni og verða í
Borgarnesi og í Dölum fímmtu-
dag og föstudag," segir í fréttatil-
kynningu frá Samfylkingunni á
Vesturlandi.
Edda Agnarsdóttir veitir kosn-
ingamiðstöðinni á Akranesi for-
stöðu. Kosningaskrifstofa Sam-
fylkingarinnar á Bjargi, Dalbraut
2 í Búðardal, verður opnuð fóstu-
daginn 16. apríl kl. 16. Skrifstofan
verður opin 15-18.30 alla daga.
Skrifstofa Samfylkingarinnar við
Borgarbraut 5 í Grundarfírði
verður svo opnuð laugardag'inn
17. apríl kl. 17. Jóhann Arsælsson
og Gísli S. Einarsson verða við-
staddir í báðum tilvikum.
Vinstrihreyfingin -
grænt framboð í
Reykjaneskjördæmi
Kosningaskrif-
stofa opnuð
VINSTRIHREYFINGIN
grænt framboð í Reykjaneskjör-
dæmi opnar kosningaskrifstofu á
Fjarðargötu 11 í Hafnarfirði
laugai-daginn 17. apríl klukkan
16.
Frambjóðendur U-listans
flytja ávörp og ræða við kjósend-
ur yfir kaffíbolla.
Davíð Oddsson
á Sauðárkróki
DAVÍÐ Oddsson formaður Sjálf-
stæðisflokksins heldur fund í
Norðurlandskjördæmi vestra í
kvöld.
Fundurinn verður haldinn í
Bóknámshúsi Fjölbrautaskólans
á Sauðárkróki og hefst klukkan
20:30.
Morgunblaðið/Kristján
Norðurland eystra
Framsdknar-
flokkur opnar
skrifstofu
FRAMSÓKNARFLOKKURINN
í Norðurlandskjördæmi eystra
opnaði kosningaskrifstofu á Akur-
eyri á laugardag, á Hólabraut 13.
Þar voni samankomnir frambjóð-
endur og stuðningsmenn. A mynd-
inni má sjá frambjóðendur Fram-
sóknarflokksins í kjördæminu.
F.v.: Valgerður Sverrisdóttir, sem
skipar 1. sæti listans, Jakob
Björnsson, sem skipar 4. sæti,
Elsa Friðfinnsdóttir, sem skipar 3.
sæti, Daníel Arnason, sem skipar
2. sæti og Sveinn Aðalgeirsson,
sem skipar 5. sæti.
Listi Húmanista
á Vesturlandi
HÚMANISTAFLOKKURINN
hefur kynnt framboðslista í Vest-
urlandskjördæmi. Listinn er
þannig skipaður: 1. Sigmar B.
Hilmarsson, verkamaður. 2. As-
laug Ólafína Harðardóttir kenn-
ari. 3. Sveinn Víkingur Þórarins-
son kennari. 4. Kolbrún Ósk
Hrafnsdóttir háskólanemi. 5.
Þorgrímur Einar Guðbjartsson
bóndi.
Samfylkingin á Húsavík
Kosningamið-
stöð opnuð
KOSNINGAMIÐSTÖÐ Sam-
fylkingarinnar á Húsavík var
opnuð 12. apríl sl. Milli 60 og 70
marms mættu.
Agúst Óskarsson setti sam-
komuna og Örlygur Hnefill Jóns-
son, sem skipar 2. sæti listans,
flutti ávarp.
Frambjóðendur mættu, þau Óli
Björn Einarsson, sem skipar 7.
sæti listans, og Jóhanna Aðal-
steinsdóttir, sem skipar heiðurs-
sæti hans. Sigurður Hallmarsson
lék á harmonikku. Viðstaddir
þágu veitingar og ræddu pólitík-
ina.
Fundur með
fulltrúum
stjórnmála-
flokka
SAMÚT, samtök útivistarfélaga,
efna til opins furidar með fulltrú-
um stjórnmálaflokkanna í kvöld
kl. 20.
Fundurinn verður í sal Ferða-
félags íslands, Mörkinni 6, og
samkvæmt fundarboði á þar að
reyna að fá skýr svör stjórnmála-
manna um málefni sem varða úti-
vist, almannarétt og náttúru-
vernd, til dæmis framtíð Eyja-
bakkasvæðisins.
Össur Skarphéðinsson
Mistök að
lækka skatta
ÖSSUR Skarphéðinsson alþingis-
maður telur það hafa verið mis-
tök hjá ríkisstjórninni að lækka
skatta á yfirstandandi kjörtíma-
bili. Þetta kom fram í máli Össur-
ar í stjórnmálaumræðum á Stöð 2
um helgina. ,,[...]í þessu þensluá-
standi sem núna ríkir þá tel ég
það vera mikil mistök hjá ríkis-
stjórninni að lækka skatta yfir
línuna, líka til þeirra sem höfðu
enga þörf fyrir slíkt og notuðu
þetta sem kaupmáttarauka til
þess að eyða í innfluttan lúxus.
Það hefði frekar átt að nota hluta
af þessu svigrúmi, ekki allt, held-
ur hluta af þessu svigrúmi til að
bæta kjör þeirra sem verst era
settir í hópi öryrkja og aldraðra,"
sagði Össur.
FERMINGARTILBOÐ
Morgunblaðið/Kristján
Harður þriggja bfla árekstur á Oddeyri
Maður losaður
með klippum
TVEIR voru fluttir á slysadeild
Fjórðungssjúkrahússins á Akureyri
í gærmorgun eftir harðan þriggja
bíla árekstur á mótum Hjalteyrar-
götu og Silfurtanga.
Tildrög óhappsins eru þau að bfl
sem ekið var suður Hjalteyrargötu
og beygt til vinstri inn í Silfurtanga
í veg fyrir bifreið sem ekið var norð-
ur Hjalteyrargötu. Við áreksturinn
kastaðist bifreiðin sem ekið var í
norðurátt á þriðja bflinn sem var
kyrrstæður á gatnamótunum. Öku-
maður eins bílsins, lítils sendibíls,
svonefnds bitabox var fastur í bfln-
um og þurfti að kalla til tækjabíl
Slökkviliðsins á Akureyri og mann-
skap frá liðinu til að klippa hann út
úr bílnum. Þetta er í fimmta sinn á
skömmum tíma sem slökkvilið þarf
að beita klippum til að ná fólki út úr
bflflökum.
Geðverndarfélag
Akureyrar
Kynningar-
fundur
GEÐVERNDARFÉLAG Akurejr-
ar er 25 ára á þessu ári og í tilefni af
því efnir félagið til kynningarfundar
á Fosshóteli KEA á laugardag, 17.
aprfl, kl. 11.
Björg Haraldsdóttir, forstöðu-
maður Vinjar í Reykjavík, fjallar
um stofnun athvarfsins og reynsl-
una af starfseminni, Eyjólfur Kol-
beins, gestur á Vin, segir reynslu-
sögu, Anna Valdimarsdóttir, iðju-
þjálfi á Kleppsspítala, kynnir hug-
myndina að baki klúbbnum Geysi,
Ingólfur Ingólfsson, framkvæmda-
stjóri Geðhjálpar, fjallar um frjáls
félagasamtök og reynslu þeirra af
rekstri þjónustu en að lokum verða
umræður. Fundurinn er öllum op-
inn, þátttökugjald er 1.000 krónur
og er léttur hádegisverður innifal-
inn í verði.
Ökumenn bílanna tveggja sem
voru á ferð eftir Hjalteyrargötunni
voru fluttir á slysadeild, en að
sögn varðstjóra lögreglunnar á
Akureyri voru meiðsl þeirra ekki
talin alvarleg. Ökumaður sendi-
bílsins skarst m.a. í andliti og
kvartaði um eymsl í hálsi og á
baki. Talið er að bílarnir séu ónýt-
ir, en þeir voru dregnir af vett-
vangi. Kyrrstæði bílinn er mikið
skemmdur eftir áreksturinn.
Tveir aðrir árekstrar urðu á
Akureyri í gærmorgun. Engin slys
urðu á fólki en nokkurt eignatjón.
Hrina árekstra hefur verið í bæn-
um, en á mánudag varð á þriðja tug
árekstra í umferðinni. Aðstæður
vora þá slæmar, snjókoma og hálka,
en að mati lögi'eglu eiga ökumenn
mestan þátt í að illa fer, þeir aki
ekki með nægilegi'i gát.
Yestfirskir
hittast
VESTFIRÐINGAFÉLAGIÐ
á Akureyri heldur vorfagnað á
Fosshóteli KEA föstudags-
kvöldið 16. apríl kl. 20.
Guðjón Arnar Kristinsson,
formaður FaiTnanna- og fiski-
mannasambands Islands, flyt-
ur ræðu kvöldsins og þá mun
kór syngja nokkur vestfirsk
lög, en hljómsveitin 1 og 70
leikur síðan fyrir dansi.
Skákmot
SKÁKFÉLAG Akureyrar
heldur 10 mínútna mót í skák-
heimilinu við Þingvallastræti í
kvöld, fimmtudagskvöldið 15.
aprfl, og hefst það kl. 20. A
sunnudag, 18. apríl, verður
haldið 15 mínútna mót og
hefst það kl. 14.
FOTONEX 210ix APS
Aðdráttarlinsa 22.5-45mm
Sjáltvírkur fókus
Sjálvirkt Ijósop og hraði
Einföld filmuþræðing
Dagsetning
Taska fylgir
FUJIFILM NEXIA filma fylgir
Verð aðeins kr. 15.725
Bæklunarlæknir - Akurevri
Hef opnaö læknastofu í Læknaverinu, Hafnarstræti 97. Stjörnuspá á Netinu
Tímapantanir í síma 461 2223.
Guðni Arinbjarnar, sérfræðingur í bæklunarskurölækningum. ^mbl.is ALLTAf= &/TTH\SAÐ NÝTl
Skipholti 31, Sími 568 0450 Kaupvangsstræti 1, s. 461 2850