Morgunblaðið - 15.04.1999, Page 34

Morgunblaðið - 15.04.1999, Page 34
34 FIMMTUDAGUR 15. APRÍL 1999 LISTIR MORGUNBLAÐIÐ „Líkvaka“ í Galleríi Nema hvað STELLA Sigurgeirsdóttir opnar sýninguna Líkvaka í Gallerfi Nema hvað, Skólavörðustíg 22c, í kvöld kl. 20. A sýningunni eru grafíkverk unnin í stálætingu og með blandaðri tækni. Sýningin stendur ti! sunnudagsins 18. apríl og er opin föstudag til sunnudags kl. 14-18. Bflgreinasambandið Aðalfundur BGS verður haldinn á Hótel Sögu Reykjavík laugardaginn 17. apríl nk. Kl. 09:00 Fundarsetning - Bogi Pálsson fonnaður BGS. Kl. 09:10 Erindi. - GeirH. Haarde fjármálaráðherra. Kl. 09:30 Fyrirspurnir - Umræður. Kl. 09:45 Aðalfundur. Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf. Kl. 10:30 Kaffihlé. Kl. 10:45 Sérgreinafundir: Almenn verkstæði Fræðslumál - Starfsemi FMB Verðlagsmál verkstæða - Kostnaðarlíkan. Verkstæði - tæki, búnaður, eftirlit. Bílamálarar og bifreiðasmiðir. Vottun verkstæða - tjónabflar. Kostnaðarlíkan - verðlagsmál. CABAS tjónamatskerfi. Einingakerfi í bflamálun. Bifreiðainnflytjendur. Verðskrá notaðra bfla. - Kynning. Samskipta- og siðareglur í bflgreinum. Samningur við umhverfisráðuneyti um upplýsingar um eldneytisnotkun nýrra fólksbíla. Vörugjöld á ökutæki. Smurstöðvar Gæðaátak á smurstöðvum. Námskeið fyrir sumarstarfsmenn. Fræðslufundir fyrir smurstöðvarmenn. Spilliefnagjald á olíur. Varahlutasalar Nýtt námskeið fyrir varahlutamenn. Spilliefnagjald - Starfsemi spilliefna- nefndar. Upplýsingar í gagnagrunn v/varahlutasölu. Bogi Geir H. Pálsson Haarde Kl. 12:30 Hádegisverður Föstudaginn 16. apríl kl. 18.00 verður haldinn sérstakur verkstæðisfundur á Hótel Sögu A-sal. Dagskrá: 1. Kostnaðarlíkan BGS - Virkni og notkun. Tómas Sigurðsson, Ráðgarður hf. 2. Kostnaðarþættir í rekstri verkstæða og áhrif þeirra. - Hagnýting kostnaðarlíkans. Kristján Kristjánsson, Ráðgarður hf. 3. Kostnaður og nýting á verkstæðum. Bjarki Harðarson, Bflson ehf. Atli Vilhjálmsson, Bifr. og landb.vélar hf. Bogi Sigurðsson, R Samúelsson ehf. Guðmundur Bjömsson, Bílver sf. 4. Umræður. Stjórn BGS I suðrænum anda MYIVDLIST Kílar og list MÁLVERK SARA VILBERGSDÓTTIR Opið á verslunartíma. Til 29. aprfl. EKKI er langt síðan að haldin var mikil sýning á vélhjólum í Gug- genheimsafninu við fimmtu tröð í New York. Kættust þá margir að- dáendur amerískra hjóla, enda hafa sögufræg merki eins og Harley Da- vidson verið tákngervingar hins am- eríska frelsisanda og snar þáttur í menningarsögu Bandaríkjamanna eftir seinni heimsstyrjöld. Ekki finnst mér það líklegt að það sé ætl- un aðstandenda sýningarsalarins Bflar og list, við Vegamótastíg, að hefja ökutæki á stall með listaverk- um og öðrum menningararfi Islend- inga. Hins vegar má vel vera að það skapi söluvænlegt umhverfi fyrir lúxusvagna, að hafa málverk á veggjum, þótt ekki væri annað en til að koma þeirri hugmynd inn hjá viðskiptavinum, að hér versli kúltíverað fólk, sem metur bíla út frá listrænu sjónarmiði ekki síður en notagildinu. Málverkin ellefu, sem nú prýða veggi bflasölunnar, eru eftir Söru Vilbergsdóttor. Sara er ekki óvön sýningarhaldi og hefur mótað nokk- uð afmarkaðan stfl, sem nýtur sín ágætlega í þessum myndum. Mótíf- in sem hún vinnur út frá eru afar einföld, bollar, skálar og krúsir í sínu hversdagslega umhverfi. Aferðin og efnismeðhöndlunin er ekki ólík því sem og er að finna í leirlist, frekar gróf áferð jarðleirs og einfaldað munstur. Myndbygg- ingin á öllum myndunum er miðlæg og samhverf, sem skapar jafnvægi og þægilega ró. Maður getur vel ímyndað sér að þær séu sprottnar upp úr reynslu af fábrotnu lífi fjalla- þorps við Miðjarðarhafsströnd, þar sem sólbakaðir kalksteinsveggir, okkurgulur jarðvegur, tréborð, leir- krúsir og freskumyndir á veggjum er sá umbúnaður sem rammar inn hið daglega líf. En ef svo er þá er það meira í stemmningunni frekar en myndefninu sem slíku, því það er allt einfaldað og stflfært, að því marki að krúsimar og skálarnar birtast sem táknmyndir greyptar í veggi, en ekki myndlýsing á tiltekn- um stað. Málverk Söru eru ekki ágeng eða heimtufrek á athygli, né héldur bjóða þær upp á marg- slungnar myndlistarlegar pælingar. Pær eru frekar til þess fallnar að aðlagast umhverfinu, vera til prýði og skapa þægilegt andrúmsloft. FOSSAR Listakol MÁLVERK FREYJA ÖNUNDARDÓTTIR Opið á verslunartíma. Til 19. aprfl. Freyja Önundardóttir velur sér líka, eins og Sara, afmarkað mótív til að vinna út frá, en í tilviki Freyju eru það fossar. Freyja býr og starfar á Þórshöfn og hefur sýnt nokkuð á Akureyri og á Norðaust- urlandi, en ég veit ekki til þess að hún hafi sýnt áður í Reykjavík. A sýningunni í Listakoti, við Lauga- veginn, sýnir hún 20 málverk, þar sem mótívið er fellt inn í formræna myndbyggingu sem hún heldur sig við í öllum myndunum. Fossamir eru mjög stflfærðir, eins og lands- lagið allt. Myndbyggingin er þrí- skipt, þrjár láréttar ræmur, himinn ásamt fjallasýn, hamrar fyrir miðju, og land fyrir neðan. Stærsti hlutur myndflatarins er tekinn undir mið- bik myndarinnar þar sem fossamir falla í lóðréttum taumum, yfirleitt nokkrir hlið við hlið. Myndbyggingin og meðferð myndefnisins vekur ósjálfrátt upp samanburð við málverk Guðbjargar Lindar, en hún vann líka á tímabili með fossa á mjög svipaðan hátt. Freyja reynir að fella náttúrulýsingu inn í formræna myndbyggingu sem er gegnumgangandi í flestum mál- verkunum. Samhengið milli forms og myndefnis er samt ekki nægilega eðlilegt og áreynslulaust, heldur þvert á móti er það frekar þvingað, eins og verið sé að fella náttúmna inn í fyrirfram ákveðið mót. Fyrir vikið missa fossarnir tengslin við hina upprunalegu náttúruupplifun. Jafnvægið milli náttúrusýnar og formfestu er viðkvæmt og Freyju tekst ekki að finna þetta jafnvægi á jafn sannfærandi hátt og er að finna í verkum, til dæmis, Guðbjargar Lindar eða Guðrúnar Kristjánsdótt- ur. Það er helst í minni myndunum, þar sem hún sníður sér enn þrengri stakk, að sjá má hvernig hlutimir geta fallið saman. Gunnar J. Árnason Tónlistar- veisla í Stykkishólmi Stykkishólmi. Morgunblaðið. TÓNLISTARSKÓLI Stykkishólms stóð fyrir tónleikum í Stykkishólms- kirkju laugardaginn 10. apríl til að styrkja hljóðfærakaupasjóð skól- ans. Frumkvæði að þessum tónleik- um á Jósef Blöndal, sjúkrahúslækn- ir við St. Fransiskuspítalann. Hann er tónlistaimaður og nemandi við skólann og stofnaði hljóðfæra- kaupasjóðinn í tilefni afmælis síns fyrir tveimur árum. Kennarar og nemendur tónlistar- skólans fluttu fyrri hluta dagskrár- innar. Þar sungu þær Ingibjörg Þorsteinsdóttir og Sigrún Jónsdótt- ir. Einnig söng Elísa Vilbergsdóttir sópransöngkona. Hún er Hólmari og hóf sitt tónlistarnám í Stykkis- hólmi og lýkur 8. stigi í söng í vor frá Söngskólanum. Eftir hlé léku þeir Lárus Pétursson á gítar og Birkir Freyr Matthíasson á trompet. Sveinn Bjamason, trú- badúr frá Svelgsá í Helgafellssveit, söng frumsamin lög. Elísa söng nokkur lög með léttsveit sem skipuð var tónlistarmönnum úr Stykkis- hólmi. Að lokum kom fram Ífljóm- sveitin Stormar frá Siglufirði, en hún naut mikilla vinsælda þar á ár- unum 1962-1968. Þarna voru mætt- ir gamlir félagar Jósefs Blöndals frá Siglufirði og rifjuðu upp nokkur gömul bítlalög frá þessum árum. Þeir höfðu litlu gleymt þrátt fyrir að samanlagður aldur félaganna í Stormum er um 300 ár, en ekki var gefin upp sameiginleg þyngd, en hún hefur aukist nokkuð á þessu árabili. Tónleikarnir tókust mjög vel og áheyrendur sem fylltu Stykkis- hólmskirkju kunnu vel að meta þessa góðu skemmtun. Sýningum lýkur Gallerí Stöðlakot SÝNINGU Kristjáns Jóns Guðnasonar, Tónar, lýkur sunnudaginn 18. apríl. Galleríið er opið daglega frá kl. 14-18. Morgunblaðið/Gunnlaugur GAMLA bítlahljómsveitin í Stormum frá Siglufirði léku nokkur bítlalög í Stykkishólmskirkju. Meindýr sýnd hjá Leikfélaginu Grímni Stykkishólmur. Morgunblaðið. LEIKFELAGIÐ Grímnir í Stykkis- hólmi sýnir þessa dagana gaman- einþáttunginn Meindýr eftir Bjarna Guðmarsson. Verkið fjallar um hús- eiganda sem verður var við að eld- húsið hjá honum er orðið vaðandi af alls konar meindýrum og bregður á það ráð að fá meindýraeyði sér til hjálpar. Leikendur eru Guðmundur Bragi Kjartansson og Jóhann Hin- riksson. Sýningin fer fram í Hljómskálan- um, félagsheimili leikfélagsins, þar sem félagið hefur undanfarin ár haft aðstöðu. Mikil vinna hefur ver- ið lögð í að endurbæta og laga hús- ið, en Lúðrasveit Stykkishólms byggði húsið á sínum tíma. Nú hef- ur verið sköpuð góð aðstaða þar til að sýna lítil leikverk og er það vilji leikfélagsmanna að færa meira starf inn í húsið og bjóða upp á stuttar sýningar og aðrar uppákomur. I vetur voru leikfélagsmenn með ljóðakvöld í Hljómskálanum, þar sem lesin voru ljóð eftir ýmsa höf- unda. Fyrri hluta vetrar sýndi fé- lagið barnaleikritið Allt í plati og fóru þær sýningar fram í félags- heimilinu. Morgunblaðið/Guðlaugur GUÐMUNDUR Bragi Kjartans- son og Jóhann Ilinriksson í hlutverkum sínum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.