Morgunblaðið - 15.04.1999, Side 38

Morgunblaðið - 15.04.1999, Side 38
38 FIMMTUDAGUR 15. APRÍL 1999 MORGUNBLAÐIÐ STOFNAÐ 1913 ÚTGEFANDI: Árvakur hf., Reykjavík. FRAMKVÆMDASTJÓRI: Hallgrímur B. Geirsson. RITSTJÓRAR: Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. SAMIÐ VIÐ RUSSA OG NORÐMENN DEILURNAR um veiðar íslendinga í Barentshafi eru leystar með samkomulagi, sem viðræðunefndir Noregs, Islands og Rússlands náðu í Moskvu í fyrradag. Það byggist í megindráttum á rammasamningi, sem utanríkisráðherrar landanna undirrituðu á fundi Barentshafsráðsins í Bodö í Noregi 5. marz sl., en hann fjallar um samstarf þjóðanna á sviði fiskveiða. Samkomulagið, sem gildir í fjögur ár í senn, gerir ráð fyr- ir, að í ár fái íslenzk fiskiskip að veiða 8.900 tonn af þorski í lögsögu Noregs og Rússlands og 30% aukaafla til viðbótar. Kvóti Islendinga er 1,86% af leyfilegum heildarþorskkvóta á þessu hafsvæði og getur aflamagnið því hækkað og lækkað eftir því hver heildarkvótinn er hverju sinni. Veiðiheimild- irnar falla niður við 350 þúsund tonn og þá jafnframt heim- ildir Norðmanna í íslenzkri lögsögu. I ár mega Islendingar veiða 4.450 tonn í norskri lögsögu, en á móti fá Norðmenn að veiða á línu 500 tonn af löngu, keilu og blálöngu í íslenzkri lögsögu, svo og 17 þúsund tonn af loðnu. I rússneskri lögsögu mega Islendingar veiða 4.450 tonn, auk aukaafla, en þar af munu Rússar bjóða íslending- um að kaupa 37,5% (1.669 tonn) á markaðsverði. Vegna þessa ákvæðis fá Rússar engar veiðiheimildir í íslenzkri lög- sögu. Halldór Asgrímsson, utanríkisráðherra, segir samkomu- lagið Islendingum mjög hagstætt. Hann bendir á, að Smugudeilan hafi staðið samskiptum þjóðanna fyrir þrifum og samkomulagið muni liðka verulega fyrir ýmiss konar við- skiptum. Þorsteinn Pálsson, sjávarútvegsráðherra, leggur áherzlu á, að Islendingar fái viðurkennd veiðiréttindi í Barentshafí, sem þeir hafi ekki haft, einir fiskveiðiþjóða í Evrópu. Samkomulagið sýni ennfremur, að íslendingar vilji stunda veiðar með ábyrgum hætti. Viðbrögð hagsmunaaðila við samkomulaginu eru misjöfn og m.a. segir Kristján Ragnarsson, formaður LÍÚ, að það sé mjög rýrt og íslendingar fái í raun aðeins 5 þúsund tonna veiðiheimildir í Barentshafí. Afstaða annarra aðila innan sjávarútvegsins er jákvæðari, ekki sízt þeirra, sem stunda viðskipti við Rússa. í forustugrein Morgunblaðsins eftir undirritun ramma- samningsins í márzbyrjun sagði m.a.: „Það er mikið fagnað- arefni, að samningar hafa náðst í þessari deilu. Þeir samn- ingar eru að mörgu leyti hagstæðir fyrir okkur og tryggja öruggari veiði en Smugan hefur boðið upp á. Engum þarf að koma á óvart, þótt við verðum að láta af hendi einhverjar veiðiheimildir innan okkar lögsögu. Þær eru takmarkaðar, en við getum ekki búizt við að fá veiðiheimildir í lögsögu annarra þjóða nema við látum eitthvað af hendi sjálfir. Þess- ir samningar eru líklegir til að greiða fyrir öðrum viðskipt- um með fisk bæði við Norðmenn og Rússa og heildaráhrif þeirra verða áreiðanlega meiri en sem nemur veiðiheimild- unum í Barentshafi.“ Akvæðið um heimild okkar til að kaupa veiðiheimildir af Rússum er athyglisvert. Það er ekki ólíklegt að slík ákvæði eigi eftir að ryðja sér til rúms í samningum þjóða í milli og eru raunar þekkt í einstaka tilvikum nú þegar. ENDURMENNTUN ENDURMENNTUN hefur verið ofarlega á baugi undan- farin ár, framboð hefur aukist, meðal annars meý til- komu Endurmenntunarstofnunar Háskóla Islands. í nú- tímatækniþjóðfélagi þar sem hlutirnir taka svo örum breyt- ingum að jafnvel sveigjanlegt fyrirbæri eins og tungumálið hefur hvergi nærri undan að nefna þær er endurmenntun og símenntun afar mikilvæg til þess að viðhalda menntunar- og þekkingarstigi. Því er það gleðilegt að á undanförnum árum hefur orðið veruleg aukning í þátttöku fólks í endurmenntun og hliðstæðri fræðslu samkvæmt könnun sem kynnt var á stefnuþingi Mennta. I könnuninni kom fram að um helmingur landsmanna endurmenntaði sig á tólf mánaða tímabili en sé litið til síð- ustu þriggja ára hækkar þessi tala upp í 69-72%. í könnun- inni kom einnig fram að atvinnurekendur greiða í flestum tilvikum kostnað vegna starfstengdrar endurmenntunar. At- hyglisvert er að áhugi, löngun til að afla sér aukinnar þekk- ingar og ásetningur að auka færni sína í núverandi starfi hefur afgerandi áhrif á ákvörðun fólks að sækja námskeið. Launahækkun og afþreying virðast hins vegar ekki hafa mikil áhrif á námskeiðssókn. Augljóst er að viðhorf til endurmenntunar er afar jákvætt á meðal landsmanna sem er mikilvægt fyrir atvinnulífið. Gott er að byggja á því í síharðnandi samkeppni. Markaðsverðmæti Baugs hefur aukist um tæp FBA og Kaupþings ákváðu að kaupa ' Vorum að kaupa rekstur, arðsemi og- sjóðstreymi Markaðsverð Baugs hf. er 9.950 milljónir króna miðað við gengið 9,95 sem ákveðið hef- ur verið að gildi í útboðinu sem hefst á mánu- y dag. Pétur Gunnarsson ræddi við Bjarna Ar- mannsson, forstjóra FBA, og Sigurð Einars- son, forstjóra Kaupþings, um reynslu þeirra af viðskiptunum, sem kölluð hafa verið 7 stærsta fyrirtækjasala Islandssögunnar. Baugur hf. Stærstu hluthafar 8. apríl 1 Reitangruppen A/S, Noregi 2 Compagnie Financiere, Lúxemb 3 Eignarhaldsfélagið Gaumur 4 Fjárfestingarbanki atvinnulífsin 5 Kaupþing hf. 6 Kaupþing hf., Lúxemborg 7 JóhannesJónsson 8 Jón Ásgeir Jóhannesson 9 Eignarhaldsfélagið Hof sf. 10 Hlutabréfasjóðurinn Auðlind hf. 11 Búnaðarbanki íslands hf. 12 JákupJacobsen 13 Baugurhf. 14 VÍB - sjóður 6 15 Hávöxtunarfélagið - sjóður 9 16 Kristfn Jóhannesdóttir 17 Tryggingamiðstöðin hf. 18 Hávöxtunarfélagið hf. 18 stærstu samtals_________ Aðrir hluthafar (23) Uppbygging s Bau Hagkaup Nýkaup Aðfi Starfsma Þróuni Upplýsin Fjármá Sigurður _ Bjarni Einarsson Ármannsson SALA til almennings á 10% hlutafjár í Baugi hf., eiganda Hagkaups, Nýkaups og Bón- uss, hefst á mánudag á geng- inu 9,95. Seld verða 4% af eignarhlut Kaupþings hf., 4% af hlut FBA og 2% af eign Hofsfjölskyldunnar. Nafnverði þess sem boðið er út er 100 milljónir króna en heildarhlutafé I Baugi er 1.000 milljónir króna. Morg- unblaðið fékk staðfest í gær að hluta- féð verður boðið til sölu á genginu 9,95 og söluverð á útboðinu því samtals 995 milljónir króna. Miðað við það gengi er markaðs- verðmæti Baugs nú um 9.950 milljónir króna og samkvæmt því hefur mark- aðsverðmæti fyrirtækisins aukist um tæplega 2 milljarða króna á tæpu ári. Það þótti djaiít teflt hjá Sigurði Einarssyni, forstjóra Kaupþings, og Bjama Ármannssyni, forstjóra FBA, að ganga til viðskiptanna síðastliðið sumar, en þau þóttu mikil tíðindi í við- skiptalífínu. I tilefni útboðsins eftir helgi ræddu Bjarni og Sigurður við blaðamann um reynslu fyrirtækjanna af markaðsvæðingu Baugs; þá áhættu, sem tekin var í upphafi og þá niður- stöðu sem nú blasir við þegar sala á hlutabréfum til almennings er að hefj- ast. Þeir fullyrða báðir að fyi’ii'tæki sín hafi hagnast vel á þessari milli- göngu. Það verð sem FBA og Kaupþing greiddu fyrir eignir Hofsfjölskyldunn- ar, sem svara til 75% hlutar í Baugi, var trúnaðarmál samkvæmt kaup- samningi og fæst ekki gert opinbert. Síðastliðið sumar var rætt um 8 milljarða króna kaupverð í viðskiptum Hofs og FBA/Kaupþings en samkvæmt upplýsingum Morgunblaðsins var raunin sú að gengið 8 var notað í viðskiptunum og kaupverð- ið var því um 6 milljarðar króna fyrir þann 75% hlut sem þá skipti um hendur. Á sínum tíma heyrðust gagnrýnisraddir um að verðið væri of hátt því ekki væri verið að kaupa nein- ar fasteignir og ekkert annað en rekstur fyi'htækjanna sjálfan. Úrelt sjónarmið Sigurður og Bjarni kannast báðir við að hafa heyrt þessar gagnrýnis- raddir. „Þetta er í huga okkar algjör- lega úrelt sjónarmið," segir Sigurður. „Við vorum hvorki að kaupa okkur áhrif né fasteignir. Þegar við fórum inn í svona fyrirtæki erum við að kaupa reksturinn, arðsemina, sjóð- streymið. Við tókum ákvörðun frá byrjun um það að við ætluðum ekki að reka matvörubúðir eða sérverslun og við höfum aldrei skipt okkur af dag- legum rekstri þessa fyrirtækis." Bjarni tekur í sama streng. „Ég held að hingað til hafi menn verið bundnh' af þeirri hugmyndafræði að fjái'festingum fylgi völd og áhrif til einhvers annars en að ná fram fjár- hagslegum ávinningi íyrir hluthafa. Eg held að menn séu að átta sig á því núna, þegar við erum að fara út úr fyrirtækinu, að við komum þai’na inn í ákveðnum tilgangi. Markmið okkar er ekki að stunda atvinnurekstur í öðrum atvinnugrein- um en fjármálastai'fsemi. En það, að koma með fjármagn til uppbyggingar og stuðla að ákveðnu ferli, hvort sem það er að koma fyrirtæki á markað eða stuðla að samruna í einstökum atvinnugreinum til að tryggja hagræði eða hagnað, er eitt af hlutverk- um fjárfestingarbankans. FBA er kannski fyrsti fjár- festingarbankinn hér á landi með burði til að ná fram slíkum breytingum." Á sínum tíma var rætt um sölu Hagkaups, sem mestu fyrh'tækjasölu Islandssögunnar. Hver er forsaga málsins? Bjarni segir að hugmyndin hafi komið frá Bónusfeðgum. FBA hafi, fyrir þeirra tilstilli, skoðað mögu- leika á því að gerast „brúunaraðili" við markaðsvæðingu Hagkaups til að gera Hofs-fjölskyldunni kleift að selja sinn eignarhluta áður en fyrirtækið færi á markað. „Við fórum yfii' málið og Kaupþing kom inn í myndina því þetta var gríð- arlega mikil fjárfesting. Það var sameiginleg niður- staða okkai' að þetta ætti að geta verið álitlegur kostur. í framhaldi af því hófust viðræður við Hofs- fjölskylduna, fyrst fyrir milligöngu Jóns Ásgeirs Jóhannessonar, en síðan milliliðalaust. Það varð snemma ljóst að allt stefndi í að aðilar næðu saman,“ segir Bjarni. „Samningaferlið var hins vegar ekki auðvelt; það tók mjög á einstakar per- sónur en á endanum hafð- ist þetta,“ segh' hann. Sáum hagræði í hugmyndafræðinni - Hvað var það sem réð því að FBA og Kaupþing töldu þátttöku í þessum viðskiptum vænlegan kost? „Við sáum hagræðið í þessum sam- runa og þeirri hugmyndafræði, sem verið vai’ að þróa varðandi sameigin- leg, miðlæg aðföng, vörudreifingu og lagerhald. Það, að ná þessari mark- aðsstöðu, mundi skapa fyrirtækinu sjóðstreymi, sem væri nægilega sterkt til að standa undir því verði, sem við töldum að seljandinn sætti sig við,“ sagði Bjarni. „Við ætluðum okkur að græða pen- inga á þessu, það vai' aldrei nein laun- ung á því, en við höfðum tímabundnu hlutverki að gegna til góðs fyrir aðra hluthafa og til að geta veitt almenn- ingi aðgang að fjárfestingu í félaginu." Bjarni segir að vissulega megi segja að tekin hafi verið áhætta með við- skiptunum. „Við reyndum að standa þannig að málum að áhættan væri sem gegnsæjust og reyndum að meta hana og reikna út eins og við best gát- um. En auðvitað er óvissa í öllum hlut- um. Það, sem var öðruvísi í þessum viðskiptum, samanborið við önnur við- skipti fjármálafyrirtækja, var að þarna var þónokkur markaðsáhætta; óvissa um hvernig markaðurinn tæki við sér og hvort hann væri sammála okkar mati á fyrirtækinu." Bjarni segir að hingað til hafi menn frekai' átt því að venjast að um sé að ræða áhættu sem snertir mat á láns- hæfni, þ.e. hættu á að menn tapi á fjárfestingum vegna þess að lántak- andinn geti ekki greitt. „Þarna er um tvenns konar ólíka áhættu að ræða. Ég held að gagnrýnin hafi beinst að því að menn voru ekki vanir að sjá Gengi í við- skiptum við Reitan- gruppen o.fl. 8,2-8,55

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.