Morgunblaðið - 15.04.1999, Síða 46
46 FIMMTUDAGUR 15. APRÍL 1999
MORGUNBLAÐIÐ
UMRÆÐAN
Samtök útivistarfélaga
með borgarafund
Gunnar
Hjálmarsson
SAMTÖK útivi-
starfélaga boða til
borgarafundar í
kvöld með talsmönn-
um þingflokkanna -
þeir munu þar skýra
stefnu sína í um-
hverfis- og náttúru-
verndarmálum -
með stuttum ræðum,
10 mínútur hver. Síð-
an gefst góður tími
til fyrirspurna úr sal.
Fundurinn er
haldinn í sal Ferða-
félags Islands í
Mörkinni 6 og hefst
kl. 20.
Samtök útivistar-
félaga telja skyldu sína að styðja
við umræðu um ofangreind mál-
efni. Reyndar hefur umræða um
náttúruvernd verið mjög að eflast í
landinu upp á síðkastið - umræðan
er ennþá ung - það er stutt síðan
náttúruvernd komst með alvöru
± inn á stefnuskrá allra flokka. Og
það er stutt síðan áhugi varð svo
almennur meðal landsmanna á
málefnum náttúruverndar sem nú
er orðið - en hann er orðinn það og
það er vel. Við þurfum samt að
halda umræðunni áfram og ekki
síður þótt mál séu viðkvæm sum
hver og um ólíka hagsmuni að
tefla. Ekki síður.
Við verðum að viðurkenna margt
misjafnt í umgengni okkar við land-
ið í gegnum tíðina - það er þá krafa
til okkar sjálfra um að gæta betur
fað okkur - það er krafa um betri
umræðu, um umhverfísmál og nátt-
úruvernd, umgengni við landið. Pað
er krafa um skýr svör alþingis-
manna og undanbragðalaus við
spurningum fólks - þær varða t.d.:
umgengni við hálendið, stjórn á því,
Valgarður
Egilsson
vörulistinn
Ármúla 17a,
sími 588 1980.
virkjanamál, Kyoto-bókun og
koltvísýringsmál, lífland fugla
o.m.fl.
Að Samtökum útivistarfélaga
standa fjölmenn félög, hvert með
sínar sérstöku áherslur. Alls eru í
Borgarafundur
Gagnrýni ættu vitrir
stjórnmálamenn að
fagna, segja Gunnar
HjáLmarsson og Val-
garður Egilsson,
þekkja þá betur alla
þætti dæmisins, þá
hljóta þeir að geta
stjórnað betur.
aðildarfélögunum nálægt 30.000
manns. Þessi fjölmenni hópur hefur
vitaskuld áhuga á að heyra vel út-
skýrða stefnu alþingismanna í mál-
efnum náttúruverndar og umhverf-
ismála. Umræðan er ung, sjálfsagt
á margt eftir að leiðréttast þegar
hún dafnar.
Það má ekki gerast að teknar séu
ákvarðanir í skyndingu - af því
menn nenni ekki að skoða málin gr-
ant. Það má ekki gerast að stjórn-
málamenn taki - strax eftir kosn-
ingar - hæpnar ákvarðanir - í skjóli
Nýjar vorvörur
frá gardeur
dömubuxur,
3 lengdir,
peysur, bolir,
bermudas,
dragtir.
venzlun v/Nesveg, Seltjarnarnesi,
sími 561 1680.
_i___________________________
þess að þá séu 4 ár til næstu kosn-
inga - að þá verði fólk búið að
gleyma öllu o.s.frv. Það þarf ívið
betri vinnubrögð, helst brot af yfir-
sýn.
Fallegt orð hefur misst merkingu
sína - nú er þetta orð „sátt“ komið í
tísku - þykir fara afskaplega vel í
ræðum. Þá er stundum dulin hin
eiginlega ætlan: að strauja út gagn-
rýnisraddir. Gagnrýni ættu vitrir
stjórnmálamenn að fagna - þekkja
þá betur alla þætti dæmisins, þá
hljóta þeir að geta stjórnað betur.
Allt stóð þetta reyndar í reiknings-
bók Elíasar Bjarnasonar fyiir
löngu.
Ef meirihlutinn á að ráða þá má
geta þess að meirihluti Islendinga
er enn ófæddur. Og sá meirihluti
ski-ifar Islandssöguna eftir sínum
viðhorfum, og mun taka hart á því
sem við misgerum. Og meta meira
vit og smekk en afl þverrákóttu
vöðvanna. Samtök útivistarfélaga
voru stofnuð í nóvember sl. Alls eru
- eins og íýtT er sagt - nálægt
30.000 félagsmenn í aðildarfélögun-
um, venjulegt fólk um allt land, sem
vinnur störf sín úti í þjóðfélaginu
og nýtur gjarnan náttúrunnar í frí-
stundum. Að Samtökum útivistar-
félaga standa eftirtalin félög:
Ferðafélag Islands
Utivist
Ferðaklúbburinn 4x4
Landssamband stangaveiðifélaga
Landssamband hestamanna
Landssamband ísl. vélsleðamanna
Félag húsbflaeigenda
Islenski alpaklúbburinn
Jöklarannsóknafélag Islands
Sjálfboðasamtök um náttúru-
vernd
Hellarannsóknafélag Islands
Fuglavemdarfélag Islands
Skotveiðifélag Islands
Samtök útivistarfélaga munu
taka þátt í umræðum um náttúru-
vernd og umhverfismál, vera
stjórnvöldum til trausts og halds
þegar ákvarðanir um hugðarefni fé-
lagsmanna eru teknar - standa
vörð um þau.
Á fundinum í kvöld er reiknað
með skýi’um svörum stjórnmála-
manna, annað verður ekki tekið
gilt.
Gunnar Hjálmarsson er formaður
Samtaka útivistarfélaga,
Valgarður Egilsson er í
stjórn þeirra.
Hvar hefur líf mitt
lit sínum glatað?
Lionsklúbbarnir hér
á landi ásamt Lions-
klúbbum hinna Norð-
urlandanna hafa
ákveðið að yfirstand-
andi Rauðu fjaðrar
söfnun verði nýtt í
þágu aldraðra, rann-
sókna og ýmissa fram-
faramála þeim tengd-
um. Vitneskja um ell-
ina hefur tekið stór
stökk undanfarin ár,
en þó má gera mun
betur. Því finnst mér
rétt að hvetja einstak-
linga til þáttöku, en Jón Eyjólfur
söfnunin verður dag- Jónsson
ana 16.-17. aprfl næst-
komandi. Með fjármagni því sem
safnast við lándssöfnunina má
lyfta Grettistaki í þeim málum.
Rannsóknir á viðhorfum til aldr-
aðra hafa lítið verið gerðar hér á
Söfnun
Vitneskja um ellina hef-
ur tekið stór stökk und-
anfarin ár, segir Jón
Eyjólfur Jónsson, en þó
má gera mun betur.
landi. Rannsóknir á sjálfsmati og
viðhorfi hins aldraða hafa heldur
ekki verið margar hér. Þó er að-
eins í litlum mæli hægt að meta
viðhorf Islendinga út frá erlendum
rannsóknum. Eitt af því sem mér
finnst hafa einkennt umræðu síð-
ustu missera af og til er það að
aldraðir séu þiggjendur, nánast
ölmusufólk. Neikvæð viðhorf ríki
til ellinnar og aldraðir eftir 67 ára
séu grár samlitur hópur þurfandi
einstaklinga.
Hvenær glatar lífið lit sínum?
Hvernig förum við að því sem ein-
staklingar, foreldrar, börn, afar og
ömmur að halda litnum á lífi okk-
ar? Eru til ævintýri eftir sjötugt?
Verður fólk ástfangið áttrætt, eða
er það bara barnaskapur? Svörin
eru mai’gvísleg, eins mörg og við
erum manneskjurnar á þessari
jörð. Það sem gildir fyrir einn
gildir ekki fyrir annan. Langanir
okkar og þrár eru þó samar og
jafnar.
Einstaklingurinn þrífst á góðu
Kaneho
KYNNING
viðmóti og kærleika.
Hrifning og ást kvikn-
ar í hjörtum á hvaða
aldri sem er. Hann er
áhyggjufullur yfir því
sem veldur honum
áhyggjum hvort held-
ur það er framtíð eða
fjármál. Hvers vegna
eru einstaklingar
þessa langa og oft
gjöfula æviskeiðs sett-
ir undir sama hatt?
Ekki er það sami mað-
urinn sá sjötugi og
þegar hann nær hund-
rað ára aldri, ekki
frekar en sá þrítugi er
sami maðurinn og sá
sextugi. Hvert æviskeið hefur sinn
lit og lífið er oft eins og nostur-
samlegt olíumálverk. Lag eftir lag
af lit gefur verkinu dýpt og innra
líf.
Hvernig förum við að því að
halda litnum? Eitt er að bera höf-
uðið hátt, vera stolt af því að hafa
gefið kynslóðunum líf og elft land
og byggð. Hvemig það komst inn í
þjóðarmeðvitundina að aldraðir
væru þiggjendur er mér illskiljan-
legt, þeir eru gefendur.
Hlutfall launþega og barna á
framfæri breytist, það verða æ
færri böm á framfærslu launþega í
framtíðinni, það rýmkar þá vænt-
anlega fyrir launþega nútímans að
leggja fyrir eins og aldraðir hafa
gert mann fram af manni. Hvort
sem það vom jarðabætur fortíðar-
innar sem leiddu af sér búsæld eða
lífeyrissjóðir nútímans þá njóta
þeir sem hafa byggt og elft þá.
Skattar og skyldur hafa aldraðir
greitt, þeir skulda sjaldan og
greiða gjaman með sér.
Hvenær glatar lífið lit sínum?
Kröfuleysi aldraðra kann að vera
þroskamerki, en ég held þó að lit-
urinn hafi glatast eða dofnað, líkt
og á myndverki sem upplitast í sól-
inni, fyrir tilstilli endurtekinna
harma, ágjafar og krafna þjóðfé-
lagsins. Eða hverjir em það sem
taldir era teppa rúm bráðasjúkra-
húsanna, era fyrir í hraðskák nú-
tímans, era taldir vera að kafsigla
lífeyrissjóðina, era ekki taldir með
í skoðanakönnunum fjölmiðlanna,
taka of mikið af dýrum lyfjum. Jú,
þeir öldraðu, fáum við að vita í fjöl-
miðlum.
Það er kominn tími til að breyta
því, breyta þesum viðhorfum og sú
breyting hefst hjá þér sem ert sjö-
tugur, áttræður, níræður eða
hundrað ára. Vertu stoltur af þeim
lit sem þú berð, berðu höfuðið hátt,
láttu í þér heyra og notaðu kosn-
ingaréttinn til þess að styrkja þjóð-
félagið. Vandi sjúkrahúsanna er
ekki þinn vandi, hann er vandi
þjóðfélagsins í heild, samhjálpin er
Islendingum í blóð borin, svo
kvíddu í engu ef þú þarft að leita
þér lækninga. Lífeyrissjóðirnir
væra ekki til ef þú hefðir ekki
greitt í þá og hvað lyfjakostnað
varðar þá er það réttur þinn að fá
alltaf bestu mögulegu læknismeð-
ferð. Rannsóknir þær sem lands-
söfnunin Rauða fjöðrin gerir kleift
að stunda munu leiðbeina okkur
um viðhorf og væntingar eldri ein-
staklinga. Berðu því höfuðið hátt,
þú, sem ert aldraður. Ef þú skín
skært varpar þú lit og birtu á aðra!
Höfunúur er öldrunarlæknir.
Skólavörðustíg 35,
sími 552 3621.