Morgunblaðið - 15.04.1999, Page 47
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 15. APRÍL 1999 47*
UMRÆÐAN
„Einhverjir
milljarðar“
AÐ EIGIN sögn er
helsta rósin í hnappa-
gati ríkisstjórnarinnar
traust tök á fjármál-
um ríkisins. Hversu
traust þau eru má
ráða af því að þegar
Geir H. Haarde var
spurður hve mikill
hallinn var á ríkissjóði
á síðasta ári gat hann
ekki svarað því. Hann
veit það einfaldlega
ekki.
Þetta kom fram í
samtali okkar á Stöð 2
sl. sunnudagskvöld.
Þegar ég gekk á ráð-
herrann og spurði
hvort það væri virkilega rétt að
ríkisstjórnin vissi ekki hver hin
raunverulega staða ríkissjóðs væri
í lok ársins 1998 svaraði ráðherr-
ann loksins að hallinn væri upp á
„einhverja milljarða".
Grundvallarspurningnm ósvarað
Ráðherrann skýtur sér á bak við
tæknilega örðugleika vegna breyt-
inga á uppgjöri ríkissjóðs. Hvað sem
líður tæknistigi fjármálaráðuneytis-
ins undir lok 20. aldarinnai- er það
vægast sagt ófullnægjandi að rílds-
stjóm skuli ekki geta veitt svör við
gnmdvallarspmTiingum um stöðu
ríkissjóðs í aðdraganda kosninga.
Það er enn síður trúverðugt í Ijósi
þess að forysta ríkisstjórnarinnar
hefin' reynt að láta kosningabarátt-
una snúast um ríkisfjármál. Það hef-
ur hún gert með því að lýsa ítrekað
yfir að kosningastefna
hinnar nýju Samfylk-
ingar sé ótrúverðug
vegna áhrifa hennar á
fjármál ríldsins.
Það er ekki ábyrgur
málflutningur á meðan
ríkisstjórnin sjálf get-
ur ekki upplýst kjós-
endur um grundvall-
arþætti úr rekstri rík-
isins. Davíð Oddsson
og fjármálaráðherra
hans verða ekki mark-
tækir í slíkri umræðu
fyrr en þeir geta svar-
að spurningum um
halla ríkissjóðs með
nákvæmari hætti en
„einhverjir milljarðar“. Ekki fyrr.
Rangar upplýsingar
fjármálaráðherra
Fleira bendir til að ríkisstjórnin
hafi ekki mjög trausta yfirsýn yfir
stöðu efnahagsmálanna. I þessari
viku hefur ráðherrann tvisvar sinn-
um sagt í fjölmiðlum að viðskipta-
hallinn færi minnkandi. Nú vita all-
ir að mikill og langvarandi halli á
vöruskiptum við útlönd ógnar stöð-
ugleika efnahagskerfisins. Takist
ekki að hemja hann grefur hann
undan genginu og sleppir að lokum
verðbólgunni úr prísund síðustu
ára. Yfirlýsingar ráðherrans væru
því sannarlega gleðiefni ef þær
reyndust réttar.
Þær eru því miður rangar. A
upplýsingavef FBA frá 12. apríl
kemur fram að halhnn á viðskipt-
Össur
Skarphéðinsson
Ríkisrekstur
Ríkisstjórnin sjálf,
segir Ossur Skarphéð-
insson, getur ekki upp-
lýst kjósendur um
grundvallarþætti úr
rekstri ríkisins.
um við útlönd fyrstu tvo mánuði
þessa árs er meiri en á sama tíma í
fyrra. Þá er búið að horfa framhjá
tveimur stórum hreyfingum sem
sérfræðingar FBA telja skekkja
samanburðinn (sölu á skipi á þessu
ári úr landi og kaup á nýirí flugvél
til landsins í fyrra). Þar að auki
kveður FBA verðþróun sem nú er í
gangi svo óhagstæða að hún „kem-
ur til með að verka til aukins halla
af vöruskiptum við útlönd á næstu
mánuðum að öðru óbreyttu“.
Þetta þýðir að fjármálaráðherra
hefur ekki metið rétt hversu alvar-
leg ógn þróun viðskiptahallans er
við stöðugleika efnahagskerfísins.
Viðskiptahallinn er ekki að minnka,
eins og ráðhen-ann taldi, heldur
þvert á móti að aukast.
Traust tök?
Þingkosningum má jafna við að-
alfund í íyrirtæki. Hvernig þætti
mönnum ef stjómendur fyrirtækis
héldu aðalfund þar sem ekki lægju
fyrir ársreikningar, heldur léti
stjómin sér nægja að segja að á
rekstrinum væri tap upp á „ein-
hverja milljarða"?
Er þetta til marks um traust tök
ríkisstjórnarinnar á fjármálum rík-
isins?
Höfundur er alþingisnmður
fyrir Reykjavík.
Glæsilegt
Sróðurhús
meö gleri!
Verð 48.750 kr.
RÁÐGJÖF
SÉRFRÆÐINGA
UM GARÐ-
OG GRÓÐURRÆKT
GRÓÐURVÖRUR
VERSLUN SÖLUFÉLAGS GARÐYRKJUMANNA
Tiraun
pjósr
■HH