Morgunblaðið - 15.04.1999, Síða 50
3^0 FIMMTUDAGUR 15. APRÍL 1999
MORGUNBLAÐIÐ
UMRÆÐAN
Vísvitandi
rangfærslur
VEGNA ummæla
Arna Mathiesen, 1.
frambjóðanda Sjálf-
stæðisflokksins á
Reykjanesi, um að
ekki þurfi að hafa
áhyggjur af framtíðar-
skipan fiskveiðistjórn-
unarinnar þar sem
i þverpólitísk auðlinda-
nefnd alþingis hafi
málið til meðferðar, er
nauðsynlegt að kynna
kjósendum ályktun al-
þingis um nefndina:
„Alþingi ályktar að
kjósa níu manna nefnd
sem hafí það hlutverk
að fjalki um auðlindir
sem em eða kunna að verða þjóð-
areign, m.a. öll verðmæti í sjó og á
hafsbotni innan efnahagslögsögu,
svo og í aImenningum, afréttum og
öðmm óbyggðum
löndum utan heima-
landa, námur í jörð,
orku í rennandi vatni
og jarðhita. Nefndin
skilgreini þessar auð-
lindir á skýran hátt og
hvernig skuli með þær
farið. Nefndin kanni
einnig hvernig staðið
skuli að gjaldtöku fyrir
afnot af auðlindum í
sameign þjóðarinnar,
með hliðsjón af þeim
gjöldum sem fyrir em.
Nefndin kanni mögu-
leika á að nota auð-
lindagjald til að
tryggja að afrakstur
sameiginlegra auðlinda skili sér á
réttmætan hátt til þeirra sem
hagsmuna hafa að gæta.
Um verði að ræða um hóflegt
Valdimar
Jóhannesson
Fiskveiðistjórnun
>»
Arni Mathiesen fór
því vísvitandi, segir
Valdimar Jóhannes-
son, rangt með stað-
reyndir málsins.
gjald sem varið verði til að standa
undir rannsóknum og til að stuðla
að vernd og sjálfbærri nýtingu
auðlindanna og réttlátri skiptingu
afrakstursins, m.a. til að styrkja
byggð í landinu."
Með hliðsjón af ofangreindri lýs-
ingu alþingis á verkefni nefndar-
innar má öllum læsum mönnum
vera það alveg ljóst að það er ekki
verkefni auðlindanefndar að koma
með pólitíska lausn á þeirri skelfi-
legu fiskveiðistjórnun sem við bú-
um við. Arni Mathiesen fór því vís-
vitandi rangt með staðreyndir
málsins á kosningafundi Ríkisút-
varpsins sl. mánudagskvöld.
Höfundur er fmmbjóðnndi
Fijálslynda flokksins d Reykjanesi.
Hf.lf.na
Rubinstein
Fyrsta 100% ferska,
hreina Retinol -varan
POWER A.
PURE RETINOL REPAIR
THERAPY
EINSTÖK MINNKUN
Á HRUKKUM OG HÚÐ-
SKEMMDUM
Tímamótatækni: Tvö krem í einni flösku. Við notkun blandast
kremin og til verður hreint Retinol. POWER A. dregur sjáanlega úr
hrukkum og línum og lagfærir bletti af völdum sólar og önnur yfir-
borðs húðlýti (lítil ör, ójafnan húðlit, bletti). Glæsilegur kaupandi.
Háholti 14,
Mosfellsbæ,
sími 586 8000
WHITE
SWAN
Drcifing: Engcy chf. Hverfisgata 103
s: 552 8877 fax: 552 0060
íþróttir á Netinu
ýg) mbl.is
_ALLTJ\f= GITTH\SA4D AÍÝTT
Væri landhelg-
in þá aðeins
fjórar mflur?
ÉG Á bágt með að
skýra út hvers vegna
ég verð hvað eftir ann-
að undrandi þegar ég
heyri viðbrögð þeirra
kumpána Davíðs
Oddssonar og Hall-
dórs Ásgrímssonar.
Svo margt undarlegt
hafa þeir látið frá sér
að ég veit að það á
ekki að vekja neina
undrun lengur, hvað
svo sem þeir segja. Því
til sönnunar nefni ég
hvemig þeir komu
fram í hvalveiðimálinu,
en ekki fór á milli mála
að þeir voru aldeilis
ekki spenntir fyrir að við hefjum
hvalveiðar á ný.
Rökin hjá þeim voru eitthvað á
þá leið að á fjölmörgum ferðum
þeirra víða um heim höfðu hinir og
þessir ráðamenn, áhrifamenn,
veislugestir og annað eftir því
hvíslað að íslenskum ráðamönnum
að okkar þjóð sé sennilega fyrir
bestu að gleyma hvalveiðum, vegna
annarra hagsmuna, svo sem stöðu
okkar á alþjóðlegum mörkuðum og
fleira í þeim dúr. Davíð og Halldór
hafa ferðast mikið og hitt marga.
Það hafa sennilega því gefist mörg
tækifæri til að ræða við hina og
þessa og það segi ég af gamalli
reynslu að þegar líða tekur á veisl-
ur verða samræður manna oft inni-
legar, þá eru þeir famir heim sem
ekki era mikið íyrir hvíslingar. Da-
víð og Dóri era semsagt í hópi
hvíslinga.
Gott og vel, þeir mega sitja eins
lengi í veislum og hvíslast á við eins
marga og þeir vilja, bara ef þeir
lofa að láta það ekki ráða gerðum
sínum við landsstjómina og að þeir
muni alls ekki svo vel hvað sagt var
í síðasta partíi að þeim þyki við
hæfi að láta það ráða ákvörðunum
sínum við landsstjómina.
Mér hefur verið
hugsað til þess hver
staða þjóðar okkar
væri hefðu þessir
tveir farið með 'for-
ræði hennar fyrir
nokkrum áratugum,
ekki mörgum - bara
nokkram. Ég er að
velta fyrir mér hvað
þeir Davíð og Halldór
hefðu gert með allar
hvíslingarnar og
óformlega spjallið og
allt það þegar undir-
búningur var að hefj-
ast að útfærslu land-
helginnar. Þá hafa er-
lendir ráðamenn ef-
laust varað íslenska við, ekki bara
í partíum, nei, heldur í alvöra.
Samt var landhelgin færð út, sem
Kvótinn
Frjálslyndi flokkurinn
vill, segir Birgir Hdlm
Björgvinsson, að
Lífeyrissjóði sjó-
manna verði úthlutað
10 þúsund tonna
þorskígildistonna
kvóta í tvö ár.
betur fer vora ráðamenn þjóðar-
innar á þeim árum ekki eins hrif-
næmir fyrir því sem hvíslað var í
útlöndum og núverandi ráðamenn
eru. Eina leiðin til að skilja þá tvo,
það er Davíð og Halldór, er sú að
skoða málið út frá félagslegri
stöðu þeirra. Getur verið að ef
þeir fara ekki eftir því sem sagt er
við þá, undir fjögur augu og jafn-
vel í morgunsárið, þá sé ekki víst
Birgir Hólm
Björgvinsson
AÐALFUNDUR
✓
Aðalfundur Islenskra aðalverktaka hf. verður haldinn
fimmtudaginn 15. apríl 1999
í Listasafni Islands og hefst fundurinn kl. 16.00
Dagskrá, endanlegar tillögur og reikningar félagsins munu liggja frammi á
skrifstofum félagsins á Keflavíkurflugvelli og í Hátúni 6a, Reykjavík,
hluthöfum til sýnis, viku fyrir aðalfund.
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf skv. 14. gr. samþykkta félagsins.
2. Tillögur um breytingar á samþykktum félagsins:
a) Heimilt verði að gefa út hlutabréf með rafrænum
_______hætti í samræmi við lög nr. 131/1997. __
b) Varamenn í stjórn verði tveir í stað fimm.
c) Heimild til handa stjórn félagsins að kaupa allt að
10% hlutaijár í félaginu sjálfu.
3. Önnur mál, löglega upp borin.
Aðgöngumiðar og fundargögn verða afhent
á fundarstað í fundarbyijun.
*
Stjórn Islenskra adalverktaka hf.
Aðalflindur
1999
Aóalfundur Samskipa hf. veróur haldinn
miðvikudaginn 28. aprfl kl. 16:00 í Gullteig,
Grand Hótel, Sigtúni 38, Reykjavík.
Dagskrá
Venjuleg aðalfundarstörf skv. 8. gr. samþykkta
félagsins um aðalfundi. Önnurmál löglega
upp borin.
Dagskrá, ársreikningur félagsins, endanlegar
tillögur, skýrsla stjórnar og skýrsla endur-
skoðenda liggja frammi á skrifstofu félagsins,
hluthöfum til sýnis, viku fýrir aðalfund.
Atkvæðaseðlar og fundargögn verða afhent
á fundarstað.
Stjórn Samskipa hf.
SAMSKIP
■UMmNNMHH