Morgunblaðið - 25.04.1999, Side 38
38 SUNNUDAGUR 25. APRÍL 1999
MORGUNBLAÐIÐ
Meyr er mað-
ur að meiri
Laxness, Pele, Jordan... Þegar snillingarn-
ir tala, hvort sem er í orði eða verki, fer
okkur hinum best að þegja. Og njóta. Við
lútum höfði í virðingarskyni oggleðjumst
yfirþví að svona fólk skuli vera til.
Halldór Laxness og
Michael Jordan
eiga ekki margt
sameiginlegt, að
því er virðist. Gísli
Halldórsson og dætur mínar
þrjár ekki heldur. Eða Falur
Harðarson og dætumar. Og þó;
öll hafa leikið hlutverk í því litla
leikriti sem ég og fleiri hafa
rembst við að setja á svið í tæp-
lega fjóra áratugi. Karlarnir
hafa raunar aðeins fengið auka-
hlutverk í þessari uppfærslu þó
einstaka augnablik hafi þeir
hlotið alla mögulega athygli.
Stúlkurnar hafa nefnilega verið í
stærstu rullunum, að sjálfsögðu,
síðan þær komu í heiminn. Hall-
dór og Jordan
umunoc °g Gísla þekki
VIÐHOnr ég einungis af
Eftir Skapta verkum þeirra,
Hallgrímsson en ég - Og
margir fleiri,
hérlendis og í útlandinu stóra,
sem betur fer - hef verið svo
heppinn að njóta snilldar þess-
ara manna. Tómstundir fólks
eru því mikilvægar, líkiega mun
þýðingarmeiri en margur hygg-
ur, og þetta þrennt sem ég vel af
handahófí; bókmenntir, íþróttir
og leiklist, skiptir fólk um allan
heim miklu máli.
Fáir menn hafa haldið á blý-
anti með betri árangri en Hall-
dór Laxness og enginn á Islandi
á síðari öldum.
Aidrei hefur maður snert
körfubolta af jafn mikilli snilld
og Jordan. Og fáir stóðu Gísla
Halldórssyni á sporði að mínu
mati, hvort sem var á leiksviði
eða í kvikmynd.
Islenska þjóðin hefur lengi
haft mikið dálæti á verkum
Halldórs Laxness og formlega
var það staðfest í vikulokin þeg-
ar Sjálfstætt fólk var útnefnd
bók aldarinnar hérlendis. Þátt-
taka í könnuninni mun reyndar
hafa verið léleg og listinn yfir 10
stigahæstu bækurnar var skrýt-
inn að mínu mati, svo ekki sé
meira sagt. En misjafn er
smekkur manna, sem betur fer,
og fregnir herma að áhugamenn
um kökugerð hafi meira að
segja komið uppáhaldsriti sínu
að. En snilld Halldórs er við-
brugðið; hann er mestur.
Jordan er líka mestur; ber
höfuð og herðar yfir alla þá sem
stundað hafa þessa íþrótt, með
þeim hætti raunar að með hrein-
um ólíkindum er. Um það er
ekki deilt.
Gisli Halldórsson var yndis-
legur leikari. Einn af þeim
mönnum í umræddri listgrein
sem alltaf verður mér ógleym-
anlegur; hvort sem var á sviði í
Kristnihaldi undir jökli, eða í
kvikmyndunum Bömum náttúr-
unnar eða Djöflaeyjunni - svo
einhver dæmi séu tekin. Verst
að Gísli skyldi aldrei veita fjöl-
miðlum viðtal, því ég hafði alltaf
á tilfinningunni að hann hefði
góðan boðskap að flytja fólki.
Lítillátur maður sem vildi ekki
vera í sviðsljósinu, nema í vinnu-
tímanum.
Mestu skiptir fyrir listamenn
að ná til fólks. List sem enginn
nýtur þjónar litlum tilgangi.
Umræddir þremenningar hafa
sannarlega afrekað það að ná til
fólks og listar þeirra hefur verið
notið. Meira að segja mestu
harðjaxlar mýkjast þegar þessir
menn stíga fram og bjóða upp á
það sem æðri máttarvöld gáfu
þeim í vöggugjöf.
Allt eru þetta skrýtnar skepn-
ur, bókmenntimar, leiklistin og
íþróttimar en umfram allt liður í
þeirri viðleitni mannsins að
njóta þess að vera til. Bæði þess
sem skapar og þess sem nýtur.
íþróttakeppni snýst ekki
alltaf einungis um íþróttina.
Stolt og virðing byggðarlags eða
heils lands getur verið að veði.
Og hetjur íþróttaheimsins geta
haft ótrúleg áhrif. Pant vera
þessi og pant vera hinn, segja
krakkar út um allan heim þegar
skipt er í lið. Tveggja sólar-
hringa vopnahlé var á sínum
tíma gert í stríði Nígeríu og Bi-
afra, svo hermenn landanna
kæmust til að sjá knattspyrnu-
goðið Pele leika með Santos.
Landamæraverðir í Kína yfir-
gáfu eitt sinn stöðvar sínar og
fóm yfir til Hong Kong til að
votta honum virðingu sína!
Stórstjörnur, sem þéna meira
á mínútu en við þessir venju-
legu menn á heilli ævi, þarf þó
ekki til að skapa ógleymanleg
augnablik. Hið stóra útland er
heldur ekki nauðsynlegur vett-
vangur. Og þar kemur fyrr-
nefndur Falur til sögunnar.
Ahugamaður í íþrótt sinni hér
uppi á litla íslandi skiptir nefni-
lega ekki minna máli en millj-
arðamæringarnir sem stunda
sömu iðju hinum megin Atl-
antsála, þegar öllu er á botninn
hvolft. Aðalatriðið er að fólkið
njóti þess sem þeir bjóða uppá;
að áhorfandinn gleymi stað og
stund og lifi sig inn í það sem
um er að vera. Körfuboltaleikur
Keflvíkinga og Njarðvíkinga á
fimmtudagskvöldið, síðasti úr-
slitaleikurinn um Islandsmeist-
aratitilinn í körfuknattleik, var
frábær skemmtun; gott dæmi
um það hvernig nokkrir menn í
boltaleik geta haldið heilu
byggðarlagi í heljargreipum
spennu og geðshræringar. And-
leg vellíðan margra var í húfi;
þeirra sem tekið hafa ástfóstri
við íþróttina, liðin og leikmenn-
ina. Og þar fór Falur Harðar-
son á kostum. Unun var að
horfa á hann leika listir sínar.
Harðjaxlar hljóta að hafa
mýkst, jafnvel fellt tár.
Við gleðjumst ætíð yfir eigin
velgengni og afrekum okkar
nánustu. Stundum líka þegar
öðrum gengur vel! Okkar nán-
ustu á yfirleitt við um þá stofn-
un sem mikilvægust er allra,
fjölskylduna, en á ákveðnum
augnablikum er eins og togni á
hugtakinu. Og stundum verður
ákveðinn hópur manna að okkar
nánustu heillar þjóðar. Til dæm-
is þegar landslið í íþrótt stendur
sig vel. Leikmenn eins íþróttafé-
lags geta líka fangað hug og
hjörtu heils byggðarlags á sigur-
stundu. Það hefur margoft sýnt
sig og það gerðist á fimmtudags-
kvöldið.
Þegar snillingarnir tala, hvort
sem er í orði eða verki, fer okk-
ur hinum best að þegja. Þá verð-
um við meyi'ir; gleðjumst og
verðum menn að meiri.
____________FRÉTTIR_________
Haldið upp á 30 ára starfs-
afmæli Lýsuhólsskóla
Eyja-og Miklaholtshreppi - Hald-
ið var upp á 30 ára starfsafmæli
Lýsuhólsskóla í Staðarsveit Iaug-
ardaginn 30. apríl. Mikið fjöl-
menni var samankomið til að
óska skólanum til hamingju. Guð-
mundur Sigurmonsson skóla-
stjóri setti athöfnina og bauð
gesti velkomna.
I setningarræðunni hóf hann
máls á því að skólinn væri fá-
mennur og samfélagið í kringum
hann lítið og þakkaði hann góðan
stuðning við skólann, bæði fjár-
hagslegan og félagslegan. Einnig
þakkaði hann kennurum fyrir
óeigingjarnt starf gegnum árin
og nemendum fyrir prúðmann-
lega framkomu. Fram kom í
ræðu hans að á þessu skólaári
væru nemendur 41 talsins, en um
tíma hefði fjöldi nemenda verið
kominn niður í 14. Þá tóku íbúar
í sveitinni við sér og sáu til þess
að þeim fjölgaði á nýjan leik. Eft-
ir að skólastjóri hafði lokið máli
sínu lék lúðrasveitin Snær fáein
lög undir stjórn Ian WiIkinsson,
tónlistarkennara í Ólafsvík. Með-
al annars lék lúðrasveitin lag eft-
ir Jónas Ingólf frá Bláfeldi sem
er uemandi í skólanum.
I lúðrasveitinni eru tíu nem-
endur skólans og fá þau tónlist-
arkennslu einu sinni í viku.
Margrét Björg Björnsdóttir sá
um ásamt nemendum að stikla á
stóru úr 30 ára sögu skólans.
Nemendur léku ýmsa minnis-
verða atburði og yngstu börnin
fluttu heilræðavísur Hallgríms
Péturssonar. Tónlistaratriði
fléttuðust inn í söguflutninginn.
Samkórinn Lýsa, sem skipað-
ur er bæðí eldri nemendum,
starfsfólki og sveitungum flutti
nokkur lög undir stjórn Kay
Wiggs. Að skemmtiatriðum
loknum bauð foreldrafélag skól-
ans upp á veislukaffí. Undir
borðhaldi voru flutt ávörp og
lesin heillaóskaskeyti sem skól-
anum hafði borist m.a. frá
menntamálaráðuneytinu og öðr-
um skólum. Lýsuhólsskóli er
einn af 8 sveitaskólum á Vestur-
landi sem hafa með sér sam-
starf. Guðlaugur Óskarsson,
skólastjóri Kleppjárnsreykja-
skóla, flutti ávarp og Björg Guð-
laugsdóttir, nemandi í Klepp-
járnsreykjaskóla, færði skólan-
um glerlistaverk að gjöf fyrir
hönd þessara samstarfsskóla. Á
móti gjöfinni tók Ingunn Krist-
jánsdóttir, nemandi í Lýsuhóls-
skóla.
I skólanum var sýning á ljós-
myndum sem spannaði þessi 30
starfsár. Handavinna, myndlist
og smíðisgripir nemenda voru
einnig til sýnis.
Morgunblaðið/Friðrik J. Hjartar
GISTIHEIMILIÐ Höfði.
GUÐLAUG Sveinsdóttir tók fyrstu skóflustunguna. Hjá henni á mynd-
inni eru Egill Guðniundsson og Eygló Egilsdóttir.
Stækkun
gistiheimilis
í Ólafsvík
Ólafsvík - Fyrsta skóflustungan að
stækkun Gistiheimilisins Höfða í
Ólafsvík var tekin snemma morg-
uns á sumardaginn fyrsta af móður
eigandans, Guðlaugu Sveinsdóttur.
Er hér um að ræða fjögurra hæða
einingahús að heildarflatarmáli um
750 fermetrar.
Eigandi gistiheimilisins og
rekstraraðili er Eygló Egilsdóttir,
en að hennar sögn hefur orðið tals-
verð fjölgun gistinátta á síðustu ár-
um. Stækkun þessi er grundvöllur
frekari viðskipta í ferðamanna-
þjónustu, bæði vegna kröfu um
betri aðstöðu og einnig er nauðsyn-
legt að geta tekið inn stærri hópa.
Með nýbyggingunni bætast við
18 herbergi með baði auk annarrar
aðstöðu sem batnar til muna og
verður því hægt að taka á móti um
60 manns í einu að framkvæmdum
loknum, en áætluð verklok eru í
júlí á þessu sumri.
Einingaverksmiðjan í Reykja-
vík sér um að framleiða húsið, en
jarðvinnan er í höndum Tómasar
Sigurðssonar. Sigurður Elín-
bergsson sér um smíðavinnu, en
aðrir iðnaðarmenn staðarins munu
að mestu sjá um lagnir, málningu
og fleira. Lánað er úr Byggðasjóði
og Ferðamálasjóði til þessara
framkvæmda.
Heilbrigð-
isstofnun-
inni afhent-
ur hjarta-
línuriti
Hvammstanga - Fyrir skömmu af-
hentu fulltrúar Kvennabandsins í
V-Hún - K.B. og kvenfélaga í hér-
aðinu, gjöf til Heilbrigðisstofnun-
arinnar á Hvammstanga. Það var
hjartalínuriti af gerðinni Schiller,
frá Austurbakka í Reykjavík.
Það var formaður K.B., Elín R.
Líndal, sem afhenti gjöfina. Sagði
hún í stuttri ræðu það vera megin-
stefnu K.B. gegnum tíðina að stuðla
að uppbyggingu heilbrigðismála í
héraðinu, bæði með uppbyggingu
húsnæðis og tækjabúnaði.
Lárus Jónsson læknir veitti
gjöfinni viðtöku. Sagði hann hið
nýja tæki leysa af hólmi gamlan
búnað. Nú yrði hægt að fá á skjá
Morgunblaðið/Karl Sigurgeirsson
FRÁ afhendingu hjartalínuritans.
og pappír allt að tólf línurit í einu,
en áður þurfti að púsla saman
þessum upplýsingum. Nýja tækið
sýndi einnig samstundis viðbrögð
við lyfjagjöf við bráðatilfelli.
Einnig væri það handhægt og
mætti fara með það í neyðartilfell-
um út af heilsugæslunni. Þakkaði
Lárus góða gjöf og velvild kvenfé-
laga í héraðinu.