Morgunblaðið - 25.04.1999, Side 41

Morgunblaðið - 25.04.1999, Side 41
MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR SUNNUDAGUR 25. APRÍL 1999 41 JOHANNA EDDA SIGFÚSDÓTTIR + Jóhanna Edda Sigfúsdóttir fæddist í Reykjavík 16. nóvember 1945. Hún lést á heimili sínu í Reykjavík 16. apríl síðastliðinn. Foreldrar hennar voru Jóhanna Björnsdóttir, f. 27. júlí 1918, húsmóðir, og Sigfús Ó. Sigurðs- son, húsa- og bfla- smiður, f. 7. aprfl 1907, d. 24. desem- ber 1995. Systkini Eddu eru: Sigfríð Elín Sigfúsdóttir, f. 8.8. 1939, maður hennar er Marinó Bóas Karlsson, f. 25.10. 1941, Þórunn Sigfúsdóttir, f. 6.5. 1941, Sigurð- ur Gylfi Sigfússon, f. 19.3. 1950, kona hans er Björg Gunnarsdótt- ir, f. 20.1. 1951. Edda átti þijú börn. Með Ósk- ari G.H. Gunnarssyni eignaðist hún: 1) Heimi, f. 20. júlí 1964, framkvæmdastjóri. Eiginkona Heimis er Halldóra Þorgilsdóttir, hjúkrunarnemi, f. 6.10. 1966. Þau eiga Söndru, f. 25.7. 1989, Þorgils, f. 11.8. 1991 og Frosta, f. 8.9. 1997. Hún elsku mamma mín er nú farin og aldrei hún kemur aftur. Þetta var ótímabært fráfall og sannarlega hefði ég viljað hafa hana miklu lengur hjá okkur. Hún barðist við erfið veikindi sem bug- uðu hana að lokum - alltof unga. Það sem er mér efst í huga þegar ég hugsa um mömmu er sú mikla ást og umhyggja sem hún sýndi okkur systkinunum og börnunum mínum, einu barnabömunum hennar, Söndm, Þorgils og Frosta. Það er sorglegt til þess að hugsa að fleiri barnaböm fái hennar ekki notið. Hún var í stöðugu sambandi til að afla sér frétta af okkur og eitthvað vantaði í daginn ef ekki hringdi síminn og mamma var á línunni. Hún var alltaf eitthvað að spá og spekúlera í því hvað hún gæti gert fyrir bömin og hvort þau vantaði nú ekki eitthvað sem hún gæti hjálpað til með. Þegar hún kom til okkar á aðfangadag sl. gekk Frosti, yngsta bamabamið, til hennar og hún beygði sig niður til hans og sagði: „En hvað amma er rík, hún á þrjú böm og þrjú barnabörn." Þetta var hennar ríki- dæmi og finnst mér það lýsa henni vel, hvað hún var með gott hjarta og rétt mat á lífsins gæðum. Myndir vora hennar aðaláhuga- mál og eftir hana liggja mörg falleg olíumálverk. Myndavélin var henni kær og tók hún mikið af myndum og þá helst af ættingjum og vinum. Ljósmyndimar urðu svo hennar líf og yndi síðustu ár og hjálpuðu þær henni mikið í veikindunum vegna þess að með þeim gat hún upplifað augnablikin aftur og aftur - stytt sér stundir í einvemnni þegar aðr- ir vora í skóla eða vinnu. Móður minni leið vel þegar hún fékk tækifæri til að tala um liðna tíma og samverastundir með ætt- ingjum og vinum. Hún hélt mikið upp á vinkonur sínar og ættingja. Hún var gott dæmi um það hvað frækomin sem vinir og ættingjar sá í hjörtu hver annars á Ufsleið- inni geta gefið mikið á erfiðum stundum. Móðir mín var mikil félagsvera og hafði alltaf sérstaklega mikla ánægju af því heimsækja vini og ættingja: Þau veikindi sem hún gekk í gegnum urðu til þess að hún varð að draga mikið úr ferðum sín- um og í stað heimsókna til vina og ættingja urðu heimsóknir hennar til lækna algengari. Heimiiislækn- irinn hennar fékk sinn skerf og varð henni tíðrætt um þann ein- staka skilning, þohnmæði og vin- áttu sem hann sýndi henni. Mamma eignaðist Uka marga vini Hinn 11. október 1969 giftist Edda Valgarði Sveini Haf- dal, f. 7.7. 1940. Þau eignuðust tvö börn: 2) Hönnu Sif Ilafdal, f. 15. aprfl 1972, grunnskólakennara, sambýlismaður hennar er Ögmund- ur Gíslason, f. 30.9. 1975, flugnemi. 3) Ama Sigurð Hafdal, f. 3.10. 1978, nemi. Unnusta hans er Kristín Rós Egils- dóttir, f. 7.3. 1978., nemi. I janúar 1998 skildu Edda og Sveinn. Edda lauk gagnfræðaprófi frá Laugarnesskólanum í Reykjavík og hóf vinnu eftir það hjá Sjóvá. Hún vann einnig ýmis önnur störf eftir að hún hætti hjá Sjóvá, t.d. hjá Landsbankanum, á leik- skóla og sem dagmóðir. Síðustu árin átti hún við erfið veikindi að stríða sem gerðu það að verkum að hún var hætt að vinna. títfór Eddu fer fram frá Laugarnes- kirkju á morgun, mánudaginn 26. aprfl, og hefst athöfnin klukkan 13.30. og kunningja í veikindum sínum sem aðstoðuðu hana og glöddu á langri göngu veikinda. Að lokum vil ég í minningu móður minnar nota tækifærið og færa öllum þeim sem hana glöddu og aðstoðuðu á lífsleiðinni og gáfu með tryggð sinni svo mikið, bestu hjartans þakkir. Mín sál, þvi örugg sértu, og set á Guð þitt traust. Hann man þig, vís þess vertu, og verndar efalaust Hann mun þig miskunn krýna. Þú mæðist litla hríð. Þér innan skamms mun skína úr skýjum sólin bh'ð. (Bjöm Halldórsson.) Elsku mamma mín, minning þín er ljós í lífi okkar sem sorgina þreytum. Guð blessi þig og varð- veiti. Þinn sonur. Heimir Óskarsson. Mamma mín er dáin. Á stundu sem þessari er erfitt að ætla sér að setja allar sínar tilfínningar niður á blað. Eg læt því Hallgrím Péturs- son um það: Eg lifi í Jesú nafni, í Jesú nafni ég dey, þó heilsa og iíf mér hafni, hræðist ég dauðann ei. Dauði, ég óttast eigi afl þitt né valdið gilt, í Kristí krafti eg segi: Kom þú sæll, þá þú vilt. Elsku mamma. Ég sakna þín meira en orð fá lýst. Ég vona að þér líði vel núna, að þú hafir fundið friðinn og sért sátt. Þín dóttir, Hanna Sif Hafdal. Elsku amma mín kær. Ég á eftir að sakna þín svo mik- ið. Mér finnst skrítið að fá ekki símtöl frá þér á hverjum degi, að fara ekki í heimsókn til þín einu sinni til tvisvar í viku, að fá þig ekki í afmæli og á jólunum. Þetta verður ofsalega erfitt allt saman. Ég man hvað þér þótti gaman hjá okkur á jólunum, í afmælum og heimsóknum. Elsku Edda, amma mín, þú átt stóran hluta af hjarta mínu og munt alltaf eiga. Ég veit vel að nú líður þér vel hjá langafa mínum uppi í himnaríki og þið erað í góð- um höndum guðs. Ég fann fyrir þig fallegt stutt ljóð: Þó að kah heithr hver, hylji dah jökull ber, steinar tah og allt hvað er, aldrei skal ég gleyma þér. (Vatnsenda-Rósa.) Elsku amma mín, þú mátt vita það að ég elska þig alltaf jafn mikið. Innilegustu ástarkveðjur, hvíldu í friði. Þín Sandra Heimisdóttir. Okkur langar tii að kveðja elsku- lega frænku okkar hana Eddu. Eddu móðursystur okkar minn- umst við systkinin með söknuði og hlýhug allt frá þeim tíma er við bjuggum í Selvogsgrunninu sem börn. Síðar íluttist Edda með fjöl- skyldu sína upp í Seljahverfi og bjuggum við systkinin þá í for- eldrahúsum einnig í sama hverfi. Þá var stutt að skreppa í kaffi til frænku okkar spjalla og hitta frændsystkinin. Það var gaman að spjalla við Eddu frænku og oft var stutt í hláturinn þegar við sát- um saman í eldhúsinu í Kambasel- inu. Elsku frænka, við kveðjum þig með söknuði vitandi það, að nú ert þú á betri stað þar sem þér líður vel. Elsku Heimir, Hanna Sif og Árni Siggi, ykkur og fjölskyldum ykkar sendum við okkai- innileg- ustu samúðarkveðjur. Karl, Hanna, Sigfús og Ólafur. Ég sit og horfí út um gluggann. Sólin skín en svo dimmir og élin skella á en það birtir upp aftur. Ég er að hugsa um Eddu æskuvinkonu mína og tárin læðast niður kinn- amar. Heimir sonur hennar hringdi í mig og sagði mér þá sorgarfrétt að hún væri látin. Ég sem var hjá henni fyrir nokkram dögum og heyrði svo í henni í síma eftir að ég kom norður aftur, en svona er lífið og enginn veit sína ævi fyrr en öll er. Við áttum góða stund saman þegar við hittumst helgina áður en hún lést. Við rifjuðum upp gamla daga frá áranum í Selvogsgrunn- inu og fermingardeginum sem var fyrir 40 áram hinn 5. apríl í Laug- ameskirkju en þann dag var systir mín líka skírð. Hún kom einmitt að sækja mig og Edda var svo glöð að hitta hana. Edda gekk ekki heil til skógar en alltaf var gott að heyra í henni. Hún var jafnvel farin að tala um norðurferð í sumar. Nú er hún far- in frá okkur, bömum sínum, tengdabörnum, bamabörnum, aldraðri móður og systkinum. Ég trúi því að hún hitti nú fóður sinn sem hún saknaði, en hann lést fyrir fáum áram. Kæra vinkona, takk fyrir öll sím- tölin, bréfin og góðu stundimar. Far í friði. Megi góður Guð vemda þig og fjölskyldu þína. Þín vinkona María Árnadóttir (Maja). Blómastofa Friðfinns Suðurlandsbraut 10, 108 Reykjavík, sími 553 1099. Opið öll kvöld til kl. 22 - einnig um helgar. Skreytingar fyrir öll tilefni. Gjafavörur. + Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir og afi, GUNNAR GUÐJÓNSSON hárskerameistari, Lautasmára 20, er látinn. Jarðarförin auglýst síðar. Díana íris Þórðardóttir, íris Gunnarsdóttir, Guðmundur Örn Jóhannsson, Díana fris Guðmundsdóttir, Jóhann Berg Guðmundsson. + Ástkær móðir okkar, SIGRÍÐUR PÉTURSDÓTTIR frá Merkisteini, Höfnum, Hverfisgötu 101, Reykjavík, lést á heimili sínu fimmtudaginn 22. apríl. Jarðarförin auglýst síðar. Börn hinnar látnu. + Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, ÍVAR NÍELSSON, Strandgötu 8, Hvammstanga, andaðist á heimili sínu föstudaginn 23. apríl. Jarðarförin auglýst síðar. Guðrún Sigfúsdóttir, börn, tengdabörn og barnabörn. + Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, MAGNÚS AXEL JÚLÍUSSON, Hrafnistu í Hafnarfirði, áður Breiðagerði 8, verður jarðsunginn frá Víðistaðakirkju þriðju- daginn 27. apríl kl. 13.30. Guðmundur Rúnar Magnússon, Svanhildur Stefánsdóttir, Margrét J. Magnúsdóttir, Haraldur H. Einarsson, Erna Magnúsdóttir, Gunnar P. Jakobsson, barnabörn og barnabarnabörn. + Útför ástkærrar móður okkar, tengdamóður, dóttur og ömmu, JÓHÖNNU EDDU SIGFÚSDÓTTUR, Jöklaseli 23, fer fram frá Laugarneskirkju mánudaginn 26. apríl kl. 13.30. Heimir Óskarsson, Halldóra Þorgilsdóttir, Hanna Sif Hafdal, Ögmundur Gíslason, Árni Sigurður Hafdal, Kristín Rós Egilsdóttir, Jóhanna Björnsdóttir, Sandra, Þorgils og Frosti. + Hjartans þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlý- hug við andlát og útför ástkærs föður okkar, tengdaföður, afa og langafa, EYÞÓRS KR. JÓNSSONAR, Grænukinn 10, Hafnarfirði. Sérstakar þakkir til Ásgeirs Jónssonar, hjarta- læknis. Jóhann Eyþórsson, Valdís Þorkelsdóttir, Kristín Þ. Eyþórsdóttir, Gísli Þorláksson, barnabörn og barnabarnabarn.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.