Morgunblaðið - 04.05.1999, Síða 4
4 ÞRIÐJUDAGUR 4. MAÍ 1999
MORGUNBLAÐIÐ
FRETTIR
Umhverfismat
Kísiliðjunnar tilbúið
Mælt með
gömlu
vinnsluað-
ferðinni
KÍSILIÐJAN hefur sent um-
hverfismat vegna vinnslu í
Syði-i-Flóa í Mývatni til Skipu-
lagsstofnunar og mælir þar
með að sú aðferð sem höfð hef-
ur verið við vinnsluna í Ytri-
Flóa verði einnig notuð þar.
Ný aðferð, undirskurðartækni,
sem verið hefur til umræðu að
undanförnu, er ekki talin vera
umhverfisvænni og auk þess er
hún fjárhagslega óhagkvæm-
ari.
Að sögn Gunnars Arnar
Gunnarssonar, framkvæmda-
stjóra Kísiliðjunnar, má gera
ráð fyrir að kostnaður við
vinnslu hvers tonns verði allt
að 10% hærri með síðamefndu
aðferðinni. Einnig þurfí með
henni að nota allt að 9% af
Syðri-Flóa til vinnslunnar
næstu 25 árin, en aðeins 4%
með eldri aðferðinni.
Samkvæmt reglugerð er
gert ráð fyrir að Skipulags-
stofnun skili áliti um vinnslu-
leyfið innan tíu vikna frá því að
það er lagt fram opinberlega,
en að sögn Gunnars má gera
ráð fyrir að það verði gert inn-
an fárra daga.
Svartir borð-
ar á gatna-
mótum
BIFHJÓLASAMTÖK lýðveld-
isins, Sniglamir, festu upp
svarta borða á ljósastaura við
helstu gatnmót Reykjavíkur á
laugardagsmorgun og blöktu
þeir þar uns taka átti þá niður í
gærkvöldi.
Tilgangurinn með uppsetn-
ingunni var sá að minna veg-
farendur á alvarleg bifreiða- og
bifhjólaslys sem orðið hafa við
gatnamótin. Umferðardeild
lögreglunnar í Reykjavík að-
stoðaði Sniglanna við fram-
kvæmdina sem markar upphaf
að frekara forvarnarstarfi
Sniglanna, en þeir munu í sum-
ar reyna að stemma stigu við
slysum eldri ökumanna bif-
hjóla sem koma á götumar eft-
ir áralangt hlé og jafnframt við
hraðakstri yngri ökumanna.
Fundað um umferðarhættu við Kópavogsskóla
Foreldrar eru
uggandi um
öryggi barna
Ék
- 'X
__,
FORELDRAR og íbúar í nágrenni
Kópavogsskóla era uggandi vegna
öryggis barna sinna í umferðinni í
grennd við skólann. Aukin umferð-
arhætta á Digranesvegi, sem liggur
við skólann, var í brennidepli á
fundi þar sem þessi mál voru rædd,
en nýlega slasaðist 8 ára drengur er
keyrt var á hann þegar hann var að
ganga yfír götuna.
Ólafur Guðmundsson, skólastjóri
Kópavogsskóla, sagði í samtali við
blaðið að undanfarið hefðu nokkur
slys átt sér stað við skólann, en sem
betur fer hefði ekkert þeirra verið
mjög alvarlegt. Meðal tillagna sem
fram komu á fundinum var að bæta
hraðahindranir og lækka hámarks-
hraða við skólann úr 50 km hraða á
klukkustund í 30 km.
„Það era mörg dæmi um mjög
mikinn hraða og menn hafa verið
teknir héma á 90 km hraða,“ sagði
Ólafur. „Við eram í nábýli við
menntaskólann og þar hefur nem-
endum fjölgað mikið og þeir eru vel-
flestir ef ekki allir á bílum og það er
kannski fólk sem keyrir svolítið
greitt.“
Meðalhraði um 40 km á klst.
Þórarinn Hjaltason, yfirmaður
tæknideildar Kópavogsbæjar, sagði
að í þeim hraðamælingum sem gerð-
ar hefðu verið hefði meðalhraðinn
verið um 40 km á klukkustund.
Hann tók það fram að mælingamar
hefðu að vísu verið gerðar af lög-
reglumönnum í merktum bflum og
að það kynni að hafa haft áhrif á
mælinguna. „Eg tel að jafnvel komi
til álita að lækka umferðarhraða í 30,
en að mínu mati hefur það langmest
að segja hvort og hvemig hraða-
hindranir era,“ sagði Þórarinn.
Kópavogsskóli er rótgróinn skóli,
en Ólafur sagði að síðustu ár hefði
örlað á ótta hjá foreldrum vegna
umferðarinnar. Hann sagði að með
tilkomu Smárans hefði ótti fólks
aukist því það vildi meina að um-
ferðin um Digranesveg, sem liggur í
Morgunblaðið/Halldór
HÆTTUR í umferðinni hafa verið til umræðu meðal foreldra barna í
Kópavogsskóla.
gegnum bæinn og niður í Smára-
hverfi, hefði þyngst.
Þórarinn Hjaltason sagði umferð-
arþungann nú vera svipaðan og fyr-
ir tíu árum. I nóvember á síðasta ári
fóru um 6.350 bílar um Digi-anesveg
við Kópavogsskóla á sólarhring, en í
nóvember 1990 var sambærileg tala
7.360 bílar. Hann sagði hins vegar
að umferðin hefði aukist nú miðað
við það hvernig hún var fyrir fimm
áram, en í október árið 1993, fóru
um 5.140 bílar um Digranesveg á
sólarhring og í desember árið 1994
var tala þeiraa um 4.552.
Að sögn Þórarins höfðu hraða-
hindranir sem settar vora á veginn
1993 og 1994 áhrif á umferðarþung-
ann, en hann sagði að nú væra þess-
ar hindranir orðnar of lágar. Hann
sagði að líklega yi-ðu hindranirnar
lagaðar.
Ellefu hundruð volta raflína lá í hálftíma utan vegar í Grafarholti
Mistök í upp-
setningu há-
spennulínu
MISTÖK í uppsetningu háspennu-
línu í Grafarvogi urðu þess valdandi
að spennu sló ekki út þegar línan
fór í sundur og féll til jarðar við
Gufunesveg síðastliðinn laugardag.
Háspennulínan lá í um hálfa
klukkustund á túni með 1.100 volta
rafstraumi áður en straumur var
rofinn handvirkt. Myndaðist tals-
verður reykur þegar grassvörður-
inn sviðnaði. Ai'vökull vegfarandi
varð þess áskynja að ekki væri allt
með felldu og beindi öðram vegfar-
endum frá svæðinu þar til lögregla
og starfsmenn Rafmagnsveitu
komu á staðinn. Lögreglan lokaði
síðan svæðinu. Mikil mildi þykir að
enginn annar skyldi koma að há-
spennulínunni því þarna eru göngu-
stígar og gönguleiðir.
Gunnar Aðalsteinsson, rekstrar-
numer
Nánari
upplýsingar hjá
Bílaþingi Heklu
isímum
: 569-5660
og 569-5500
eðaá
heimaslðu
okkar
www.bilathing.is
Til sölu Mercedes
Benz 320 ML, nýskráð-
ur 25.08.1998. 4x4, sjálf-
skiptur, ekinn 4.000 km.
Með öllu. Ásett verð kr.
4.980.000.
Opnunartími: Manud. - föstud. kl. 9-I8
laugardagar kl. I2-16
BÍLAÞING HEKLU
Laugavegi 174,105 Reykjavík, sími 569-5500
; vi\st\it \jiItiiinrj j5 = yyww.bi.lattiinu.!
stjóri hjá Rafmagnsveitu Reykjavík-
ur, segir að allsherjarúttekt verði
gerð á þessu óhappi. Hann segir að
bilun hafi orðið í svonefndri topp-
bindingu í einangrara í línunni sem
leiddi til þess að línan féll niður á slá
á háspennustaurnum í um átta metra
hæð. Við eðlilegar aðstæður hefði lín-
an átt að slá út með sjálfvirkum
hætti. Það gerðist ekki heldur brann
vírinn í sundur og féll til jarðar. Hluti
línunnar lá yfir veginn en ekki var
spenna á þeim hluta. Hins vegar lá
annar hluti línunnar á túni skammt
frá veginum í um hálfa klukkustund
með fullri spennu. Starfsmenn Raf-
magnsveitunnar rufu síðan straum-
inn í dreifistöð í Logafold.
Víxlun á vírum
Gunnar segir að það fari eftir
leiðni jarðvegarins hve langt raf-
straumurinn nær frá línunni sjálfri.
Leiðnin er meiri í rökum jarðvegi,
eins og þar sem óhappið varð sl.
laugardag. Hann segir að svo virðist
sem víxlun hafi orðið á vírum við
uppsetningu á línunni sem gerði það
Raforkukerfi
Orkuveitu
Reykjavíkur
1999
Loftlínur
290,9 km
Orkuflutningskerfi (i32kv)
ÖStrengur 15,5 km 50,3%
NesjavJína 15,3 km 49,7%
Aðveitukerfi (132 og 33 kV)
71,4%
28,6%
Dreifikerfi (11 kvogökv)
Strengir 491 km 75,4%
___________Línur 160 km 24,6%
Lágspennukerfi (400 og 230 v)
GLágsp.strengir 820 km 89,1%
Lágspennulínur 100 km 10,9%
Strengir 39,0 km
vjr Línur 15,6 km
Q
að verkum að rafstraumurinn sló
ekki út. Búnaðurinn var settur upp
fyrir 3^4 áram.
1.100 volta straumur var á lín-
unni, sem er lífshættuleg spenna, en
til samanburðar má geta að heimil-
israfmagn er 220 volt. Búnaðurinn á
að slá út sjálfvirkt sé hann rétt
tengdur. Línan sem um ræðir er um
700 metra löng.
Skipulagsmál hamla
jarðstrengjum
fvar Þorsteinsson, verkfræðingur
hjá Rafmagnsveitu Reykjavíkur,
segir að unnið sé markvisst að því
að grafa háspennulínur í jörð. Það
sé einkum af skipulagslegum ástæð-
um að^ekki séu allar línur komnar í
jörð. ívar segir einnig kostnaðar-
samt að setja línur sem tilheyra
orkuflutnings- og aðveitukerfi Raf-
magnsveitu Reykjavíkur í jörðu.
Auk þess séu þessar línur yfirleitt
þar sem lítil umferð er, t.d. Nesja-
vallalína, og aðveitukei'fi sem liggur
utan alfaraleiða, eins og t.d. í
Hamrahlíð og yfir Skammadal.
„Dreifikerfið og lágspennukerfið
eru þeir þættir sem við höfum unnið
að á undanförnum árum að leggja í
jörðu. Það kostar um 300 milljónir
króna að leggja 80 km af dreifikerf-
inu í jörðu. Að leggja í jörð 80 km af
þeim 100 km af lágspennulínunum,
sem enn era uppi, myndi kosta um
170 milljónir króna,“ segir ívar.
ívar segir að langstærstur hluti
loftlína sé í útjöðram þéttbýlis-
svæða. í þéttbýli heyri það til und-
antekninga að línur af þessu tagi
liggi. Ennþá era þó línur uppi í enda
Grafarvogshverfis og á nýju bygg-
ingarsvæði hjá Korpúlfsstöðum.
Sömuleiðis eru loftlínur ofan við
Selás og í Norðlingaholti.
Davíð Qddsson á fundi á Eskifirði
Skattaafsláttur hjóna verði
að fullu millifæranlegur
1
Egilsstöðum. Morgunblaðið.
DAVÍÐ Oddsson forsætisráðhen-a
sagði á kosningafundi á Eskifirði á
föstudag, að stefna bæri að því að
gera skattafrádrátt hjóna millifær-
anlegan að fullu. Nú er leyfilegt að
millifæra 80% hans. Davíð sagði að
bamabætur þyrfti að skoða í heild
sinni. Hann minnti einnig á að stór
hluti þjóðarinnar borgaði enga
beina skatta.
^Fundargestúm^rai’ð tíðrætt um
álver, virkjanir og jarðgöng. Davíð
sagði verulegar líkur á því að álver
og virkjun kæmu á Austurland.
Hann sagði álnotkun vera að aukast
í heiminum og taldi misskilning að
Norsk Nydro myndi hætta við álver
hér þrátt fyrir að fyrirtækið hefði
hætt við að reisa álver annars stað-
ar.
Hugmyndir eru bæði um jarð-
göng á Norðurlandi milfi Siglu-
fíiiMfWHMÉriwa ■■
fjarðar og Ólafsfjarðar og á Aust-
urlandi sem myndu tengja Fá-
skrúðsljörð og Reyðarfjörð. Davíð
sagði augljóst að göngin fyrir norð-
an þyrftu að koma og með sama
hætti þyrftu að koma göng á Aust-
urlandi. Ekki þó endilega í tengsl-
um við virkjanir eða verksmiðju.
Göng væru byggðavænt verkefni
sem skilaði arði og jákvæðri teng-
ingu við byggðir.