Morgunblaðið - 04.05.1999, Blaðsíða 81
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 4. MAÍ 1999 81
MYNPBÖNP
Stefnu-
mótabasl
Handan við hornið
(Next Stop Wonderland)_
Rómantfsk gamanmynd
Framleiðandi: Mitchell B. Ilobbins.
Leikstjóri, klippari og handritshöf-
undur: Brad Anderson. Kvikmynda-
taka: Uta Briesewitz. Tónlist: Cladio
Ragazzi. Aðalhlutverk: Hope Davis
og Alan Gelfant. (95 mín.) Bandarísk.
Skífan, apríl 1999. Öllum leyfð.
HÉR segir frá hjúkrunarkonunni
Erin sem á í hálfgerðu basli með sig
og líf sitt, ekki síst þann hluta sem
snýr að karlmönn-
um. Fyrir hvatn-
ingu móður sinnar
reynir hún stefnu-
mót við þónokkra
menn sem flestir
eru langt frá því að
standast kröfur
hennar um verðug-
an lífsförunaut.
Leikstjóri og
handritshöfundur þessarar nýstár-
legu og bráðskondnu gamanmynd-
ar er greinilega mikill hæfíleika-
maður. Hin margbreytilega per-
sónusköpun hans sem nær frá
minnstu aukapersónum til aðalper-
sóna er einstök, allar hafa þær eitt-
hvað við sig sem oftar en ekki er
tjáð með skemmtilegum svipbrigð-
um í stað orða. Reyndar er stór
hluti sögunnar sagður í gegnum
þessa óvæntu svipi og tilburði sem
segja allt sem segja þarf. Þá hefur
myndin fágað yfirbragð og
skemmtilegan stíl sem næst fram
með frumlegri kvikmyndatöku og
klippingum. Ekki má heldur
gleyma tónlistinni sem er notalegur
hluti af heildinni. Sem sagt sérlega
krúttuleg rómantísk gamanmynd
sem skilur eftir sig notalega sumar-
tilfinningu.
Heiða Jóhannsdóttir
Að stríði
loknu
Týndu töskurnar
(Left Luggage)____________
Urama
★ ★
Leiksljóri: Jeroen Krabbe. Handrit:
Edwin De Vries. Kvikmyndataka:
Walther Vanden Ende. Tónlist:
Hennie Vrienten. Aðalhlutverk: Isa-
bella Rossellini, Laura Fraser og Jer-
ocn Krabbe. (96 mín.) Bretland. Skíf-
an, apríl 1999. Bönnuð innan 12 ára.
Þessi kvikmynd er fyrsta leik-
stjórnarverkefni hins gamalreynda
leikara Jeroen Krabbe. Þar er sögð
fregablandin þroskasaga Þjóðverja
og gyðinga sem
búa í Antwerpen á
8. áratugnum og
reyna hvert með
sínu móti að yfir-
vinna hörmulegar
minningar úr stríð-
inu.
Myndin er efni-
leg en hefur þó
nokkra alvarlega
veikleika. Aðalleikkonan, Laura
Fraser, gerir til dæmis mikinn
óskunda með frammistöðu sinni, en
hana skortir bæði þroska og næmi
fyrir hlutverkinu. Ólíkur hreimur
leikaranna (allt frá þýskum hreim til
lágstéttar ensku) hljómar líka an-
^annalega og grefur undan því
þýska eftirstríðsumhverfi sem leit-
ast er við að skapa. Þessh’ gallar
skyggja mjög á kosti myndarinnar
s-s. sterka persónusköpun og áhuga-
verða sögu sem aukaleikaramir
(Rossellini, Krabbe, o.fl.) standa
vandlega vörð um.
FÓLK í FRÉTTUM
Diana Ross og
Arne Naess skilja
SÖNGKONAN Diana
Ross og norski skipa-
jöfurinn Ame Naess
hafa slitið samvistum
og em að sækja um
skilnað eftir 13 ára
hjónaband, að því kem-
ur fram í sameiginlegri
fréttatilkynningu.
Þau eiga tvo syni,
Ross, sem er 11 ára,
og Evan, sem er 10
ára og segir í tilkynn-
ingunni að þau verði
áfram miklir vinir og
að velferð tveggja
sona þeirra sé þeim
efst í huga. Drjúgan
hluta hjónabandsins
hafa þau dvalist hvort
á sínum staðnum, Na-
ess býr í London og
Ross í Connecticut.
Diana Ross á tvær
dætur frá fyrra hjóna-
bandi og þriðju dóttur-
ina með stofnanda
Motown, Berry Gordy.
Hún varð heimsfræg
með hljómsveitinni Su-
premes á sjöunda ára-
tugnum með löguin á
borð við „Baby Love“,
„Where Did Our Love
Go?“ og „Stop, in the
Name of Love“.
Davíð
Oddsson
heldur fund í þínu kjördæmi
Reykjanesi
Borgarafundur í Garðabæ
Garðalundi, Garðaskóla (við Vífilsstaðaveg)
þriðjudaginn 4. maí kl. 20.30.
Þingmenn og frambjóðendur Sjálfstæðisflokksins
á Reykjanesi taka þátt í umræðum.
Allir velkomnir
ÁRANGURfyrirM.LA
Heiða Jóhannsdóttir