Morgunblaðið - 04.05.1999, Blaðsíða 33

Morgunblaðið - 04.05.1999, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ ERLENT ÞRIÐJUDAGUR 4. MAÍ 1999 33 Kosningabaráttan í fsrael á suðupunkti Netanyahu fordæmdur fyrir ósvífínn áróður Jerúsalem. Reuters. ISRAELAR, sem misst hafa ást- vini sína í sjálfsmorðsárásum palestínskra öfgamanna, for- dæmdu í gær Benjamin Netanya- hu, forsætisráðherra Israels, fyrir að nota þriggja ára gamlar myndir af sprengjutilræði í strætisvagni í kosningaáróðri sínum. Sögðu þeir, að hann notfærði sér á óskammfeil- inn hátt þjáningar þeirra, sem ættu um sárt að binda, og beitti í raun sömu brögðum og Hamas- samtökin palestínsku, Yitzhak Fi-ankenthal, formaður í félagsskap foreldra, sem misst hafa börn í sprengjutilræðum, sagði í gær, að Netanyahu notfærði sér á samviskulausan hátt hi-yðju- verk Hamas-samtakanna í febrúar og mars 1996 en þá týndu 57 manns lífí á átta dögum. Frankenthal sagði, að Hamas- samtökin hefðu með hermdarverk- unum viljað koma í veg fyrir friðar- ferlið og væri Netanyahu ber að því að nota þau til að hræða almenning. Talsmaður Ehuds Baraks, fram- bjóðanda Verkamannaflokksins, sagði, að það væri sorglegt hvað forsætisráðherrann legðist lágt í sjónvarpsáróðri sínum í von um að endurheimta embættið. Segir sigur Baraks jafngilda auknum hermdarverkum I sjónvarpsauglýsingunni, sem sýnd var á sunnudag, eru notaðar myndir af sprengjuárásum Hamas- hreyfíngarinnar og er því haldið fram, að hermdarverkin muni hefj- ast á ný komist Barak til valda þar sem hann sé ekki nógu fastur fýrir í öryggismálum. „Munið þið þetta? Munið þið hver lofaði að stöðva þetta og efndi það?“ spurði þulurinn í auglýsing- unni þegar myndirnar af árásunum voru sýndar. „Hvað gerði Barak til að stöðva þessi hermdarverk? Ekkert... Sannleikurinn er að Israel er miklu öruggara land und- ir stjórn Netanyahus." Sprengjuárásir Hamas í febrúar og mars 1996 stuðluðu að því að Shimon Peres, þáverandi forsætis- Barak líka í vanda eftir að stuðnings- maður hans kall- aði Sefarda skríl Reuters AÐSTANDENDUR fdrnar- lamba sem létust í sprengjutil- ræði fyrir þremur árum mót- mæltu því að Benjamín Net- anyahu skyldi nota myndir af ódæðisverkinu í kosninga- róðri sínum. ráðheira, missti 20 prósentustig forskot á Netanyahu, sem notfærði sér þær út í æsar í kosningunum í maí 1996. Ráðgjafar Likud-flokks- ins ráðlögðu honum að nota ekki slíkar myndir í kosningabaráttunni nú en Netanyahu hunsaði ráð þeiiTa. Hamas hélt sprengjuárásunum áfram eftir að Netanyahu var kjör- inn en hann segir að þeim hafi fækkað um 70% á valdatíma hans. Kallaði drjúgan hluta kjósenda skríl Ehud Barak, leiðtogi Verka- mannaflokksins, hefur töluvert for- skot á Netanyahu í skoðanakönn- unum en hann varð fyrir áfalli um helgina þegar vinsæl leikkona, sem styður hann, lýsti Sefördum, gyð- ingum, sem eiga ættir að rekja til Miðausturlanda, sem skríl. Netanyahu og fleiri ráðherrar Likúd-flokksins veittust að Barak vegna ummælanna, sem leikkonan Tiki Dayan viðhafði á fundi leikara, sem styðja Barak, þegar hún hvatti til þess að Barak legði mesta áherslu á að auka fylgi sitt meðal Sefarda í kosningabaráttunni með skýrum skilaboðum. „Við erum að tala um annað fólk, skiljið þið það ekki? Við erum að tala um fólk sem hefur verið gert að mikilvægasta fólkinu hér ... um skrílinn, um fólkið sem segir: „Eg myndi kjósa Bibi [Netanyahu] jafnvel þótt hann væri Arafat,“„ sagði Dayan. Barak, sem vai' á fundinum, gagmýndi þessi ummæli eftir að þeim var útvarpað á sunnudag og fékk Dayan til að biðjast afsökun- ar. Ummæli hennar komu á óvart þar sem hún er sjálf Sefardi og hefur oft leikið lágstéttarkonur. Ummælin komu sér illa fyrir Barak, sem hefur reynt að tryggja sér atkvæði Sefarda með því að biðjast afsökunar á þeim órétti sem þeir voru beittir á valdatíma Verkamannaflokksins undir forystu Askenasa, sem hafa lengi verið mun áhrifameiri í Isra- el en Sefardar. Minni hagvöxtur - meira atvinnuleysi Skoðanakannanir, sem birtar voru í vikunni sem leið, benda til þess að Barak hafí aukið forskot sitt á Netanyahu vegna forsætis- ráðheirakosninganna 17. maí og 1. júní. Munurinn á fylgi þeirra er nú um 8 prósentustig. Barak leggur nú mikla áherslu á að gagnrýna frammistöðu stjórnar- innar í efnahagsmálum. Hagvöxt- urinn hefur minnkað úr 4,5% í 2% og atvinnuleysið aukist úr 6,5% í 8,7%. „Úr því 100.000 ísraelar hafa misst vinnuna, hvers vegna ætti þá Netanyahu að halda sinni?“ spurði Barak í sjónvarpsauglýsingu. Hugsanlega fyrstur manna til að klífa Everestfjall Lík fjallgöngumanns fínnst eftir 75 ár Los Angeles, Wellington. Reuters. LIK breska fjallgöngumannsins George Malloi’y fannst á laugardag, en hann hvarf ásamt samlanda sín- um, Andrew Irvine, fyiir 75 árum er þeir voru komnir langleiðina upp á Everestfjall. Fundurinn hefur kveikt að nýju vangaveltur um það hvort Nýsjálendingurinn Edmund Hillary, sem hefur verið talinn fyrsti maðurinn til að komast á topp þessa hæsta fjalls heims árið 1953, hafi, er allt kemur til alls, ver- ið annar. Að sögn samferðamanna þeirra áttu Mallory og Irvine aðeins eftir að klífa 274 metra eða minna, 8. júní 1924, er skýjabólstrar um- vöfðu þá á norðurhlið Everest. Síð- an þá hafa rnenn velt því fyrir sér hvort þeir, þó aðallega Mallory, hafí náð toppnum áður en þeir hurfu. Það var svo ekki fyrr en 29 árum síðar að Hillary og félagi hans, Nepalbúinn Tenzing Norgay, slógu heimsmet Mallory og Ii’vine og gengu á toppinn. Eric Simonson, einn af þeim ríf- lega 750 mönnum sem komist hafa á topp Everest, stýrir Mall- ory og Irvine rannsóknaleið- angrinum sem í eru fjallgöngu- menn, sagnfræðingar, kvik- myndagerðarmenn og jöklasér- fræðingar sem leitast við að skera úr um hvað í rauninni varð um Mallory og Iivine. Klæddur tvídfatnaði og leðurskóm Lík Irvines hefur ekki enn fund- ist en lík Mallory fannst í 8.290 metra hæð í góðu ásigkomulagi sem sérfræðingar þakka þurru og köldu loftslagi á þessum 8.848 metra háa fjallstindi. Búkur Mall- ory stóð uppúr snjónum á grýttum jarðveginum er leiðangursmenn- irnir komu auga á líkið, klætt tvíd- fatnaði, í leðurskóm með reipi um mittið. Peter Potterfíeld, talsmaður leiðangursins og styrktaraðili, sagði engin tól hafa fundist hjá lík- inu sem hugsanlega gætu skorið úr um hvort þeir hafi náð toppnum, en sagði ísöxi hafa komið í leitirnar árið 1933 sem talin er hafa verið í eigu In’ines. Potterfield sagði von- ir bundnar við að myndavélar þeirra fyndust en ljósmyndir einar eru sagðar munu skera úr um hvort Mallory og Irvine hafi verið fyrstir til að klífa Everest. Potterfield sagði líkið hafa verið jarðsett á sunnudag að ósk fjöl- skyldu Mallorys við athöfn leiðang- ursmeðlima. „Tilgangurinn með leiðangrinum er ekki aðeins að finna líkin heldur að meta hvaða möguleika þeir höfðu á að ná toppnum árið 1924 við þær erfiðu aðstæður sem þá voru, án þess að stigans nyti við, sem komið var upp á ei-fiðasta hjalla göngunnai- árið 1975,“ sagði Potterfield. Hillai-y sagði í gær að svo gæti farið að ráðgáta þessi verði aldrei leyst. Hann sagði það vel mögulegt að Mallory og Irvine hefðu verið fyrstir til en „án ljósmyndar til sönnunai’ munum við aldrei komast að hinu sanna í málinu". Reuters MERVE Kavakci með höfuðklútinn er hún mætti við þingsetningn. Hún fór úr salnum án þess að sverja þingmannseiöiun. Ecevit reynir stj ór narmy ndun í Tyrklandi Ankara. Reuters. BULENT Ecevit, leiðtoga Lýðræð- islega vinstriflokksins í Tyrklandi, var í gær falið að mynda stjórn í landinu. Bendir flest til, að hann neyðist til að staifa með erkifjend- um sínum í Þjóðarflokknum en hann er nú næststærsti flokkur á þingi á eftir flokki Ecevits. Líklegt er, að þriðji flokkurinn í væntanlegi'i stjórn verði Föður- landsflokkurinn en efnahagsstefna flokkanna þriggja er svipuð. Allir vilja þeir aukna einkavæðingu og berjast gegn verðbólgunni, sem er um 50% og atvinnulífinu í landinu mikill íjötur um fót. Eitt brýnasta viðfangsefni næstu stjórnar verður þó að skera upp rándýrt og illa rek- ið velferðarkerfið. Nýkjörið þing í Tyrklandi kom saman á sunnudag og varð þá nokk- urt uppnám er Merve Kavakci, ein þingkona íslamska velferðarflokks- ins, mætti með íslamskan höfuð- klút. Er hún fyrsta konan til að gera það í 75 ára sögu hins verald- lega, tyrkneska lýðveldis og var þess krafist, að hún tæki af sér klútinn eða hypjaði sig á brott. Tók Kavakci síðara kostinn en hugsan- legt er, að hún verði ákærð fyrir undirróður. Klippið miðann út og geymið ! Er barnið þitt í uanda? | Leitaðu liðsinnis í tíma. FJÖLSKYLDUMIÐSTÖÐ I fyrir börn í vanda SIMI 511 1599
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.