Morgunblaðið - 04.05.1999, Blaðsíða 75

Morgunblaðið - 04.05.1999, Blaðsíða 75
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 4. MAÍ 1999 75 BRÉF TIL BLAÐSINS Guðsmenn á villig'ötum Hópur ungra, sænskra þjóðlagaspilara til Islands Frá höfundum popppassíunnar á Flateyri: HERRA biskup, aðrir kirkjunnar þjónar og landsmenn allir. I musterinu forðum, guðshúsi Jerúsalemborgar, gekk Jesús Kristur berserksgang, umturnaði og velti borðum, búrum og þrum- aði enda helgidómurinn meira í lík- ingu kauphallar en bænahúss. Honum hefur eflaust ofboðið og sárnað sú vanvirðing sem þessum andans reit var sýnd og ætlað hon- um annað hlutverk og verðugra. I dag væri litlu að sparka og fá- um að hrópa að, a.m.k. í guðshús- um okkar íslendinga sem þrátt fyrir fjölda sinn og dreifingu gapa þögul og tóm. Og spyrði frelsarinn hvers vegna yrði fátt um svör enda málpípur fagnaðarerindisins ekki lengur á meðai fólks heldur inni- lokaðar í launaumslögum. Æðsti embættismaður kirkjunn- ar, biskup íslands, átelur í gi-ein- arkorni vaxandi vægi skemmtana- gildis við helgiathafnir, borgara- lega fermingu og óvígða menn í messuskrúðum. Einnig vígða sem láta ofangreint viðgangast. Knúnir til svara, gerum við eftirtaldar at- hugasemdir og teljum þær öllu varða. Gifting, ævilangt hjúskaparheit í guðs nafni, er eins og biskup segir réttilega, skrípaleikur, enda oftast þverbrotið og jafnvel margendur- tekið. Má þá einu gilda hvort brúð- hjón komi úr kirkju eða af fjöllum. Vanvirðingin er vissulega til stað- ar en hvorki fólgin í stað né stund heldur skeytingarleysi gagnvart hjúskaparheitinu sjálfu. Ferming, borgaraleg eða kirkju- leg, byggist ekki lengur á þeim tímamótum að taka við guði og Jesú kristi heldur PC og Macin- tosh. Þessi athöfn er ekki lengur vakning í guði heldur lífsgæðum. Umræðan um borgaralega eða kirkjulega fenningu er því mark- laus, tímaeyðsla, sjálfdauð. Margumrædd Popppassía þar sem sóknarbörn léðu kirkjunni ki-afta sína og fluttu píslarsögu Krists á nýstárlegan hátt hefur verið áberandi í fjölmiðlum. Enga óánægjurödd höfum við heyrt frá viðstöddum en þó nokkrar frá fjar- stöddum, biskupi þ.á.m. Telur hann aðgengi hverra sem er að guðshúsi óvirðing og ógott að óvígðir menn stígi skrúðklæddir í pontu. Að auki frábendir biskup stéttarbræðrum sínum að láta hafa sig út í apaspil sem þessi. I fyi-sta lagi var um söngleik að ræða en ekki messuhald og skrúð- inn einungis leikbúningur. I öðru lagi sjáum við hvergi andstæðu gagnvart fagnaðarerindinu þótt skrúðinn hefði verið fenginn að láni í Vatikaninu og í þriðja lagi teljum við húsakost þjóðkirkjunn- ar griðastaði allra sem þangað leita, ekki bara sjálfkáraðra frels- ingja. Og í fjórða lagi má æðsti tnaður kirkjunnar ekki stjórnast af hleypidómum eða blaðaumfjöllun því títtnefnt verk var hvorki sprell né spellvirki heldur áhrifamáttur sóknarbarna gerður af heiðum hug og innileik. Þetta sá settur guðs- maður hér í firði og þótt hann hljóti aðeins skömm stéttarbræðra sinna höldum við hinir óvígðu hon- um veislu í hugum okkar, sér- hverja stund, þess fullvissir að honum verði hvergi í kot vísað. Þjóðkirkjan íslenzka rær nú líf- róður, hlutverk hennar og áhrifa- máttur fer dvínandi. Þessi stað- Súrefiiisvörur Karin Herzog Oxygen face reynd er augljós og nauðsyn klerkastéttinni að gera sér hana ljósa, annars deyi’ hvorutveggja drottni sínum. Biskup segir kirkj- una þurfa að ganga nýjum tímum í mót en giftast þeim ekki, annars verði hún ekkja. Biskupi yfirsést þó það augljósa að kirkjan er löngu orðin ekkja og tími til kom- inn að finna sér nýjan maka. Virðuleiki hennar er ekki og hefur aldrei verið fólginn í gömlum hefð- um, helgihaldi né alvarleika heldur traustum boðskap fagnaðarerind- isins, í honum felst virðuleiki kirkj- unnar, virðuleiki vigðra, virðuleiki óvígðra. Boðskapur Biblíunnar er hreinn, hann er vísdómur, flestum ofraun en öllum verðugur. Sífellt karp um umbúðir er sorglegt þeg- ar þvílíkt innihald er annarsvegar. Að lokum þetta. I stað bitbeins ætti þarfaverk það sem unnið var í Flateyrarkirkju á skírdag að vera útvörðum þjóðkirkjunnar umhugs- unarefni, hugsanleg nyt, ekki fyr- irfram bannfært og fordæmt. Dómarahlutverkið er ekki okkar og hefur aldrei verið enda hefur Almættið í fullkomnun sinni varla ætlað breyskum sköpunai-verkum sínum þvílíka þraut. Hinsvegar gæti rokkmúsík verið honum að skapi ekki síður en sálmar. Um það vitum við ekkert... Lengi lifi íslenzka þjóðkirkjan og þjónar hennar allir. Með vinsemd og virðingu, LÝÐUR ÁRNASON, ÓLAFUR RAGNARSSON, Flateyri. Frá Christina Skött: HIN LITLA spilarasveit Vikarbyns kemur í heimsókn til íslands Suzuki-kennarinn Margaretha Mattsson, sem búsett er í Orsa, ferð- aðist milli Stokkhólms og Orsa í mörg ár. Nokkrir foreldrar í Vikar- byn höfðu samband við hana og 1993 hóf hún að kenna byrjendahóp á fiðlu í Réttvík í samvinnu við SKS. Orðrómur um hæfni hennar breidd- ist út og margir voru áhugasamir. Biðlistarnir lengdust fljótt. Þegar Margaretha hóf að kenna í tónlistar- skólanum í Réttvík og í Vikarbyn- skóla gátu fleiri nemendur loks hafið nám. Litla spilarasveit Vikarbyn byrjaði hægt að myndast eftir því sem börn- in urðu duglegri og byrjuðu að koma fram. Sveitin hefur nú spilað í 4 ár og samanstendur af 35 börnum á aldrinum 8-14 ára. Öll fá þau einkakennslu auk hóp- tíma einu sinni í viku. Aðalsmerki Margarethe er að allir fá að vera með. Hér er ekki einungis hugsað um þá sem skara fram úr heldur eru allir velkomnir og nýir meðlimir eru fljótir að tileinka sér hið fjölbreytta prógramm sem sveitin hefur á efnis- skrá sinni. Vöxturinn er mikill þar sem Margarethe kennir mörgum börnum á aldrinum 3-7 ára. Siljans-byggðin getur talið sig sæla yfir að hafa fengið slíkan upp- sprettu innan barnatónlistarinnar. Sönnun þess var meðal annars tón- leikar í kirkjunni í Orsa í maí í fyrra. Þá komu 100 nemendur Mai’garethe fram á aldrinum 5-15 ára með söng og spili fyrir fullri kirkju í eina og hálfa klukkustund. Þar fyrir utan bauð hún öllum upp á ávaxtasafa og ís fyrir tónleikana. Hin litla spilararsveit Vikarbyns hefrn’ oft komið fram í upphafi Dal- halla tónleika. Þökk sé Margarethe fengu þau að koma fram í Liljevalchs-listasafninu í Stokkhólmi á síðasta ári. Þau hafa tekið þátt í mörgum spilaramótum í Malung, Falun og Bingsjö. Þau spila þrjá daga í röð þegar maístöngin er reist í Vestbjörka, Vikarbyn og Röjerásen. Síðustu tvö ár hafa þau séð um tón- listina á Jónsmessukvöldi í Jöns- Andersgárden og er vel tekið. Þar að auki hafa þau spilað á ýmsum hátíð- um og ráðstefnum og við brúðkaup. Smátt og smátt fórum við að hugsa hvað hægt væri að gera við peningana sem bömin fengu fyrir að koma fram. Margarethe stakk upp á að fara í ferð til íslands. Hún sagði: Ég hef haldið fiðlunámskeið í Reykjavík tvisvar sinnum og það er undursamlegt land. Við getum baðað okkur í heitum pott- um, farið í reiðtúr á íslenskum hestum og upplifað hina einstöku náttúru. Ég skal tala við vini mína þar. Nú var far- ið í gang að undirbúa jjessa spennandi ferð. Við fórum til Islands 28. apríl 1999 og verðum í eina viku. Síðan koma íslensku bömin hingað til Rétt- víkur næsta sumar. Það hefur verið mikið að gera við að fjármagna ferðina. Við höfum sótt um styrki, selt kökur, haft happ- drætti og fleira. Mörg félög hafa styrkt okkur. Eldhugur Margarethe smitar út frá sér til foreldranna ein þeir spila með börnunum fyrstu árin. Það er engin stjóm í hinni litlu spil- ai’asveit Vikarbyns heldur taka allir foreldrarnir heilshugar þátt í því sem þarf að gera. Samstaðan er góð þegar foreldrar og börn sjá saman um tónlistarkaffi, basar, binda kransa eða steypa kerti. Spilarasveit Réttvíkur bauð bæði Hinni litlu spilarasveit Vikarbyns og Hinni litlu spilarasveit Réttvíkur að taka þátt í jólatónleikum þeirra á síðasta ári. Það er einmitt þannig sem það á að vera. Suzuki-aðferðin er engin hókus pókus aðferð heldur gengur hún út á að hlusta og herma eftir. Eir.mitt þannig hefur spil- aratónlistin gengið mann fram af manni frá hinum eldri til hinna yngri. Aldrei hafa börnin verið stolt- ari heldur en þegar þau fengu að spila með hinum stóm spiluram. Þar að auki vora tekjur kvöldsins settar í ferðasjóðinn. Hópurinn heldur tónleika í Nor- ræna húsinu mánudaginn 3. maí kl. 20 ásamt íslenskum fiðlunemendum. Allir era velkomnir. CHRISTINA SKÖTT, Vikarbyen, Svíþjóð. Kosningafundir í Reykjavík í dag kl. 17.30 mun Stc?fanía Oskarsdóttir frambjóðandi flytja erindi í Kosningamiðstöðinni, Skipholti 19. Miðvikudaginn 5. maí kl. 17.30. Pétur Blöndal: Einfaldara bóta- og skattkerfi. Allir velkomnir ÁRANGU Rf) ’tirALLA Sími: 562-6353. netfang: x99@xd.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.