Morgunblaðið - 04.05.1999, Blaðsíða 56

Morgunblaðið - 04.05.1999, Blaðsíða 56
> 56 ÞRIÐJUDAGUR 4. MAÍ 1999 MORGUNBLAÐIÐ UMRÆÐAN Heilbrigðisráð- herra svíkur geðsjúka Heilbrigðisráðherra skipaði á kjörtímabil- inu starfshóp sérfræð- inga og leikmanna með ósk um að gerð yrði stefnumótun í málefn- um geðsjúkra á Is- landi. Starfshópurinn lauk störfum og skilaði mjög vel unninni skýrslu, þar sem stöðu þessara mála í dag er gerð góð skil og lagðar fram tillögur til úr- bóta. Skýrslan fór und- ir stól. Fullkoniin úttekt, I skýrslunni eru til- lögur til úrbóta í forvörnum gegn geðsjúkdómum og geðlyfjanotkun, um aukin áhrif sjúklinga á þjónust- una, um rekstur geðdeilda og úr- bætur í geðheilbrigðisþjónustu á heilsugæslunni. Þá er góð úttekt á málefnum geðsjúkra barna og unglinga og til- lögur til úrbóta, sem og í málefnum Barna- og unglingageðdeildar (BUGL). Sérstök úttekt er gerð á geðheil- brigðismálum aldraðra og tillögur til úrbóta. Afengis- og vímuefnamál fá al- veg sérstaklega góða úttekt, þar sem m.a. kemur fram að tekjur rík- isins af áfengissölu árið 1998 voru áætlaðar 6,75 milljarðar króna, en á sama tíma var varið 587 milljón- um króna til áfengismeðferðar eða 8,7% af tekjum áfengissölunnar. Tillögur eru til stefnumótunar í forvörnum í áfengis- og vímuefna- notkun unglinga sem og fullorð- inna. Rifjuð er upp skýrsla frá 1996 um sjálfsvíg og ítrek- aðar tillögur þaðan til úrbóta, en þeim virðist lítið hafa verið sinnt. Bætt er við nýjum til- lögum. Gerð er úttekt á ýmsum tegundum of- beldis og lagðar til að- gerðir til að skipu- leggja þjónustu við þolendur ofbeldis. Bent er á þegar fram komnar tillögur um áfallahjálp, þær ítrek- aðar og komið með fleiri. Fjallað er um tengsl geðsjúkdóma og áfengisfíknar og góð úttekt gerð á málefnum geðsjúkra fanga. Tillög- Kosningar Hér er um mjög mikil- væga skýrslu að ræða, segir Sigtryggur Jóns- son, og því er það stóralvarlegt mál að hún hefur ekki fengist útgefín eða kynnt. ur að stefnumótun í báðum þessum málaflokkum koma fram. Að lokum er rætt um sálfræði- þjónustu, geðhjúkranarþjónustu, þjónustu við aðstandendur geð- sjúkra og kennslu og rannsóknir á geðheilbrigðissviði. I öllum þessum málaflokkum er komið með tillögur til úrbóta og stefnumótunar. Sigtryggur Jónsson Ráðherra sest á skýrsluna - verkin tala Hér er um mjög mikilvæga skýrslu að ræða og því er það stóralvarlegt mál að hún hefur ekki fengist útgefin eða kynnt. Hún hef- ur ekki verið kynnt í heilbrigðis- og tryggingarnefnd Alþingis. Hún hefur ekki verið kynnt þingmönn- um og ráðuneytið hefur ekki hafíð neinar framhaldsaðgerðir. Margar tillögur starfshópsins fjalla um aukið samstarf aðila, teymisvinnu, aukna fræðslu og handleiðslu til þeirra, sem vinna við heilsugæsluna, gerð langtímaá- ætlana og kannana, breytta nýt- ingu fjánnuna o.fl., sem ekki eykur útgjöld ríkisins svo neinu nemi. Auk þess leggur starfshópurinn til mikla uppbyggingu Barna- og unglingageðdeildar, fullorðinsgeð- deilda o.fl., sem kostar einhverja milljarða. Eðlilegt; framhald Starfshópurinn leggm- til þá for- gangsröðun að þegar í stað verði skipaðm- starfshópur um gerð fímm ára framkvæmdaáætlunar að efl- ingu BUGL. Komið verði á skipu- lögðu samstarfí milh BUGL, Barna- verndarstofu, SAA og vímuefna- skorar Landspítalans og einnig milli BUGL og Greiningarstöðvar. Sam- vinnu komið á milli allra þeirra, sem koma að þjónustu við fullorðna geð- sjúka og að mótuð verði stefna í meðferðarmálum áfengis- og vímu- efnafíkla. Þessa vinnu átti ráðherra að setja strax í gang. Ekkert hefði átt að hindra slíka grunnvinnu að bráð- nauðsynlegri heildstæðri stefnu- mótun í málefnum geðsjúkra, enda ekki um kostnaðarsamar upphafs- aðgerðir að ræða. En ekkert hefur verið sett í gang. Ekkert hefur verið gert með niður- stöðumar. Hvernig eigum við að geta treyst framsóknarmönnum, sem hegða sér svona í dag, en segjast ætla að setja velferðarmál, vímuefnavanda og fjölskylduna í forgang á morgun? Höfundur er sálfræðingur og í 2. sæti á lista Vinstrihreyfingarinnar - græns framhoðs í Rcykjaneskjör- dæmi. Afturgengin einokun EKKI skortir á að stjórnmálaflokkarnir stæri sig af að fylgja frjálsræði í viðskipt- um. Sjálfstæðisflokk- urinn gat með sanni sagt í lok Viðreisnar- stjórnar, að hann hefði bylt íslenzkum viðskiptaháttum úr haftabúskap og einok- un til stóraukins frjálsræðis. Það kann að vera að fennt hafi í spor Framsóknarhafta eft- irstríðsáranna, þegar SÍS-herrarnir sátu yf- ir helmingi alls inn- flutnings til landsins - og örfáir heildsalar í Reykjavík yfír hinum. Þegar engir aðrir komust að og leyfin gengu kaupum og sölum í einkavörzlu útvaldra. Viðskiptafrelsi Sagan endurtekur sig því miður að þessu leyti, segir Sverrir Hermannsson, og sækir í sig veðrið. Þessu oki létti Viðreisnar- stjórnin af landsmönnum. En Viðreisnarstjórnin gerði fleira. Þegar hún tók við völdum voru ríkisútgjöld til sjávarútvegs 43% af ríkisútgjöldum. Þetta skar stjórnin niður í 3% á tveimur ár- um. I stað þessara styrkja stórjók Viðreisn framlög til menntamála, heilbrigðismála, tryggingamála og landbúnaðarmála. En nú er öldin önn- ur - eða öllu heldur að nú hefir hin gamla gengið í garð. Nú nýt- ur sjávarútvegurinn óbeinna styrkja frá því opinbera með gjafakvótaúthlutun, sem nemur hundruð- um milljarða króna. Sagan endurtekur sig því miður að þessu leyti og sækir í sig veðrið. Allt stefnir óðfluga að því að örfáir léns- herrar einoki íslenzka sjávarauðlind, án endurgjalds til raun- verulegi'a eigenda og með útilok- un á alla aðra. Islenzk þjóð lifði langar myrk- ar aldir undir einokun Danakon- unga í verzlun og viðskiptum. Það var svívirðilegasta áþján, sem þeir máttu þola af konungsvald- inu. Þó var það svo, að sú einokun var um margt líðanlegri en einok- un fiskimiðanna nú. T.d. urðu dönsku kaupmennirnir að gjalda leigugjald fyrir einkaleyfið. Þess þurfa lénsherrar nútímans ekki. Ennfremur voru leyfi kaupmanna bundin við ákveðin svæði, en ein- okarar nútímans hafa allt landið undir og miðin. Halda sem sagt um alla líftaug þjóðarinnar. Þótt einokunarkerfi nútímans sé að vonum fullkomnara en hið eldra kann vel að vera að einvald- skóngar Danmerkur komist á spjöld sögunnar við hlið þeirra þjóðhöfðingja íslenzkra, sem bera ábyrgð á hinu nýja alíslenzka ein- okunarkerfi. Höfundur er formaður Frjálslynda flokksins. Sverrir Hermannsson Tilraunasamningur við kennara og málflutningur Reykjavíkurborgar UMRÆÐA um tilraunasamning milli kennarafélag- anna og Launa- nefndar sveitarfé- laga skaut upp koll- inum fyrir fáeinum vikum og kom mörgum á óvart að slíkar viðræður væru í gangi á milli samningsaðila. For- söguna má rekja til f þess að í lok júní á síðasta ári barst Kennarasambandi Islands og Hinu ís- lenska kennarafé- lagi erindi frá Sam- bandi íslenskra sveitarfélaga með óskum um að þau tilnefndu aðila í vinnuhóp um tilraunaverkefni. Erindið var byggt á bókun Launanefndar sveitarfélaga sem samþykkt var á fundi hennar 16. júní 1998 þess efnis að óskað var eftir viðræðum við kennarafélögin um bókun 1 í kjarasamningi með það í huga að nota samningstím- ann til að prufukeyra nýjan vinnutíma í nokkrum skólum og sveitarfélögum. Vinnuhópi skip- uðum fulltrúum samningsaðila yrði falið að útfæra hugmyndir og hrinda þeim í framkvæmd sem til- raunaverkefni þannig að reynsla ^ yrði komin á það fyrir næstu samningagerð. Kennarafélögin samþykktu að tilnefna fulltrúa í vinnuhópinn að undangengnum umræðum í stjórnum og kjara- nefndum ásamt óformlegum við- ræðum milli aðila. Verklok Samningsaðilar höfðu sett sér það markmið að ljúka verkinu eigi síðar en 30. mars, þ.e.a.s. ef aðilar næðu saman. I febrúar og mars var unnið sleitulaust og meðal þess sem lá fyrir í lok mars voru drög að stefnuyfirlýsingu, drög að samningsákvæðum um tilrauna- verkefnið, drög að innihaldi skóla- samnings og drög að leiðbeining- um til skóla sem hugsanlega sæktu um aðild að verkefninu. Hins vegar átti eftir að útfæra að verulegu leyti nær alla þætti verk- efnsins. Þá var gert ráð fyrir því að fylgst yrði með framkvæmd samningsins og gerð úttekt að gildistíma loknum. Samningsaðil- ar voru sammála um það að kynn- ingin yrði að vera sameiginleg og tilgangslaust væri að kynna óút- færðar hugmyndir án þess að hafa skýringar og svör á reiðum hönd- um. Ekkert samkomulag Skömmu eftir páska varð ljóst að ekki næðist samkomulag milli aðila um gerð tilraunasamnings og var kennsluafsláttur meginásteyt- ingarsteinninn. Launanefnd sveit- arfélaga taldi afnám alls afsláttar á kennslu órjúfanlegan hluta til- raunaverkefnisins. Sú aðgerð hefði hins vegar það í för með sér að kennsluskylda kennara (hámarks- kennsla í dagvinnu) ykist hjá flest- um kennurum. Fulltrúai' í Launanefnd sveitar- félaga og borgarstjórinn í Reykja- vík hafa dreift plaggi undir heitinu „Nám á nýrri öld“ og kynnt það sem tilraunasamning milli Launa- nefndar sveitarfélaga og kennara- félaganna. Kennarafélögin hafa hafnað þessu plaggi og því er rangt að halda því fram að þarna sé um samkomulag á milli aðila að ræða. Kjaramál * Agreiningurinn, segja þau Eiríkur Jdnsson og Guðrún Ebba Olafs- ddttir, snýst fyrst og fremst um kennslu- afsláttinn. Um hvað snýst ágreiningurinn? Agreiningurinn snýst fyrst og fremst um kennsluafsláttinn eða mismunandi hámarkskennslu í dag- vinnu. Launanefnd sveitarfélaga hafnar öllum umræðum um til- raunaverkefni eða tilraunasamning nema allir hafi sömu kennsluskyldu, þ.e.a.s. hún krefst þess að enginn kenni að jafnaði meira eða minna en 28 kennslustundir á viku m.v. 34 vikur. Þar með er einnig verið að halda því fram að enginn geti verið í hlutastarfi í tih-aunaverkefninu. Kennarafélögin voru tilbúin að gera tilraunasamning um aðra þætti í plagginu „Nám á nýrri öld“ með fyrirvara um nánari útfærslu. Rangfærslur I kynningargögnum borgar- stjóra er ýmist talað um tilrauna- samning, sem einungis var hugs- aður í nokkrum skólum á landinu, og kjarasamning. Tilraunasamn- ingur er samningur sem hefur ákveðinn gildistíma og að þeim tíma loknum tekur „gamli“ kjara- samningurinn aftur gildi. Kjara- samning þarf að samþykkja í alls- herjaratkvæðagreiðslu. Þá er einnig rétt að benda á að allar breytingar á vinnutíma eru háðar samþykki stéttarfélags. I kynningu á tilboði Launa- nefndar er fullyrt að bæta eigi líf- eyri kennara með því að draga úr aukagreiðslum og kennsluaf- slætti. Ekki er hægt að lofa bætt- um lífeyri í tilraunasamningi og það er því rangt að halda því fram að í tilraunasamningi sé gert ráð fyrir launa- og lífeyris- hækkunum sem færi kennurum fullt verðmæti kennsluafsláttar. Mikil blekking felst í því að segja að í tilboði Launanefndar sveitarfélaga sé dregið úr kennsluafslætti. Tilboðið gerir ráð fyrir því að allur afsláttur falli niður, þó geti 60 ára gamall kennari valið á milli 10% afsláttar á vinnuskyldu (ekki einungis kennslu) eða hafa fulla vinnu- skyldu og taka 5% launahækkun. Það er rangt að halda því fram að meðalgrunnlaun kennara hækki úr 123.000 á mánuði í 167.000. Hér er annars vegar ver- ið að bera saman grunnlauna- taxta og hins vegar tölu sem inni- heldur allar aukagreiðslur, svo sem fyrir heimavinnuyfírvinnu, frímínútnagæslu, umsjón og fleira. Eiríkur cr formuður Kcnnarasam■ bands íslands og Guðrún Ebba varaformaður.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.