Morgunblaðið - 04.05.1999, Síða 26
26 ÞRIÐJUDAGUR 4. MAÍ 1999
UR VERINU
MORGUNBLAÐIÐ
Fyrsta sérhannaða íslenska túnfískveiðiskipið smiðað í Kína
Túnfískveiðarnar
eru spennandi kostur
SAMNINGAR um smíði túnfiskveiði-
skips voru undirritaðir sl. laugardag
milli Stíganda ehf. í Vestmannaeyj-
um, útgerðarfélags Ófeigs VE, og
HuangPu skipasmíðastöðvarinnar í
Kína. Er hér um að ræða fyrsta sér-
hannaða túnfiskveiðiskipið sem samið
er um smíði á íyrir Islendinga.
Skipið sem um ræðir er togskip en
er einnig sérútbúið til línuveiða á
túnfiski. Skipið, sem hannað er hjá
Ráðgarði Skiparáðgjöf ehf., er 42
metra langt, 11,2 metrar á breidd og
um 635 brúttórúmlestir. Þorsteinn
Viktorsson, íramkvæmdastjóri Stíg-
anda ehf., segir túnfiskveiðarnar
mjög spennandi kost og gefi mögu-
leika á að nýta betur þann kvóta sem
fyrir sé á skipinu. Aætlað er að skip-
ið verði afhent í júní á næsta ári og
er áætlaður kostnaður við smíðina
um 450 milljónir króna. Stígandi ehf.
á fyrir togskipið Ófeig VE og segir
Þorsteinn að ekki liggi fyrir hvað
verði um gamla skipið en það verði
að öllum líkindum selt.
FRÁ undirskrift smíðasamningsins. F.v. Þorsteinn Viktorsson og Vikt-
or Helgason, útgerðarmenn Ófeigs VE, Cheng Zhengmin, deildarstjóri
útflutningsdeildar China State Shipbuilding Corp., og Dong Zhi
Cheng, framkvæmdastjóri HuangPu skipasmíðastöðvarinnar.
Útgerðarfélag Gjafars VE frá
Vestmannaeyjum, Sæhamar ehf.,
hefur undanfama daga átt í viðræð-
um við fulltrúa annarrar kínverskrar
skipasmíðastöðvar um smíði túnfisk-
skips og segir Guðjón Rögnvaldsson
að væntanlega verði gengið frá
smíðasamningi í þessari viku. Reynir
Arngrímsson, framkvæmdastjóri, og
Gunnlaugur Ingvarsson, markaðs-
stjóri IceMac ehf., umboðsaðila Hu-
angPu-skipasmíðastövarinnar hér á
landi, segjast verða varir við mikinn
áhuga nýsmíðaverkefnum í Kína og
greinilegt að margir fylgist spenntir
með áræðni og ákveðni útgerðar-
manna í Vestmannaeyjum að hefja
túnfiskveiðar.
Búlandstindur hf. og Gautavík hf.
kosta námsefni til tölvukennslu
Framtíðarbörn
á Djúpavogi
FORSVARSMENN Búlandstinds
hf. og Gautavíkur hf. undirrituðu um
helgina samning við Grunnskóla
Djúpavogs þess efnis að fyrirtækin
kosta námsefni til tölvukennslu frá
Tölvuskólanum Framtíðarbörnum
næstu þrjú árin og gefa þannig skóla-
bömum á Djúpavogi kost á besta
námsefni sem kostur er á í tölvu-
fræðslu. Að sögn Ólafs Ragnarssonar
sveitarstjóra á Djúpavogi er þetta
fyrsti samningur sinnar tegundar en
áður hafa átta grunnskólar gert
skólasamning við Framtíðarböm.
Tæplega 90 nemendur eru í 1. til
10. bekk grunnskólans á Djúpavogi
og fá þeir umrætt námsefni þýtt,
staðfært og uppfært á sjö yikna
fresti á samningstímanum. „Eg vil
koma á framfæri þakklæti frá mér,
nemendum og öllu starfsfólki skól-
ans en fréttirnar um stuðninginn
vora sem jólin,“ sagði Freyja Frið-
bjarnardóttir skólastjóri við undir-
skrift samningsins. Hún sagði að án
stuðnings fyrirtækjanna hefði ekki
verið möguleiki á að bjóða upp á um-
rætt námsefni. „Börnin okkar hér
verða í orðsins íyllstu merkingu
framtíðarböm. Þau verða á undan
sinni samtíð.“
Tölvuskólinn Framtíðarbörn hef-
ur verið starfræktur síðan 1997 en
námsefnið kemur frá Futurekids
International, sem á rætur að rekja
til Los Angeles í Bandaríkjunum en
starfar í meira en 70 löndum. „Við
eigum því láni að fagna að við eigum
mjög myndarlegt tölvuver í skólan-
um,“ sagði Freyja. „Það er eins og
fullbúið, nýtt veiðiskip en okkur
vantaði kvótann og sjóleiðakort.
Hvort tveggja fáum við upp í hend-
urnar með þessum samningi."
Morgunblaðið/RAX
FRÁ undirritun samningsins um fjármögnun tölvunámsefnisins. Frá
vinstri: Haraldur L. Haraldsson framkvæmdastjóri Búlandstinds, Pét-
ur H. Pálsson stjórnarformaður, Freyja Friðbjarnardóttir skólastjóri,
Ólafur Ragnarsson sveitarstjóri og Stefán Þórarinsson stjórnar-
formaður Gautavíkur.
Gistingu á Sol Dorio í íbúð m. einu svefnherbergi,
miðað við 2fuilorðna og 2 börn 2ja-11 ára.
Innifalið: Flug, gisting í 1 viku, alíir flugvallarskattar
og ferðir til og frá flugvelli erlendis.
Mallorca
12. júli
Gistingu á Pil Lari Playa í íbúð m. einu svefnherbergi,
miðað við 2fullorðna og 2 börn 2ja-11 ára.
Innifalið: Flug, gisting í 1 viku, allir flugvallarskattar
og ferðirtil og frá flugvelli erlendis.
Darmörk
BILLUNI)
Verð frá
amann
Innifalið: Flug tii Billund, bílaleigubíll í A flokki með
ótakmörkuðum kílómetrafjölda í 1 viku m.v. 2 fullorðna
og 2 börn 2ja-11 ára og allir flugvallarskattar.
Flugfargjald til Mílanó 28.260 kr*
Flugfargjald til Danmerkur, Billund 27.900 kr.*
Flugfargjald til Portúgal 28.700 kr *
Flugfargjald til Mallorca 30.380 kr*
*Gildir í beinu flugi til ofangreindra staða.
Innifalið: Flug og flugvallarskattar. Greiðsla með
Atlasávísun er þegar reiknuð inn í verðið.
Faxafeni 5 • 108 Reykjavík • Sími 568 2277 • Fax 568 2274 • Netfang plusf@plusferdir.is • Veffang www.plusferdir.is
|(8Ó0T/22j|
Akranes
Kirkjubraut 3
S: 431 4884 »Fax: 431 4883
Borgarnes
Vesturgarður, Borgarbraut 61
S: 437 1040 • Fax: 437 1041
ísafjörður
Vesturferðir, Aðalstræti 7
S: 456 5111 - Fax: 456 5185
Sauðárkrókur
Skagfirðingabraut 21
S: 453 6262/896 8477 • Fax: 453 5205
Dahík
Júlíus Snorrason
S: 4661261
Akureyri
Ráðhústorg 3
S: 462 5000 • Fax: 462 7833
Egilsstaðir Selfoss
Ferðaskrifstofa Austurlands Suðurgarður hf., Austurvegi 22
S: 471 2000 • Fax: 471 2414 S: 482 1666 • Fax: 482 2807
Höfn Vestmannaeyjar
Jöklaferðir, Hafnarbraut Eyjabúð, Strandvegi 60
S: 478 1000 • Fax: 478 1901 Sími 481 1450
Keflavík
Hafnargötu 15
S: 421 1353 »Fax: 421 1356
Grindavík
Flakkarinn, Víkurbraut 27
S: 426 8060-Fax: 426 7060
Fiskmarkað-
urinn sér
um rekstur
hafnarinnar
FISKMARKAÐUR Djúpavogs hf.,
sem Búlandstindur hf. hefur starf-
rækt frá byrjun árs, tók yfir dag-
legan rekstur hafnarinnar á Djúpa-
vogi sl. laugardag, 1. maí. „Þetta er
liður í því að styrkja undirstöður
Fiskmarkaðarins og létta af höfn-
inni og sveitarfélaginu ákveðnum
þáttum sem við teljum að séu betur
komnir í höndum annarra,“ sagði
Olafur Ragnarsson sveitarstjóri við
undirritun samningsins.
Að sögn Ólafs sér Fiskmarkað-
urinn um að veita alla þjónustu í
og við Djúpavogshöfn nema vigt-
un sjávarafla. Samhliða samningn-
um tók Fiskmarkaðurinn hafnar-
húsið á leigu undir rekstur mark-
aðarins og hafnarinnar.
„Þetta er í fyrsta sinn sem svona
samningur er gerður hér á landi
og því er mjög mikilvægt að
standa vel að öllum þáttum," sagði
Ólafur. „Það er mjög ánægjulegt
að hér skuli fiskmarkaður hafa
verið settur á stofn því hann breyt-
ir mjög miklu varðandi tekju-
möguleika sjómanna og sérstak-
lega smábátaeigenda. Við höfum
lagt okkur fram við að hlúa vel að
nýjum fyrirtækjum og þetta er
innlegg af hálfu hafnarinnar til að
gera rekstrargrundvöll fiskmark-
aðarins bærilegri."
v|j> mbl.is
-/KLLTAf= Œ/TTH\SA£) A/ÝTT