Morgunblaðið - 04.05.1999, Side 37
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 4. MAÍ 1999 37
LISTIR
Afstrakttj áning
frá Hollandi
MYNPLIST
Gallerf Hornið
málverk
DANNY VAN WALSUM
Opið frá 11-23 alla daga.
Sýningin stendur til 5. maí.
ÞÓTT íslendingar hafi einkum
kynnst hollenskri myndlist gegnum
þau fjölbreyttu konsept- og nýlist-
aráhrif sem hingað hafa borist það-
an lifír afstraktmálverkið líka góðu
lífi meðal þessara frænda okkar á
flatlendinu við Norðursjó. Hollend-
ingar, sem og reyndar nágrannar
þeiira, Belgar, búa þar að ríkri
hefð, enda var í Niðurlöndum höf-
uðvígi CoBrA-hreyfingarinnar sem
Islendingar áttu reyndar nokkum
hlut að gegnum Svavar Guðnason
og félaga hans í Kaupmannahöfn.
Hinn frjálsi og expressífí andi
CoBrA-manna markaði djúp spor í
listasögu þessara landa - eins og
reyndar líka í Danmörku - og það
hefur orðið tO þess að afstrakt-ex-
pressjónískt málverk hefur haldið
þar velli og endumýjast þótt víðast
hvar annars staðar í heiminum hafí
það átt undir högg að sækja.
Á Hominu við Hafnarstræti sýnir
nú ungur málari frá Rotterdam,
Danny van Walsum. Verk hans era
frjáls tjáning með blönduðu efni á
pappír og minna að mörgu leyti á þá
túlkun sem við þekkjum einmitt vel
frá hollensku CoBrA-málurunum.
Ekki svo að skilja að hér sé um ein-
hverja stælingu eða endurtekningu
að ræða. Þvert á móti hafa myndir
Dannys yfir sér afar nútímalegan
blæ og sækja greinilega í ýmsar
pælingar síðari ára, bæði hvað varð-
ar efnistök og byggingu, og það er
einmitt þetta sem er svo merkilegt
við sýningu hans. A henni sést
nefnilega hvemig hinn opni andi
sem var svo ráðandi í málverki um
miðja öldina hefur lifað og þróast.
Málverk Dannys sameina frjáls-
leg, jafnvel gróf vinnubrögð og afai’
EIN AF afstraktmyndum Dannys van Walsum.
markvissa myndbyggingu sem sýn-
ir okkur að þarna er á ferðinni
maður sem kann og ætlar sér
meira en bara að fylgja eftir for-
veram sínum. I samhengi við þá
miklu fjölbreytni sem nú ríkir í list-
sköpun og sýningarhaldi - og þá
einkum í samhengi við ágenga og
ögrandi ljósmyndalistina sem nú
sést æ oftai- - kann þessi sýning
Dannys að virðast hæversk og
átakalítil. En það er ekki rétt að
dæma hann út frá slíku. Það sem er
heillandi við vel unna afstrakttján-
ingu er einmitt að hún sameinar
einfaldleika og sterka túlkun, og á
þessu sviði tekst Danny ágætlega
upp.
Jón Proppé
Sjö fengu
styrk úr
Málrækt-
arsjóði
ÚTHLUTAÐ hefur verið úr Mál-
ræktarsjóði í fímmta sinn. Islensk
málnefnd stofnaði sjóðinn 7. mars
1991. Fjölmargir einstaklingar,
stofnanir og fyrirtæki auk ríkisins
hafa lagt honum til fé. Ætlunin er
að sjóðurinn komist upp í a.m.k. 100
milljónir króna um framlagi Lýð-
veldissjóðs og má reikna með að því
marki verði náð á þessu ári.
Alls bárust 16 umsóknir um sam-
tals 12,5 milljónir króna. Til úthlut-
unar voru rúmar 3 milljónir. Eftir-
taldir umsækjendur fengu styrk að
þessu sinni:
Mál og menning 300.000 kr. til
endurvinnslu íðorðaþáttar Islenskr-
ar orðabókar. Undirbúningsnefnd
um landskeppni í upplestri 200.000
kr. Orðanefnd rafmagnsverkfræði-
deildar Verkfræðingafélags Islands
350.000 kr. til að gefa út Raftækni-
orðasafn 8. Viki-íslensk tungutækni
ehf., 500.000 kr. til tækniyfírfærslu-
verkefnis (leiðréttu). íslensk málstöð
300.000 kr. til vinnu við stafsetning-
arorðabók og 900.000 til að koma
leiðbeiningum í málfarsbanka mál-
stöðvarinnar. Fomleifastofnun Is-
lands 300.000 kr. til orðasafns fyrir
íslenska fomleifafræði og Rósa Egg-
ertsdóttir 200.000 kr. til að gefa út
Hljóðskraf.
BARNASTÓLARNIR
VINSÆLU
Þeir eru sterkir og fjaðra sjálfstætt undir barninu, með
fjögurra purikta öryggisbelti og vandaðri fótavörn.
Bandarískar og evrópskar öryggisviðurkenningar.
Hraðlosunarbúnaður, sem passar á flest hjói.
Bögglaberi óþarfur. Fyrir börn 0-25 kg.
Verð frá kr. 5.464 stgr.
m — Opið laugard. kl.10-16
ORNINNP'
Skeifunni 11, sími 588 9890
Frambjóðendur
til viðtals
Alþingiskosningar 1999
Frambjóðendur Sjálfstæðisflokksins verða til viðtals á
kosningaskrifstofum flokksins þriðjudag og miðvikudag
frá kl. 18.00 til 19.00.
Breiðholt
Álfabakka 14a
Pétur Blöndal
Laugarnes
Sundlaugavegi 12 á horni Gullteigs
Katrín Fjeldsted
Langholt
Langholtsveg 84
Ásta Möller
Vestur- og miðbær,
Nes- og Melahverfi
Miðbæjarmarkaðinum Aðalstræti 9
Sólweig Pétursdóttir
Smáíbúða- Fossvogs-
Bústaða- og
Háaleitishverfi
Suðurlandsbraut 14
Björn Bjarnason
Grafarvogur
Hverafold1-3 "
Guðmundur Hallvarðsson
Austurbær, Norðurmýri
Hverfisgötu 82 á horni Vitastígs
Stefanía Óskarsdótti
Árbær, Selás
og Ártúnsholt
Hraunbæ 102b
Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson
m
Allir velkomnir