Morgunblaðið - 04.05.1999, Síða 39
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 4. MAÍ 1999 39
MENNTUN
Umhverfismennt Innivera íslenskra (borgar)barna er mikil enda er vorferðalag í skólum viðburður. Úti-
kennsla er aðferð til að leiðrétta aðra kennslu. Gunnari Hersveini veittist innsýn í umhverfísmennt og úti-
kennslu í Selásskóla og hvernig þessi fræði geta verið samþætt upplýsingatækni nútímans.
s
Utikennsla
leiðréttir
innikennslu
# Umhverfísmennt og upplýsingatækni
eru góðar greinar saman
# Eiga íslensk börn í erfíðleikum með
gang úti í guðsgrænni náttúrunni?
Morgunblaðið/Jón Svavarsson
ÞAÐ er ekki nóg.að kenna um náttúruna af
bókum, myndböndum eða af Netinu. Við verð-
um að fara út til að mynda tengsl, skoða og
átta okkur á undrunum," segir Sigrún .
LDAMOTABORNIN
eru/verða innibörn ólíkt
/ % fyrri kynslóðum sem voru
JL IL allan liðlangan daginn
undir beru lofti. Aldamótabörnin
eru tölvubörn og þau lesa heiminn
af skjánum. Þau leika sér inni, læra
inni og eru inni í skólanum sínum.
Nokki'ar þjóðir hafa þó endurupp-
götvað gildi útiverunnar fyrir börn
og gert ráðstafanir til að koma úti-
vistinni inn í skólana. Víða í Noregi
er einn dagur vikunnar helgaður
útiverunni. Sex, sjö og átta ára
norsk börn eru úti einn dag vikunn-
ar allan skóladaginn allt skólaárið.
Annars staðar þekkist að ætla úti-
kennslu ákveðna önn skólaársins
eða samþætta útikennslu allri
annarri kennslu eða stofna sérstaka
útiskóla til að rannsaka náttúrunna
(hér: Skólabúðir á Reykjum í Hrút-
afirði).
Islendingar voru ekki búnir undir
að (borgar)börnum yrði svo snögg-
lega kært að vera inni við skjáinn,
en nokkrir kennarar hafa t.d. bent á
að þau hafí misst úthaldið. Áherslan
í skólastofunni er núna upplýsinga-
tækni, að kenna börnum að nota
Vefinn og Netið til að draga að sér
þekkingu, til að raða saman brotum
og líma saman heilsteypta mynd.
Þetta helst svo í hendur við annan
þátt sem hefur verið minna í sviðs-
Ijósinu: Útikennslu og umhverfís-
mennt, en þar fer einmitt frumöflun
upplýsinga fram.
Úpplýsingatæknin er á hraðri
siglingu, en útikennslan á hægri.
Síðastliðið haust fengu þó leikskól-
inn Lindarborg og grunnskólinn
Selásskóli í Arbæ styrk frá mennta-
málaráðuneytinu til að gera tilraun-
ir með umhverfismennt og úti-
kennslu. A Lindai'borg hefur frá því
á liðnu sumri verið farið með börnin
í vettvangsferðir til að tala við þau
um himin og jörð, fjöll, sjó og þau
upplifað kraftinn og fegurðina.
I Selásskóla hefur svo Sigrún
Helgadóttir náttúrufræðingur lagt
áherslu á samþættingu útikennslu
og upplýsingatækni, meðal annars
vegna þess að hann er móðurskóli
bókasafnskennslu (upplýsinga-
tækni). En útikennsla snýst um
skilning á náttúrunni með beinni
skynjun.
Ongstræti umhverfismenntar
Sigrún Helgadóttir stundaði nám
í umhverfísfræðum við Edinborgar-
háskóla í Skotlandi og hefur kynnt
sér þau í öðrum löndum m.a. í
Kanada. Hún hefur kennt námskeið
í Kennaraháskólanum, þýtt bækur
um þessi efni og núna kénnir hún
börnum í samræmi við fram-
kvæmdaáætlun stjórnvalda í um-
hverfismálum um sjálfbæra þróun
og nýja endurskoðaða aðalnámskrá
um að efla umhverfisvitund barna.
Sigrún hefur langa reynslu af
umhvei'fismálum og var m.a. land-
vörður í Jökulsárgljúfrum þegar
þjóðgarður var stofnaður þar árið
1974. „Stefnan þá fólst í því að
skamma fólk fyrir að ganga illa um
umhverfið sitt,“ segir Sigrún og hún
bendir á að í raun felist hún ennþá í
því hér á landi, í skömmum og til-
raunum til að láta fólk fá samvisku-
bit. En sem betur fer eru til aðrar
aðferðir.
„Umhverfismenntun er bæði að
öðlast þekkingu á náttúrunni og
reynslu. Hún snýst um að skilja
hana og að breyta hegðun sinni og
einmitt þess vegna er útikennsla
mikilvæg," segii- Sigi'ún og bætir
við að málið sé að vinna bug á
skeytingarleysinu gagnvart náttúr-
unni og að koma fram við hana af
virðingu.
Umhveifismenntun er nýtt fag í
skólum og enn hafa sérstakir áfang-
ar í framhaldsskólum ekki náð fót-
festu í kerfinu þótt það eigi að ala
börn upp í sjálfbæru þjóðfélagi og
bæði stjómvöld, sveitarfélög og
mörg fyrirtæki hafi sett sér sér-
staka umhverfisstefnu. „Enginn
hefur tekið á sínar herðar ábyrgð-
ina á þessu námi. Umhverfisráðu-
neytið vísar á menntamálaráðuneyt-
ið en það hefur ekki treyst sér til að
hampa þessu fagi fram yfir önnur
fóg,“ segir hún og leggur til að skól-
ar setji sér sérstaka umhverfis-
stefnu eins og Selásskóli hefur
reyndar gert. „Okkur ber að auka
umhverfismennt í skólum en hins-
vegar eru engar kennarastöður í
þessum fræðum og í kennaradeild-
unum í Kennaraháskóla íslands og í
Háskólanum á Akureyri eru ekki
sérmenntaðir kennarar í þeim.“
Hún virðurkennir að eins og í öðru
taki það tíma að festa þetta fag í
sessi.
Aðferðimar tvær til að kenna
Umhverfismennt er eðilegt fram-
hald af samþykktum Alþingis og
sveitarstjórna (staðardagskrá 21)
um umhverfismál en kennslan er
lítil og brotakennd og e.t.v. í öng-
stræti. „Kennarar eru hikandi við
umhverfismennt m.a. vegna þess að
þeir fengu aldrei sjálfir slíka mennt-
un eða fræðslu, geta fátt leitað og
hafa nóg með að kenna það sem
þeir kunna að kenna. Öngstræti
umhverfismenntar felst í því að
kennslan er neikvæð með áherslu á
að börnin eigi að laga til eftir okkur
og vera feðra- og mæðrabetrungar.
Umhverfismennt er gerð leiðinleg
með því að láta börnin tína rusl. Það
fyrsta sem flestum dettur í huga
þegar umhverfismennt er nefnd er
sorp og endurvinnsla,“ segir Sig-
rún.
Tvær kennsluaðferðir í umhverf-
ismennt hafa verið mest áberandi.
Önnur er að leggja áherslu á vanda-
málin og að auðlindir jarðar séu í
hættu. Fræðslan er neikvæð og
áróðurinn hræðslukenndur. Þessi
aðferð á rætur að rekja til bókar
Rakelar Carlsson, Raddir vorsins
þagna, sem er um þær ógnir sem
steðja að jarðarbúum. Hugmynda-
fræðin var færð inn í skólana en
þegar kalda stríðið og kjarn-
orkuógnin stóð sem hæst féllust
kennurum hendur því börnin voru
farin að fá það á tilfinninguna að
veröldin væri að farast. Kennurum
fannst nóg samt þótt þeir tækju
ekki þátt í því að hræða börnin.
Hin aðferðin sem Rakel Carlsson
bryddaði reyndar líka upp á byrjaði
upp úr 1970 og fólst í því að mennta
börn á jákvæðan hátt um umhverfi
sitt. Hún felst í því að njóta náttúr-
unnar og styrkja tengslin við hana
með væntumþykju. Hugmyndin er
að ef það tekst komi það af sjálfu
sér að bera virðingu fyrir henni og
að fara vel með hana.
Sambandið við náttúnina
„Starfsheiti mitt í Jökulsárgljúfrum
var á sínum tíma gæslumaður og
fremur reiknað með að ég skamm-
aði ferðamenn og gætti þess að þeir
hentu ekki rusli. Núna er starf í
þjóðgörðum fremur að fræða og
hjálpa ferðamönnum að njóta nátt-
úrunnar," segir Signín og að nú sé
lag að innleiða þessa aðferð í ís-
lenskum skólum. „Umhverfismennt
er forsenda sjálfbærs samfélags en
það er yfirlýst stefna alls heimsins
að stunda sjálfbæra þróun og að
eyðileggja ekki umhverfið fyrir
komandi kynslóðum.“
Útikennsla er sá hluti umhverfis-
menntunar að öðlast reynslu af
náttúninni og að læra af eigin
mætti að umgangast hana og
þekkja. „Þjóðfélagið hefur breyst.
Börn voru áður úti við í samfélagi
við fullorðna, dýr og náttúru, en
núna eru þau inni í einangruðum
heimi. Upplýsingatæknin ýtir í raun
enn á það að vera inni. Aður voru
litlu gi'úskararnir í fjörunni og í
skurðum en núna eru þeir á Netinu.
Útivistin er orðin munaður og börn
eiga jafnvel í erfiðleikum með að
ganga úti í náttúrunni," segir hún
og vísar í reynslu sína af útikennslu,
„útjvistin er ekki bara góð til
kennslu heldur líka fyrir líkama og
sál. Hún er forvörn og heilsubót,
eða hversu margir hafa ekki góða
reynslu af því að fara í göngutúr
þegar þeim líðui- illa?“
Hún segir að Norðmenn hafi t.d.
uppgötvað að sterkasta leiðin til að
styrkja samhygð með nýbúum og
innfæddum og vinna bug á félags-
legum vandamálum sé að leggja
áherslu á útikennslu og mennta
börnin um það sem þau eiga vissu-
lega sameiginlegt: Nánasta um-
hverfi.
„Útikennslan er líka til að leið-
rétta aðra kennslu, kenna vinnu-
brögð og veita nauðsynlega þjálf-
un,“ segir Sigrún, „það er ekki nóg
að kenna um náttúr-
una af bókum, mynd-
böndum eða af Net-
inu. Við verðum að
fara út til að mynda
tengsl, skoða og átta
okkur á undrunum.
Hún nefnir sem
dæmi að í fræðslu-
myndum um fugla
gerist allt á skömm-
um tíma. Fuglinn er
sýndur á flugi í
fjarska og svo fyllir
hann skjáinn fyrir til-
verknað aðdráttar-
linsunnar. Fuglinn
gerir sér hreiður,
verpir eggjum og
skömmu síðar er
hann farinn að bera
fæði í ungana sem
brátt fljúga úr
hreiðrinu. Raunveru-
leg fuglaskoðun leið-
réttir hraðann og
temur bömunum þol-
inmæði. Þar er stærð
fuglanna önnur og
hraðinn annar. Þar er
engin risavaxin að-
dráttarlinsa. Sigrún
segir líka að erlendir
ferðamenn verði iðu-
lega iyrir vonbrigð-
um þegar þeir sjá
lundann, og jafnvel reiðir, því hann
er töluvert minni en þeir hafa
ímyndað sér. Þeir reikna yfirleitt
með að lundinn sé á stærð við mör-
gæs.
Innikennslan leiðréttist ekki með
einni vorferð skólabama. „Úti-
kennslan þarf að vera hluti af dag-
legu lífi, og nú er lag til að gera það
því ný aðalnámskrá gerir ráð fyrir
samþættingu umhverfismenntar við
önnur fög eins og náttúrufræði,
samfélagsfræði og lífsleikni, og
skólar eru að fara að vinna að nýj-
um skólanámskrám. Jákvæð um-
hverfismennt byggist á náttúru-
fræðikennslu og þarf bæði að miða
að því að kenna nauðsynlega nátt-
úrufræði og því að efla virðingu íyr-
ir náttúru og umhverfi með beinni
reynslu," segir Sigrún. Hún telur að
þróunarstarf sé fyrir höndum og
leit að aðferðum sem henti við ís-
lenskar aðstæður, samfélag, nátt-
úruog menningu.
„I upplýsingasamfélaginu þarf að
kenna börnum að afla upplýsing-
anna í samfélaginu og náttúrunni og
miðar útikennslan einmitt að því að
þjálfa þau í því, þessvegna er brýnt
að samþætta hana annarri kennslu
og daglegu lífi. Áherslan á að vera á
náttúruna sjálfa, hve merkileg hún
ýmislegt
■ Tréskurðarnámskeið
Nokkur laus pláss í maí.
Hannes Flosason, sími 5540123.
nudd
■ Kennsla í ungbarnanuddi
Fimmtudaginn 6. maí kl
12.00 fyrir foreldra með
börn frá 1 mánaða aldri.
Ungbamanuddið losar
um spennu og örvar
blóðrás. Nýlegar rann-
sóknir sýna að ungbarn-
anudd hraðar almennt heila- tauga- og
lfkamsþroska og einnig vexti hjá fyrir-
burum og léttburum.Sérmenntaður
kennari í ungbarnanuddi með kennara-
réttindi frá I.A.M.I. (Intemational Ass-
ociation of Infant Massage Instructors)
og yfir 10 ára reynslu.
HEILSliSETUR
ÞÓRGUNNU
Skipholti 50c, s. 562 4745 og 896 9653.
er og hve háð við erum henni. Úr-
bæturnar koma í kjölfarið."
U mhverfisvitundin
„Sigrún hefur þróað nokkur verk-
efni í náttúrustofu Selásskóla í sam-
starfi við bókasafnið. Börnin höfðu
til dæmis farið á Netið og numið um
sólkerfið. I kennslunni kom í ljós að
þau misreiknuðu stærðir. Þau
ímynduðu sér til dæmis að ef fót-
bolti táknaði stærð sólar þá gæti
tennisbolti táknað stærð jarðar.
Það kom þeim í opna skjöldu að í
samanburði við stærð sólar sem
fótbolta var jörðin líkari sandkorni.
Þau fóru svo út og könnuðu himin-
geiminn. Náttúrufræði með þessum
hætti hvflir bæði á skilningi og
skynjun.
Börnin í Selásskóla læra einnig
að fylgjast með dýrum og plöntum í
heimkynnum sínum í stað þess að
stoppa þau upp eða slíta upp og
færa þau inn í skólastofuna. Þau
læra um fæðukeðjuna og vistkerfin
með beinni reynslu. Þau fara til
þeirra og njóta þeirra þar sem þau
eru og læra um leið að virða þau í
stað þess að taka sýni og henda
þeim síðan. Þau spyrja: hvað eru
þau að gera, hvernig lifa þau, með
hverjum og hvernig erum við háð
þeim? Hugarfarið er að taka ekki
meira en þarf og fara vel með það.
Þannig má vinna bug á græðginni
og skeytingarleysinu sem farið hef-
ur illa með vistkerfin. Sigrún legg-
ur til að skólar auki náttúrufræði-
kennslu með yngri börnum og hún
vísar í góða reynslu á leikskólanum
Lindarborg og að kennarar þar
segi að greinilega megi merkja
góða umhverfisvitund með þeim.
Börnin eru fljót að læra.
Itroðslunám dugar hinsvegar
skammt til að efla umhverfisvitund.
„Umhverfismennt er líka upplifun
og reynsla," segir Sigi-ún, „hún
miðar að því að sýna krökkunum
fram á að staðurinn sem þau búa á
er líka merkilegur staður. Fjöllin í
kringum þau voru líka eldfjöll og
það hafa líka runnið hraun í þeirra
heimabyggð."
Selásskóli hefur ekki enn fengið
fjármagn til að halda kennslu
áfram næsta vetur í umhverfis-
mennt. Sótt hefur verið um styrki
til ýmissa aðila en óljóst er um nið-
urstöðuna. Rannís reiknaði með að
veita fé undir liðnum „Umhverfis-
menntun og uppeldi í sjálfbæm
þróun“ í markáætlun sinni um
rannsóknir og þróunarstarf í upp-
lýsingatækni og umhverfismálum,
en þurfti að fella hann út sökum
skorts á fé. Þróun útikennslu á Is-
landi er þó hafin.
■ Endurmenntunarnámskeið
fyrir svæðanuddara
Farið í svæðameðferð handa, orkubrautir
og mikilvæga punkta á þeim. Sjúkdóms-
einkenni frá A-O og meðhöndlunaraðferðir
við þeim o.fl. Tími mánudagskvöld í maí-
júní frá kl. 18—20.30. Upplýsingar og
innritun í síma 562 4745, 552 1850 og
896 9653.
HEILSUSETUR
ÞÓRGUNNU
Skipholti 50c.
■ Nám í svæðameðferd
í Svæðameðferðarskóla Þórgunnu
byrjar 1. september 1999.
Kennsla eitt kvöld í viku í 16 mánuði.
Sumarfrí júlí og ágúst. Kennsla mánud. og
miðvikud. Nám viðurkennt af Svæðameð-
fetðarfélagi fslands. Hámark 8 nemendur í
hóp. Innritun haftn. Upplýsingar í símum
562 4745, S52 1850 og 896 9653.
skólar/námskeið