Morgunblaðið - 04.05.1999, Qupperneq 41
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 4. MAÍ 1999 41
bandalagsins hyggjast ekki styðja
lista Samfylkingarinnar í kjördæm-
inu.
Það var í þessu andrúmslofti sem
reyndi á heilindin. Það var í þessu
andrúmslofti sem kandidatinn til
foiystu hjá Samfylkingu, Jón
Bjarnason, labbaði sig yfir til
Vinstra-græna, sem finnur Sam-
fylkingunni flest til foráttu. Vegna
þess að skynsamlegasta uppröðunin
á lista Samfylkingai- náði ekki fram
að ganga skapaðist það andrúmsloft
sem gerði Jóni kleift að höfða til
fólks sem alls ekki á heima hjá
Vinstra-græna og það með boðskap,
sem hann hafði ekki hátt um í próf-
kjörinu.
Onnu Kristínu á þing
Pólitískt hlutverk Jóns Bjarna-
sonar á hans örstutta pólitíska ferli
virðist hins vegar einungis vera eitt:
Það er að koma í veg fyrir kosningu
Önnu Kristínar - fyrst í prófkjörinu
og síðan á þing. Jón á sjálfur ekki
minnsta möguleika á þingsæti,
Önnu Kristínu skortir hins vegar
örfá atkvæði meðan Sjálfstæðis-
flokkurinn græðir á þessari sundr-
ungu og nær fimmta sætinu einn
ganginn enn, ef svo fer sem horfir.
Ef til vill er það markmiðið, sem
Jón Bjamason stefnir að eftir allt
saman.
Utvarps- og sjónvarpssendingar
af umræðum frambjóðenda á Norð-
urlandi vestra hafa nú farið fram.
Það var ánægjulegt að heyra að
Kristján Möller og Anna Kristín
báru af í málfiutningi sínum. Sam-
fylkingin hefur þar yfir frambjóð-
endum að ráða sem eiga fullt erindi
á þing, bæði tvö. Það er því einlæg
áskorun mín til vinstra fólks í kjör-
dæminu, sérstaklega til fyrrverandi
kjósenda Alþýðubandalagsins, að
sleppa ekki hendinni af Önnu Krist-
ínu og veita henni það brautargengi
sem hún á skilið.
Eg vil svo nota tækifærið og
þakka öllum þeim 1.274 sem veittu
mér stuðning sinn í prófkjörinu í
vetur. Það er gott mál að verða und-
ir með slíkt magn atkvæða þegar
við stöndum eftir með trausta fram-
bjóðendur á lista Samfylkingarinn-
ar á Norðurlandi vestra eins og
raun ber vitni.
Höfundur er fyrrverandi þingmaður
Norðurlundskjördæmis vestra fyrir
Alþýðuflokkinn.
^mb l.i is
4í.í.m/= e/rrwuMÐ rjÝn—
UMRÆÐAN
Stefna Sjálfstæðisflokksins
er 10 mánaða fæðingarorlof
í kosningastefnu
Sjálfstæðisflokksins
eru merkar yfirlýsing-
ar um bætta stöðu fjöl-
skyldunnar í íslensku
samfélagi. I mínum
huga skiptir loforð um
lengra fæðingarorlof
og jöfn tækifæri
mæðra og feðra mestu
til að ung börn geti
notið þess að eiga dýr-
mætar samverustund-
ir með báðum foreldr-
um.
I kosningayfirlýs-
ingunni segir orðrétt:
„Sjálfstæðisflokkurinn
Ásdis Halla
Bragadóttir
mun áfram vinna að
raunhæfum lausnum
til að tryggja jöfn
tækifæri kvenna og
karla, m.a. með því að
lengja fæðingarorlof
og jafna rétt mæðra
og feðra til töku þess.
Foreldrum á vinnu-
markaði verði tryggð-
ur réttur til 10 mán-
aða fæðingarorlofs. A
kjörtímabilinu verði
hvoru foreldri um sig
tryggður réttur til
fullra launa í a.m.k. 3
mánuði."
Með þessu er staða
Jafnrétti
Hvoru foreldri, segir
7
Asdís Halla Bragadótt-
ir, verða tryggð full
laun í a.m.k. 3 mánuði.
kvenna á einkamarkaði verulega
bætt og færð í áttina að því sem
konur hjá hinu opinbera njóta.
Hingað til hefur venjan verið sú að
konur á einkamarkaði fá einungis
fæðingarorlof frá Tryggingastofn-
un en loforðið felur í sér að þær
eiga að fá full laun í 3 mánuði og
tryggar tekjur eftir það.
Merk tímamót
fyrir feður
A þessu kjörtímabili tók ríkis-
stjórn Davíðs Oddssonar þá mikil-
vægu ákvörðun að feður fengju
tveggja vikna fæðingarorlof. Fjöl-
margir feður hafa nýtt sér þetta
tækifæri og nú á að taka miklu
stærra skref. Yfirlýsing Sjálf-
stæðisflokksins felur í sér að feð-
ur fá tækifæri til að taka 3 mán-
aða fæðingarorlof á fullum laun-
um.
Fái Sjálfstæðisflokkurinn umboð
til að láta þessa stefnu verða að
veruleika er það eflaust eitt
stærsta skref í jafnréttisátt sem
stigið hefur verið í íslensku samfé-
lagi.
Höfundur er fonnaður Sambands
ungra sjálfstæðismanna.
Á Vordögum MR munum við
kappkosta að hafa sem mest úrval
og bjóða best verð á þeim vörum
sem tilheyra vorverkum
Girðingarefni
Rafgirðingar
í MR búðinni færðu alla nauðsynlega
hluti í rafmagnsgirðingu ásamt ráðgjöf
Mikið úrval
Allar tegundir girðingarefnis
og staura, hvort sem er fyrir
bændur og búalið eða garða- og
sumarbústaðaeigendur
3.- 8. maí
og sáðvörur
• Grasfræ af öllum gerðum
• Hafrar og bygg
• Áburður í litlum og stórum einingum
Hiólbörur
85 lftra með skúffu úr plasti, verð kr. 4.200,-
90 lítra 1.2 mm stál í skúffu, verð kr. 6.390,-
100 lítra með skúffu úr plasti, verð kr. 5.900,-
Undir öllum börum eru sterkir jámkjálkar
og stór uppblásin dekk
NY VERSLUN
-L,., y.) rrT\y-,. • u, »u. *-'
Afgreiðstutími á Vordögum:
mánudag - fimmtudags.. kl. 8:00 -18:00
föstudag...............kl. 8:00-19:00
laugardag.............. kl. 10:00 -16:00
M R búðin
Lynghálsi 3
Sími: 5401125 • Fax: 5401120
Avallt í leiðinni ogferðarvirði