Morgunblaðið - 04.05.1999, Blaðsíða 55
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 4. MAÍ 1999 55
Af litlum neista
STOKKBREYTINGIN sem orð-
ið hefur I efnahagslífi þjóðarinnar
er ki-aftaverki líkust. Lítil verð-
bólga, stöðugleiki á
vinnumarkaði, lágir
vextir, lægri skattar og
frelsi í viðskiptum hafa
lagst á eitt um að
skapa íslenskum fyrir-
tækjum nauðsynlegan
vaxtargrundvöll og
fólki bætt kjör. Þessi
þróun er ekki sjálfgef-
in, hún er afleiðing
skynsamlegrar efna-
hagsstefnu ríkisstjórna
Davíðs Oddssonar.
Góðærið undanfarin ár
undirstrikar mikilvægi
þess að trúverðugir að-
ilar séu áfram við
stjórnvölinn.
Minna atvinnuleysi -
meiri kaupmáttur
Fara verður saman að hlúð sé að
fólki og fyrirtækjum. Með kaupauk-
um, hlutabréfum og margvíslegum
hlunnindum hafa mörg fyrirtæki
umbunað starfsmönnum sínum
langt umfram umsamda kjarasamn-
inga. Starfsmenn hafa þannig með
beinum hætti notið bættrar afkomu
fyinrtækjanna. Batnandi hagur
þeirra hefur haft í för með sér auk-
inn kaupmátt og minna atvinnu-
leysi. Samhliða hafa tekjur ríkis-
sjóðs stóraukist þrátt fyrir skatta-
lækkanir. Skuldir ríkissjóðs hafa
verið greiddar niður sem aldrei
fyrr, er auka mun ráðstöfunarfé rík-
isstjóðs til lengri tíma litið og veita
svigi'úm til frekari skattalækkana.
Slökkviliðsmennirnir
og vatnstjónið
Efnahagsóstjórn vinstrimanna er
flestum kunn. Háir vextir, erlendar
lántökur, halli á ríkisfjárlögum,
lýrnandi kaupmáttur, háir skattar,
sóun í ríkisfjármálum, ósamkeppn-
ishæf fyrirtæki og atvinnuleysi
standa alltof nærri í minningunni.
Óhugnanlegasta staðreyndin af öll-
um er sú að síðustu árin hafa
vinstrimenn barist með oddi og egg
gegn þeim veigamiklu umbótum í
íslensku samfélagi sem skapað hafa
þann trausta efnahagsgrundvöll
sem við stöndum á nú. í neikvæðum
tón er reynt að telja
okkur íslendingum trú
um að allt sé í kaldakoli
og vinstrimenn einir
geti komið lagi á hlut-
ina. Málflutningurinn
er í ætt við brennu-
varginn sem ki'efst
þess að slökkviliðs-
starflnu sé hætt vegna
vatnstjónsins sem
slökkviliðsmennimir
valda.
Atvinnulífíð er
grundvöllur
velferðarkerfísins
Án trausts atvinnu-
lífs er markleysa að
tala um traust velferðai'kerfí. Fyrir-
heit vinstrimanna í atvinnumálum
eru skattahækkanir í formi um-
Kosningar
Brenrmvargarnir
kvarta, segir Andrés
Andrésson, yfír vatns-
tjóninu sem slökkviliðs-
mennirnir valda.
hvei-fisskatta, tryggingargjalda,
sérstaks skatts á aðalútflutnings-
gi-einina og fjármagnstekjuskatts.
Þetta eru feluorð yfir skatta á bfia,
bensín, sparnað og atvinnulífið.
Málflutningur vinstrimanna er
fjandsamlegur atvinnulífnu á sama
tíma og þörf er meiri fjölbreytni og
aukins útflutnings til að standa und-
ir áframhaldandi hagvexti og út-
gjöldum til velferðannála. Stjórn-
málamönnum sem tala eins og at-
vinnulífið sé fjöregg samfélagsins
en ekki hornkerling er treystandi,
hinum ekki. Við búum að reynslunni
þegar við greinum á miili.
Höfundur slundar nám í
stjómmálafræði við HI.
Andrés
Andrésson
UMRÆÐAN
Stebbi stál
I KOSNINGAAUGLYSINGU
Framsóknar í sjónvarpi hvatti Hail-
dór Ásgn'msson til þess að við
glímdum ekki við verk-
efni nýrrar aldar með
hugmyndafræði kalda
stríðsins, heldur með
íslenskri skynsemi og
þeim kærleika sem
þjóðin hefði ræktað
með sér, kynslóð fram
af kynslóð.
Er Halldór þarna
með skrúðmælgi að
reyna að sætta þjóðina
við að e.t.v. verði Rúss-
um hleypt inn í efna-
hagslögsögu okkar?
Skref sem ég varaði við
í greininni „Landhelg-
ina eigum við“, (Vel-
vakandi Mbl. 27/3) en
hún hefst á þessum orðum: „Ég vil
ekki sjá að Rússum verði hleypt inn
í íslenska landhelgi." Eg benti
einnig á að Jelena Bonner, ekkja
Nóbelsverðlaunahafans Sakharovs,
hefði varað Vesturlandabúa við að
hleypa Rússum inn á sig, þeir væru
útþensiuþjóð hvert sem stjórnarfar-
ið væri.
í utamnkisráðuneytinu bíður
piagg undirski-iftar ráðheiTa ís-
lands, Noregs og Rússlands. Það er
dagsett 13. apríl s.l. og í 2. og 3.
grein þess er fjallað um að mögu-
lega verði komist að samkomulagi
um gagnkvæmar veiðiheimildir í
efnahagslögsögu hvers ríkjanna um
sig. Kynnið ykkur þennan ófögnuð.
Eg ræddi við vestfirskan skip-
stjóra sem leist illa á þá tilhugsun ef
hleypa ætti Rússum inn í íslenska
lögsögu. Hann sagðist treysta þeim
síst af öllum. „Þetta eru ekki við-
skipti þetta er bara brask“, sagði
hann. „Það er alveg á móti minni
hugsjón að treysta Rússum að vera
í okkar auðlind. Þeir eru ekkert
góðir í samskiptum á miðunum.
Þegar íslenskir ráðamenn eru að
setja þetta upp og tala um þetta þá
eru þeir bara með tölur og tonn.
Það er allt sem mælir á móti því að
við gerum þetta. Ég skil ekki þessa
stefnu að skipta á heimildum við
svona þjóðir sem ekki er hægt að
hafa eðlileg samskipti við á sjó. Það
kom oft til árekstra á miðunum,
einmitt við Rússa.“
Saga af sjónuni
Skipstjórinn segir
frá: „Ég var með 250
tonna línuskip á grá-
lúðuveiðum á miðunum
djúpt út af Norðvestur-
landi á svipuðum slóð-
um og margir rúss-
neskir togarar og lagði
mína línu alltaf á sama
stað. Báðir að veiða
gi-álúðu, Rússamir og
ég, þeir með 3000
tonna trollskip. Þeir
vom þekktir fyrir að
toga þvers og kruss yf-
ir línuna hjá íslensku
skipunum og tóku hana
Rannveig
Tryggyadóttir
eitt sinn af okkur í björtu veðri og
fóm það nærri okkur að þeir sáu vel
hvað var að ske. Við gátum ekkert
Fiskveiðar
Vilja íslendingar, spyr
Rannveig Tryggva-
dóttir, láta frelsi sitt
fyrir rússneskan gjafa-
kvóta?
eyðilagt fyrir þeim en þeir gátu
eyðilagt fyrir okkur. Við höfðum
engin tök á að tala við þá því þeir
skilja ekkert mál nema rússnesku.
Voru viljandi að eyðileggja fyi*ii-
öðrum.
Það sem ég gerði var að ég var
með haglabyssu um borð og keyrði
eins nálægt Rússanum og mögulegt
var. Ég lét stýrimanninn fara út og
skjóta að þeim, sem hann gerði og
þá fyrst sýndu Rússarnir viðbrögð
og sáum við þá aldrei aftur.
Ég kærði yfirganginn í Land-
helgisgæsluna og þeir töluðu við
sendiráðið og þá fóra þeir af þess-
um miðum. Þetta var árið ‘72 eða
‘73 en landhelgin var færð út í 200
mílur 1975. Það er hið versta mál að
ætla að fara að hleypa þeim hingað
inn aftur.“
Má breyta í herskip
Skipstjórinn heldur áfram: „Menn
sem ég þekki fóra um borð í rúss-
neskt skip sem lá hálfyfirgefið í
Færeyjum, togara. Var þama til við-
gerða þó að ekki væri sýnilega gert
við neitt. Lá þar í reiðileysi og virtist
enginn eiga það. íslendingarnir fóra
um borð bara að gamni sínu. Tugir
staðsetningartækja og áttavita sem
ekki eru 1 venjulegum skipum vora
um borð. Hver einasti togaiá er með
ótrúlegustu tæki sem era ekkert
notuð við fískveiðar og í miklu
magni. Þessi tæki gætu ekki notast
þeim nema til hemaðar. Sé sldpt um
áhöfn er þetta orðið herskip. Rúss-
amir hafa alltaf verið að njósna. Þeir
era að kortleggja allt. Virtist vera
auðvelt að manna skipið hermönnum
og ganga á land og hver hefði sín
staðsetningartæki og útbúnað, m.a.
sextantar í tugatali, sem era stað-
setningartæki. I þessum rússnesku
skipum eru þeh- með þessi aukatæki
og fljótlegt að skipta um mannskap
og nota skiphi í hernaðarlegum til-
gangi. Vilja íslendingar láta frelsi
sitt fyrh- rássneskan gjafakvóta?
Úr Hávamálum:
Gáttir allar
áður gangi fram
of skoðast skyli,
um skygnast skyli,
þvíóvíst
er að vita
hvar óvinir sitja
á fleti fyrir.
Höfundur er htísmdðir og þýðandi.
HUSASKILTI
húsaskilti
R A O A U £3 L V S I I I M G A R
Hafnarbúðir til leigu
Til leigu er 1. hæðin og hluti kjallara í þessari
nýuppgerðu húseign í miðbæ Reykjavíkur.
Húsið stendur eitt á sér lóð. Húsnæðið getur
hentað undir margskonar starfsemi en þó sér-
lega vel fyrir veitingastað eða þjónustu.
Upplýsingar í símum 696 4646 eða 892 5606.
Suðurlandsbraut —
Vegmúli — til leigu
Verslunar- og lagerhúsnæði, samtals 263 fm,
á jarðhæð til leigu. Húsið skiptist þannig að
verslun er ca 130 fm en lager 133 fm.
Húsið er vel innréttað og laust nú þegar.
Upplýsingar gefur Gunnar í síma 893 4628.
Lækjarbrekka, veitingahús
Óskum eftir að taka á leigu skrifstofuherbergi,
sem næst miðbænum.
Upplýsingar í síma 698 1566.
SMÁAUGLÝSINGAR
FÉLAGSLÍF
I O.O.F. Rb. 4 - 148548.
TIL SÖLU
Fasteignasala
Lögmanna Sudurlandi,
Austurvegi 3, 800 Selfossi,
sími 482 2849, fax 482 2801,
logmsud@selfoss.is
Jörð til sölu
Austurkot í Sandvíkurhreppi.
Jörðin er 166 ha, ræktun ertæplega 20 ha.
A jörðinni er gamalt íbúðarhús, sem þarfnast
viðhalds, úthús í þokkalegu ástandi, m.a. hest-
hús fyrir rúmlega 35 hross, reiðskemma og
stór vélaskemma. Toppaðstaða fyrir hesta-
menn. Mjög góð staðsetning; innan við 5 km
frá Selfossi og um klst. aksturtil Reykjavíkur.
Nánari uppl. á skrifstofu
Er það þitt mál
ef Bíbí, humanisti á Austurlandi, fær ekki að
ráða nafni sínu? Já, ef samfélag þitt hindrar
hana. Er lán að geta „keypt" fiskveiðikvóta af
íslenskri útgerð og að sleppa við sautján ára
fangelsisdóm eftir „mörg dómsmorð" réttar-
kerfisins? Skýrsla um samfélag lýsir stjórnar-
háttum leyndarbréfa, þagnar og aðgerðaleysis
og fæst í Leshúsi, Reykjavík.
□ EDDA 5999050419 I Lf.
Konur athugið
Fundur verður hjá Aglow í kvöld
kl. 20 í Kristniboðssalnum, Fláa-
leitisbraut 58—60. Elva Ósk Wii-
um mun tala. Allar konur hjart-
anlega velkomnar.
Landsstjórn Aglow á fslandi.
LIFSSÝN
Samtök til sjálfsþekkingar
Aðalfundur Lífssýnar verður
haldinn þriðjudaginn 4. maí kl.
20.30 í Bolholti 4, 4. hæð.
Að loknum aðalfundarstörfum
mun Sigþrúður Arnardóttir flytja
erindi um samskipti. Hugleiðing
kl. 19.45. Allir velkomnir. Kaffi-
veitingar.
Vetrarstarfi Lífssýnarskólans fer
senn að Ijúka, en skólinn hefst að
nýju næsta haust. Efnið skiptist í
sjö þætti: Orkublik manns og
jarðar, tilfinningar, hugur, inn-
sæi, orkustöðvar manns og jarð-
ar, þróun mannsins og fyrri líf,
meistarar og helgir menn.
Skráning og nánari uppl. hjá Erlu
í síma 552 1189 og Kristinu i síma
552 7870.
Ungbarnanudd
Kenni foreldrum ungbarnanudd
Ungbarnanudd veitir ánægjuleg-
ar samverustundir með barnint
og styrkir tengslin við það. ÞaS
hefur reynst góð hjálp við maga-
kveisu, óróleika og svefnleysi.
Hef réttindi frá International Ass-
ociation of Infant Massage
Instructors og 10 ára reynslu.
Uppl. veittar í sima 554 1734 mill
kl. 12 og 13 virka daga.
Ragnheiður Þormar.
KENNSLA
Nudd.is