Morgunblaðið - 04.05.1999, Side 67
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 4. MAÍ 1999 67
MINNINGAFt
+ Einar Þorsteins-
son fæddist í
Reykjavík 24. des-
ember 1924. Hann
lést á heimili sínu
sunnudafi'inn 25.
apríl síðastliðinn.
Foreldrar hans voru
Ragnhildur Bene-
diktsdóttir, f. 1.6.
1887, d. 20.11. 1954,
og Þorsteinn F. Ein-
arsson, f. 26.3. 1887,
d 29.12. 1976. Systk-
ini Einars vom: Guð-
mundur Þorsteins-
son, f. 18.12. 1909,
Sigríður Þorsteinsdóttir, f. 10.11.
1912, Ingólfur Þorsteinsson, f.
6.2. 1915. Eftirlifandi systur Ein-
ars eru Unnur Þorsteinsdóttir, f.
10.12. 1917, og Benedikta Þor-
steinsdóttir, f. 20.5.1920.
Hinn 20. október 1951 kvænt-
ist Einar Sigurbjörgu Sigurðar-
dóttur, f. 22. desember 1928.
Þau slitu samvistir 1989. Böm
Einars og Sigurbjargar eru: 1)
Okkur systkinin langar til að
minnast Einars afa með fáeinum lín-
um. Við munum eftir sunnudagsbílt-
úrunum sem enduðu ævinlega á
Holtsgötunni hjá afa og ömmu.
Þangað var alltaf gaman að koma og
áttum við þar saman góðar stundir.
Ingólfur Einarsson,
f. 9.3. 1951, eigin-
kona hans er Þórdís
Kr. Öfjörð, f. 12.2.
1954. Börn þeirra
eru: Sigríður Björg,
f. 1972, sambýlis-
maður hennar er
Guðmundur Arnar
Sigfússon, börn
þeirra eru Bryndís
Heiða og Þórdís
Arna. Einar Þór, f.
1977, Arnar Ingi, f.
1981 og Guðbjörg
Ýr f. 1988. 2) Guð-
björg Einarsdóttir,
f. 19.3. 1954, eiginmaður henn-
ar er Finnur Egilsson, f. 16.1.
1953.
Einar Þorsteinsson var tré-
smiður að mennt og mikill
handverksmaður. Hann málaði
einnig fallegar landslagsmyndir
sér til skemmtunar.
Útför Einars fer fram frá
Fossvogskirkju í dag og hefst
athöfnin klukkan 15.
Afi var mjög handlaginn og vand-
virkur við allt sem hann tók sér fyrir
hendur. Hann var húsasmíðameist-
ari og einnig málaði hann fallegar
landslagsmyndir og margar þein'a
héngu uppi á vegg á Holtsgötunni.
Afi hafði gaman af börnum og nut-
um við barnabörnin samvista með
honum. Þakka þér samfylgdina,
elsku afi okkar.
Legg ég nú bæði líf og önd,
ljúfi Jesú í þína hönd,
síðast þegar ég sofna fer,
sitji Guðs englar yfir mér.
(Hallgr. Pét)
Guð blessi minningu þína.
Sigríður Björg, Einar Þór,
Arnar Ingi og Guðbjörg Ýr.
Nú er fallinn einn af betri mönnum
þessa lands, Einar Þorsteinsson tré-
smíðameistari. Hann átti við erfiðan
sjúkdóm að stríða allt sitt líf. Einar
var alltaf fljótur til þegar á reyndi og
var reiðubúinn að hjálpa fólki sem
átti í veikindum og erfiðleikum.
Við vorum alltaf öðru hvoru
heimagangar hjá honum og gaman
var hjá okkur. Þegar erfíðleikar og
veikindi voru hjá okkur þá var gott
að koma til hans. Hann var góð-
menni og gjafmildur.
Eg, Gunnar, kom oft til hans með-
an hann bjó á Holtsgötunni. Þá átt-
um við góðar stundir saman. Við
heimsóttum hann næstum daglega
þegar hann bjó á Rauðarárstígnum,
enda áttum við heima stutt frá heim-
ili hans. Síðustu daga hans í þessu
lífi var hann mjög veikur. Guð blessi
minningu hans. Megi Guð styrkja
skyldmenni hans, Guðbjörgu og
Ingólf. Þau eru bæði uppkomin og
mjög efnileg í alla staði.
Nú er lífi Einars lokið og við
söknum hans mjög mikið.
Gunnar, Halldór og Aðalheiður.
EINAR
ÞORSTEINSSON
I
JÓNA ELÍASÍNA
GÍSLADÓTTIR
+ Jóna Elíasína
Gísladóttir
fæddist að Höfða í
Dýrafirði 6. nóv.
1904. Hún lést á
Landakotsspítala
16. apríl síðastlið-
inn. Foreldrar
hennar voru Gísli
Sighvatsson bóndi á
Höfða og Jóna Elí-
asdóttir. Jóna (Ella)
var þriðja í röð níu
systkina. Hin eru:
Guðjón, f. 1902, lát-
inn, Jóhann Guð-
bjartur, f. 1903, lát-
inn, Sighvatur f. 1906 látinn,
Guðmundur Kristján, Höfða, f.
1910, Guðrún Elísabet, Rvík, f.
1912, Hallgrímur, f. 1914, lát-
inn, Margrét, f. 1917, látin, og
Þórarinn, Rvík, f. 1921.
Á litlu olíumálverki sem hangir í
stofunni hjá mér má sjá baksvipi
eldri konu og ungrar stúlku. Þær
leiðast og ganga fram veginn. Við
enda vegarins er hlið. Handtakið er
innilegt og sú litla er í góðum hönd-
um. í mínum huga er þetta táknræn
Jóna giftist 5.
júní 1931, Böðvari
Guðbirni Jónssyni,
f. 28.10. 1906.
Hann fórst nieð
togaranum Gull-
fossi 28. febr. 1941.
Börn þeirra eru
tvö: 1) Gísli, f.
23.10. 1931. Kona
hans er Guðrún
Oddsdóttir, f.
27.12. 1931. Hans
börn eru fimm,
barnabörn 14 og
barnabarnabörn
fimm. 2) Jónina, f.
3.10. 1940. Hennar maður er
Hans Hilaríusson, f. 27.2. 1935.
Hann á fjögur stjúpbörn og tíu
barnabörn.
títför Jónu Ebasinu fór fram
frá Fossvogskirkju 23. aprfl.
mynd fyrir traust og umhyggju.
Myndin minnir mig á góða konu
sem var að ljúka löngu ferðalagi.
Ferðalagi sem var fullt af gæsku og
skilningi á mannlegri breytni. Þeir
sem urðu á vegi þessarar konu og
kynntust henni voru ekki samir á
eftir. í tuttugu ár hef ég átt stað í
huga hennar og notið af því mikla
sem hún gaf.
Jóna E. Gísladóttir hefur kvatt.
Hún kvaddi mig síðasta sumar,
skömmu áður en ég fluttist frá ís-
landi. Ég held að við höfum bæði vit-
að að það hafi verið síðasta kveðja.
Handtak hennar var hlýtt og fullt
velfarnaðaróska. Með það veganesti
fór ég rórri. Við andlát hennar er
mér þakklæti efst í huga.
Minningin um hlýtt handtakið,
gæskuna og allan skilninginn lifir.
Kveðja frá fjölskyldunni í Horsens.
Gunnar A. Hansson.
Elsku amma og langamma. Að
leiðarlokum viljum við þakka þér all-
ar þær yndislegu stundir og minn-
ingar sem þú veittir okkur með nær-
veru þinni og umhyggju. Þú varst
glaðvær og fógur og uppáhald okkar
allra. Hvíl í friði og megi Guð vera
sálu þinni náðugur.
Allt sýnist mér þá leika í lyndi,
nær lít ég þína fogru mynd,
þig, sem ert minna augna yndi,
unaðar míns og tára lind.
Varirnar, ennið, augun kyssi
alengdar, þó að sé ég fjær.
0, að þín sála sæi og vissi,
hvað sálu minni þú ert kær. _
(Páll Ólafsson)
Gísli Rúnar, Sylvía og dætur.
Legsteinar
í Lundi
v/Nýbýlaveg
áOLSTEINAK 564 3555
1
Fréttir á Netinu
<f> mbUs
\LLTJ\f= eiTTHVAÐ NYTT
H
+
Elskulegur faðir okkar, bróðir og afi,
EGGERT EINARSSON
vélstjóri,
andaðist föstudaginn 30. apríl.
Útför hans verður gerð frá Fossvogskapellu
föstudaginn 7. maí, kl 13.30.
Fyrir mína hönd og annarra vandamanna.
Halla Eggertsdóttir.
t
Systir okkar,
AGNES KRISTÍN ÓLAFSDÓTTIR,
Hátúni 10,
Reykjavík,
verður jarðsungin frá Fossvogskapellu í dag,
þriðjudaginn 4. maí, kl. 15.00.
Fyrir hönd vandamanna,
Jón Þór Ólafsson,
Helga Steinunn Fisher.
t
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar og tengda-
móðir,
HERBJÖRT PÉTURSDÓTTIR
á Melstað
í Miðfirði,
lést á Landspítalanum sunnudaginn 2. maí.
Guðni Þór Ólafsson,
Ólafur Teitur Guðnason, Engilbjört Auðunsdóttir,
Pétur Rúnar Guðnason,
Árni Þorlákur Guðnason,
Lilja írena Guðnadóttir,
Eysteinn Guðni Guðnason.
t
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengda-
faðir, bróðir og afi,
HANNES EINARSSON
bóndi,
Eystri Leirágörðum,
lést á Sjúkrahúsi Akraness laugardaginn
1. maí.
Ólöf Friðjónsdóttir.
t
Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi og
langafi,
MAGNÚS ÁGÚST GUÐNASON,
lést á sjúkrahúsinu í Bolungarvík fimmtudag-
inn 29. apríl.
Minningarathöfn verður í Hólskirkju, Bolungar-
vík miðvikudaginn 5. maí kl. 14.00.
Útförin fer fram frá Keflavíkurkirkju föstudag-
inn 7. maí kl. 14.00.
Jón Ólafur Jónsson, Sigurbjörg Gunnarsdóttir,
Finnur Magnússon,
Guðrún B. Magnúsdóttir, Einar Jónatansson,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og
langamma,
ÁSDÍS G. EIRÍKSDÓTTIR,
áður til heimilis
á Hagamel 25,
lést á elli- og hjúkrunarheimilinu Grund laugar-
daginn 1. maí.
Helga Ágústsdóttir, Björn T. Gunnlaugsson,
Hörður Jóhannsson, Sigríður G.B. Einarsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
UNNUR HALLDÓRSDÓTTIR,
Hjarðarhaga 31,
Reykjavík,
verður jarösungin frá Fossvogskirkju í dag,
þriðjudaginn 4. maí, kl. 13.30.
Gunnar Friðriksson,
Friðrik Gunnarsson, Sheena Gunnarsson,
Rúnar Gunnarsson, Hildur Jónsdóttir,
Guðrún Gunnarsdóttir, Kristján Georgsson,
Gunnar H. Kristjánsson.
t
Útför eiginkonu minnar,
ANDREU DAVÍÐSDÓTTUR
frá Norðtungu,
fer fram frá Borgarneskirkju á morgun, miðviku-
daginn 5. maí, kl. 14.00.
Jarðsett verður í Norðtungukirkjugarði sama
dag.
Fyrir hönd barna okkar og annarra aðstand-
enda,
Magnús Kristjánsson.