Morgunblaðið - 04.05.1999, Qupperneq 76
76 ÞRIÐJUDAGUR 4. MAÍ 1999
I DAG
MORGUNBLAÐIÐ
Ekinn 64 þús. km. Svartur með Ijósri leðurinnréttingu, sóllúgu,
geislaspilara - einn með öllu. Bein sala og skipti koma til greina.
Bíllinn er til sýnis hjá Nýju Bílahöllinni, Funahöfða I. Sími 567 2277.
Grand Cherokee - 6 cyl. sjálfskiptur, árg. 1995
Vor í Berlín
Einstakt tækifæri til að kynnast hinni sögufrægu höfuðborg Þýskalands
undir frábærri leiðsögn Kristínar Jóhannsdóttur fréttaritara.
Vikuferðir til Berlínar, brottfarir 23. maí, 30. maí og 6. júní
Innifalið:
Flug, Kef-Berlín-Kef.
Gisting í 6 nætur á 3ja stjörnu
hóteli m/morgunmat.
Skoðunarferð um Berlín.
Gönguferð um austurhluta Berlínar.
Dagsferð til Potsdam.
Dagsferð til Spreewald.
Upplýsingar og bókanir í síma
562 9950.
Verð kr 69.500 miðað við tvo í herb.
Vikulegt flug til Berlínar og Frankfurt frá
23. maí til 11. sept.
Verð frá kr. 21.900 m/sköttum. Flogið er
frá Keflavík aðfaranótt sunnudags.
VESTFJARÐALEIÐ
Ferðaskrifstofa
Skógarhlíð 10, 101 Rvk.
Minningarsjóður um Ólafíu Jónsdóttur
Sfjóm Minningarsjóðs um Olafíu Jónsdóttur auglýsir eftir umsóknum um styrki úr sjóðnum. Sjóðurinn er stofnaður til styrktar rannsóknum í þógu geðsjúkra. Umsóknir um styrk úr sjóðnum, ósamt ítarlegum upplýsingum um umsækjandann og væntanlegt verkefni, ber að senda til stjórnar sjóðsins, ó skrifstofu Geðverndarfélags Islands, Hótúni 10, 105 Reykjavík. Nónari upplýsingar í síma 552 5508. Opið kl. 10-12 f.h. Umsóknarfrestur er til 20. maí nk.
Teg.112
Verö kr. 4.990
Teg. 111
Verö kr. 5.990
SKOHOLLIN
Besjarhrauni 16, simi 555 4420
RR SKQR
Kringlunni
VELVAKAIVDI
Svarað í sxma 569 1100 frá 10-12 og 13-15
frá mánudegi til fóstudags
Kennum
krökkunum
leiki
EIN króna, fallin spýta,
myndastyttuleikur, 12345-
dimmalimm og margir
fleiri leikir voru stundaðir
uppá kraft hér áður fyrr,
það er samt ekki svo ýkja
langt síðan. En í dag, því
miður, kunna krakkar
fæsta af þessum leikjum.
Þeir hafa gleymst alveg
óti-úlega hratt og ætla ég
ekki að skiigreina af
hverju, heldur tala um
hvort við getum ekki gert
eitthvað til að þeir komist
í umferð aftur.
Oft hef ég hugsað, jæja
nú fer ég út og kenni
krökkunum nokkra leiki,
og hef gert það, en börnin
eru kannsld ekki nógu
mörg og erfitt er að byrja
með mjög fáa. Besta hug-
myndin er kannski sú að
þeir sem hafa fjöldann,
eins og starfsfólk leikskól-
anna eða skólanna, gefðu
sér tíma til að koma
krökkum á stað, kenna
reglurnar. Eg veit að oft á
vorin þegar gott er veður
fara kennarar út með
nemendur sína kanski í
einn tíma, svona til að
breyta til, og væri þá ekki
sniðugt að kenna ein-
hverja leiki, ekki bara
fara í fótbolta eða hand-
bolta þar sem keppnin og
rígurinn er meiri. Sama á
leikskólum þar sem eru
oft langar útiverur, hvað
með elstu krakkana, þá er
vel hægt að virkja í ýmsa
leiki og veit ég reyndar að
það er gert sums staðar.
Krökkum finnast skipu-
lagðir leikir ennþá
skemmtilegir, þeir eru
ekkert gamaldags, þeir
ættu frekar að vera orðnir
sígildir.
Erna Björk Jónsdóttir.
Óánægja með Sjálf-
stæðisflokkinn
EG er gamall sjómaður og
byrjaði til sjós 15 ára
gamall og hef unnið þar að
mestu leyti síðan. Þessi
gjafakvóti er alveg út í
hött og ætti að afnema
hann strax. Það sem ég
hef heyrt frá forsætisráð-
herra er ekkert annað en
hroki út í önnur framboð
sem vilja koma þessu rétt-
lætismáli á réttan kjöl.
Formaður LIU stjómar
þessu í gegnum Sjálfstæð-
isflokkinn sem hefur
mörgum sinnum átt þátt í
að taka af okkur sjómönn-
um þeim sjálfsögðu mann-
réttindum að geta farið í
verkfall. Trygging undir-
manna á fiskiskipum er
um 80.000 þús kr. á mán-
uði og ef lítið veiðist sem
oft er em þetta okkar
einu laun. Svo taia margir
um hvað við höfum það
gott. Við vinnum myrkr-
anna á milli, langar úti-
vistir og lítil frí. Við emm
oft svo þreyttir að við not-
um þennan stutta frítíma
til að sofa og hvíla okkur.
Einn morguninn kom í
póstkassann hjá mér blað
frá Sjálfstæðisflokknum
þar sem þeir bjóða til
grillveislu og stóð þar
stórum stöfum „Affysum
veisluhöldum vinstri-
manna“. Þar hæla þeir sér
m.a. af því að þeir hafi
lækkað erlendar skuldir
sem er hin mesta vitleysa.
Þeir slá ryki í augu kjós-
enda til að veiða atkvæði.
Sjálfstæðisflokkurinn
var góður flokkur sem ég
kaus en núna er hann bú-
inn, því miður, að missa
allt niður um sig. Þetta er
flokkur mikillar fyrirlitn-
ingar á láglaunafólki,
öldruðum og öryrkjum og
því ætla ég ekki að kjósa
hann.
Oánægður sjöniaður.
Bók um spákonur með
kristilega reynslu
GUÐFINNA Jónsdóttir
hafði samband við Velvak-
anda og vildi auglýsa eftir
skrifum spákvenna sem
hefðu orðið fyrir kristi-
legri reynslu. Hún er að
skrifa bók um þetta efni
og sagði hana þannig upp-
byggða að hver kafli væri
sjálfstæður og merktum
þeim sem skrifuðu, svipað
Biblíunni. Heimilisfang
Guðfinnu er: Skútagerði
2, Gili, 600 Akureyri.
Góður
þáttur
„ÞETTA helst", þáttur í
umsjá Hildar Helgu Sig-
urðardóttur, er lokið í bili.
Eg vil þakka góðan þátt,
allan léttleika sem honum
fylgdi og komst ég oft í
gott skap við að hlusta á
hann. Samstarfsfólki
Hildar þakka ég líka. Þið
eruð öll frábær. I von um
að sjá ykkur aftur í haust.
Kærar kveðjur.
Húsmóðir.
Tapað/fundið
Vasalmífur
í óskilum
VASAHNÍFUR fannst sl.
þriðjudag við Valhúsgögn
í Armúla. Upplýsingar í
síma 562 0141.
Lyklar
fundust
LYKLAR fundust í
Mjódd sl. miðvikudag.
Uppl. í síma 587 2147.
Dýrahald
Mjása vantar
gott heimili
ELLEFU mánaða hvítan
högna sárvantar gott
heimili. Mjási er kassa-
vanur og þrifinn. Uppl. í
síma 588 7388.
Síamsköttur
tapaðist
SÍAMSFRESS tapaðist
frá Hagamel 50. Köttur-
inn er eyrnamerktur R-
7115. Uppl. í síma
551 1894 eða Kattholt.
Páfagaukur
í óskilum
BLÁR páfagaukur fannst
við Reykás í Árbæ sl. mið-
vikudag. Upplýsingar í
síma 567 2026.
Læða
í óskilum
LÆÐA hvít á bringu og
fótum en gul og grá á baki
og haus, fannst í Bústaða-
hverfi fyrir 2 vikum. Upp-
lýsingar í síma 568 1324.
Víkverji skrifar...
VÍKVERJI fer víða. Á dögunum
kom hann ásamt konu sinni til
Amstei-dam á leið heim eftir mikið
ferðalag. Til Amsterdam var komið
með lest og á brautarstöðinni var
farið að leita hótels fyrir nóttina,
en heim skyldi flogið daginn eftir.
Á brautarstöðinni á Schiphol-flug-
velli er borð með upplýsingum um
hótel og hægt að hringja beint í
þau. Hafizt var handa við hringing-
ar, bjartsýni um bærilegan gisti-
stað fór hratt þverrandi. Alls stað-
ar var sama svarið. Við erum full-
bókuð. Á einu hótelanna var Vík-
verja þá bent á að tala við upplýs-
ingaþjónustu fyrir ferðamenn á
brautarstöðinni. Þangað var arkað,
en litlu betra tók við þar. Þeir gátu
útvegað tvö herbergi á Sheraton
við flugvöllinn, Annað kostaði
40.000 nóttin, hitt 60.000. Að auki
var hægt að útvega gistingu í Den
Haag á viðráðanlegu verði, en
leigubíll fram og til baka gerði
þann kost einnig vægast sagt óað-
gengilegan.
Nú voru góð ráð dýr. Skötuhjúin
ákváðu að setjast niður, fá sér
hressingu og hugsa málið. Á veit-
ingastaðnum var hringt í Flugleiðir
og þar reyndi ung stúlka að lið-
sinna okkur, en án árangurs. Vík-
verji og frú voru því farin að líta í
kringum sig eftir sæmilegum bekk
fyrir nóttina. Utlitið var svart, en
þá hugkvæmdist Víkverja að fara
aftur á upplýsingamiðstöð ferða-
manna og spyijast fyrir um
heimagistingu, farfuglaheimili,
kráargistingu eða eitthvað af því
taginu. Nei, uppiýsingamiðstöðin
bauð ferðamönnum ekki upp á
slíka kosti, en benti á alþjóðlegu
bókunarþjónustuna. Þar sagði
sjálfvirkur símsvari að búið væri að
loka.
Víkverji var aumur þegar hann
snéri til baka til að færa konu sinni
hinar slæmu fréttir og velti því fyr-
ir sér hvort ekki væri reynandi að
taka bílaleigubíl á flugvellinum og
sofa í honum. Það væri skársti
kosturinn í stöðunni. Konu sína
fann Víkverji í búð rétt hjá upplýs-
ingamiðstöðinni, sem heitir
ARTitlS og var hún að kaupa boli
á bamabörnin. Þau tóku tal saman,
en þá vatt sér að þeim deldökk af-
greiðslustúlka og spurði á ensku
hvort þau væru íslenzk. Það var
vissulega viðurkennt enda þjóð-
arstoltið í lagi þrátt fyrir ógöng-
urnar. Stúlkan sagði þá að íslenzk
kona ætti búðina og heiti hún
Gerður Pálmadóttir. Þá dró heldur
betur ský frá sólu og Víkverji benti
henni á að hann væri náskyldur
þessari ágætu konu og spurði hvar
hægt væri að ná í hana. Það reynd-
ist örðugt þar sem hún var stödd í
Bangladesh í viðskiptaerindum, en
Svana dóttir hennar væri í borg-
inni. Eftir nokkurt hik gaf stúlkan
Víkverja símanúmer Svönu, sem
ekki vissi hvar á sig stóð veðrið,
þegar hann hringdi, sagðist vera
frændi hennar og spurði hvort hún
kynni einhver ráð til þess að út-
vega hótelherbergi í borginni.
Þrátt fyrir að kunna engin deili á
þessum frænda sínum, sagðist hún
telja það auðvelt mál og bað hann
að hringja eftir hálftíma. Að lokinni
tilskilinni spennuþninginni bið, var
hringt á ný og jú, vissulega hafði
hún fundið hótel fyrir ferðalangana
á „viðunandi" verði, um 12.000
krónur. Leigubíll fram og til baka
kostaði svo um 5.000 krónur.
Áhyggjurnar hurfu þrátt fyrir um-
talsverð fjárútlát og vel var sofið
um nóttina.
Víkverji og kona hans era Svönu
Gunnarsdóttur og starfsstúlku
hennar ákaflega þakklát fyrir
þenna mikilvæga greiða. Þetta
sýnir hve tilviljanir einar geta
bjargað mikiu og leitt til mikils.
Það er nánast eins og manni sé í
raun ætlað fyrir fram að lenda á
einhverjum stað, lenda í einhverju
eða hitta einhvern, sem maður hef-
ur hvorki séð né þekkt, og slík at-
vik geti svo breytt framvindu mála
með misafgerandi hætti.
Þetta atvik vekur mann einnig til
umhugsunar um það hve upplýs-
ingum til ferðamanna getur verið
ábótavant. I þessu tilviki hafði upp-
lýsingamiðstöð ferðamanna aðeins
upplýsingar um betri hótelin. Vafa-
laust þurfa hótelin að borga eitt-
hvað fyrir að vera á lista miðstöðv-
aiinnar, en með þessum hætti er
fjarri því að verið sé að þjóna hags-
munum ferðamanna. Þvert á móti
er verið að beina þeim í eins dýra
gistingu og mögulegt er. Það er fá-
ránlegt að ekki skuli vera hægt að
fá upplýsingar um ódýrari kosti
eins og hina dýrari. Hvernig skyldi
þessu vera háttað hér á landi?