Morgunblaðið - 04.05.1999, Page 80
80 ÞRIÐJUDAGUR 4. MAÍ 1999
MORGUNBLAÐIÐ
Stutt
Japanir vilja
verða smiðir
JAPÖNSK ungmenni vilja
fremur líta til jarðbundinna og
hagkvæmra starfa í dag nú
þegar þjóðin hefur búið við
mikinn afturkipp í efnahagslíf-
inu um nokkurt skeið. Ungir
Japanir vilja nú frekar munda
hamar og nagla en ferðast um
með stresstösku og klæðast
jakkafötum og bindi. Smiðs-
starfið var vinsælasta starfið
samkvæmt nýrri skoðanakönn-
un meðal japanskra barna, en í
könnun sem gerð var á síðasta
ári var sama starf í tíunda
sæti.
Sjá má á könnuninni að lítill
hagvöxtur í landinu hefur liaft
mikil áhrif á börnin því störf
sem gera ráð fyrir góðu gengi í
þjóðfélaginu voru neðar á vin-
sældalistanum en í fyrri könn-
unum.
Samanburður
við brjost
STÆRSTA stórmarkaðskeðja
Bretlands, Tesco, hefur farið þess
á leit við melónuræktendur að
þróa smærri afbrigði af ávextinum.
Astæðan er nýleg könnun sem
sýndi að kvenkyns kaupendur
bæra ósjálfrátt stærð melónanna
við brjóst sín. Könnunin sýndi að
sjö konur af hverjum tíu töldu að
brjóstastærð hefði áhrif á undir-
meðvitundina við valið á ávöxtun-
um og nú væri stórum brjóstum
ekki jafn mikið hampað og oft áð-
ur.
„Við vorum mjög undrandi yfir
niðurstöðum könnunarinnar,"
sagði talsmaður Tesco. „En eftir
að við fórum að selja smærri
melónur hefur salan aukist gífur-
lega.“
Skildu barnið
eftir í geymslu-
hólfi
JAPANSKT par skildi fímm
mánaða dóttur sína eftir í
geymsluhólfi á lestarstöð í
Kawasaki rétt fyrir utan Tokyo
á meðan þau fóru að borða á
kínverskum veitingastað seint
um kvöld. Dóttirin fannst
ósködduð tæpum klukkutíma
síðar. Foreldrarnir sem eru
rúmlega tvítugir sögðu lögregl-
unni að þeir hefðu haldið að
barnið væri öruggt þar sem loft
komst inn í geymsluhólfið. Nöfn
þeirra hafa ekki verið gefin
upp í fjölmiðlum.
„Þau hafa ekki verið hand-
tekin vegna þess að á þessari
stundu getum við ekki kært þau
fyrir neitt annað en slæma
dómgreind, en við erum ennþá
að rannsaka málið,“ sagði lög-
reglukona í samtali við
JKeuters-fréttastofuna.
Blikkandi
gerviauga
ÞÝSKIR læknar í Humboldt-
háskólanum í Berlín hafa hannað
gerviauga sem blikkar á sama tíma
og náttúrulega augað, segir í
læknaritinu Lancet. Gei*viaugu
hafa hingað til þótt óeðlileg vegna
þess að þau hreyfast lítið sem ekk-
ert. Nýja gerviaugað er búið til úr
latex-efni og er örsmár mótor
tengdur við augað. Rannsóknir á
nýja gei-viauganu lofa góðu og hafa
sýnt að það fylgir hreyfingum eðli-
lega augans alveg eftir.
FÓLK í FRÉTTUM
VINSÆLUSTU
MYNDBÖNDIN
A ISLANDiri, a
Nr. vor vikur Mynd Útgefondi Tegund
1. Jv 4 There's Something About Nlory Skífan Gaman
2. 3. 2 The Trumon Show Cic myndbönd Gaman
3. 2. 3 Snake Eyes Sam myndbönd Spenna
4. NÝ 1 Toxi Hóskólabíó Spenna
5. 4. 5 Rush Hour Myndform Gaman
6. 5. 7 Out of Sight Cic myndbönd Gaman
7. 9. 2 Con't Hardly Woit Skífan Gaman
8. 11. 2 Spanish Prisoner Myndform Spenna
9. NÝ 1 Thunderboh Skífan Spenna
10. 8. 3 Apt Pupil Skífan Spenna
11. 6. 4 KnockOff Myndform Spenna
12. 7. 8 Dr. Dolittle Skífan Goman
13. 16. 2 Real Blonde Hóskólabió Gaman
14. NÝ 1 Last Days of Disco Warner myndir Gaman
15. 10. 4 Savior Bergvík Spenna
16. NÝ 1 Dirty Work Warner myndir Gaman
17. 12. 6 The Horse Whisperer Sam myndbönd Drama
18. 14. 3 Chairmon of the Board Stjörnubíó Gaman
19. 13. 6 Halloween: H20 Skífan Spenna
20. 19. 5 Wishmaster Sam myndbönd Spenna
CAMERON Diaz sló eftirminnilega í gegn í Það er eitthvað við Maríu.
Ó María!
ÞAÐ ER löngu ljóst að eitthvað
sjá menn við Maríu-sem fékk
gríðarlega aðsókn í kvikmynda-
húsum hérlendis og hefur nú
trónað í efsta sæti myndbanda-
listans í mánuð. Þessi stór-
slysagamanmynd heldur sínu
þótt margar afbragðsmyndir
keppi um hituna eins og Truman-
þátturinn og Ut úr sýn. Franska
myndin Taxi er úr smiðju Luc
Besson þótt Gerard Piers vermi
leikstjórastólinn og skýst hún
beint í ljórða sæti yfir vinsælustu
myndböndin á Islandi sína fyrstu
viku á lista. Þrjár aðrar nýjar
myndir ná inn á listann, Thund-
erbolt með slagsmálakappanum
Jackie Chan, Last I);iys of Disco
með þokkagyðjunum Chloe
Sevigny og Kate Bekinsale og
loks Dirty Work með gamanleik-
urunum Norm McDonald og
Chevy Chase.
Oliver
DÝRSLEGT aðdráttarafl og háska-
leg hegðun eiga sjaldan við um hina
yfirveguðu bresku leikarastétt en
hvort tveggja var ríkur þáttur í
breska leikaranum og vandræða-
seggnum Oliver Reed sem lést um
helgina úr hjartaáfalli á krá í
Vanilla á Möltu. Hann var 61 árs.
Oskarsverðlaunaleikkonan og
ráðherra Verkamannaflokksins
Glenda Jackson lék á móti Reed í
myndinni Ástfangnar konur eða
„Women in Love“. Hún lýsti honum
eftir andlát hans sem „óaðfinnan-
legum fagmanni“. „Þegar hann var
fyrir framan myndavélina komst
ekkert annað að en vinnan. Mér
þykir afar leitt að hann sé fallinn
frá, en líklega fór hann á þann veg
sem hann helst óskaði sér.“
Vissulega er það gráglettni örlag-
anna að Reed skuli hafa skilið við á
krá enda var eitt sinn haft eftir hon-
um að hann iðraðist aðeins eins: „Að
ég skuli ekki hafi drukkið hverja
krá þurra og sofið með öllum kon-
um á jarðríki."
Goðsögn í slúðurblöðum
Oliver Reed lék í 53 kvikmyndum
á ferlinum, hafði mikla útgeislun og
þótti bera af í framsögn. Myndir
hans voru af ólíku sauðahúsi þótt
flestar ættu þær það sammerkt að
Reedyar í hlutverki þorparans, allt
frá Ástföngnum konum þar sem
hann gh'mdi nakinn við Alan Bates
og varð þess heiðurs aðnjótandi að
vera fyrsti karlleikari sem sýndi á
sér tippið í víðdreifðri kvikmynd til
fjölskyldusöngleiksins Oliver! og
„Castaway" sem fjallar um mann
sem dvelur ár með ungu ljóskunni
Girl Friday (Amanda Donohoe) á
eyðieyju.
Reed lék í sinni fyrstu kvikmynd
árið 1960 og fékk fyrsta aðalhlut-
verkið ári síðar í Bölvun varúlfsins.
Einna eftirminnilegust er túlkun
hans á fylliraftinum ofbeldishneigða
Bill Sykes í Oliver! sem gerð var
eftir sígildri sögu Oliver Twist eftir
Charles Dickens.
Með árunum fóru svallveislur og
drykkjuævintýri hans að skyggja á
leikferilinn og smám saman varð
hann goðsögn í breskum slúður-
blöðum. Frægt er orðið þegar hann
bauð 36 ruðningsleikmönnum í gleð-
skap heim til sín árið 1974. Frá
iaugardagskvöldi fram á hádegi á
sunnudegi innbyrgðu þeir um 30
lítra af bjór, 32 viskíflöskur, 17 gin-
flöskur og fjóra kassa af víni. Sam-
kvæmið náði hápunkti þegar allir
klæddu sig úr hverri hverri spjör og
skokkuðu um nágrennið með Reed í
broddi fylkingar."
Reed lést um helgina
HÖRKUTÓLIÐ Oliver Reed á góðgerðaruppákomu þar sem gestir greiddu fyrir þau forréttindi að fá að
kasta blautum svampi í hann. Ef til vill hefði verið við hæfi, þegar Reed var annars vegar, að þeir væru
bleyttir upp í viskíi.
BRESKI leikarinn Oliver Reed með eiginkonu sinni Josephine árið
1993.
Af ótal svipuðum atvikum má
einnig nefna þegar Reed kom fram í
spjallþættinum Eftir myrkur á
bresku sjónvarpsstöðinni Channel
4. Þar drakk hann bjór ótæpilega,
hellti sér yfir aðra gesti, reyndi að
kyssa bandaríska femínistann Kate
Millet og neitaði að yfirgefa upp-
tökusalinn. Margar sjónvarpsstöðv-
ar settu hann á bannlista eftir þetta.
Þegar Glenda Jackson var spurð
hvort Reed hefði átt við drykkju-
vandamál að stríða svaraði hún:
„Hann hefði ekki litið svo á. Hann
átti í engum vandræðum með
áfengi."
Rekinn úr fjórtán skólutn
Oliver Reed fæddist 13. febrúar
árið 1938 í London og var aðeins
fjögurra ára þegar hann var sendur
fyrst í heimavistarskóla. A æskuár-
um sínum leið hann fyrir langvar-
andi ósætti foreldra sinna sem lauk
með harðvítugum skilnaði. Ekki tók
betra við á unglingsárunum þegar
hann lenti tíðum í slagsmálum og
byrjaði í hnefaleikum. Var brátt svo
komið fyiár honum að allir fingur
hans voru bognir eftir að hafa
margbrotnað í róstum.
Reed var aldrei fyrirmyndar
nemandi, var rekinn úr fjórtán skól-
um og hætti skólagöngunni 17 ára.
Hann hafði engan hug á því að
leggja leiklistina fyrir sig, strauk að
heiman og hafði lifibrauð af leigu-
bílaakstri, hnefaleikum og útkast-
arastarfi á fatafellubúllu í London.
Hann spreytti sig einnig á her-
mennsku en fór ekki út í leiklist
fyrr en hann uppgötvaði að fiestir
drykkjufélagar hans þénuðu vel
sem aukaleikarar.
Hann bjó með eiginkonu sinni
Josephine á írlandi til dauðadags,
en þau kynntust þegar hann var 42
ára og hún var 16 ára. Fjölmiðlar
höfðu ekki mikla trú á sambandinu
en það gekk stórslysalaust fyrir sig
ef undan er skilið að Reed þurfti að
grafa upp níu ekrur í garðinum við
heimili þeirra þegar hann gleymdi
hvar hann hafði grafíð skartgripina
hennar á fyllerli. Hann átti tvö börn
úr fyrri samböndum.