Morgunblaðið - 18.05.1999, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 18. MAÍ 1999 35
LISTIR
Margl býr í
hrukkunum
MYIVPLIST
Listasafn íslands
TEIKNINGAR
JÓHANNES S. KJARVAL
Til 24. maí. Opið þriðjudaga til
sunnudaga frá kl. 11-17. Aðgangur
kr. 300. Ókeypis miðvikudaga.
ÞAÐ er engu líkara en Kjarval
hafi verið að prófa fjölbreytileik
tækni sinnar þegar hann teiknaði
borgfirsku andlitin 53 fyrir sjötíu
og þrem árum. Tveim árum síðar -
1928 - keypti menntamálaráð
myndröðina fyrir 5000 krónur og
kostaði með því Parísarferð lista-
mannsins og nokkra mánaða uppi-
hald hans þar. Þannig má segja að
sveitungar Kjai’vals hafi átt sinn
þátt í að koma honum til Signu-
bakka þar sem hann endurnýjaði
kynni sín af eftirlætislist sinni og
safnaði kröftum fyrir átök sín við
íslenska náttúru.
Það er eins og Kjarval hafi verið
að votta þessu fólki virðingu sína
með uppátækinu, en um leið hljóta
sýningargestir að velta því fyrir
sér hvort fyrirsætumar hafi allar
verið jafnánægðar með framtak
listamannsins. An þess að fullyrða
nokkuð þá er ekki annað að sjá en
listamaðurinn hafi þurft að beita
mannskapinn fortölum áður en
hann skrásetti hann. Svipur sumra
lýsir allt öðru en ánægju, enda
hljóta menn að hafa spurt sig um
tilgang listamannsins, og efast ef
til vill um ágæti hans.
Fyrir vikið er myndröðin einstök
og ólík öllu því sem eftir kom í ís-
lenskri listasögu nema ef vera
kynni mannamyndum Gunnlaugs
Scheving, en svo sérkennilega vill
til að báðir - Kjarval og Scheving -
voru aldir upp undir sama fjalla-
hringnum. Þvi hljótum við að
spyrja hvaða undur það sé eigin-
lega austan Selfljóts sem kveiki
með listamönnum þörf fyrir að lýsa
landslaginu í andlitum samferða-
manna sinna með þeim hætti sem
þeir gerðu félagarnir.
Þótt nú sé tiltölulega greiðfært
um Hjaltastaðaþinghá og Vatns-
skarð var það ekki svo þegar Kjar-
val óx úr grasi í Njarðvík og Schev-
ing í Unaósi. Væri eitthvað á hjara
veraldar voru það þessar af-
skekktu byggðir. Það gefur auga
leið að börn sem ólust upp við slík-
ar aðstæður hljóta að hafa talið
manneskjurnar kringum sig til of-
urmenna frekar en venjulegs fólks.
Hvernig áttu menn að komast af
við slíkar aðstæður ef þeir voru
ekki að hluta til af kyni trölla eða
huldufólks?
Þetta er trúlega kjarninn í
mannamyndunum sem mennta-
málaráð keypti fyrir Listasafn ís-
lands árið 1928. Listamaðurinn var
að skrásetja ofurmennin; þetta
undarlega úfna kyn sem hélt sig
EIRIKUR Sigfússon, kaupmað-
ur, Bakkagerði.
BALDVIN Jóhannesson
umhverfis Álfaborgina við rætur
Dyrfjalla. Þetta fólk er álíka meitl-
að og mikilúðlegt og Stórurðin í
Urðardal Héraðsmegin við Dyrn-
ar. Með svínshárapenslinum hálf-
þurrum tókst listamanninum að
hamra til andlit þess eins og væri
það einstæðir klettadrangar.
Hvergi er merkjanlegur bak-
grunnur; einungis þunnt vask. Oft-
ast er þó pappírinn auður. Andlitin
vaxa fram eins og dökkir svipir,
horfandi beint fram, eða á hlið í
fullkomnum prófíl. Fæstir eru þar í
milli þótt það sé oftast vaninn þeg-
AÐALBJÖRG Björnsdóttir
ar andlit eru teiknuð. Svo skorinort
andlitsstaða eykur mjög á þann af-
gerandi svip sem hvílir yfir
myndröðinni. Fyrirsæturnar eru
fullkomlega í sínum heimi án þess
að virða listamanninn viðlits. Jafn-
vel þótt ungviðið stari beint í augu
okkar er það eins fjarri og heima-
hagarnir. Þannig tókst Kjarval að
skrásetja byggðina austan Uthér-
aðs líkt og væri hún honum minn-
ing þá þegar.
Þar skilur einmitt milli teikning-
ar og ljósmyndar, og má þá skilja
hvers vegna Henri Cartier-
Bresson - hinn þekkti franski ljós-
myndari - tók upp teiknigræjurnar
til að hvíla sig á myndavélinni. Það
sem auga myndavélarinnar nær
ekki er sagan sem listamaðurinn
þekkti svo vel. Kjarval hafði minni
sem myndavélin hefur ekki og þar
með gat hann ekki gert andlitunum
að austan sömu skil og ljósmynda-
tæknin. Hann gat ekki útilokað úr
teikningunum það sem hann vissi
um þetta fólk. Kynni hans af því
hlutu að stýra penslinum, að
minnsta kosti að hálfu leyti. Það
eru þessi einkenni sem gera
myndröðina frá 1926 svo einstæða
sem raun ber vitni.
Halldór Björn Runólfsson
Martröð
foreldris
KVIKMYNPIR
Stjörnubfó
THE DEEP END OF THE OCEAN
irk
Leikstjórn: Ulu Grosbard. Handrit:
Jacquelyn Mitchard og Stephen
Schiff. Aðalhlutverk: Michelle Pfeif-
fer, Treat Williams, Whoopy Gold-
berg, Jonathan Jackson, Ryan
Merriman, Tony Musant og Michael
McElroy.
MICHELLE Pfeiffer leikur Beth,
þriggja barna móður sem ætlar að
taka börnin sín með sér á útskrift-
arafmæli. Eina stund lítur hún af
þeim og þá er Ben litla rænt. Hefst
nú viðamikil leit að drengnum, og
verða endurfundirnir óvæntir.
Máltækið margnýtta „aðgát skal
höfð í nærveru sálar“, lýsir vel boð-
skap þessarar myndar. Það er lítið
verra hægt að leggja á foreldri en að
týna baminu sínu, og þýðir vitanlega
miklar sálarkvalir fyrir viðkomandi,
en þær verða að taka enda. Beth get-
ur hins vegar ekki hætt að vorkenna
sér, gleymir að sinna hinum börnun-
um sínum og að rækta hjónabandið.
Og refsar þannig í rauninni fjöl-
skyldunni sinni fyrir þennan hörm-
ungaratburð. Hún hefði ekki átt að
vera svona eigingjörn að geta ekki
litið í kringum sig og skilið að það
eru fleiri en hún sem þjást.
Myndin lýsir vel viðbrögðum fólks
í svona aðstöðu, og líkist eiginlega
leikinni fræðslumynd í stað kvik-
myndar. Hún er býsna fyrirsjáanleg
og sviftingalítil. En hún er vönduð á
allan hátt og leikurinn góður.
Hildur Loftsdóttir
foO |-ie=*s.1-öPI
fyrlr I.8c2c3.000 kr.
3d Civic 1.6 VTi - VTEC
160hestöfl, 16ventla,ABS,tveirloftpúðar, 15“ álfelgur, rafdrifin
sóllúga, vindskeið með bremsuljósi, leðurstýri, sportinnrétting,
fjarstýrðar samlæsingar. rafdrifnar rúður og speglar, hiti I
speglum.
(1.829.00010!)
+ - -
f 4d cívic 1.6 vn - vrec
160 hestöfl, 16 ventla, ABS, tveir loftpúðar, 15’ álfelgur, rafdrlfin
sóllúga, leðurstýri, sportinnrétting, fjarstýrðar samlæsingar,
rafdrifnar rúður og speglar, hiti i speglum.
11.82g.OQolöf)
- betri bíll
Honda á Islandi ■ Vetnagöröum 24 ■ Simi 520 1100
Opiö virka daga kl. 3-18 og kl. 12-16 6 laugardögum.
www.honda.is
Umbodsmenn Honda á Islandi:
Sundahdfn
iMJ X,: •illkea
Sa-braut ®
Akranes: Bilver sf., Akursbraut 11c, slmi 431 1985. Akureyri: Höldur hf„ Tryggvabraut 12,
sími 461 3000. Egilsstaðir: Bíla- og búvélasalan hf„ Miöási 19, sími 4712011. Kettavik: BG
Bllakringlan ehf., Grófinni 7-8, stmi 421 1200. Vestmannaeyjar. Bíla-verkstæðiö Bragginn,
Flötum 20, simi 481 1535.