Morgunblaðið - 18.05.1999, Blaðsíða 66
66 ÞRIÐJUDAGUR 18. MAÍ 1999
MORGUNBLAÐIÐ
Dýraglens
So+t, mig er farið
aá kenna til <
í andlitinu
I GÆft HEYRÖIE6 EINN GOÐAN...
NÁUIj^I FÓRINN í BANKA 06 SÁ.. SÁ...
"7 BÍDDU ADEINS, ÉG ER
UN§I FORINNIBANKA
FQRINNIBANKA...
BIDDU ADEINS...
Ferdinand
BREF
TIL BLAÐSINS
Kringlunni 1 103 Reykjavík • Sími 569 1100 • Símbréf 569 1329
Siðferði stjórn-
málamanna
Frá Sigurði R. Þórðarsyni:
ÞAÐ ER dapurlegt að horfa upp á
sjálfan forsætisráðherra þjóðarinnar
telja sig knúinn til að leggjast í vöm
vegna taps Framsóknarflokksins í
kosningunum á sjálfa kosninganótt-
ina og daginn eftir. Hér er átt við
ummæli forsætisráðherra um hina
meintu aðfór að utanríkisráðherra,
vegna kvótaeignar fjölskyldu hans á
Höfn, og væntanlegrar hlutdeildar
utanríkisráðherra í milljarða kvóta-
arfí.
Þær eru sérkennilegar mælistik-
urnar sem virðast gilda í stjórnmál-
um, þegar á jafn opinskáan hátt er
horft framhjá jafn augljósum hags-
munaárekstrum og hér eru á ferð-
inni og forsætisráðherra lætur sér
sæma að skamma fjölmiðla fyrir.
íslendingum er tamt að bera sig
saman við frændþjóðimar á Norður-
löndunum. Þar höfum við mörg dæmi
um stjómmálamenn sem hafa orðið
að segja af sér áhrifastöðum innan
sinna flokka og í stjómmálum. T.d.
Monika Selen, sem varð að segja af
sér, þegar hún var orðin forsætisráð-
herraefni sænska Jafnaðarmanna-
flokksins, vegna þess að hún hafði
notað kreditkort embættis síns til að
kaupa bleiur á nýfædda dóttur sína.
Ritt Bjærregaard sagði af sér ráð-
herradómi í danska þinginu fyrir
nokkrum árum, vegna þess að hún
hafði keypt silkislæðu í París fyrir
opinbera fjármuni. Guðrún Helga-
dóttir fékk alvarlegar ákúrur, án
þess þó að missa starfið sem þing-
maður, fyrir að hafa fengið lán frá
launadeild Alþingis til að kaupa kjól.
Sverrir Hermannsson var sviptur
embætti og æm, fyrir að hafa tekið
þátt í hefðbundnum veisluhöldum
fyrirrennara og meðreiðarsveina
sinna í Landsbankanum. Forsætis-
ráðherra sá ekki ástæðu til að nefna
aðförina að honum, þrátt fyrir að fjöl-
miðlum tækist, á sérdeilis áhrifarík-
an hátt, að gera brotthvarf Sverris
Hermannssonar úr bankanum að að-
alkosningamáli Frjálslynda flokks-
ins. I þeim slag var heldur aldrei
nefnt, að þegar upp var staðið átti
bankinn ekkert sökótt við Sverri.
Munurinn á þeim ávirðingum sem
beint hefur verið að Halldóri As-
grímssyni og Sverri Hermannssyni
er sá, að hinn síðarnefndi settist að
allsnægtaborði spillingar, sem verið
hafði við lýði um langan aldur í
Landsbanka Islands, sást ekki fyrir
og fór að eins og hinir. Halldór Ás-
grímsson fór hins vegar fyrh’ hópi
hagsmunaaðila, sem undir því yfir-
skini að koma ofveiddum fískistofn-
um til vemdar hefur nú rænt þjóðina
sameiginlegri auðlind sinni, fiski-
stofnunum eins og þeir leggja sig.
Að mínu áliti skiptir það engu máli
hvort Halldór Asgrímsson er skrif-
aður fyrir eins eða tíu prósenta hlut í
fjölskyldufyrirtækinu Borgey á
Hornafirði, hann hefur frá fyrsta
degi hinnar pólitísku umræðu um
löggjöf varðandi kvótakerfið verið
bullandi vanhæfur til verksins. Ef
þessi eyþjóð okkar byggi við einhver
viðlíka siðferðistakmörk og ná-
grannaþjóðir okkar væri Halldór As-
grímsson löngu fokinn úr störfum
hjá hinu opinbera. Það eru sterkar
líkur á að starfandi forsætisráðherra
í nágrannalöndunum hefði ekki farið
út á þær brautir að verja kollega
sinn í þessari stöðu, enda gæti hann
þá átt von á að fara sömu leið. Það er
greinilegt að þjóðin verður víst enn
um hríð að búa við einhverja alveg
séríslenska siðferðisstaðla, sem ekki
ganga annars staðar. Islenska þjóðin
þarfnast nýrra viðhorfa í þessum
efnum, sem kannski koma með nýj-
um stjórnarherrum framtíðarinnar.
Á meðan getur hún beðið og vonað
að núverandi stjórnarherrar efni
kosningaloforðin til sátta um fisk-
veiðistjórnunina og kvótakerfið.
SIGURÐUR R. ÞÓRÐARSON,
matvælafræðingur.
Þetta kallast „egg í runnanum" Maður reynir að giska á hve .. klónum
margar marmarakúlur hinn
aðilinn er með í hendinni..
Misheppnað dulargervi
íslenskrar öfundar
Frá Leó M. Jónssyni:
SUNNUDAGSKVÖLDIÐ .2. maí
mættust til kappræðna á Stöð 2 þeir
Sigmundur Guðbjarnason, dr. rer
nat. efnaverkfræðingur og fyrrver-
andi rektor HÍ, og dr. Kári Stefáns-
son, læknir og forstjóri íslenskrar
erfðagreiningar ehf. Umræðuefnið
var „Miðlægur gagnagrunnur" og
málefni honum tengd.
Ég tek ofan fyrir Kára Stefáns-
syni. Málflutningur hans var til fyr-
irmyndar, að mínum dómi; hann
svaraði spurningum málefnalega og
skýrði ýmis atriði á rökrænan og
traustvekjandi hátt þannig að mér
fmnst ég mun betur upplýstur um
kjarna málsins varðandi þetta fram-
tak Kára og hans fyrirtækis.
Ég get ekki sagt það sama um
Sigmund Guðbjamason. Hans mál-
flutningur var ruglingslegur, óskipu-
lagður, illa fram settur auk þess sem
mér fannst blasa við að Sigmundur
hafi nánast mætt „ólesinn“ og varð
sér, sem vísindamanni, til skammar.
Sem formaður félagsskaparins
„Mannvemdar" (sem ég legg til að
verði gert að hlutafélagi og nefnt
„íslensk öfund ehf.“) stóð Sigmund-
ur á gati. Honum hafði jafnvel láðst
að lesa yfir það sem Mannvemd býð-
ur upp á á vefsíðu sinni: Þar er að
finna róg sem er ekki sæmandi fé-
lagsskap sem ætlar að stuðla að
mannvemd undir fána vísindanna.
Sigmundur Guðbjamason er ef-
laust hinn mætasti vísindamaður.
En áður en hann tekur að sér að
vera málsvari „íslenskrar öfundar“
undir flaggi Mannverndar í beinni
útsendingu í sjónvarpi ætti hann að
bregða sér á námskeið í tjáskiptum
og ræðumennsku.
LEÓ M. JÓNSSON,
Nesvegi 13, Reykjanesbæ.
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga-
safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan, hvort
sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni
til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.
3